Morgunblaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2013
GAMLI ÍSINN
- ÞESSI ÍSKALDI
Skalli • Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 - 23
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Án nokkurs vafa ertu miðja allrar at-
hygli í félagslífinu. Ef þú þarft að vera í mikl-
um samskiptum við fólk er hætt við að þú
bregðist óþarflega harkalega við hlutunum.
20. apríl - 20. maí
Naut Það sem þú áleist vegg á milli þín og
hinnar/hins heittelskuðu er í raun bara snúin
hurð. Reyndar er sá vinur sem til vamms seg-
ir og þú ættir því að meta hann þeim mun
meir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er annríki framundan. Fáðu
hjálp, annars drukknar þú bara í óleystum
verkefnum. Nú er að rofa til hjá þér í starfi og
þú ferð að sjá árangur erfiðis þíns.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Samstarfsmenn þínir munu koma
auga á hæfileika þína og vilja njóta þeirra. Ef
þú eyðir í vitleysu hefurðu líklega litla stjórn á
lífinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þig þyrstir í ævintýri og það er eins gott
því þú munt sannarlega fá nóg af þeim á
næstunni. Notaðu tímann til samstarfs við
aðra og farðu jafnvel í ferðalag með ein-
hverjum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert hjálpsamur að eðlisfari og átt
því inni margan greiðann. Líklega færðu núna
þá viðurkenningu sem þér ber.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hluti af því að vera dugnaðarforkur er að
mistakast stundum. Fólk finnur að þú nýtur
lífsins og langar til að slást í hópinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú finnur þörf til að kaupa þér
eitthvað í dag og ættir að láta það eftir þér.
Sjáðu til þess að þú fáir útrás fyrir sköp-
unargleði þína. Haltu ró þinni, því þinn tími
mun koma.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er einfaldleikinn sem felur í
sér tærustu snilldina og bestu lausnina.
Brettu upp ermarnar og hættu ekki fyrr en
borðið er hreint.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu ekki undan lönguninni til
eyðslusemi heldur haltu fast um budduna.
Notaðu kvöldið fyrir sjálfan þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vonandi getur þú glaðst á þessum
degi og litið framtíðina björtum augum. Ef þú
leggur þig fram verður daglegt amstur enn
fyndnara, líka í þínum huga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert á báðum áttum um það hvort
þú eigir að kaupa eitthvað í dag eða ekki. En
láttu vera að hrópa það af húsþökum, því
aðrir kunna að vera á öðru máli.
Á þessum degi 16. nóvember1807 fæddist Jónas Hall-
grímsson. Í Skáldu, nýrri af-
mælisdagabók, velur Jóhannes
úr Kötlum þetta erindi við dag-
inn:
Hníg þú hóglega
í hafskautið mjúka,
röðull rósfagur!
og rís að morgni,
frelsari, frjóvgari,
fagur guðs dagur!
blessaður, blessandi,
blíður röðull þýður!
Það er öllum hollt að íhuga
Jónas á þessum degi og oftar en
ekki rifja ég upp ljóð Gríms
Thomsen:
Þú sem áður foldar fljóð
fögrum ljóðum gladdir,
og til hreysti hraustum óð
hugi drengja kvaddir.
Hefir nú fljóða og hölda sál
hryggt úr öllum máta;
þeir, sem íslenskt mæla mál,
munu þig allir gráta.
Úr fjörugu máli fegri sprett
fékk ei neinn af sveinum;
hjá þér bæði lipurt og létt
lá það á kostum hreinum,
Þú gast látið lækjarnið
í ljóðum þínum heyra,
sjávarrót og svanaklið,
sanda bárur keyra.
Gast í brag við björgin foss
bráðum látið sinnast,
og hendingarnar heitum koss
hverja við aðra minnast.
Náttúrunnar numdir mál,
numdir tungur fjalla,
svo að gastu stein og stál
í stuðla látið falla.
Íslands varstu óskabarn,
úr þess faðmi tekinn,
og út á lífsins eyðihjarn
örlagasvipum rekinn.
Langt frá þinna feðra fold,
fóstru þinna ljóða,
ertu nú lagður lágt í mold
listaskáldið góða.
