Morgunblaðið - 16.11.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ísland hefur verið vinsælt hjá erlendum ferða-
mönnum, sem flykkst hafa til landsins eftir hrun
og eldsumbrot. Áður en lagt er af stað út á land
getur verið gott að skoða kort af landinu, líkt og
þessir ferðamenn gerðu í Hafnarstrætinu, vel
dúðaðir í vetrarkuldanum.
Skoða Ísland með berum augum
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn fjölmennir í miðbæ Reykjavíkur sem fyrr
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
„Við teljum þetta vera mjög jákvætt
skref og mikilvægt að hafa formleg-
an samræðuvettvang á milli aðila
vinnumarkaðarins og stjórnvalda á
hverjum tíma,“ segir Þorsteinn Víg-
lundsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, um tillögu ráð-
herranefndar um kjarasamninga
þess efnis að komið verði á fót fasta-
nefnd um samskipti ríkisins og heild-
arsamtaka aðila á vinnumarkaði.
Í minnisblaði ráðherranefndarinn-
ar kemur fram að hlutverk fasta-
nefndarinnar yrði að hafa yfirsýn
yfir regluleg samskipti ríkisins og
aðila vinnumarkaðarins og vera vett-
vangur hugmynda og skoðanaskipta
um sameiginleg hagsmunamál.
Þorsteinn telur það vera til góðs að
formgera samstarfið með þessum
hætti. „Þetta er mikilvægt innlegg í
þessi breyttu vinnubrögð sem við er-
um að reyna að innleiða,“ segir hann.
Halda verðbólgu í skefjum
Í minnisblaði ráðherranefndarinn-
ar kemur einnig fram að kjara-
samningar með áherslu á kaupmátt
og hóflegar launahækkanir séu best
til þess fallnir að stuðla að efnahags-
legum stöðugleika. Þá verði kjara-
samningarnir að miðast við að halda
verðbólgu í skefjum. Gylfi Arn-
björnsson, formaður Alþýðusam-
bands Íslands, telur að fastanefndin
gæti komið til góðs í samningavið-
ræðum. „Þetta er mikilvægt innlegg,
en aðalatriðið er þó að þetta dugar
ekki til.“ Hann segir minnisblaðið
vera afrakstur samráðs aðila vinnu-
markaðarins og ráðherranefndar-
innar, sem vonandi geti leitt að sátt
og lengri samningum á næsta ári.
„Við erum búin að eiga samráð við
stjórnvöld um þessa kjarasamninga
og hvernig rammi eigi að vera utan
um viðræðurnar,“ segir Gylfi. Hann
segir ASÍ hafa gert ríkisstjórninni
grein fyrir því að til þess að hægt
verði að setjast að samningum þurfi
hins vegar að veita svör við kröfum
þeirra er lúta að fjárlagafrumvarpi
næsta árs og skýringar á áformum
og útfærslum ríkisstjórnarinnar á
skattalækkunum. „Málið er nú í
ákveðnum farvegi og það hefur verið
vilji innan ASÍ til að gera skamm-
tímasamning sem yrði þá notaður til
þess að leggja grunn að einhverri
sátt, en til þess að geta gert það þarf
að veita okkur skýrari svör um fjár-
lög næsta árs.“ Hann segist vonast
eftir svörum frá ríkisstjórninni á
næstu dögum. „Þetta eru lykilatriði í
okkar huga og prófsteinn á það
hvernig ríkisstjórnin ætlar að rækta
þetta samstarf. Er þetta bara um-
ræða eða eru menn tilbúnir til þess
að breyta einhverju?“
Mikilvægt en dugar ekki til
Jákvæðir gagnvart tillögu um stofnun fastanefndar um samskipti ríkisins og
samtaka aðila á vinnumarkaði Vilji innan ASÍ til að gera skammtímasamninga
Þorsteinn
Víglundsson
Gylfi
Arnbjörnsson
„Þetta eru erlend félög í samstæðu
Samherja. Miðað við það hljóta marg-
ar aðrar kærur að vera á leiðinni frá
Seðlabankanum á íslensk fyrirtæki
sem eiga fyrirtæki erlendis,“ segir
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja, í samtali við Morgunblaðið
um mál Seðlabankans gegn fyrirtæk-
inu.
Þorsteinn segir frá því í bréfi til
starfsmanna Samherja, sem birt var á
vef fyrirtækisins, að hann hafi verið
kvaddur til skýrslutöku hjá sérstök-
um saksóknara í síðustu viku vegna
málsins sem hófst með húsleit á skrif-
stofum Samherja í mars 2012. Þor-
steinn fagnaði því að hreyfing væri
komin á málið og sjónarmið fyrirtæk-
isins kæmust að.
