Morgunblaðið - 28.01.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
Væntanlegar breytingar á bygging-
arreglugerð eiga að leiða til lækkunar
á byggingarkostnaði, að mati Sigurð-
ar Inga Jóhannssonar umhverfisráð-
herra. Hann kvaðst vona að breyting-
ar á reglugerðinni sjái dagsins ljós í
næsta mánuði. „Ég er búinn að bíða
nokkuð lengi eftir þessu og er orðinn
óþolinmóður að þetta fari að gerast,“
sagði Sigurður.
Unnið hefur verið að endurskoðun
byggingarreglugerðarinnar frá því í
fyrrasumar og er heilmikil vinna að
baki, að sögn Sigurðar. Meðal annars
var regluverk okkar á þessu sviði bor-
ið saman við reglugerðir í nágranna-
löndum, aðallega á Norðurlöndum og
í Bretlandi. „Það kom í ljós að við ger-
um aðrar og stífari kröfur sem meðal
annars snúa að hurðabreiddum og
gangabreiddum. Við vinnum að því að
klára ákveðnar tillögur sem ég vænti
að við getum hrundið í framkvæmd
mjög fljótlega,“ sagði Sigurður. „Ég
held að við höfum einfaldlega gengið
of langt.“
Tillögurnar snúa til dæmis að kröf-
um varðandi námsmannaíbúðir.
Reikna má með að stærðarákvæði
verði ekki lengur inni í forskrift að
slíkum íbúðum. Eins má reikna með
einföldun á regluverki og að einfald-
ara verði að sækja um byggingarleyfi
fyrir minni framkvæmdir.
„Það er verið að laga ýmsa van-
kanta sem menn hafa bent á og auka
svokölluð markmiðsákvæði reglu-
gerðarinnar,“ sagði Sigurður Ingi.
Með markmiðsákvæðum er átt við að
hönnuðir geti sýnt fram á að þeir upp-
fylli skilyrði reglugerðarinnar. Mark-
miðið er að uppfylla ákveðnar kröfur
en ekki að fylgja ákveðinni forskrift
varðandi stærðir. Nefna má að það er
til skoðunar að setja inn markmiðsá-
kvæði fyrir stærð á baðherbergi og
snyrtingu íbúða. Ákvæði um þau at-
riði eru nú fremur í ætt við forskrift í
byggingarreglugerðinni.
Varðandi minni íbúðir verður til
dæmis mögulegt að byggja íbúðir
með nettó flatarmál allt niður í 26,5
fermetra. Við það bætist svo geymsla
og hlutdeild í sameign.
gudni@mbl.is
Lækkar bygg-
ingarkostnað
Byggingarreglugerð verður breytt
„Það er verið að
laga ýmsa vankanta
sem menn hafa
bent á“
Sigurður Ingi Jóhannsson
„Staðan er ekki álitleg. Það ber tölu-
vert á milli,“ segir Vilhjálmur Birgis-
son, formaður Verkalýðsfélags Akra-
ness. Kjaraviðræðum félagsins og
viðsemjenda þess vegna þriggja sér-
kjarasamninga hefur nú verið slitið
og hefur félagið vísað kjaradeilunum
til ríkissáttasemjara.
Um er að ræða viðræður um end-
urnýjun kjarasamninga vegna starfs-
manna við fiskimjölsverksmiðju HB
Granda, tæplega 200 starfsmanna
hjá verksmiðju Elkem Ísland á
Grundartanga og Klafa sem sér um
upp- og útskipanir á Grundar-
tangasvæðinu.
„Við vorum
búnir að funda
með Samtökum
atvinnulífsins
tvisvar eða þrisv-
ar vegna þessara
samninga og núna
þegar þessi staða
er komin upp á
vinnumarkað-
inum er ekki um
neitt annað að
ræða en að vísa þeim til ríkis-
sáttasemjara,“ segir Vilhjálmur.
Félagið fer fram á meiri launa-
hækkanir en samið var um í kjara-
samningunum sem gerðir voru 21.
desember og um helmingur ASÍ-
félaga felldi í atkvæðagreiðslu.
