Morgunblaðið - 28.10.2013, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hrúturinn ætti að koma miklu í verk
í dag því hann er til í að vinna heimavinnuna
sína. Hæfileiki þinn til að breyta viðhorfum
þínum getur skapað þér ný tækifæri.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kannt að bjarga þér út úr erfiðri að-
stöðu, sem þú lendir í, en þarft þó að taka á
öllu, sem þú hefur. Skilgreining sambands er
að breytast til þess að búa til pláss fyrir
dýpri ást.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert í skapi til að skreppa í bæ-
inn og skoða gjafir handa öðrum. Aðrir reyna
að eigna sér það sem þú hefur skapað.
Hentu þér í málefni sem varða tryggingar,
reikninga og skuldir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þurfirðu að spyrja af hverju þú situr
alltaf í súpunni, skaltu íhuga framgöngu þíns
sjálfs. Haltu í trygga vini og geymdu þá í
innsta hring, þar sem þeir eiga heima.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Mundu að aðgát skal höfð í nærveru
sálar og það á ekki hvað síst við um tíma-
mót eins og þau sem nú eru að ganga í
garð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst erfitt að skipta tímanum á
milli heimilis og vinnu en þarft engu að kvíða
því þú hefur nóg þrek fyrir hvorutveggja.
Reyndu að haga seglum eftir vindi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Samræður við foreldra eru þýðing-
armiklar í dag. Leyfðu sköpunargáfunni að
njóta sín. Viljirðu sjálf/ur njóta sannmælis
ættu aðrir að njóta þess líka.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur fundið leið til að elska
þá sem hafa gert þér rangt til. Sum svörin
liggja í augum uppi, en önnur þarftu að
finna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu ekki tímann líða svo að þú
gerir ekki eitthvað skemmtilegt á hverjum
degi. Svo ef þú þarft að hressa þig við,
skaltu hugleiða smávegis.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú munt eiga alvarlegar en upp-
byggilegar samræður við foreldra þína eða
maka þinn í dag. En haltu þig á jákvæðu nót-
unum. Skynjun manns skiptir greinilega öllu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú elskar stórmenni og snilld-
arhugmyndir. Horfðu ekki framhjá þeim erf-
iðleikum sem koma upp því þú verður að
taka þá með í reikninginn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Skipun að ofan krefst þess besta frá
þér, og þú gefur þeim allt sem þú átt til og
slærð í gegn. Bíddu með það í nokkra daga.
Philip Vogler skrifaði mérskemmtilegt bréf á föstudag,
sem á erindi við fleiri:
„Við morgunsund í þægilegu
hitaveituvatni um daginn fór ég að
hugsa um orð sem ríma við hita.
Eitt var fita en það leiddi til þess að
ég samdi eftirfarandi:
Feitum manni er færra unnt,
hann flinkur ei við hast.
Kemst þó gegnum þykkt og þunnt
ef þrýst er nógu fast.
Rétt þegar vísan varð til kom
frekar feitur maður að lauginni og
meira aða segja heilsaði mér þegar
ég steig upp úr. Hann hefur gaman
af stökum en ég skammaðist mín og
þorði ekki að segja honum vísuna
þótt ég hefði alls ekki samið hana
með hann í huga. Á leið heim ákvað
ég til mótvægis að semja níð um
magran mann:
Kólnar mögrum manni fljótt,
mjótt hans fitulag.
Mætti öðlast meiri þrótt:
matast allan dag.“
Bréfinu lýkur með því, að Philip
sýndi hinum, þéttvaxna manni báð-
ar vísurnar og var hann hinn
ánægðasti með þær, svo að nú fáum
við fleiri að njóta þeirra.
Á samræmda prófinu í íslensku
fyrir 10. bekk grunnskóla, var
kvæðið Mótið eftir Heiðrek Guð-
mundsson og hefur valdið deilum,
hvernig það var lagt fyrir nem-
endur. Þær leiði ég hjá mér en sé
ástæðu til að birta kvæðið í Vísna-
horni. Lesendur geta þá gengið úr
skugga um, að það er vel kveðið og
vel valið til úrlausnar fyrir 15-16
ára unglinga og þess vegna til eft-
irbreytni eftirleiðis.