Við skýrslutökuna kom betur í ljós
en áður hvað Sam-
herji á að hafa
brotið af sér að
mati Seðlabanka
Íslands. Þorsteinn
segir að annars
vegar sé um að
ræða verðlagningu
á fiskafurðum til
útflutnings og hins
vegar ætluð brot á
skilaskyldu á
gjaldeyri í fyrirtækjum tengdum
Samherja erlendis. Þorsteinn segir í
bréfinu að ítarleg rannsókn hafi farið
fram á ásökunum um verðlagningu
fisks en ekkert athugavert fundist
varðandi viðskipti eða starfshætti fé-
lagsins sem réttlætt geti þær aðgerð-
ir sem félagið hafi verið beitt af hálfu
Seðlabanka Íslands. „Satt að segja
hvarflar oft að mér að þessi þáttur
rannsóknar Seðlabankans sé tilbún-
ingur einn, til þess gerður að finna til-
efni til að ráðast inn á skrifstofur okk-
ar í leit að öðrum sakarefnum. Svo
rangir voru útreikningarnir og lang-
sóttar ásakanirnar.“
Umfang rannsóknar á meintum
brotum á skilaskyldu á gjaldeyri hjá
erlendum fyrirtækjum Samherja er
mun meira. „Ég fæ ekki betur séð en
að röksemdafærsla Seðlabankans sé
sú að erlendu félögin séu í raun ís-
lensk og eigi því að falla undir reglur
um skil á gjaldeyri,“ segir Þorsteinn í
bréfi til starfsmanna. Hann telur að
túlkun Seðlabankans á gjaldeyrislög-
unum verði að teljast rúm og í raun
ótrúleg. helgi@mbl.is
Fleiri hljóta að koma
Forstjóri Samherja telur að túlkun Seðlabankans á gjald-
eyrislögunum sé ótrúleg Var kvaddur til skýrslutöku
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur mun
fara með loft-
gæðamælistöð í
efri byggðir
Reykjavíkur, svo
sem í Grafarholt,
Úlfarsárdal og
Breiðholt til að
mæla brenni-
steinsvetni.
Stjórn Orku-
veitu Reykjavíkur ræddi í gær tillögu
Kjartans Magnússonar um að koma
upp síritandi loftgæðamælistöð við
austurenda byggðarinnar í Graf-
arholti/Úlfarsárdal. Kjartan lagði til-
löguna fram í september með þeim
orðum að útstreymi brennisteins-
vetnis frá virkjunum á Hengilssvæði
væri stærsta umhverfismál sem
Orkuveitan glímdi við í rekstri sínum.
Í umsögn Heilbrigðiseftirlitsins sem
lögð var fram í gær er tekið undir efni
tillögunnar.
Kjartan segist hafa orðið var við
áhyggjur og fengið fyrirspurnir frá
íbúum sem óttast áhrif brennisteins-
vetnis. Fyrsta skrefið í því sé að safna
sem bestum og nákvæmustum upp-
lýsingum um loftgæðin í efstu byggð-
um borgarinnar.
„Orkuveitan hefur til skoðunar enn
víðtækari aðgerðir til að draga úr
mengun,“ segir Kjartan þegar hann
er spurður til hvaða ráða sé hægt að
grípa ef meira brennisteinsvetni
mælist í Grafarholti en á stöðum sem
áður hefur verið mælt á. helgi@mbl.is
Mælt verð-
ur á fleiri
stöðum
Kjartan
Magnússon
Athuga mengun
í Grafarholtinu
Tveir ungir menn voru handteknir
á Akureyri í gær fyrir að hafa í
fjórgang reynt að tæla börn upp í
bílinn til sín við skólalóð grunn-
skóla á Akureyri. Ekkert barnanna
fór upp í bílinn og gátu tvær stúlk-
ur sem mennirnir nálguðust gefið
upp bílnúmer bifreiðarinnar. Að
sögn lögreglunnar á Akureyri eru
mennirnir það ungir að
barnaverndaryfirvöldum hefur ver-
ið gert viðvart.
Var mönnunum sleppt að loknum
yfirheyrslum í gærkvöldi. Að sögn
lögreglu bendir marsgt til þess að
um einhvers konar grín hafi verið
að ræða af þeirra hálfu.
Reyndu að
tæla börn
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar
á Facebook
Frábært
buxnaúrval!
GARDEUR, GERKE, GINO, TUZZI, LINDON
Sparibuxur, ullarbuxur,
stretchbuxur, gallabuxur...
Þrjár síddir!
Verð frá 9.980
St. 36-52