Morgunblaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2013
og -þjóna í allan sannleik um flug-
dólga. Bryndís segir viðhorf til
þeirra hafa breyst. „Áður var jafn-
vel gert góðlátlegt grín að hegðun
flugdólga og litið á þá sem til-
tölulega meinlausa ólátabelgi. En
atburðirnir 11. september höfðu
gríðarleg áhrif á flugbransann og
öll frávik í hegðun flugfarþega eru
nú litin alvarlegum augum. Aðal-
málið, eins og með allt sem lýtur að
starfinu, er að tryggja öryggi loft-
farsins og farþega þess.“
Eru góðir atvinnumöguleikar
að þessu námi loknu? „Já, ég myndi
segja það,“ segir Bryndís. „Margt
ungt fólk er tilbúið til að fara utan
og vinna þar. Það er einmitt mjög
gaman að fylgjast með gömlum
nemendum sem eru að störfum út
um allan heim, en fólk frá okkur er
t.d. að vinna annars staðar á Norð-
urlöndunum, í Englandi, í Hollandi,
Dubai og víðar. Svo eru líka margir
hjá íslensku félögunum. En það
gildir það sama um þetta eins og
svo margt annað; þeir fiska sem
róa.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á skólabekk Bryndís Blöndal er
kennari í flugþjónustunáminu.
Hún hefur starfað sem flugfreyja í
16 ár og segir margt hafa breyst.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Iðnaðarmenn vinna þessa dagana
að frágangi við byggingu Hljóma-
hallarinnar í Reykjanesbæ, sem
tekin verður í notkun um áramót-
in. Höllin nýja er að hluta til
Stapinn, hið gamla félagsheimli í
Njarðvík, en þar hefur flestu ver-
ið breytt innandyra. Viðbótin er
3.400 fermetra bygging á tveimur
hæðum þar sem m.a. tónlist-
arskóli bæjarins verður til húsa.
„Þetta skapar tónlistinni alveg ný
tækifæri og styrkir samfélagið
hér,“ segir Haraldur Árni Har-
aldsson, skólastjóri Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar.
Fyrir um sex árum var hafist
handa við endurbætur á Stapa og
stækkun með nýbyggingu. Í byrj-
un árs 2010 var tónleika- og ráð-
stefnusalur sem tekur um 450
manns í sæti tekinn í notkun, en
salir hússins verða þrír. Heild-
arkostnaður við framkvæmdir er
áætlaður 2,3-2,4 milljarðar kr.
Í bið eftir hrunið
„Þegar framkvæmdir hófust
árið 2008 var markmiðið að
byggja vandað tónlistar- og ráð-
stefnuhús. Eftir hrun þurfti að
hægja á ferðinni og hugsa verk-
efnið upp á nýtt. Framkvæmdum
við Stapann var lokið. Aðrir
þættir voru settir í bið svo áform
um hús sem yrði vandað í alla
staði mættu ganga eftir. Það var
skynsamleg ráðstöfun,“ segir
Haraldur Árni.
Í þeim hluta nýbygging-
arinnar sem ætlaður er tónlistar-
skólanum eru þrjátíu kennslu- og
nemendarými, bóka- og hljóðrita-
safn skólans og aðstaða starfs-
fólks og nemenda. Þá verður
Popp- og rokksýning Íslands í
húsinu. Þar verða sögu dægur-
tónlistar gerð góð skil, en margir
segja vöggu hennar suður með
sjó. Vegna undirbúnings og upp-
setningar sýningarinnar hefur
Reykjanesbær m.a. fengið Jón-
atan Garðarsson til liðs við sig
við heimildavinnu og fleira – en
hann þekkir þessa sögu öðrum
betur. Einnig verður í nýbygg-
ingunni kaffi- og veitingahús,
kvikmyndasalur ætlaður tónlist-
arskólanum og poppsýningunni
og svo mætti áfram telja.
Margir þættir spila saman
„Starfsemi okkar hefur til
þessa verið á tveimur stöðum í
bænum auk þess sem við störfum
með nemendum úti í grunnskól-
unum. Breytingin við að flytja í
sérhannað húsnæði verður m.a.
sú að þegar grunnskóladeginum
lýkur, laust eftir hádegi, fer öll
starfsemi tónlistarskólans fram á
einum stað, það er Hljómahöll-
inni,“ segir Haraldur Árni.
