Morgunblaðið - 28.10.2013, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.10.2013, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013 ✝ Elín Guð-mundsdóttir fæddist á Blesa- stöðum, Skeiðum, 10. janúar 1916. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 20. október 2013. Foreldrar henn- ar voru hjónin Kristín Jónsdóttir, f. 16. maí 1886, d. 2. september 1971 og Guð- mundur Magnússon, f. 11. maí 1878, d. 20. október 1972. Þau eignuðust 15 börn og 13 þeirra komust á legg. Auk þess átti Guðmundur dótturina Lauf- eyju, f. 20. mars 1920 með Sig- ríði Eiríksdóttur, f. 1. október 1886, d. 23. janúar 1966. Systk- ini Elínar eru Jón, f. 14. mars 1911, d. 26. febrúar 2003, Magnús, f. 17. september 1912, d. 29. júní 1997, Hermann, f. 23. ágúst 1913, d. 18. október 1980, Guðrún, f. 17. desember 1914, d. 22. mars 1997, Helga, f. 17. maí 1917, Þorbjörg, f. 1. júlí 1918, Magnea, f. 20. júlí 1919, d. 9. janúar 2000, Ingi- gerður, f. 1. febrúar 1921, stúlka, f. 10. febr- úar 1922, lést í fæðingu, Óskar, f. 1. júlí 1923, d. 1924, Svanlaug, f. 8. júlí 1924, d. 14. apríl 2007, Ingi- björg, f. 2. sept- ember 1925, Hrefna, f. 5. júlí 1927, Óskar, f. 5. maí 1929, d. 21. september 2013. Elín var ógift og barnlaus. Elín var fjóra vetur í skóla á Húsatóftum á Skeiðum og vet- urinn 1942-1943 gekk hún í kvennaskóla á Laugalandi í Eyjafirði. Elín flutti úr for- eldrahúsum 19 ára gömul, fyrst til Hafnarfjarðar í vist. Úr Hafnarfirði flutti Elín til Reykjavíkur þar sem hún bjó eftir það, lengst af í miðbæ Reykjavíkur. Elín vann lengi við saumaskap meðal annars hjá Dýrleifu Ármann og í Faco. Seinni hluta starfsævinnar vann Elín í Sjálfsbjörg við umönnun. Útför Elínar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 28. októ- ber 2013, kl. 15. Elín Guðmundsdóttir eða Ella eins og við kölluðum hana var móðursystir okkar og kom úr stórum systkinahópi frá Blesatöð- um á Skeiðum. Ung fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún bjó alla tíð síðan og vann ýmis störf, að- allega við saumaskap. Allt frá því við fluttum ungir drengir frá Stöðvarfirði til Reykjavíkur var Ella stór hluti af lífi okkar bræðra. Það var sama hvort verið væri að stytta, lengja, þrengja eða víkka flíkur, ferma, gifta, útskrifa eða skíra, þá var Ella frænka til staðar og ætíð boðin og búin að hjálpa okkur á alla lund. Hún virtist alltaf hafa tíma fyrir okkur þótt við værum langt frá því þeir einu í fjölskyld- unni sem hún rétti hjálparhönd. Þær voru ófáar ferðirnar í mat- arboð hjá Ellu á Rauðarárstíg- inn. Þegar foreldrar okkar brugðu sér út fyrir landsteinana var það Ella sem kom til okkar í Ljósalandið og sá til þess að við bræður hefðum nóg að borða og sá síðan til þess að búið væri að taka til áður en foreldrarnir kæmu aftur heim. Það sýndi best umhyggju Ellu gagnvart öðrum. Hún setti alltaf aðra í fyrsta sæti. Ella hafði létta lund og dillandi hlátur og kom öllum í gott skap. Það er trúlega ein af ástæðum þess að hún náði 97 ára aldri. Allt fram til hins síðasta fylgdist Ella með frændfólki sínu og lét sér annt um það. Hún var eins og gagnabanki þannig að ef upplýs- inga var þörf var hringt í Ellu og hún hafði svör á reiðum höndum. Með þessum fátæklegu orðum viljum við minnast góðrar og um- hyggjusamrar frænku og þakka fyrir allt sem hún gerði fyrir okk- ur af mikilli fórnfýsi. Blessuð sé minning hennar. Guðmundur, Atli, Valur og Kristján. Um leið og við þökkum Ellu frænku fyrir samfylgdina, minn- umst við hennar sem manneskju sem var dugleg, hlý og fórnfús. Ella var alin upp í stórum systk- inahópi og hjá henni varð einskon- ar miðstöð