Þegar ljóðið birtist í Nýjum
félagsritum orti Páll Melsted:
Ekki er þetta eftir Grím
– eða hvernig spyrðu! –
Það er miklu mýkra rím
en meistaraljóðin stirðu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Grímur og listaskáldið góða
Í klípu
„MÉR FANNST BETRA ÞEGAR ÞÚ
NOTAÐIR BARA BULLORÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HELD ÉG HAFI FUNDIÐ ÁSTÆÐUNA
FYRIR BAKVERKJUNUM. ÞAÐ ER
HÆGINDASTÓLL FASTUR HÉRNA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera alltaf jafn
ung í augum hvors
annars.
FJÁRHAGS-
ÁÆTLUN:
-EYÐA
MINNA
-GRÆÐA
MEIRA
JÓN, ÞÚ ÆTTIR AÐ HUGA
AÐ FRAMTÍÐINNI.
ÉG GERÐI FYRIR
ÞIG MARKMIÐA-
LISTA.
ÉG SÉ HVERGI
KÚREKA
HÉRNA.
ÞAÐ SKÝRIR
HESTAGERÐIÐ
ÚTI Í GARÐI.
FYRIRGEFÐU AÐ ÉG
MISSTI AF MATNUM,
HELGA.
Ó, Á KANNSKI EINHVER
AFMÆLI Í DAG?
ÉG ÞORI AÐ
VEÐJA AÐ ÞAÐ
SÉRT ÞÚ!
Góðir nágrannar geta gert krafta-verk. Þeir eru mannbætandi.
Samveru með þeim má líkja við það
sem stóð á Opalpökkunum forðum
daga: bætir, hressir og kætir. Víkverji
býr svo vel að betri helmingur hans
og nágranni eru æskufélagar. Eins og
gefur að skilja þá var ýmislegt brallað
í æsku og hvert tækifæri nýtt til hvers
kyns hrekkjabragða. Sá gállinn virð-
ist loða enn við þessa kóna.
x x x
Dag einn var búið að binda tómardósir aftan í bíl Víkverja. Um
morguninn var bíllinn ræstur, öku-
maðurinn enn með stírurnar í aug-
unum hentist af stað út í daginn, í
seinna lagi eins og oft vill verða. Það
var ekki fyrr en komið var á áfanga-
stað að ökumaður rak augun í herleg-
heitin sem höfðu skoppað aftan í bíln-
um alla leið. Dósunum hafði samt e-ð
fækkað frá því sem upphaflega hafði
verið.
x x x
Að sjálfsögðu var náð í símann ogslegið á þráðinn til hrekkjalóms-
ins. Hann gat vart komið upp orði fyr-
ir innilegum hlátri. Það gladdi Vík-
verja að uppátækið skyldi gleðja vin
hans í raun meira en hann sjálfan.
Ekki má þó misskilja, Víkverja þótti
uppátækið hið skemmtilegasta. En
sumum þykir einfaldlega skemmti-
legra að hrekkja aðra.
x x x
Ákveðið var að blása til sóknar og„hefna“ fyrir hrekkinn. Það verð-
ur samt að viðurkennast að Víkverji
er ekki nándar nærri eins uppá-
tækjasamur og hugmyndaríkur þegar
kemur að því að finna út hvaða góðlát-
lega hrekks skal gripið til. Eftirvænt-
ingin, eftir því að fá að vita hvort mað-
ur verði fyrir einhverjum óvæntum
hrekk eða ekki þegar haldið er út dag-
inn er einstaklega skemmtileg.
x x x
Hið óvænta í lífinu gefur því ákveðiðgildi. Það hlakkaði samt einhver
ósköp í Víkverja þegar hann setti sæl-
gætisbréf inn í hjólahanska nágrann-
ans og rusl í hjálminn. Sú tilfinning að
koma einhverjum á óvart er ein-
staklega skemmtileg. Víkverji vonar
þó að hrekkirnir verði eingöngu á
þessu nótum í framtíðinni.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Hallelúja. Lofa þú Drottin, sála mín.
(Sálmarnir 146:1)
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/