Morgunblaðið - 28.01.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
Dagur B. Eggertsson, fyrrver-andi varaformaður Jóhönnu
Sigurðardóttur, er hin rísandi
stjarna Samfylkingarinnar sam-
kvæmt könnunum Félagsvísinda-
stofnunar fyrir Morgunblaðið.
Þrennt skýrireinkum góða
mælingu Dags til
borgarstjóra-
embættisins:
Í fyrsta lagi hefurborgarstjóri leyft
honum að eiga sviðið
á kjörtímabilinu, að
vísu fyrir utan
skemmtidagskrána.
Í öðru lagi hefurminnihlutinn í
borginni látið hann í friði, líkt og
borgarstjórann, þrátt fyrir ítrekuð
klúður og ótal gagnrýniverð mál.
Í þriðja lagi hafa aðrir oddvitarframboðanna í Reykjavík gætt
þess vandlega að gera ekkert sem
kynni að skyggja á þennan oddvita
og formann borgarráðs.
En fari kosningarnar líkt ogkönnun um fylgi flokkanna
sem Morgunblaðið birti í gær gefur
til kynna verður fróðlegt að fylgjast
með meirihlutaviðræðum samfylk-
ingarflokksbrotanna tveggja.
Og það verður athyglisvert að sjáhvern formaður flokksbrotsins
Bjartrar framtíðar mun styðja til
borgarstjóra, skólabróður sinn sem
hann aðstoðaði í því embætti eða
oddvita eigin flokksbrots.
Hvorn ætli Guðmundur Stein-grímsson vilji frekar sjá í stóli
borgarstjóra, Dag B. Eggertsson
eða S. Björn Blöndal?
Dagur B.
Eggertsson
Hvað finnst að-
stoðarmanninum?
STAKSTEINAR
Guðmundur
Steingrímsson
H
a
u
ku
r
0
1
.1
4
MÁLMIÐNAÐUR Í
SJÁVARÚTVEGI
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
TIL SÖLU
Stórt og rótgróið iðnfyrirtæki í málmiðnaði sem byggir bæði á sölu
innanlands og á útflutningi. Viðskiptavinir eru framleiðslufyrirtæki á
sjávarfangi. Bæði er þar um að ræða mikilvæga samninga við fasta
viðskiptavini um viðhald og varahluti sem og stök verkefni í vélalausnum.
Fyrirtækið hefur mikla sérstöðu og á auðvelt með að hasla sér völl
á fleiri mörkuðum erlendis
Við teljum að hér sé á ferðinni einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki á svipuðu sviði
eða öfluga menn með þekkingu og áhuga á tækni,
markaðsmálum og útflutningi.
Veður víða um heim 27.1., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 3 alskýjað
Nuuk 1 skýjað
Þórshöfn 2 skúrir
Ósló -3 snjókoma
Kaupmannahöfn -1 snjókoma
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Helsinki -8 snjókoma
Lúxemborg 1 slydda
Brussel 2 skýjað
Dublin 6 skúrir
Glasgow 6 skýjað
London 6 léttskýjað
París 6 skýjað
Amsterdam 2 súld
Hamborg 2 léttskýjað
Berlín -2 snjókoma
Vín -3 þoka
Moskva -12 snjókoma
Algarve 15 skýjað
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 skýjað
Róm 7 skúrir
Aþena 7 léttskýjað
Winnipeg -31 upplýsingar bárust ekki
Montreal -12 snjókoma
New York 3 skýjað
Chicago -18 léttskýjað
Orlando 19 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:20 17:02
ÍSAFJÖRÐUR 10:44 16:49
SIGLUFJÖRÐUR 10:27 16:31
DJÚPIVOGUR 9:54 16:27
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
ÁRÉTTING
Féllu frá hækkun
Vegna fréttar í blaðinu í gær um
hækkanir sveitarfélaga á gjald-
skrám leikskóla vill Regína Ást-
valdsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi,
koma því á framfæri að bærinn féll
frá 3% hækkun sem taka átti gildi á
þessu ári. 2% hækkunin, sem getið
var í fréttinni, tók gildi 1. júní 2013.
Þá barst athugasemd í gær frá
Fjarðabyggð. Þar segir að bæjarráð
Fjarðabyggðar hafi ákveðið á fundi
13. janúar s.l. að afturkalla fyrirhug-
aðar hækkanir. Með því hafi jafn-
framt verið tekin ákvörðun um að
halda gjaldskrá leikskóla, skóladag-
heimila og tónlistarskóla óbreyttri
þriðja árið í röð.
Umrædd frétt í blaðinu var byggð
á upplýsingum á heimasíðu ASÍ.
Ekki hefur verið
hætt við Hús ís-
lenskra fræða
heldur hefur
framkvæmdinni
aðeins verið
frestað. Þetta
lagði Illugi Gunn-
arsson, mennta-
og menningar-
málaráðherra,
áherslu á í um-
ræðum á Alþingi í gær.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, bar fram fyrirspurn um málið
og spurði m.a. hver væri heildar-
kostnaður vegna undirbúnings og
framkvæmda við húsið. Sagði
ráðherrann heildarkostnaðinn
orðinn um 590 milljónir.
Þá sagði Illugi að mikilvægt væri
að heildarfjármögnun verksins væri
tryggð í svari við þeirri spurningu
hvort ríkið væri reiðubúið að hætta
við stöðvun framkvæmdanna gegn
því að Háskóli Íslands legði fyrr
fram sitt fjárframlag til þeirra en
gert hefði verið ráð fyrir.
Heildar-
fjármögnun
sé tryggð
Fyrirspurn um
Hús íslenskra fræða
Illugi
Gunnarsson