Morgunblaðið - 03.01.2014, Síða 32

Morgunblaðið - 03.01.2014, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 ✝ Elísabet Reyk-dal fæddist á Setbergi Garða- hreppi 17. desem- ber 1912. Hún lést á Sólvangi 21. desem- ber 2013. Foreldrar henn- ar voru Þórunn Böðvarsdóttir, f. 21.10. 1883, d. 3.1. 1964, og Jóhannes Reykdal, f. 18.1. 1874, d. 1.8. 1946. Systkini henn- ar voru: Kristín, f. 1905, d. 2005, g. Hans Christiansen, Ásgeir, f. 1906, d. 1933, Böðvar, f. 1907, d. 1931, Jóhannes, f. 1907, d. 1907, Jóhannes, f. 1908, d. 1942, Frið- þjófur, f. 1910, d. 1910, Frið- þjófur, f. 1911, d. 1934, Ásdís, f. 1914, d. 1971, g. Hermanni Sig- urðssyni, Þórarinn, f. 1916, d. 1993, kv. Iðunni Eylands, Lovísa, f. 1918, d. 1931, og Þórð- ur, f. 1920, d. 2011, kv. Jónu Hildi Jónsdóttur. Elísabet giftist Einari Halldórssyni stýrimanni síðar bónda og oddvita, f. 28.7. 1910, 10. september 1938, Einar lést 22. janúar 1978. Foreldrar hans voru Sigrún Jónsdóttir, f. 6.3. 1874, d. 10.11. 1953, og Hall- dór Magnús Ólafsson, f. 20.8. 1869, d. 31.3. 1924. Börn þeirra eru 1) Halldór, f. 13.10. 1938, kv. Unni Jónsdóttur og eiga þau Sunnevu Þöll og Birtu Diljá, Einar, í samb. með Unni Sigríði Erlingsdóttur, þau eiga Erling Sigurð, og Kötlu, g. Þórhalli Sverrissyni, þau eiga Erp, Frey og Sölku. 6) Pétur, f. 21.6. 1956, kv. Guðrúnu Harðardóttur og eiga þau Hrafnhildi, í samb. með Gunnari Guðjónssyni, þau eiga Pétur, Hörð í samb. með Yrsu Pálínu Ingólfsdóttur og Hákon. Elísabet bjó á Setbergi nær alla sína ævi fyrir utan nokkur ár í æsku á Þórsbergi, nýbýli úr Setbergslandi sem Jóhannes faðir hennar byggði. Síðustu fimm æviárin dvaldi hún á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi í jaðri Setbergs. Skólaganga El- ísabetar var ekki löng, hún var einn vetur í Flensborg og einn vetur í Kvennaskólanum í Reykjavík. Fimm systkini henn- ar létust úr berklum á árunum 1931-1942. Elísabet og Einar hófu búskap á Setbergi á far- dögum vorið 1938 og allt þar til að Einar lést, og í samstarfi við syni sína þar til búskapur lagð- ist af að mestu árið 1985. Á efri árum ferðaðist Elísabet mikið bæði innan og utan, oft ein en líka með systurdóttur sinni, Ragnheiði Hermannsdóttur. Ferðaðist Elísabet til allra heimsálfa nema Suðurskauts- landsins. Útför Elísabetar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 3. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 11. Þórdísi, í sambúð með Guðbjarti Magnússyni, þau eiga Halldór Magn- ús. 2) Kristín, f. 1.3. 1941, g. Hauki Bachmann og eiga þau Ingólf Theó- dór, kv. Lilju Björgu Ingibergs- dóttur, þau eiga Guðjón Inga, Svan- dísi Helgu og Hönnu Kristínu. 3) Jóhannes, f. 14.10. 1942, kv. Pálínu Páls- dóttur og eiga þau Elísabetu Reykdal, g. Einari Jóni Ás- björnssyni, þau eiga Jónu Björk, Jóhannes, Elías Pál og Ásbjörn, og Pál Ragnar, kv. Margréti Einarsdóttur, þau eiga Pálínu Björk, Heklu Guðrúnu og Bryn- dísi Emilíu. 4) Friðþjófur, f. 6.3. 1946, kv. Huldu Júlíusdóttur og eiga þau Högna, kv. Matthildi Rúnarsdóttur, þau eiga Huldu Sif, Hrefnu og Maríu, Vigdísi í samb. með Tómasi Bergþórs- syni, þau eiga Þorstein Erik, Thelmu Rós, Jón Ævar, Matt- hías Elmar og Birtu Þöll og Helgu í samb. með Gunnari Loga Gunnarssyni, þau eiga Karl Jóhann og Lovísu Huld. 5) Sigrún, f. 12.3. 