Sambærileg kröfugerð SGS
Að sögn Vilhjálms er launakrafan í
þessum samningum sambærileg við
upphaflegar kröfur Starfsgreina-
sambandsins sem kynntar voru í
byrjun nóvember: Þar var m.a. farið
fram á að lægsti taxti hækkaði um
20.000 kr. og launataflan yrði endur-
skoðuð. SA hafnaði kröfunum og mat
þær á annan tug prósenta í hækkun
launakostnaðar. „Okkur stendur til
boða það sama og samið var um á al-
menna vinnumarkaðinum en það eig-
um við afskaplega erfitt með að
sætta okkur við enda eru þetta fyrir-
tæki sem starfa í útflutningi og hefur
gengið nokkuð vel í rekstri,“ segir
Vilhjálmur. Hann væntir þess að
næsti fundur í þessum kjaradeilum
verði haldinn í lok vikunnar.
Nokkrum kjaradeilum hefur nú
verið vísað til sáttameðferðar. Kjara-
deilu framhaldsskólakennara og rík-
isins var vísað til sáttasemjara í sein-
ustu viku. Er boðað til næsta
sáttafundar á morgun. Þá hefur
Blaðamannafélag Íslands vísað
kjaradeilu við SA til sáttasemjara.
„Það ber töluvert á milli“
Verkalýðsfélag Akraness hefur vísað til ríkissáttasemjara kjaradeilum starfs-
manna í fiskimjölsverksmiðju HB Granda, járnblendiverksmiðju Elkem og Klafa
Vilhjálmur
Birgisson
Það er alltaf eitthvað um að vera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laug-
ardal. Selirnir hafa visst aðdráttarafl og unga kynslóðin fylgist gjarnan
grannt með þeim, en dýrin eru ekki síður forvitin um umhverfið.
Morgunblaðið/Ómar
Selirnir vinsælir
Líf og fjör í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Búið er að selja um 1.000 miða er-
lendis á raftónlistarhátíðina Sónar
Reykjavík sem fer fram í Hörpu í
Reykjavík 13.-15. febrúar nk.
Björn Steinbekk, talsmaður hátíð-
arinnar, segir að hún verði með svip-
uðu sniði og í fyrra, þegar hún var
fyrst haldin. Hátíðin fari fram á
fimm sviðum og auk hefðbundinna
tónleikasala verði hluta af efri bíla-
kjallaranum breytt í lítinn nætur-
klúbb, eins og í fyrra, þar sem er-
lendir og innlendir plötusnúðar
þeyta skífum föstudags- og laugar-
dagskvöld um hátíðarhelgina. „Við
breytum parti af bílakjallaranum í
eitt stórt svið,“ segir hann.
Harpa hefur sótt um leyfi til tón-
leikahalds fyrir 350 gesti í bílakjall-
aranum á umræddum tíma, en mál-
inu var frestað á fundi byggingar-
fulltrúans í Reykjavík í liðinni viku.
Björn á þó ekki von á öðru en að mál-
ið verði afgreitt í tíma.
Hátíðin á rætur að rekja til Barce-
lona þar sem hún var fyrst haldin
1994.
67 listamenn og hljómsveitir
Á Sónar Reykjavík koma fram 67
listamenn og hljómsveitir. Þar á
meðal eru Major Lazer, Paul Kal-
brenner, Trentemøller, GusGus, Bo-
nobo, Ryuichi Sakamoto & Taylor
Deupree, James Holden, Diplo, Jon
Hopkins, FM Belfast, Hjaltalín,
Daphni, Evian Christ, Kölsch, Sísý
Ey, Ojba Rasta, Kiasmos, When Sa-
ints Go Machine, Gluteus Maximus,
Vök, Eloq og Moses Hightower.
Um 3.000 miðar voru settir í sölu
vegna hátíðarinnar. Björn segir að
salan hafi gengið mjög vel og meðal
annars sé búið að selja um 1.000
miða í Bretlandi, á meginlandi Evr-
ópu og í Bandaríkjunum.
Góð sala á Sónar erlendis
Sónar Reykjavík Björn Steinbekk
Kristjánsson í bílakjallara Hörpu.
Morgunblaðið/Kristinn
Átján ára karlmaður er enn í lífs-
hættu eftir bílslys sem varð á Vest-
urlandsvegi við Fornahvamm í
Norðurárdal sunnudaginn 12. jan-
úar síðastliðinn. Honum er enn
haldið sofandi í öndunarvél á gjör-
gæsludeild Landspítalans.
Maðurinn var ökumaður fólks-
bifreiðar sem lenti í árekstri við
flutningabifreið sem kom á móti.
Hann var fluttur með þyrlu á Land-
spítalann. Farþegi fólksbifreiða-
rinnar, 16 ára stúlka, lét lífið í
árekstrinum.