Á milli þeirra liggur land
sem lykur ægir blár.
En traustum böndum tengja þau
og töfra – sömu þrár.
Svo mætast þau á miðri leið
um milda sumarnótt.
Þá hefur löngun logaheit
um langa vegu sótt.
Þau setjast niður hlið við hlið.
En hverju sætir það,
að kringum hrannast þögnin þung
og þrengir hjörtum að?
Þau höfðu í anda áður reist
sér yfir hafið brú.
En það er margfalt meira djúp
á milli þeirra nú.
Halldór Blöndal
(halldorblondal@simnet.is)
Vísnahorn
Vaxtarlag karla og
breytileiki mannlífsins
Í klípu
„ÞETTA ER FRÁ YFIRSTJÓRNINNI. VIÐ
EIGUM AÐ SKERA MEIRA NIÐUR Í YFIR-
BYGGINGU OG ÚTLÖGÐUM KOSTNAÐI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BRÓÐIR HANS OG FRÆNDI FENGU TÓLF
ÁRA DÓM FYRIR VOPNAÐ RÁN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sigla á móti
straumnum.
MÓTMÆLIÐ
LÖG-
REGLU-
KÚGUN
JÓN SAGÐIST HAFA
MIKLAR FRÉTTIR AÐ FÆRA.
SAMA ER
MÉR.
SJÁÐU! NÝR
MAGNARI!
KANNSKI
EKKI ALVEG
SAMA.
HVERJUM YKKAR FINNST
ÍTALSKUR MATUR GÓÐUR?
MÉR SÝNIST AÐ VIÐ
ÆTLUM AÐ RÁÐAST INN
Í ÍTALÍU!
GOTT.
Ef Víkverji hefði látið æskudraum-inn rætast, og lært kvikmynda-
töku, væri hann nú að vinna að heim-
ildarmynd með spennuívafi. Hún héti
„Baráttan um hraunið“ og fjallaði um
átökin í Gálgahrauni. Í kjölfarið
myndi svo koma út skáldsagan
„Garðahraun“, byggð á atburðunum,
og því næst Hollywoodmyndin
„Leave My Lava Alone“ í leikstjórn
Baltasars Kormáks. Það segir sig
sjálft að Mark Wahlberg færi með
aðalhlutverkið, Reyni Ingibjartsson,
formann Hraunavina.
Það fer svo ekki hver sem er í fötin
hans Ómars Ragnarssonar, en helst
dettur Víkverja í hug að Robin Willi-
ams gæti gert því hlutverki góð skil.
Það myndi vissulega útheimta tölu-
verðan rakstur. Þá eru bara eftir
hlutverk Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur og Gunnars Einarssonar bæj-
arstjóra. Ef til vill gætu Julia Ro-
berts og Richard Gere leitt saman
hesta sína í þriðja sinn?
x x x
Að mati Víkverja yrði þó að poppasöguþráðinn töluvert upp, til að
Hollywood liti við honum. 16 ára deil-
ur um legu vegar í gegnum Geirs-
hraun eru svosem ekki leiðinlegt um-
fjöllunarefni, en við það þarf að
bætast ástarsaga, andhetja sem
sannar sig að lokum og auðvitað
byssuhasar og bílaeltingarleikur
(hann gæti meira að segja verið um
Gunnarshraunið sjálft).
x x x
Víkverja dettur ekki í hug að geralítið úr deilunum um Gráhraun.
Eftir því sem hann kemst næst er
óhjákvæmilegt að leggja nýjan veg
út á Álftanes, en hann skilur mætavel
að fólki sé sárt að sjá hann fara um
Gilshraun.
Víkverji hefur sjálfur ferðast mikið
um íslenskt hraun, en þó ekki um
Gjáhraunið í Garðabæ. Hann treystir
því hins vegar að það sé allra hrauna
fegurst og mest, fyrst svo margir eru
tilbúnir að leggja svo mikið á sig til
að vernda það. Og það ætti að vekja
athygli Hollywood.
x x x
Víkverji hefur bara eina spurninguað lokum: Hvað heitir þetta
hraun aftur? víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Daníel tók til máls og
sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð
til eilífðar, því hans er viskan og mátt-
urinn.“ (Daníel 2, 20.)