1948, g. Sigurði Gíslasyni og eiga þau Gísla Þór, kv. Margréti Hönnu, þau eiga Eyddi ég síðasta tíkallinum áð- an í sítrónusvalann eða á ég tíkall til að hringja í ömmu? „Yes“ ég á tíkall, ég hringi í ömmu. Nokkrum mínútum síðar var amma mætt á litla gráa Volvo-inum sínum með appelsínugula áklæðinu og vökva- stýrinu. Hún ók yfirleitt beint heim á Setberg en stundum átti hún erindi niður í bæ. Sennilega kom hún alltaf vegna þess að þá þurfti ég ekki að taka tilhlaup yfir Keflavíkurveginn. Snittubrauð með ólívum, höfð- ingi og heimalöguð rifsberjasulta. Blárósótt vatnskanna og rauðir glerdiskar. Þung slögin úr klukk- unni inni í stofu. Vindlalykt og voldugur blár gleröskubakki ásamt mikið notuðum spilum, krossgátan úr Mogganum á borð- inu. Olsen, kasína, rommí og rússi. Heimsreisur og gönguferð- ir. Heyskapur og töðugjöld. Lítið gat í veggnum undir stig- anum og inn á ójafnt steypt gólfið í þvottahúsinu. Eftirprentun af málverki í eldhúsinu með mjög sérkennilegum hestum, sennilega úr Flóanum. Dökkbrúnar inni- hurðir. Blár fólksbíll með kýrauga. Kisur og kettlingar á stéttinni fyr- ir aftan hús. Músaveiðar á sama stað. Lappi gamli, feitur og patt- aralegur að biðja um klór. Lakkr- ísrenningar í nammiskál. Málverk af Setbergi fyrir ofan píanóið. Rauðmálaðir útveggir og kýr á túninu fyrir neðan. Fjórar sortir af rjómabollum ýmist með glassúr eða flórsykri ofan á. Rúlluterta með heimalag- aðri rabarbarasultu, lagterta úr ekta súkkulaði með koníaks- kremi, vanilluhringir og spesíur. Fyrsta kókglasið og kínarúllan. Fyrsta heimalagaða pítsan. Fyrsti bolluvöndurinn, risastór með bleikum og grænum blómum úr pappír. Puntudúkkurnar sem ég fékk eftir heimsreisurnar. Hvítt gólf- teppi með brúnu og svörtu mynstri. Fótanuddtæki á baðher- berginu og bleikar veggflísar. Bjöllurnar ofan á sjónvarpinu. Hattarnir, kápan og veskin í sparianddyrinu. Vingjarnlegt andlit og mjúk höndin. Góðmennska og tillits- semi. Kraftur og úthald. Yndis- legur hlátur sem byrjaði alltaf innst inni og braust svo upp á yf- irborðið með fallegu brosi og björtum augum. Töff fatasmekk- ur og fínt hárið. Endalaus upp- spretta fróðleiks um allt mögu- legt. Ættfræði og frásagnar- hæfileikar. Húmor. Allt hjá ömmu Bet, hún var best. Elsku amma, þú fékkst að sofna. Ég skal ekki loka dyrunum, bara halla hurðinni. Þórdís. Það er erfitt að skrifa minning- argrein um ömmu Bet af því að hún var ekki hrifin af því að fólk væri lofað í ræðu eða riti, en hún er sú sem á það mest skilið að vera lofuð fyrir allt sem hún gerði og fyrir allt sem hún stóð fyrir. Ég má því varla segja frá því hvað hún var góð, hlý, skemmtileg og klár. Að hún var ekki bara amma heldur svo miklu meira. Það var alltaf hægt að leita til ömmu með allt, hvort sem það var til að losa mann undan ósanngjörnum upp- eldisaðferðum foreldranna, spila, fá hjálp við lærdóminn, fræðast um söguna eða hvað sem er í heiminum eða létta á hjartanu vegna ástarsorgar á hæsta stigi. Amma átti svör við öllu og vissi einhvern veginn allt. Það að amma Bet sé farin er eiginlega eins og að taka Google og aðra sambærilega vefi af okkur. Hún var sú sem allir gátu leitað til og öllum líkaði vel við. Hún var einhvern veginn amma allra. Ég hef alltaf litið upp til ömmu og verið stoltur af henni. Þegar við sátum saman á pallinum heima fyrir tveimur árum og hún sagði mér frá sínum uppvaxtarár- um skildi ég ekki hvernig hún gat sagt söguna sína án þess að klökkna eins og ég gerði við að hlusta. Ég skildi það betur þegar börnin hennar töluðu saman eftir að amma dó og þau sögðu að hún hefði klárað öll sín tár áður en hún gifti sig. Ég fór yfir það í huganum að ég hafði aldrei séð ömmu gráta. Ég er svo heppinn að vera í