Morgunblaðið - 16.11.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2013
Malín Brand
malin@mbl.is
F
élagsauður er hugtak
sem fyrst var notað árið
1916 af Lyda Judson
Hanifan. Hugtakið
þekkja því margir en í
því felast áhrif félagstengsla sem
hver og einn myndar í samskiptum
við aðra og í þeim geta falist verð-
mæti. Verðmætin endurspeglast í já-
kvæðum áhrifum á hagsæld, sam-
stöðu og gagnkvæmni einstaklinga og
samfélaga.
Í meistaraverkefni Unu Maríu
Óskarsdóttur í lýðheilsuvísindum
kannaði hún hvort félagsauður mæld-
ist breytilegur milli hópa og hvort
finna mætti tengsl milli félagsauðs og
heilsufars. Niðurstöðurnar eru
áhugaverðar og vert að skoða þær
nánar.
Tenging félagsstarfs,
trausts og heilsu
Heilsan er sennilega með því
dýrmætasta sem hver og einn á. Því
hlýtur að teljast forgangsatriði að
hugsa vel um heilsuna og átta sig á
því hvaða þættir í umhverfinu hafa
áhrif á hana. „Þeir sem taka þátt í fé-
lagsstarfi, hafa áhuga á stjórnmálum
og samfélagsmálum og treysta fólki
meta heilsu sína betri en hinir,“ segir
Una María sem í framhaldi tekur
nærtækt dæmi úr daglega lífinu: „Ef
þvingað andrúmsloft er á vinnustað,
líður starfsfólkinu verr og í kjölfarið
getur veikindadögum fjölgað og fleira
í þeim dúr. Það er svo mikilvægt að
vinnuveitendur láti starfsfólkið finna
að það sé hluti af heildarmyndinni. Að
það hafi áhrif á ákvarðanatöku upp að
einhverju marki,“ segir hún.
Tengsl félagsauðs og
heilsu þjóðarinnar
Þeir sem treysta öðrum, hafa áhuga á stjórnmálum og eru virkir í félögum segjast
vera við betri heilsu en aðrir. Þetta er á meðal þess sem uppeldis- og mennt-
unarfræðingurinn Una María Óskarsdóttir skrifar um í meistararitgerð sinni í
lýðheilsuvísindum. Það eru tengsl á milli félagsauðs og heilsufars Íslendinga og
lýðheilsa er eitt af því sem brýnt er að efla þekkingu á í þágu þjóðarinnar sjálfrar.
Einelti Með minna einelti batnar lýðheilsan. Hér má sjá börn úr Vatnsenda-
skóla og nágrannaleikskólum í Kópavogi í göngu gegn einelti.
Morgunblaðið/Malín Brand
Höfundurinn Una María Óskarsdóttir hefur kynnt niðurstöður sínar um
tengsl félagsauðs við heilsufar Íslendinga í meistararitgerð sinni.
Það er vel við hæfi að vekja athygli á
Facebook-síðu Reykjavíkur því nú er
sérstök áhersla lögð á nýtni. Nýtni-
vikan hefst á morgun, sunnudag, og
er markmið hennar að fá fólk til að
draga úr myndun úrgangs og nýta
hluti betur.
Af því tilefni er haldin samkeppni á
Facebook-síðu Reykjavíkurborgar um
best nýtta pappírinn. Hér ættu marg-
ir að geta fengið útrás fyrir sköp-
unargáfuna en það sem þarf að gera
er að senda inn mynd af hlut sem er
vel nýttur, endurunninn, endurskap-
aður eða endurnýttur. Myndinni þarf
að fylgja dálítill texti til útskýringar
þar sem fram kemur hlutverk hlut-
arins, uppruni og erindi í samkeppn-
ina. Verðlaun verða í formi inneignar
hjá Góða hirðinum og Rauða kross-
inum, sölubás í Kolaportinu og hag-
nýt verðlaun fyrir þann sem fær flest
„like“ á vefsíðunni.
Vefsíðan www.facebook.com/notes/reykjavíkurborg
Endurnýting Bómullarflíkur sem fá síðar nýtt hlutverk í ofnum teppum.
