Morgunblaðið - 16.11.2013, Side 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2013
Hasarmyndin var eitt afríkjandi formum afþrey-ingarkvikmynda á síð-ustu áratugum 20. ald-
arinnar. Þeir Sylvester Stallone og
Arnold Schwarzenegger tróndu þar
á toppnum með hverri harðhausa-
myndinni á fætur annarri, þar sem
vondu gæjarnir gátu átt von á því að
endast ekki mikið lengur en sjö sek-
úndur á lífi á skjánum. Eitt aðal-
umræðuefnið á þeim dýrðartíma var
hvort Sly eða Arnie væri meiri harð-
haus, og þá fylgdi oftast með hvílík
gargandi snilld það yrði ef þeir
myndu leiða saman hesta sína í has-
armynd. Að vissu leyti má segja að
sá draumur hafi ræst í Expendables-
myndunum, þar sem Schwarzenegg-
er kom fram í aukahlutverki, en í Es-
cape Plan eru þeir báðir í aðal-
hlutverkum í fyrsta sinn.
Ray Breslin (Stallone) er sérfræð-
ingur í því að brjótast úr fangelsum,
nokkurs konar samblanda af Harry
Houdini og MacGyver. Hann nýtir
sér gáfur sínar til þess að finna veik-
leika á fangelsum og hjálpa yfirvöld-
um að vinna bug á þeim. Einn dag-
inn kemur inn á borð til hans nýtt
verkefni, að finna leið út úr há-
marksöryggisfangelsi, sem á að hýsa
öll helstu úrhrök þessa heims utan
við alþjóðalög og -rétt. Aðstoðar-
menn hans hafa illan bifur á verkefn-
inu, en Breslin þiggur það engu að
síður.
Skiptir engum togum að þegar
þangað er komið er ljóst að Breslin
hefur verið illa svikinn, og að hann er
núna fangi í alvörunni sem verður að
taka á honum stóra sínum til þess að
sleppa. Innan veggja fangelsisins
kynnist hann Emil Rottmayer
(Schwarzenegger), en hann er liðs-
maður hryðjuverkamannsins Man-
heim, sem rænir frá þeim ríku og
færir þeim fátæku. Manheim ber
meðal annars ábyrgð á falli íslenska
bankakerfisins. Þeir Breslin og
Rottmayer taka höndum saman
gegn ofríki fangavarðarins Hobbes
(Jim Caviezel) og helsta handbendi
hans, Drake (Vinnie Jones). Það er
þó hægara sagt en gert, því að Hob-
bes hefur lesið bókina hans Breslin
og smíðað eftir henni fullkomnasta
fangelsi heims.
Sem hasarmynd gerir Escape
Plan margt rétt. Þó að þeir Stallone
og Schwarzenegger séu komnir af
léttasta skeiði eiga þeir sviðið og ná
að nýta sér það til fullnustu. Bera
þeir myndina algjörlega uppi á
vöðvamiklum og breiðum herðum
sínum. Helstu gallar myndarinnar
leynast hins vegar í handriti og leik-
stjórn. Þó að vissulega séu fyndnar
senur innan um í myndinni, þá skort-
ir nokkuð á sama léttleika og er til
dæmis í Expendables-myndunum.
Myndin tekur sjálfa sig því aðeins of
alvarlega. Þá má segja að leikstjór-
inn Mikael Håfström, sem er vanari
hryllingsspennumyndum eins og
1408, skili sínu dagsverki, en ekki
mikið meira en það. Leikstjóri með
næmara auga fyrir listfengi ofbeldis-
ins hefði líklega getað skilað mynd-
inni á stall með bestu hasarmyndum
sem gerðar hafa verið. Þrátt fyrir
það ætti enginn af fjölmörgum aðdá-
endum Stallones og Schwarzeneg-
gers að verða fyrir vonbrigðum.
Borin á breiðum herðum
Þreknir Stallone og Schwarzenegger eiga sviðið í Escape Plan.
Sambíóin
Escape Plan bbbmn
Leikstjóri: Mikael Håfström. Handrit:
Miles Chapman og Jason Keller. Aðal-
hlutverk: Sylvester Stallone, Arnold
Schwarzenegger, Jim Caviezel, Curtis
„50 Cent“ Jackson, Vinnie Jones, Vin-
cent D’Onofrio, Amy Ryan og Farad Tah-
ir. Bandaríkin 2013. 115 mínútur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
„Við erum búin að æfa mikið,
syngja, dansa og leika undanfarna
mánuði þannig að við erum löngu
komin í jólaskap,“ segir Linda Ás-
geirsdóttir sem ásamt Hrefnu Hall-
grímsdóttur stendur að baki tvíeyk-
inu Skoppu og Skrítlu. Þær bjóða í
ár í fyrsta sinn til jólaskemmtunar
en Jólahátíð Skoppu og Skrítlu
verður frumsýnd í Borgarleikhús-
inu í dag kl. 13.