fjöl- skyldu þar sem menn byggja sér ekki hús nema að sjá heim til mömmu sinnar og hef því alltaf búið í kallfæri við ömmu. Frá því ég fæddist hef ég notið góðs af þessu. Þegar ég átti að sofa sex ára einn í mínu rúmi þá fór ég nið- ur til ömmu og þar naut ég skiln- ings á því að það væri bara ósann- gjarnt og fékk að skríða upp í. Þegar ég flutti í næsta hús og varð aðeins eldri og vantaði í partí drykki sem ég hafði ekki aldur til þess að kaupa, þá leitaði ég til ömmu því að ég gat treyst því að hún færi ekki að segja mömmu og pabba. Amma Bet kenndi mér margt í lífinu og ég mun alltaf minnast hennar sem, sorrí amma, sem þeirrar bestu, traustustu, gjaf- mildustu, áreiðanlegustu, sorrí aftur, og frábærustu manneskju sem ég hef kynnst. Ég veit að þú kærðir þig ekki um einhverja lof- ræðu en ég bara varð. Ég er þakk- látur fyrir að dætur mínar fengu að kynnast bestu ömmu í heimi. Hvíldu í friði, elsku amma Bet. Högni. Ömmu, sem aldrei var kölluð annað en „amma Bet“ af okkur barnabörnunum, var sennilega best lýst sem skörungi og nútíma- konu. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að amma var fædd nokkru áður en fyrri heimsstyrjöldin hófst, en var þrátt fyrir það nú- tímalegri en flestir í hugsun. Dugnaðarforkur sem gekk í öll verk hvort sem það var inni eða úti. Einnig var hún með fyrstu konum í sýslunni að taka bílpróf og keyrði bíl í yfir 70 ár. Eftir and- lát afa lét hún drauminn um ferða- lög rætast og ferðaðist um allan heim. Okkur systkinunum þótti alltaf jafn merkilegt þegar við vor- um krakkar að skoða vegabréfið hennar og sjá stimpla frá löndum í fjarlægum heimsálfum. Heimili ömmu á Setbergi var sérstaklega notalegt og alltaf opið okkur barnabörnunum sem bjuggum öll í húsunum umhverfis Setberg. Margrar góðar minning- ar koma upp í hugann líkt og bolludagurinn þegar amma bakaði að því er virtist óteljandi bollur of- an í stóran hóp afkomenda. Að hitta á ömmu eina í húsinu, spjalla og spila við skrifborðið í stofunni, var líka í sérstöku uppáhaldi. Þá skipuðu afmælisveislur hennar sérstakan sess í huga okkar og mörkuðu upphaf jólanna, en af- mælin hennar voru ætíð mikil veisla. Við litum alltaf upp til áhuga ömmu á menntun og sjálfstæði. Hún reyndi ávallt að gera lífið skemmtilegra hvort sem það var með lestri, spilamennsku, ferða- lögum eða í gleðskap með góðu fólki. Afstaða hennar til lífsins er til mikillar eftirbreytni fyrir okkur sem eftir erum – að njóta þess að vera til. Þegar við kveðjum ömmu er okkur efst í huga þakklæti fyrir allt sem hún hefur gert fyrir okk- ur og fyrir þá fyrirmynd og hvatn- ingu sem hún er fyrir okkur, allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Hvíl í friði, elsku amma. Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir, Páll Ragnar Jóhannesson. Nú hefur hún amma okkar kvatt okkur, og það er með sárum söknuði sem við skrifum þessi kveðjuorð. Amma var okkur öllum svo kær, árin sögðu að hún væri gömul en hugurinn var á öðru máli. Hún amma Bet hafði ein- staka lund sem við dáðum öll í fjöl- skyldunni. Við þökkum þér, elsku amma okkar, fyrir alla góðvildina og áhugann í okkar garð, við þökk- um fyrir allt sem þú kenndir okk- ur um lífið og tilveruna, fyrir ná- lægðina og fyrir allar gleðistundirnar sem við vorum svo heppnar að fá að njóta með þér. Takk fyrir að vera amma okkk- ar. Við geymum allar góðu minn- ingarnar um þig í hjarta okkar um ókomin ár. Við viljum enda þessi kveðjuorð á bæninni sem þú baðst með okkur á kvöldin þegar við fengum að gista. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Helga Guðrún og Vigdís Hlín. Elísabet Reykdal ✝ Guðveig Þór-hallsdóttir fæddist 23. maí 1929 í Hofsgerði á Höfðaströnd. Hún lést á Heilbrigð- isstofnuninni á Sauðárkróki 22. desember 2013. Foreldrar henn- ar voru Helga Friðbjarnardóttir, Brekkukoti ytra í Blönduhlíð í Skagafirði, f. 7.12. 1892, d. 20.4. 1986, og Þórhall- ur Björn Ástvaldsson, f. á Á í Unadal 6.11. 1893, d. 30.9. 1962. Helga og Þórhallur bjuggu lengst í Litlu Brekku á Höfða- strönd. Guðveig var 11. í röð 12 barna þeirra en þau misstu fyrsta barn sitt, sem fætt var 1916. Látin eru Elísabet, f. 1917, d. 2003, Ósk f. 1918, d. 2004, Friðbjörn, f. 1919, d. 2003, Guðbjörg, f. 1920, d. 2011, Ásdís, f. 1922, d. 2001, Anna Guðrún, f. 1923, d. 2004, Krist- jana, f. 1925, d. 2011, Þorvald- ur, f. 1926, d. 2011. Eftirlifandi eru: Halldór Bjarni, f. 1927, bú- settur í Reykjavík og Birna, f. 1938, búsett í Keflavík. Guðveig giftist Jóhannesi Haraldssyni, veghefilsstjóra, 25. júlí 1953. Jóhannes var fæddur á Völlum í Skagafirði 28.5. 1928, d. 11.1. 2011, þau stofnuðu ný- býlið Sólvelli og áttu þar heimili alla tíð. Guðveig og Jó- hannes eignuðust sex börn, en þau eru: Ingibjörg, f. 19.9. 1948, maki Vilhjálmur Pálma- son, Anna, f. 10.7. 1956, maki Þór- ólfur Pétursson, Bjarni, f. 15.6. 1961, maki Helena Gunn- arsdóttir, Þórhallur, f. 12.4. 1963, fv. maki Guðrún Inga Sig- urðardóttir, Haraldur, f. 12.4. 1963, maki Andrea Andr- ésdóttir, Ástvaldur, f. 13.11. 1965, maki Ásdís Pálsdóttir, auk þess ólu þau upp dótturson sinn, Jóhannes Þór Sigurðsson, f. 6.10. 1968, maki Hulda Ólafs- dóttir. Guðveig helgaði sig húsmóðurstörfum mestan hluta ævinnar, en starfaði um skeið á saumastofunni Vöku, útibúinu í Varmahlíð. Hinn 1. desember 2012 flutti hún á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Útför Guðveigar verður gerð frá Sauðárkrókskirkju í dag, 3. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku mamma, með þessum lín- um kveð ég þig í hinsta sinn. Hug- urinn reikar til uppeldisáranna þegar þú varst ein heima með alla strákahrúguna, fimm talsins. Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir þig að hafa stjórn á okkur þegar fjörið var sem mest og ósætti innan hóps- ins sem einstöku sinnum kom fyrir. Mest lékum við okkur útivið, og ég man að oft voru vinir okkar í heim- sókn heilu dagana. Alltaf passaðir þú að gestirnir hefðu nóg að borða og að enginn færi svangur frá þér. Oft var gestkvæmt hjá þér enda ættin stór og margir vildu koma við í kaffi á Sólvöllum þegar þeir áttu leið framhjá. Þegar okkur drengj- unum varð á að segja einhvern ljót- an, varstu fljót að benda okkur á að hver og einn væri fallegur á sinn hátt. Snemma flutti ég að heiman stofnaði fjölskyldu og eignaðist börn. Strákarnir mínir fóru stund- um í sveitina til afa og ömmu þar sem dekrað var við þá. Aðdáunarvert fannst mér hvað þú hafðir pabba lengi heima hjá þér eftir að hann veiktist og varst treg til að senda hann á sjúkra- deildina þó svo þú hefðir ekki lík- amlega burði til að hjálpa honum ef eitthvað kom upp á. Þú varst alltaf félagslynd og erfitt fyrir þig að vera ein heima síðustu árin. Þú varst mjög ánægð þegar þú svo fékkst herbergi á ellideildinni (á Sauðárkróki) og hafðir nóg fyrir stafni. Þó svo að minnið gæfi sig varstu alltaf ánægð, sagðist ekki hafa yfir neinu að kvarta,varst afkastamikil í postulínsmáluninni og prjóna- skapnum og sást til þess að allir fengju jólapakka frá