stórfjölskyldunnar, systkinabarna og frændfólks. Frændsystkinin urðu börnin hennar sem hún eignaðist ekki sjálf og gistu þau oft á hennar fal- lega heimili bæði í fríum og á skólatíma og ekki var komið að tómum kofunum hjá henni, hvorki í spjalli eða mat. Ella fylgdist allt- af vel með, var víðsýn á lífið og átti auðvelt með að setja sig í spor annarra. Það eru margir að „drífa sig“ í þessari ætt og hún Ella okkar var svo sannarlega í þeirri ætt, þar sem hugurinn bar hana hálfa leið og þegar einu verkefni var lokið var strax farið að huga að því næsta. Hún Ella var ákveðin og skemmtilegur karakter, mikill listunnandi alla tíð, bæði á óperur og leiklist. Allir áttu svo mikið í Ellu frænku, bæði fullorðnir og börn. Það voru ófáar gistinætur sem við fjölskyldan áttum hjá henni þegar við bjuggum úti á landi og tók hún ávallt á móti okk- ur með opinn faðm, uppbúin rúm og kræsingar á borðum. Hún var einstaklega gestrisin og áttum við yndislegar stundir á heimili henn- ar þar sem hún bjó í hjarta borg- arinnar. Það er ómetanlegt að hafa átt Ellu sem frænku, frænku sem sýndi stuðning í hverju sem var enda var henni ávallt umhug- að um velferð vina og fjölskyldu. Við þökkum Ellu samfylgdina og góðvildina alla tíð. Blessuð sé minning hennar. Kristín Gunnarsdóttir og fjölskylda. Okkur langar í fáum orðum að minnast Elínar móðursystur okk- ar sem við kölluðum alltaf Ellu frænku. Þegar við fluttum til Reykja- víkur unglingar utan af landi varð heimili Ellu eins og okkar annað heimili. Við vorum ekki þær einu sem sóttu í að heimsækja Ellu því heimili hennar var mjög gest- kvæmt. Ella var mjög gestrisin og kunni öðrum betur að njóta stundarinnar og búa til notalega stemningu bæði við hátíðleg tæki- færi en ekki síður hversdags. Það sem einkenndi Ellu öðru fremur var greiðvikni hennar og hjálpsemi við aðra. Hún taldi aldrei eftir sér að gera öðrum greiða og var mjög vakandi fyrir því hvar og hvernig hún gæti orð- ið að liði. Þessarar óeigingjörnu hjálpsemi nutu allir í kringum hana. Áhugamál Ellu voru fjölmörg, hún var félagslega virk og naut þess að fara á mannamót. Hún var menningarlega sinnuð og fannst gaman að fara á tónleika, í leikhús og óperur voru í sérstöku uppáhaldi. Nánast er hægt að fullyrða að hún hafi farið á allar óperur sem settar voru upp. Að fara á tónleika og í leikhús var sérstök viðhöfn hjá Ellu og punkturinn yfir i-ið var að fara heim til hennar eftir tónleika eða sýningu og ræða verkið yfir tertubita og sérrítári. Ella hafði mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum, hún fylgdist vel með öllu sem gerðist í sam- félaginu og hafði mjög gaman af að ræða um það sem var efst á baugi hverju sinni. Eins og áður hefur komið fram hafði Ella mörg áhugamál. En hennar stæsta áhugamál var samt fólkið í kringum hana. Hún sýndi fólki endalausa umhyggju og bar hag þess fyrir brjósti og var svo mikið í mun að öðrum liði vel að okkur fannst stundum að hún gleymdi sér og sínum þörfum og setti sig sjaldnast í fyrsta sæti, það gengu alltaf aðrir fyrir. Hún hafði ótrúlega yfirsýn yfir alla stórfjölskylduna og tengsl- anet hennar. Hún vissi hvað allir voru að gera, afmælisdagar, brúð- kaup, byggingarframkvæmdir, ekkert var utan hennar áhuga- sviðs. Við gátum alltaf fengið fréttir af fjölskyldumeðlimum hjá Ellu og þannig hélt hún fjölskyld- unni saman og sá til að þess að tengslin rofnuðu ekki. Það var gott að ræða við Ellu um ýmislegt sem lá á hjarta, hún var skilningsrík og víðsýn, og hægt að treysta því að það sem hún var beðin fyrir færi ekki lengra. Síðustu ár voru Ellu erfið heilsufarslega og erfitt fyrir hana að sætta sig við að geta