Morgunblaðið - 03.02.2014, Side 14

Morgunblaðið - 03.02.2014, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2014 Sólskálar -sælureitur innan seilingar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 29 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is mánudaginn 3. febrúar, kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg H afsteinn A ustm ann H afsteinn A ustm ann Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd mánudag kl. 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Listmunauppboð í Gallerí Fold Markaðsgreinendur segja að taka verði hagtölum frá Kína með fyrirvara bæði í janúar og febrúar. Kín- verska nýárið, tunglnýárið, lendir á 31. janúar og hefur töluverð áhrif á virkni í atvinnulífinu síðustu daga jan- úar og fyrstu daga febrúar. Kínverska fréttastofan Xinhua slær þennan varnagla í fréttum af fyrstu hagtölum sem birtar eru fyrir jan- úarmánuð. Innkaupastjóravísitalan í janúar dróst saman annan mánuðinn í röð, fór úr 51,0 stigi í desember niður í 50,5 stig. Innkaupastjóravísitalan er mæld á skala þar sem gildi yfir 50 jafngildir aukningu milli mánaða en gildi undir 50 jafngildir samdrætti. Ekki er ósennilegt að kínverska nýárið skýri mikið af samdrættinum. Er nýárið sá tími árs sem Kínverjar taka sér iðulega gott frí til að verja tíma með ætt- ingjum. Margir ferðast um langan veg og eru lengi frá vinnu fyrir þær sakir, jafnvel svo vikum skiptir í tilviki farandverkamanna. Færri vinnudagar í S-Kóreu MarketWatch segir þannig tungl-nýárið líka geta skýrt samdrátt í útflutningstölum í S-Kóreu í janúar. Eftir samfelldan vöxt mánuðina þrjá á undan hægði á út- flutningi í takt við færri vinnudaga vegna áramóta- hátíðarinnar. Útflutningur frá S-Kóreu dróst saman um 0,2% í jan- úar m.v. sama tímabil í fyrra. Sömuleiðis dróst inn- flutningur saman um 0,9% m.v. janúar 2013 en það árið lenti tungl-nýárið á 10. febrúar. ai@mbl.is Kínverska innkaupastjóra- vísitalan lækkaði í janúar  Túlka þarf tölur með fyrirvara um áhrif tungl-nýársins  Einnig samdráttur í inn- og útflutningi í S-Kóreu í janúar AFP Afköst Starfsmaður í bílaverksmiðju í borginni Quingdao. Reikna má með að frídagar vegna kínverska nýársins skýri að hluta veikar hagtölur fyrir janúar. Síðasta ár var mikið uppgangstímabil á bandarískum hlutabréfamarkaði og í lok árs voru spár mjög blendnar um hvort árið 2014 yrði jafn gjöfult. Böl- sýnismennirnir gætu hafa reynst sannspáir því janúar einkenndist af verðlækkunum. S&P 500 vísitalan lækkaði um 0,7% á föstudag og endaði í 1.782,59 stig- um. Lækkunin yfir vikuna var 0,4% og lækkunin yfir mánuðinn var 3,6%. Svipaða sögu var að segja af Dow Jones vísitölunni sem lækkaði um 0,9% á föstudag og endaði í 15.698,85 stigum. Vikulækkunin nam 1,9% og mánaðarlækkunin í janúar 5,2%. Hafa stóru vísitölurnar ekki lækk- að svona skarplega síðan í maí 2012. Nasdaq vísitalan missti 0,5% á föstudag og endaði vikuna í 4.103,88 stigum. Vísitalan missti 0,6% yfir vik- una og 1,7% í mánuðinum. Titringur í nýmarkaðsríkjum MarketWatch segir markaðinn hafa verið í söluham í liðinni viku. Gjaldmiðlar í nýmarkaðsríkjum (e. emerging markets) veiktust víða um heim og fékk það órólega fjárfesta til að losa sig við áhættufjárfestingar til að leysa út hagnaðinn af hækkunum síðasta árs. Hafa gjaldmiðlar verið að veikjast þónokkuð í löndum á borð við Tyrk- land, Rússland, Taíland, S-Afríku og Argentínu. Meðal þeirra fyrirtækja sem drógu markaðinn niður á föstudag má nefna leikfangaframleiðandann Mattel sem lækkaði um 12% vegna óvænts sam- dráttar í sölu á liðnum fjórðungi. Net- verslunarrisinn Amazon missti 11% þegar fréttist að sölutölur á síðasta ársfjórðungi hefðu verið ögn undir spám. Sömuleiðis stóðust sölu- og hagn- aðartölur ekki væntingar hjá Chevr- on, sem missti 4,1% á föstudag, og var það sama uppi á teningnum hjá Mast- erCard sem lækkaði um 5,1%. Ekki voru öll hlutabréf á niðurleið á föstudag. Leikjafyrirtækið Zynga tók sterkan kipp þegar tilkynnt var um fækkun starfsfólks og kaup á snjallsímaleikjafyrirtækinu Nat- uralMotion. Bætti Zynga við sig 23,6%. Gullið styrkist enn Á meðan hlutabréf hafa sigið hefur gullið risið. Á föstudag veiktist gull með afhendingu í apríl um 0,2% og endaði í 1.329,80 dölum á únsuna. Yfir vikuna missti gullið 1,9% en yfir mán- uðinn hækkaði gullúnsan um 3,1%. ai@mbl.is Slappur mánuður vestanhafs  Mesta mánaðarlækkun Dow Jones og S&P síðan í maí 2012  Gull hækkaði um 3,1% í janúar AFP Selja? Miðlari á gólfi kauphallarinnar í New York fylgist íbygginn með tölunum á skjánum. Helstu hlutabréfa- vísitölur lækkuðu í janúarmánuði og föstudagur var sérlega slæmur fyrir m.a. Amazon og Mattel. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.