Morgunblaðið - 28.01.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014
www.nortek.is Sími 455 2000
Nortek sérhæfir sig í öryggislausnum sem þú
getur treyst hvort heldur er að degi eða nóttu,
miklir möguleikar bæði fyrir lítil og stór fyrirtæki.
Meira en 16 ára reynsla í sölu og þjónustu á
öryggiskerfum.
Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík
Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is
FYRIRTÆKJAÖRYGGI
• Aðgangsstýring
• Brunakerfi
• Myndavélakerfi
• Innbrotakerfi
• Slökkvikerfi / Slökkvitæki
• Öryggisgirðingar / Hlið / Bómur
• Áfengismælar / fíkniefnapróf
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur skipt sköpum fyrir árangur
þinn að þú flytjir mál þitt af festu en um leið
þannig að allir skilji. Taktu skref afturábak og
skoðaðu það af hlutlægni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér hættir til að leyna einhvern ein-
hverju í dag til þess að fyrirbyggja vandræði.
Hrósaðu þér einu sinni eða tvisvar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ekki einblína á það sem þú heldur
að þú getir ekki breytt. Reyndu að greina það
hvers vegna og hvernig þú spyrnir á móti ást-
inni. Vissir atburðir eru gjöf og merki um að
þú sért á réttri leið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert yndisleg ráðgáta í augum ein-
hvers sem elskar þig. Þú ert frábær eins og
þú ert. Ekki breyta til að þóknast öðrum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vertu bjartsýn/n því takmark þitt er
ekki eins fjarlægt og þú heldur. Haltu áfram
að sjá það fallega í öðrum, allir voru eitt sinn
barn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Góðvild þín er sjálfsagður hlutur. Eng-
um stendur ógn af metnaði þínum heldur
verður þú þvert á móti beðin/n að láta í þér
heyra. Notaðu tímann og sinntu áhugamálum
þínum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þegar í öngstræti er komið er gott að
hugsa málin alveg upp á nýtt. Þú átt von á
skemmtilegu símtali.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu gagnrýni annarra ekki á
þig fá. Spáðu samt í það af hverju þú lítur upp
til sumra. Berðu fram spurningar en ekki
vænta svars strax.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sérkennileg atburðarás kann að
leiða til þess að þú hljótir loks umbun erfiðis
þíns. Samstarfsmenn þínir kunna vel að meta
hæfileika þína sem og yfirmenn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Yfirboðskennd vinátta kemur og
fer og þú gerir lítið veður út af því. Reyndu að
nýta frelsið í botn. Farðu varlega í skemmt-
analífinu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er annríki framundan. Um-
fram allt þarft þú að forðast fljótfærni, sem
þér hættir til. Það gæti rofað til í ástamál-
unum ef þú gefur þér tíma til að þess.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Veltu áföllum lífsins fyrir þér, sama
hversu óþægileg eða vandræðaleg þau eru.
Gefðu þér þann tíma sem þarft til þess. Þú
átt vin sem vill allt fyrir þig gera, þiggðu hjálp
þegar gefur á bátinn.
Bjarki Karlsson segir fólk stöð-ugt kvarta undan því að aðrir
segi „fóturinn minn“, „augun mín“
í stað „fóturinn á mér“ og „augun í
mér“. Hann bætir við: „Ég held að
þessi ósómi sé allur Vatnsenda-
Rósu að kenna. Er hér með búinn
að gera við vísuna hennar:
Augun í mér og augun í þér,
eru fjögur, sirka.
Mitt var í þér og þitt í mér
(þetta er ekki að virka).“
Jón Arnljótsson frétti af afreki
Anítu Hinriksdóttur um helgina:
Í morgun urðu mistök stór.
Met kom þó í hús.
Aníta, í flýti, fór
1500+
Það eru „nýir tímar“ ef marka
má vísu Ármanns Þorgrímssonar
sem ort er í tilefni af þáttunum „Ís-
land Got Talent“:
Ekki skil ég útlensku,
illa stundum dagblöðsku,
allt frá blautri barnæsku
bara notað íslensku.
„Nota ljósastaura eins og Face-
book“ var fyrirsögn fréttar á
Mbl.is, þar sem greint var frá því
að hundar notuðu ljósastaura eins
og mennirnir nota samskiptasíður
eins og facebook:
Það má greina þýðan nið
og þef af fínu tagi
þegar Lubbi lækar við
ljósastaur með þvagi.