ekki tekið þátt í því sem hún hafði áhuga á. Hugurinn var samt alltaf frjór og áhugi hennar á því sem fram fór dvínaði ekki. Okkur finnst vísa sem samin var um föður hennar og afa okkar níræðan eiga vel við hana. Úr níræðum augum áhugi og gæskan ekki mun hverfa strax. Þeir kunna að lifa sem endist æskan til ævinnar lokadags. (Bjarni Jónsson) Við munum alltaf sakna Ellu og þökkum góða og gefandi sam- fylgd. Blessuð sé minning hennar. Ósk og Þóra. Mig langar að skrifa nokkur kveðjuorð um Ellu ömmusystur mína sem var mér alltaf svo hlý og góð. Fyrstu minningar mínar um Ellu eru þegar ég var 5 ára og var svo heppin að flytja í sama hús og hún átti heima í, á Rauðarárstíg. Ég var mjög heppin að hafa hana og Ella var mér eins og amma. Það var alltaf gott að vita af Ellu uppi á næstu hæð og hún var ný- hætt að vinna og hafði endalausan tíma fyrir mig. Þegar ég var ný- byrjuð í skólanum var ég skráð á skóladagheimili en var fljót að átta mig á því að það væri miklu skemmtilegra og betra að fara heim til Ellu. Við Ella vorum oft búnar að ákveða að ég kæmi til hennar beint eftir skólann og skrapp ég þá bara í strætó og mamma alltaf jafn undrandi þegar hún kom að sækja mig og ég stungin af til Ellu. Ég og Ella höfðum alltaf nóg að gera á dag- inn, hún kenndi mér á saumavél- ina sína, ég fékk að mála á svunt- ur, steikja kleinur og oft var hún búin að hita kakó fyrir mig þegar ég kom. Hún var iðulega búin að fara út í búð áður en ég kom heim til hennar og kaupa það sem mér þótti gott og stundum var hún líka búin að leigja vídeóspólur og fékk ég þá að bjóða vinkonum mínum að koma líka. Eitt sinn þegar ég var átta ára fór hún vestur á firði í heimsókn til ömmu minnar og afa. Áður en hún fór lét hún mig fá lyklana sína svo ég gæti komið beint heim eftir skóla og var hún búin að kaupa inn til að eiga fyrir mig. Þetta var ekta Ella, alltaf svo góð og hlý. Hún Ella var mjög félagslynd og henni leið vel í kringum margt fólk. Hún var alltaf til í að bregða sér af bæ og ef hún vissi af ein- hverjum sem var að fara austur fyrir fjall skellti hún sér gjarnan með til að heimsækja ættingjana á Selfossi. Eftir að ég varð fullorðin og eignaðist börn var hún þeim sem langamma og fannst þeim stór partur af því þegar þau fóru til ömmu sinnar að kíkja á Ellu frænku í leiðinni. Hún mundi eftir öllum afmælisdögunum og gaf þeim alltaf afmælis- og jólagjafir. Elín Guðmundsdóttir ✝ Ragnar Gunn-arsson fæddist í Reykjavík 20. nóv- ember 1943. Hann lést á líknardeild Landspítalns 18. október 2013. Foreldrar Ragn- ars voru Rannveig Ingibjörg Árna- dóttir, f. 12. ágúst 1922, d. 8. apríl 1989 og Gunnar Jó- hannesson, f. 11. feb. 1919, d. 1. mars 1962. Fósturfaðir Ragnars var Jóhannes Einarsson, f. 10. ágúst 1917, d. 25. nóvember 1995. Systkini Ragnars sam- mæðra eru: Rós, Helga Rós, Margrét Rós, Jóhannes, Einar, Unnur Rós, Anna Rós, Þorkell, Elísabet Rós, Ásdís Rós, Árni Heiðar. Eftirlifandi eiginkona Ragn- ars er Guðrún Markan, f. 28. september 1944. Foreldrar eru Kristín Metta, Mikael Nói og Erik Leó. Ragnar ólst upp á Bergstaðastræti. Hann gekk í Miðbæjarskóla til 12 aldurs. Hann fór til sjós sem unglingur á varðskip, fyrst sem messagutti svo sem matsveinn. Eftir sjó- mennsku starfaði Ragnar við pípulagnir hjá tengdaföður sín- um. Árið 1976 fluttu þau hjónin til Vestmannaeyja þar sem Ragnar hóf nám í pípulögnum, síðan lá leiðin í Tækniskólann (HR) þar sem hann lærði iðn- fræði. Seinna fór hann í rekstr- arnám í HÍ. Frá árinu 1986 rak Ragnar Verkfræðistofuna Verk- vang sem síðan sameinaðist Ice- consult árið 2007. Hann var fag- maður og fræðimaður á sínu sviði sem