Morgunblaðið - 28.01.2014, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR.
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR.
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET.
Þúsundir fermetra af flísum
með 20 -70% afslætti
Baðherbergisvörur
20 -70% afsláttur
Teppi og dúkar
25-70% afsláttur
ÚTSALA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET.
DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI.
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra vísaði því á bug að
minnisblað í svonefndu lekamáli
hefði komið úr ráðuneytinu, í um-
ræðum um málið á Alþingi í gær.
Málshefjandi var Valgerður
Bjarnadóttir, þingmaður Samfylk-
ingar, en sem kunnugt er varðar
minnisblaðið tvo hælisleitendur.
Spurði hún Hönnu Birnu hvernig
upplýsingum um hælisleitendur
væri safnað í innanríkisráðuneytinu
og hvort athugun hefði farið fram á
meintum leka. „Það eru þarna upp-
lýsingar sem fara einhvers staðar út
úr kerfinu og það er mjög alvarlegt,“
sagði Valgerður í síðari ræðu sinni.
Um 5.000 mál á ári hverju
„Háttvirtur þingmaður spyr hvort
ástæða sé til að ætla að trúnaðar-
upplýsingar berist víðar en vera
skyldi og séu jafnvel misnotaðar,“
sagði Hanna Birna og benti á að
innanríkisráðuneytið fengi til um-
sagnar og afgreiðslu yfir 5.000 mál á
ári. Stór hluti þeirra mála innihéldi
trúnaðargögn. „Miðað við reynsluna
má fullyrða að starfsmenn fylgi ýtr-
ustu verklagsreglum, virði trúnað og
sinni störfum sínum af mikilli vand-
virkni og trúmennsku,“ sagði hún.
„Ráðuneytið hefur með margvís-
legum hætti kannað hvort trúnaðar-
gögn hafi verið send úr ráðuneytinu
til óviðkomandi aðila. Í framhaldi af
kvörtun lögmanns hælisleitenda var
það gert með samtölum við starfs-
menn, skoðun á gagnagrunni ráðu-
neytisins, samanburði á þeim gögn-
um sem til eru í ráðuneytinu, og um
hefur verið fjallað í fjölmiðlum, sam-
hliða því sem rekstrarfélag stjórnar-
ráðsins gerði sjálfstæða athugun á
því hvort ætla mætti að tölvutæk
trúnaðargögn vegna málsins hefðu
farið úr ráðuneytinu. Niðurstaða
þessarar athugunar er að ekkert í
gögnum ráðuneytisins bendir til
þess að trúnaðargögn hafi verið send
til aðila sem ekki eiga rétt á þeim
lögum samkvæmt. Frá þessu hefur
ráðuneytið ítrekað greint.“
Mörður Árnason, þingmaður
Samfylkingar, steig einnig í pontu og
sagði minnisblaðið þannig úr garði
gert „bæði að efni, stíl og áferð kom-
ið úr, eða a.m.k. búið til á þann hátt,
að það sé komið úr ráðuneyti,“ sagði
Mörður. Annars væri minnisblaðið
„ákaflega góð fölsun“. „Úr því að
hæstvirtur innanríkisráðherra hefur
ekkert að fela þá á hæstvirtur innan-
ríkisráðherra ekki að fela neitt,“
sagði Mörður sem skoraði á ráð-
herra að láta rannsaka málið frekar.
Tortryggir viðbrögð ráðherra
Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, taldi tilefni til að rann-
saka „lekamálið“ frekar. „Það sem
gerir það mál erfitt og tortryggilegt
eru viðbrögð hæstvirts innanríkis-
ráðherra. Það getur vel verið að
þetta [minnisblaðið] hafi ekki komið
úr innanríkisráðuneytinu … Það á
að fara fram rannsókn á svona, sér-
staklega vegna þess að málið er há-
pólitískt, óhjákvæmilega,“ sagði
hann.
Hanna Birna lauk umræðunum á
því að ítreka að ráðuneytið hefði gert
það sem það gæti til að skoða málið.
„Nú er málið í kæruferli. Það er hinn
löglegi, eðlilegi farvegur,“ sagði
Hanna Birna og vísaði til þess að
lögmaður hefði kært minnisblaðið til
lögreglu, fyrir hönd annars hælis-
leitandans. Hefur lögmaður hins
kært minnisblaðið til ríkissaksókn-
ara.
Ráðherra segir minnisblað
ekki komið úr ráðuneyti sínu
Hanna Birna gagnrýnir málflutning um umdeilt minnisblað um hælisleitendur
Morgunblaðið/Ómar
Alþingishúsið Tekist var á um „lekamálið“ í þingræðum í gær.
Valgerður
Bjarnadóttir
Mörður
Árnason
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Íslensk stjórnvöld tóku ekki þátt í að
fjármagna íraskar öryggissveitir
sem hafa meðal annars verið sak-
aðar um að beita pyntingum í gegn-
um aðild sína að NATO. Þetta kom
fram í svari Gunnars Braga Sveins-
sonar utanríkisráðherra við fyrir-
spurn Birgittu Jónsdóttur, þing-
manns Pírata, á Alþingi í gær.
Í svarinu kom ennfremur fram að
Ísland hefði stutt við þjálfunarverk-
efni NATO fyrir her og lögreglu í
Írak ásamt öðrum aðildarríkjum.
Engar upplýsingar hafi komið fram
um að þau verkefni hafi stutt við
pyntingar eða önnur mannréttinda-
brot á vegum íraskra öryggissveita.
Þær sveitir hafi verið þjálfaðar skv.
áætlun sem bandarísk stjórnvöld
ráku á eigin vegum í samstarfi við
írösk stjórnvöld. Sami bandaríski
hershöfðinginn var hins vegar yfir
báðum þjálfunaráætlununum.
Heildarkostnaður íslenska ríkis-
ins vegna þjálfunaráætlunarinnar
nam rúmum 26,6 milljónum króna.
AFP
Öryggi Íraskur öryggissveitar-
maður. Myndin er úr safni.
Fjármögn-
uðu ekki
voðaverk