Starfsemi skólans segir hann
vera öfluga. Nemendur eru um
770, við skólann starfa alls 45
manns og allar tónlistargreinar
eru undir í skólastarfinu.
„Við hönnun Hljómahallar
hefur sú hugsun verið ráðandi
að hinir margvíslegu þættir í
starfsemi hússins geti spilað
saman; tónlistarstarf, ferðaþjón-
usta og sýningar- og ráð-
stefnuhald,“ segir Haraldur
Árni. „Með tilkomu Hljómahallar
opnast í raun möguleikar til
þess. Reykjanesbær mun standa
jafnfætis öðrum bæjarfélögum
þar sem hús til tónlistar- og ráð-
stefnuhalds hafa verið reist og
má þar nefa Berg á Dalvík, Sal-
inn í Kópavogi, Hörpu í Reykja-
vík og Hof á Akureyri. Þess utan
verður aðstaða Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar ein sú besta og
glæsilegasta sem þekkist hér-
lendis.“
Hljómahöllin í Reykjanesbæ verður senn tekin í notkun
Morgunblaðið/Eggert
Hljómahöll Framkvæmdir eru í fullum gangi en áformað er að húsið góða,
sem opnar marga möguleika, verði tekið í notkun í kringum áramótin.
Tónlistin fær tækifæri
Nám Haraldur Árni Haraldsson stýrir starfi Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar. Nemendur þar eru nærri 680 og starfsmennirnir alls 45.
Á mánudaginn verður fjallað
um Hafnir á 100 daga hringferð
Morgunblaðsins.
Á mánudaginn
Í húsi sem áður geymdi vopn og
skotfæri Bandaríkjahers svífa nú
fótafimar ballerínur um gólf. Þær eru
nemendur Bryndísar Einarsdóttur
sem rekur Listdansskóla Reykjanes-
bæjar, Bryn Ballettakademíuna, í
fyrrverandi skotfærageymslu varn-
arliðsins á Ásbrú.
Skólann stofnaði Bryndís fyrir
fimm árum, en þá var hún nýflutt til
landsins eftir að hafa starfað víða um
heim sem dansari og danskennari.
„Ég byrjaði á því að bjóða upp á eitt
námskeið fyrir börn. Það var svo mik-
il eftirspurn og ég sá að það var þörf
á skóla eins og þessum,“ segir Bryn-
dís og segir nemendurna koma alls
staðar að af Suðurnesjunum. „Við er-
um líka í samstarfi við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja um listdansbraut
til stúdentsprófs,“ segir hún.
Um 300 nemendur stunda nám við
skólann á ári hverju, þeir eru á aldr-
inum 3-24 ára og þar vinna um 17
starfsmenn. Spurð að því hvort
Ásbrú sé góður staður fyrir starfsemi
sem þessa segir hún svo vera. „Það
er svo margt að gerast hérna, svo
mikil uppbygging.“
annalilja@mbl.is
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Ballerínur Í Listdansskóla Reykjanesbæjar stunda um 300 nemendur nám.
Fótafimar ballerínur í fyrrverandi
skotfærageymslu varnarliðsins
Skannaðu kóðann
til að skoða mynd-
skeið um námið.
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
Verð: 3.990.000 kr.
Volvo S40 Momentum D3 MBF22
Skráður september 2011, D3 dísil, sjálfskiptur
Ekinn 36.000 km.
Ásett verð: 4.290.000 kr.
Tilboð: 1.790.000 kr.
Citroën C3 Seduct. Airdream PLB51
Skráður apríl 2012, 1,6 dísil, beinskiptur
Ekinn 63.000 km.
Ásett verð: 1.990.000 kr.
Tilboð: 3.490.000 kr.
Mazda5 Advance MPV OES41
Skráður apríl 2013, 1,6 dísil, beinskiptur
Ekinn 24.000 km.
Ásett verð: 3.690.000 kr.
400.000 KR.
FERÐAFJÖRNOTAÐRA BÍLA
FINNDU BÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Fyrir
stórfjölskylduna,
7manna
*Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 7. nóvember 2013 til ogmeð 20. desember 2013 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2013 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf fráWOWair. Athugið á ekki við um umboðssölubíla.
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
*GJAFABRÉF FRÁWOWair
MIKIÐ ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Vertu með!
Sparneytinn,
vel búinn og
öruggur
Hvert myndir
þú fara?
Í ábyrgð
Í ábyrgð
Öruggur
og nettur
sparibaukur