Best nýtti pappírinn
Í skammdeginu getur verið af-
skaplega notalegt að kveikja á kert-
um, hita sér kakó og spila við ein-
hvern skemmtilegan. Við erum svo
heppin að eiga aragrúa af borðs-
pilum á íslensku sem virkja hinar
ýmsu stöðvar heilans.
Spil þarf ekki að vera flókið til að
vera skemmtilegt og mætti t.d.
hvetja yngstu kynslóðina til að
teikna slönguspil á blað og nota
krónur, tappa eða baunir sem leik-
muni.
Púsl eru líka góð fyrir einbeit-
inguna og svo eru þau líka svo fal-
leg!
Endilega …
… spilið og
púslið
Morgunblaðið/G.Rúnar
Nýtnivikan verður haldin ífyrsta sinn hér á landivikuna 17.-24. nóvember.
Markmiðið er að draga úr myndun
úrgangs og fá hinn almenna borg-
ara til að hugleiða hvernig hægt
sé að nýta hluti betur.
Þetta er samevrópsk vika og
fær fólk vonandi til að leiða hug-
ann að því hvernig lengja megi líf-
tíma hluta og hvernig gefa megi
notuðum hlutum nýtt hlutverk í
stað þess að þeir endi sem úrgang-
ur.
Mikilvægt er að börn læri að
það er í höndum neytendanna að
hafa áhrif á framboð á vörum með
neyslumynstri okkar. Til dæmis
með því að nota plastpoka oftar en
einu sinni má leggja sitt af mörk-
um til að draga úr myndun úr-
gangs.
Samkvæmt upplýsingum af vef
Reykjavíkurborgar er talið að
verðmæti matar sem hent var hér
á landi árið 2008 hafi verið rúmir
3 milljarðar.
Að búa til stól
Á morgun, sunnudaginn 17. nóv-
ember, verða haldnar tvær lista-
smiðjur í Norræna húsinu. Þær
eru ætlaðar börnum á aldrinum 6-
12 ára og forráðamönnum þeirra.
Sú fyrri er frá klukkan 12.30 til
14 og sú seinni frá 15 til 16.30.
Í listasmiðjunum munu þátttak-
endur búa til stól undir hand-
leiðslu Brynhildar Þorgeirsdóttur
og Ínu Salóme Hallgrímsdóttur,
myndlistarmanna og kennara við
Myndlistaskólann í Reykjavík.
Smiðjunum er ætlað að vekja
börn og fullorðna til vitundar um
allt það sem fellur til meðal ann-
ars vegna umbúða af vörum sem
fólk kaupir og neytir daglega og
sýna hvernig hægt er að gefa
þeim nýtt hlutverk.
Bláa tunnan nýtt við sköpun
Unnið verður með það fjöl-
breytta úrval af pappír sem borg-
arbúar flokka nú frá öðrum úr-
gangi og setja í bláu tunnuna. Þar
safnast pappír sem til dæmis kem-
ur af mjólkurfernum, eggjabökk-
um, dagblöðum, umbúðum utan af
morgunkorni og fleira.
Einnig verður skoðað hvernig
hlutir eins og sælgætispappír,
korktappar og hlutir af gosdósum
geta líka reynst tilvalinn efniviður
til sköpunar.
Þátttaka í smiðjunum er áhuga-
sömum að kostnaðarlausu en
Reykjavíkurborg, Sorpa og Nor-
ræna húsið kosta verkefnið.
Listasmiðjur í Norræna húsinu fyrir 6-12 ára börn
Nýtnivikan 17.-24. nóvember
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Nýting Það ætti ekki að vera mikill vandi fyrir klóka krakka að búa til stól.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
ALHLIÐA
HREINSIEFNI
með ilmi.
Verð 499 kr.
Skeifunni 11 | Sími 515 1100
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
23
27
www.rekstrarland.is
EXTRA STERKUR
ALHREINSIR
á erfiða bletti.
Verð frá 979 kr.
Gæðin
skipta máli
Í Rekstrarlandi finnurðu
mikið úrval af vistvænum
og vottuðum vörum.
SALERNISPAPPÍR
8 rúllur í pakka,
umhverfisvottaður,
húðofnæmisprófaður,
eyðir lykt, stíflar ekki lagnir.
Verð 738 kr.