Að sögn lögreglu var hálka og
skafrenningur þegar slysið átti sér
stað. Slysið bar að með þeim hætti
að fólksbifreiðin rann í veg fyrir
flutningabifreiðina. Slysið varð á
beinum vegarkafla nærri brúnni
við Fornahvamm.
Enn haldið sofandi á
gjörgæsludeild
Stella Stefánsdóttir
húsmóðir á Akureyri
lést á Landspítalanum
í Fossvogi aðfaranótt
mánudags, 90 ára að
aldri. Stella átti fleiri
afkomendur á lífi en
nokkur annar Íslend-
ingur, 190 alls.
Stella eignaðist 14
börn, átti 52 barna-
börn, 107 langömmu-
börn og 17 langalang-
ömmubörn.
Stella fæddist í
Bryggjuhúsinu á
Akureyri 8. október
1923 en ólst upp í Hinrikshúsi á
Eyrinni, að mestu leyti hjá föður-
fjölskyldu sinni. Foreldrar Stellu
voru Stefán Hinriksson, f. á
Reyðarfirði 1898, en hann fórst
með Dettifossi árið 1945, vélstjóri,
og Guðrún Einarsdóttir, f. á Hær-
ingsstöðum í Svarfaðardal 1899, d.
1985, húsfreyja.
Ung að árum giftist Stella eigin-
manni sínum, Gunnari Konráðssyni,
og varð brátt húsfreyja á barn-
mörgu heimili en börn þeirra hjóna
urðu 14 talsins, tíu dætur og fjórir
synir. Einn sonur þeirra lést fimm
ára en hin börnin eru
öll á lífi.
Stella hafði meira
en nóg að gera þegar
börnin voru að komast
á legg. En þrátt fyrir
stóran barnahóp var
Stella vökukona við
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri frá 1956.
Hún hóf sjúkraliða-
nám 1966 og var síðan
sjúkraliði við FSA á
árunum 1967-90.
Stella og eigin-
maður hennar, Gunn-
ar, fluttu í Lækjar-
götu 22 á Akureyri árið 1948 og þar
var hún búsett til 2006. Þá flutti
hún að Mýrarvegi 117 þar sem hún
bjó til æviloka.
Stella sinnti ýmsum félagsstörf-
um með heimilisstörfunum. Hún
starfaði lengi með kvenfélaginu Hlíf
og starfaði með Mæðrastyrksnefnd.
Einnig sat hún um skeið í stjórn
Sjúkraliðafélagsins á Akureyri.
Stella var við góða heilsu fram á
efri ár. Hún var nýkomin frá Dan-
mörku þegar hún veiktist alvarlega
s.l. miðvikudag og lést fáum dögum
síðar.
Andlát
Stella Stefánsdóttir
Samút, samtök átján útivistar-
félaga, mótmæla harðlega hug-
myndum um náttúrupassa í ályktun
sem þau sendu frá sér í gær. Sam-
tökin segja að með slíkum aðgangs-
passa væri vegið stórlega að al-
mannarétti sem sé grundvallar-
réttur fólks til að ferðast frjálst um
eigið land.
Náttúrupassinn yrði afar dýr og
erfiður í framkvæmd og drjúgur
hluti af innkomu færi í eftirlit og
innheimtukostnað. Hann myndi trú-
lega stórauka álag á lögreglu og
landvörðum. Auk þess myndi hann
letja íslenskan almenning til að
ferðast um landið. Í staðinn leggur
Samút til komu- eða brottfarargjöld
sem sé einföld aðgerð í framkvæmd
samhliða stefnumörkun í samvinnu
við hagsmunaðila.
Að ályktuninni standa Ferða-
klúbburinn 4x4, Skotvís, Bandalag
íslenskra skáta, Landssamtök hjól-
reiðamanna, Jöklarannsóknafélag
Íslands, Útivist, Landssamband
stangveiðifélaga, Íslenski alpa-
klúbburinn, Sjálfboðaliðasamtök um
náttúruvernd, Landssamband ís-
lenskra vélsleðamanna, Lands-
samband hestamannafélaga, Félag
húsbílaeigenda og Kayakklúbbur-
inn.
Morgunblaðið/Kristinn
Strokkur Rætt hefur verið um að-
gangspassa að náttúruperlum.
Vegið að
rétti fólks til
frjálsra ferða