Morgunblaðið - 28.01.2014, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
Skotbómulyftarar
mest seldi
skotbómulyftarinn
2012
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
Lyftigeta 2.5 til 12 tonn
Fáanlegir með
• Vinnukörfum
• Skekkingju á bómu
• Bómu með lengd allt að 18 metrum
• Roto útfærsla með bómu
allt að 25 metrum
Kvikmyndin Gravity í leikstjórn
Alfonsos Cuaron varð um helgina
hlutskörpust í vali Samtaka
amerískra kvikmyndaleikstjóra
(e. The Directors Guild of Amer-
ica) á bestu myndum ársins.
Verðlaunin þykja hafa mikið for-
spárgildi fyrir Óskarinn, því í 66
ára sögu DGA-verðlaunanna hef-
ur það aðeins sjö sinnum gerst að
sá leikstjóri sem að mati DGA
var bestur hlaut ekki Óskars-
verðlaunin líka. Steven Soder-
bergh hlaut tvenn verðlaun, ann-
ars vegar var hann heiðraður
fyrir vinnu sína í þágu samtak-
anna með Robert B. Aldrich-
verðlaununum og hins vegar fyr-
ir Behind the Candelabra, í flokki
leikinna sjónvarpskvikmynda og
stuttra sjónvarpsþáttaraða, sem
fjallar um líf hins litríka píanó-
leikara Liberace með Michael
Douglas í aðalhlutverki.
AFP
Sigurreifir Alfonso Cuaron var verðlaunaður fyrir Gravity. Í fyrra var Ben Affleck verð-
launaður fyrir Argo, en átti ekki séns í Óskarinn þar sem hann var ekki tilnefndur.
Gravity besta myndin að mati
Samtaka kvikmyndaleikstjóra
Franska rafsveitin Daft Punk var
sigursælust á Grammy-tónlistar-
verðlaununum sem afhent voru að-
faranótt mánudags í 56. skiptið.
Sveitin, sem skipuð er Thomas Ban-
galter og Guy-Manuel de Homem-
Christo, hlaut fimm verðlaun, þar á
meðal fyrir plötu ársins, Random
Access Memories, sem og fyrir
smáskífu ársins, Get Lucky. Þar
sem félagarnir koma aldrei fram án
hjálma sem gerir þeim erfitt fyrir
að tjá sig eftirlétu þeir Pharrell,
samstarfsfélaga sínum, að flytja
þakkarorð.
Macklemore & Ryan Lewis voru
valdir nýliðar ársins og hlutu þrenn
verðlaun til viðbótar fyrir bestu
rappplötuna, rapplagið og rapp-
flutninginn. Besta rokklagið var val-
ið „Cut Me Some Slack“ eftir Dave
Grohl, Krist Novaselic, Pat Smear
og Paul McCartney. Sá síðastnefndi
vann einnig til verðlauna fyrir tón-
leikamyndina Live Kisses ásamt
þeim Jonas Akerlund, Violaine Eti-
enne, Aron Levin og Scott Rodger.
Hin sautján ára gamla nýsjá-
lenska söngkona og lagasmiður Ella
Maria Lani Yelich-O’Connor, betur
þekkt sem Lorde, fékk tvenn verð-
laun. Lorde var annars vegar verð-
launuð fyrir lag ársins sem nefnist
„Royals“ og hins vegar valin besti
sólóflytjandi ársins fyrir flutning
sinn á fyrrnefndu lagi. Justin Tim-
berlake hlaut þrenn verðlaun, þar á
meðal ásamt Jay Z fyrir besta
rapp-popp-bræðing ársins fyrir lag-
ið „Holy Grail“. Sinfóníuhljóm-
sveitin í Minnesota fékk Grammy-
verðlaun fyrir flutning sinn á sin-
fóníum númer 1 og 4 eftir Jean
Sibelius undir stjórn Osmo Vänskä.
silja@mbl.is
Daft Punk
sigursælust
Grammy-verðlaunin afhent í 56. sinn
AFP
Saman á ný
Bítlarnir Paul McCartney og Ringo Starr hlutu viðurkenningu fyrir ævistarfið á Grammy-verðlaunaafhendingunni.
Þar fluttu þeir lagið „Queenie Eye“ eftir þann fyrrnefnda og var það í fyrsta sinn í rúm þrjú ár sem þeir komu fram
opinberlega saman . Að flutningi lagsins loknum tókust þeir í hendur, hneigðu sig og föðmuðust innilega. McCart-
ney hlaut sín 16. Grammy-verðlaun fyrir tónleikamyndina Live Kisses og besta rokklagið, „Cut Me Some Slack“.
AFP
Á haus Tony Iommi, Ozzy Osbourne og Geezer Butler úr Black Sabbath
fengu verðlaun fyrir besta flutning þungmálmabands vegna „God Is Dead“.
AFP
Táningur Lorde var valin besti sóló-
flytjandi ársins vegna „Royals“.
EPA
Reynslubolti Cyndi Lauper vann
fyrir bestu leikhústónlistina.
AFP
Orðlausir Félagarnir í frönsku rafsveitinni Daft Punk voru sigursælir á
Grammy-tónlistarverðlaununum sem afhent voru í 56. sinn um helgina.