þér, bæði börn og barnabörn. Það hefur sjálf- sagt mörgum þótt sérstakt og ánægjulegt að taka upp jólapakka frá þér þessi jólin. Elsku mamma, takk fyrir allar góðu samverustundirnar. Þinn sonur, Ástvaldur. Guðveig Þórhallsdóttir ✝ Pétur Jóhanns-son fæddist í Hafnarfirði 23. júní 1925. Hann lést 4. desember 2013 Pétur fæddist í Hafnarfirði og bjó þar fyrsta árið en fluttist þá til Kefla- víkur og bjó þar alla sína tíð. For- eldrar hans voru Guðrún Péturs- dóttir og Jóhann Gunnlaugur Guðjónsson. Systkini Péturs voru 3, Guðjón og Jón, sem báðir eru látnir, og Agnes, sem lifir bræð- ur sína. Ungur fór hann til sjós með föður sínum og bræðrum. Hann lærði rennismíði frá Iðn- skóla Keflavíkur og meðan á námi stóð vann hann í Drátt- arbraut Keflavíkur. Hann var líka lærður vélstjóri. Hann vann í 42 ár hjá hernum á Keflavík- urflugvelli í rið- breytistöðinni og vann hann þar til 72 ára aldurs. Pétur kvæntist Svein- björgu Valgerði Karlsdóttur 5. nóv- ember 1946 og eiga þau 5 börn: Guð- rúnu, átti hún tvo syni og er annar lát- inn, Ingunni Steinu, gifta Kristni Sverr- issyni og eiga þau 3 syni, Sævar, kvæntan Matthildi Einarsdóttur og eiga þau til samans 7 börn, Braga, uppeldisson, kvæntan Valgerði Þorvaldsdóttir og eiga þau 4 börn, Pétur, kvæntan Sig- ríði K. Steinarsdóttur og eiga þau til samans 5 börn. Barna- barnabörnin eru orðin 30 talsins. Útför fór fram í kyrrþey frá Keflavíkurkirkju þann 20. des- ember 2013. Mínar bestu æskuminningar ná aftur til sex ára aldurs þegar við Pétur Jóhann frændi þeystumst um á BMX hjólunum okkar en oft- ast var förinni heitið til afa, Péturs Black, og ömmu Svennu. Hádeg- ismat eða pönnukökur fengum við frændi oft í viku hjá ömmu og afi kíkti svo á hjólin okkar ef það var eitthvað að. Ef afi Pétur gat ekki lagað það þá gat það enginn. Afi er ein af mínum sterku fyrirmyndum í lífinu. Hann var ávallt hreinn og beinn, snyrtilegur og ávallt tilbú- inn að hjálpa og hlusta og sagði bara við þig ef honum mislíkaði eitthvað. Gagnrýninn, en ein- göngu af umhyggju. Hann kunni alltaf góða brandara, var mjög orðheppinn og var gjarn á að sletta á ensku enda vann hann hjá hernum í 42 ár. Ég man hvað mér fannst sorglegt að honum var sagt upp störfum, 72 ára. Kannski var það vegna þess að hann hafði svo gaman að skrúfa og brasa. Maður við fulla heilsu og með kollinn í lagi. Þess má geta að hann tók sér einungis tvo veikindadaga á 42 ár- um. Hann var þúsundþjalasmiður mikill og ef það vantaði einhverja lausn, verkfæri eða tæki hannaði hann það bara og smíðaði svo. Hann var náttúruunnandi sem ræktaði auðan blett í Grímsnesinu upp í skógi vaxinn reit með krútt- legu koti. Móttökurnar voru alltaf hlýjar, bæði heima og uppi í sum- arbústað. Afi hugsaði einstaklega vel um dótið sitt, svo vel að maður hugsaði sig tvisvar um áður en maður fékk eitthvað að láni. Hann var snyrtimenni sem mætti alltaf eins og klipptur út úr tískublaði í veislur og þá var hann bara í jakkafötunum sem hann gifti sig í. Takk fyrir uppeldið, brosin þín, hjartahlýjuna og metnaðinn sem þú kenndir mér að fylgja. Afi hafði svo gaman af börnum að þó hann lægi hálfsofandi uppi í rúmi kom- inn á síðustu stig alzheimers-sjúk- dómsins var alltaf tími til að blikka, brosa og hreyfa eyrun fyr- ir börnin. Stelpurnar mínar, Alís Lilja og Elísabet, biðja að heilsa. Elsku amma Svenna, megi guð styrkja þig. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Davíð Kristinsson. Pétur Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.