snéri að hitastýrikerf- um og orkueftirliti. Ragnar tók virkan þátt í starfi Barnahjálpar ABC. Hann var með sjónvarpsþáttinn Kvöldljós á sjónvarpsstöðinni Omega. Ragnar starfaði á veg- um Lífsgæða sem eru þver- kirkjuleg samtök með nám- skeiðahaldi í mörg ár. Útför Ragnars fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 28. október 2013, kl. 13. hennar voru Hörð- ur Markan, f. 4. ágúst 1916, d. 2. mars 1987 og Guð- rún Guðlaugs- dóttir, f. 18. desem- ber 1920, d. 7. október 1978. Börn Ragnars og Guð- rúnar eru: Árni Hörður, f. 19. júlí 1963, maki Krist- jana Helga Jóns- dóttir. Börn þeirra eru Krist- björg Sóley, Brynjar Snær og Edda Marin. Fyrir átti Árni, Ragnar og Sigurbjörgu Díönu, barn hennar er Hrefna Sóley Pétursdóttir. Metta Ragn- arsdóttir, f. 17. maí 1967. Börn hennar eru Guðrún María Ís- leifsdóttir, maki Kristján Helgi Jónsson. Barn þeirra er Telma Sól. Sindri Jónsson. Elísabet Markan, f. 23. maí 1982. Maki Björn Hróbjartsson. Börn þeirra Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti að heyra að Ragn- ar uppeldissonur bróður okkar væri dáinn. Mér er það afskap- lega minnisstætt þegar ég sá Ragnar í fyrsta sinn. Jói bróðir var að kynna fyrir okkur kær- ustuna sína, en hún átti son sem var líklega fjögurra ára gamall, sem kom með henni. Þótt okkur Mæju systur þætti mikið til kær- ustunnar koma, þá vorum við hrifnari af stráknum hennar, hon- um Ragnari. Ég sé hann fyrir mér eins og það hefði gerst í gær. Hann var í hvítum sportsokkum með hvíta húfu, sem klæddi hann svo vel. Hann var svo ljúfur og elskulegur og kom eins og engill af himnum sendur til okkar. Við vorum búnar að biðja Guð svo mikið að gefa okkur bróður eða systur, en þar sem móðir okkar var komin úr barneign gekk það ekki þótt við minntum Guð á Söru. Móðir okkar tók ástfóstri við Ragnar. „Ég veit hvað er að vera tökubarn,“ sagði hún þar sem hún hafði verið send í fóstur þegar hún var aðeins tveggja ára. Henni fannst þau eiga eitthvað sameig- inlegt, þar sem hann ólst ekki upp hjá sínum eigin föður. Ragnari þótti afar vænt um mömmu og tók mamma hann oft með sér þegar hún fór í kálgarðinn, en hún elskaði að rækta garðinn sinn sem var í hrauninu í Hafnarfirði. Þar átti Ragnar mjög góðar stundir með mömmu okkar. En fljótlega eignaðist mamma hans barn með bróður mínum. Þá var ég aðeins ellefu ára. Við höfð- um aldrei áður séð svona lítið barn, enda var hún bara sjö merkur. Það var Rós, systir Ragnars, og svo bættust við nýjar Rósir á næstu árum og bræður. Ragnar ólst því upp í stórum systkinahópi. Síðar skildi leiðir okkar. Ragnar ræktaði sína fjöl- skyldu og við Mæja okkar og hitt- umst við aðeins við hátíðleg tæki- færi. Það urðu því miklir fagnaðar- fundir þegar við hittumst í Veg- inum, kristilegu trúfélagi. Þá var Ragnar með konunni sinni, henni Guðrúnu, þau höfðu fundið trúna á Jesú. Líklega hefur mamma sáð frækorni í kálgarðinum, sem dafnaði og blómstraði á réttum tíma. Eins og svo margir vita var Ragnar trúfastur við að flytja fagnaðarerindið um Jesú, þess vegna vitum við að hann er á öruggum samastað hjá Guði. Það er það dýrmætasta sem við get- um eignast. Elsku Guðrún og fjölskylda. Við biðjum Guð um að hugga ykk- ur og gefa ykkur sinn himneska frið. Fyrir hönd okkar og Mæju, Sigríður Einarsdóttir. Elsku Ragnar, vinur minn. Í minningunni var tíminn með þér við vatnið í Póllandi ógleym- anlegur, eilífur, endalaus og fal- legur. Við ræddum um börnin okkar og maka, sammæltumst um að án helgunar og trúar á Jesú Krist væri lífið innihalds- laust og hallærislegt. Við höfðum bæði reynt það og vildum ekki aftur í það svarthol tilgangsleysis. Greind