Sigmundur Benediktsson yrkir í
„lægðarmiðju“:
Læðist grá yfir lýðum,
lútir höfðinu þrútin.
Gríðar lægð yfir græði
grúfir sig tætt og úfin.
Lúðrar gleðiskyn lýða,
lepur upp sorg og depurð.
Hagsæld þvættar úr huga,
hrelld er drótt undir feldi.
Kristján Eiríksson varpar fram
vísnagátu:
Ósk og þrá er einatt bundin,
arði tengd og gróða nógum,
jóð í lífi fljóða fundin,
í Flugu keypt í Brimnesskógum.
Svör sem berast í bundnu máli
birtast í vísnahorni morgundags-
ins.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Anítu, dagblöðsku og
ljósastaurum
mbl.is
Tveir nýir raunveruleikaþættirhófu á dögunum göngu sína í
íslensku sjónvarpi, The Biggest Lo-
ser Ísland á Skjá Einum og Ísland
Got Talent á Stöð 2. Eins og svo
margir staldrar Víkverji fyrst við
nöfnin sem eru hvort öðru verra,
undarleg samsuða íslenskra og
enskra orða. Eflaust er hér um
réttindamál að ræða enda þættirnir
báðir að erlendri fyrirmynd. Ef
ekki er smekkleysan auðvitað al-
gjör.
Víkverji hefur ekki aðgang að
Skjá Einum og fyrir vikið mun
hann ekki fylgjast með The Big-
gest Loser Ísland. Hann heyrir þó
í kringum sig að fólk er að horfa
og sumir hverjir meira að segja
býsna spenntir. Málefnið svo sem
göfugt, fólk í efri þyngdarflokkum
hefur yfirleitt gott af því að létta
sig.
Hvar eru annars keppendurnir?
Í auglýsingu sem Víkverji hefur
rekist á víða að undanförnu, meðal
annars í síðasta Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins og á heimasíðu
Skjásins, auglýsa þrjár manneskjur
þáttinn. Stjórnandinn, Inga Lind
Karlsdóttir, og þjálfararnir, Evert
Víglundsson og Gurrý Torfadóttir.
Ekkert þeirra má við því að missa
gramm. Er þetta ekki svolítið
undarleg nálgun?
x x x
Dómendur og kynnir hafa líkaverið áberandi í kynning-
arherferð Stöðvar 2 vegna Ísland
Got Talent og ýmsum brögðum
beitt. Þannig var bréf sem Bubbi
Morthens, einn dómenda, fékk frá
keppanda, sem hafði verið hafnað,
dregið fram í dagsljósið. Undarlegt
mál.
Víkverji er áskrifandi að Stöð 2
og sá fyrsta þáttinn um helgina.
Herlegheitin fóru rólega af stað en
Víkverji mun örugglega gefa þætt-
inum tækifæri. Vonandi hressast
keppendur þó fljótt.
Ísland Got Talent er lagt upp
sem fjölskylduskemmtun og það er
eflaust góð vísbending að ungling-
arnir tveir á heimili Víkverja sett-
ust niður fyrir framan skjáinn með
foreldrum sínum til að sjá fyrsta
þáttinn. Það hefur ekki gerst mán-
uðum saman – ef ekki hreinlega ár-
um. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
Í klípu
NÝJAR GIRÐINGAR EIGA ÞAÐ TIL AÐ
VALDA DEILUM MILLI NÁGRANNA.
SÉRSTAKLEGA Í FJÖLBÝLISHÚSUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÉR HLÝTUR AÐ VERA
ILLA VIÐ EINHVERN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þessi sérstaka
tilfinning, þegar þið
eruð saman.
FLÖ
GG O
G
NÆL
UR
HÆTTU AÐ KVARTA! HVERNIG
Á LJÚFA AÐ LÆRA AÐ ELDA
EF HÚN FÆR ALDREI AÐ
ÆFA SIG Á NEINUM?
SVO ÞÚ SKALT OPNA
MUNNINN OG TYGGJA!
JÆJA, NÚ FÖRUM
VIÐ Í MEGRUN!
VIÐ GETUM STUTT
HVOR ANNAN!
LÍÐUR ÞÉR
EKKI STRAX
BETUR?
HVAÐ
HELDUR
ÞÚ?