„Við sáum um Jóladagatal Stöðv-
ar 2 í fyrra og þar kviknaði hug-
myndin að búa til leikrit, jóla-
leikrit,“ segir Linda. „Þetta er
fjórða leikritið okkar og höfum við
aldrei verið svona mörg áður á
sviðinu, alls sextán.“ Hún segir að
tólf börn á aldrinum fjögurra til ell-
efu ára taki þátt í sýningunni, þar á
meðal fimleikabörn, ballerínur og
jólabörn, en þetta er í fyrsta sinn
sem svo stór hópur barna leikur
með þeim Skoppu og Skrítlu.
Stór hópur barna
Jólabörnin koma meðal annars
úr söng- og leiklistarskólanum
Sönglist, sem starfræktur er í sam-
vinnu við Borgarleikhúsið, ballerín-
urnar koma úr Ballettskóla Eddu
Scheving og fimleikabörnin úr fim-
leikadeildum Gróttu og Fylkis.
Um hvað fjallar sýningin?
„Við erum að bíða eftir jólasvein-
inum sem ætlar að aðstoða okkur
við að uppfylla jólaóskir barnanna.
Í upphafi sýningarinnar skrifa
börnin litla jólaósk á óskatré og
kemur jólasveinninn ávallt og að-
stoðar okkur við að útbúa gjafir og
fagna jólunum,“ útskýrir Linda og
tekur fram að síðan komi ýmislegt
upp á. Óvæntir gestir banki upp á
þegar undirbúningur hátíðarinnar
standi sem hæst og þá lendi jóla-
sveinninn í stökustu vandræðum.
Fjórða leikritið þeirra
Eins og áður segir er þetta fjórða
leikrit þeirra Skoppu og Skrítlu.
Fyrsta leikritið, Skoppa og Skrítla í
leikhúsinu, var frumsýnt árið 2006 í
Þjóðleikhúsinu og hefur síðan verið
sýnt hátt í 200 sinnum í þremur
heimsálfum. Sýningin var aftur
sýnd í byrjun þessa árs í Borgar-
leikhúsinu. Sýningin Skoppa og
Skrítla í söngleik var sýnd árið
2008 og í kjölfarið fylgdi Skoppa og
Skrítla á tímaflakki árið 2010. Auk
þess hafa vinkonurnar gert bíó-
mynd, tíu DVD-diska, geisladiska
og bók, svo eitthvað sé nefnt.
Með hlutverk Skoppu og Skrítlu
fara Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna
Hallgrímsdóttir, en með önnur
hlutverk fara Vigdís Gunnars-
dóttir, Viktor Már Bjarnason og
börnin tólf. Leikstjóri er Þórhallur
Sigurðsson, Hallur Ingólfsson sem-
ur tónlist en handritið er eftir
Hrefnu Hallgrímsdóttur.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Jólin Jólahátíð Skoppu og Skrítlu er fyrsta jólaleikrit þeirra vinkvenna.
Skoppa og Skrítla
í miklu jólaskapi
Nýtt jólaleikrit í Borgarleikhúsinu
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
Gildir sunnudaga til fimmtudaga.
Munið að framvísa Moggaklúbbskortinu.
Borðapantanir í síma 445 9500
2 FYRIR 1 AF MATSEÐLI
Á VEITINGASTAÐNUM
MADONNA TIL 1. DES.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
INNRITUN Í DREIFNÁM
Á VORÖNN 2014
Eftirfarandi námsbrautir eru í boði í dreifnámi
Borgarholtsskóla á vorönn 2014:
• Bíliðngreinar. Dreifnám í bíliðngreinum stendur einungis þeim
nemendum til boða sem áður hafa lokið raunfærnimati.
• Félagsliðar
• Viðbótarnám fyrir félagsliða
• Félagsmála- og tómstundaliðar
• Leikskólaliðar
• Málm- og véltæknigreinar
• Nýsköpunar- og frumkvöðlanám í verslun og þjónustu
• Skólaliðar
• Stuðningsfulltrúar í grunnskólum
Rafræn innritun er hér: www.inna.is/innritun.
Nánari upplýsingar um dreifnámið eru á heimasíðu Borgarholtsskóla,
www.bhs.is. Umsóknarfrestur um námið er til 30. nóvember 2013.
Tómas Viktor Young hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Hljómahallar, nýs tónlistar- og menning-
arhúss í Reykjanesbæ, úr hópi 27 umsækjenda. Tómas
hefur unnið hjá Útflutningsskrifstofu íslenskrar tón-
listar sl. fjögur ár, verið tengiliður við Hróars-
kelduhátíðina sl. 14 ár og starfað við tónlistarhátíðina
Iceland Airwaves. Hann stóð fyrir alþjóðlegu tónlist-
arhátíðinni ATP á Ásbrú nú í sumar.
Tómas framkvæmdastjóri Hljómahallar
Tómas Viktor Young