þín og trú heillaði mig í fyrsta skipti sem ég hitti þig. Þú umvafðir mig kærleika og óttaðist ekki að ég var ný og sennilega ógnandi fyrir hin hefðbundna Hvítasunnumann hvað þá „Krossara“. Þú tókst frá mér ótt- ann við þetta há-„heilaga“ fólk. Sannfærðir mig um að Jesús elsk- ar alla menn og líka konur eins og mig. Þú hafðir miklar mætur á Gunnari mínum og baðst með okkur hér heima þegar illa lét. Við erum þér svo þakklát fyrir vináttu þína og Guðrúnar. Á þessum sólríka degi í Pól- landi þegar mér fannst Guð og menn hafa brugðist, fannst að þetta líf væri allt tóm þvæla og vitleysa, tókstu mig að þér. Þú hafðir óbilandi trú á að Guð væri að vinna, að allt færi vel og að réttlætið myndi sigra. Þú varst í raun sá sem barðist ekki við dauðann heldur ég. Dauðann sem skilur að mann og Guð, en ekki þetta líf og það næsta. Þú efaðist ekki um eilíft líf. Þú varst að vísu með alvarlegt krabbamein en ég með vantrúna og þessa skelfilegu áráttu mína og margra annarra að gera allt í eigin mætti. Þú bannaðir mér það en síðar þann dag gátum við hleg- ið að heimsku mannsins og þeirri tilfinningu minni að máttur minn stæðist alveg mátt Guðs, í það minnsta stundum að kristið fólk afsakaði oft leti sína með því að þykjast hvíla í Guði. Þú hafðir gaman af þessum pælingum mín- um og hlóst mikið. Vatnið var spegilslétt, sólin skein og þú hallaðir þér aftur í sundbuxunum einum klæða og sagðir: „Jónína, þú boðar trú í vinnunni þinni hér í Póllandi.“ Ég skrifaði á Facebook þetta kvöld að þrátt fyrir erfiðleika heima fyrir þá hefði ég verið blessuð með nærveru þinni og kærleika. Mig langaði að launa þér kær- leika þinn til mín þegar ég skrif- aði dóttur þinni í Noregi og bauð henni að koma til þín. En hún var komin að því að fæða og gat það ekki þrátt fyrir að langa mikið. Þá hugsaði ég, hvað annað gæti verið Ragnari þakklætisgjöf? Ég bað þig að predika fyrir hópinn. Þú talaðir um „sjálfið“. Þú kenndir okkur að deyja sjálfum okkur og endurfæðast í andanum. Í dag, er við fylgjum þér til grafar, veit ég að orðin „vertu trúr allt til dauða og Guð mun gefa þér lífsins kórónu“ eiga við alla þá sem hafa gert Jesú Krist að leiðtoga lífsins. Það á við þá mega-kristnu sem og þá smá- kristnu. Þú ert án efa krýndur lífsins kórónu kærleikans hjá föð- urnum þó ekki nema fyrir það eitt að bjarga einni sálu frá dauða og vantrú, minni. Guð blessi fjölskylduna sem þú elskaðir meira en allt annað. Þú vakir yfir þeim. Guð blessi þig, verkfræðingur, en með tárin í augunum hugsa ég til daganna í Póllandi og orða þinna: „Sérðu vatnið hérna, þeir sem halda að lífið sé tilviljun hafa ekki opnað augu sín. Guð er al- staðar og í öllu fólki.“ Jónína Benediktsdóttir. Fyrir rúmum 17 árum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast Ragnari Gunnarssyni og síðar meir að hafa þau forréttindi að fá hann í samstarf sem þátta- stjórnanda á Sjónvarpsstöðinni Omega. Ragnar var einstakur maður, stundvís og áreiðanlegur. Ávallt jákvæður og kappsamur að gera alla hluti eins vel og hægt var. Í öll þessi 17 ár þáði hann aldr- ei neina greiðslu eða umbun fyrir alla þá miklu vinnu sem hann á sig lagði við gerð þáttarins Kvöld- ljós. Ragnar Gunnarsson HINSTA KVEÐJA Táp var þitt eðli, trúr til góðs þinn vilji, stofnsettur varst þú á sterkri rót. Um þig og að þér öfl og straumar sóttu, sem brotsjór félli fjalls við rót. Orka þér entist, aldur tveggja manna, að vinna stórt og vinna rétt. Vitur og vinsæll varstu til heiðurs í þinni byggð og þinni stétt. (Einar Ben.) Með þökk fyrir allt. Guð geymi þig Raggi. Ísabella Friðgeirsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.