Morgunblaðið - 03.02.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.02.2014, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2014 Þegar ég hóf nám í bifvélavirkjun fyrir um 40 árum hafði mað-ur fátt annað í höndum en skrúfjárn og lyklasett. Þurfti íorðsins fyllstu merkingu að fara í verkin með berum hönd- unum og beita útilokunaraðferð til að finna bilunina. Þetta var lær- dómsríkt,“ segir Ólafur Grétar Kristmundsson á Selfossi, sem er 56 ára í dag. Hann hefur starfað við bílaviðgerðir frá 1975 og unnið tíu síðustu árin á þjónustuverkstæði Toyota eystra. Í áraraðir hefur Ólafur verið í slökkviliði Brunavarna Árnessýslu. Var lengi í útkallsliðinu og frá þeim tíma minnist hann margra stór- bruna, sem giftusamlega tókst að ráða niðurlögum á. „Fyrir mér hefur slökkviliðið verið áhugamál, en öðrum þræði tel ég þetta þó vera samfélagsskyldu. Það er góð tilfinning að geta orðið að liði þegar vá steðjar að,“ útskýrir Ólafur sem segir áhugamál sín vera fleiri. Glerskurður sé skemmtilegt viðfangsefni og sl. tíu ár hefur hann tekið þátt í starfi módelflugmanna, sem fljúga fjarstýrðum rellum frá velli við Eyrarbakka. „Þetta er rétt við Litla-Hraun en við hættum ekki á að láta flygildin sveima þar yfir. Ætli karlarnir í varðturninum myndu ekki fyrirskipa að flygildin yrðu skotin nið- ur,“ segir Ólafur – sem er kvæntur Halldóru Óskarsdóttur. Þau eiga tvö börn; Kristmund sem er vélvirki við álverið á Reyðarfirði og Ólöfu, nema við Fjölbrautaskóla Suðurlands. sbs@mbl.is Ólafur Grétar Kristmundsson 56 ára í dag Ljósmynd/Guðmundur Kristinn Sigurðsson Viðgerðir „Í verkin með berum höndunum og beita útilokunaraðferð til að finna bilunina. Þetta var lærdómsríkt,“ segir Ólafur Grétar. Bifvélavirkinn sem slekkur eldana Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. R ósa Hrund fæddist í Reykjavík 3.2. 1954. Hún gekk í Lauga- lækjar-, Breiðagerðis- og Réttarholtsskóla í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1974, stundaði nám við Barnamús- íkskólann í Reykjavík 1963-66, Tón- listarskólann í Reykjavík 1967-75 og lauk lokaprófi frá Richard Strauss Konservatorium í München í Þýskalandi sumarið 1980. Rósa Hrund hefur verið fiðluleik- ari í Sinfónuhljómsveit Íslands frá 1980 og í Hljómsveit Íslensku Óp- erunnar frá 1981. Hún var fiðlu- og tónmenntakennari við Tónmennta- skóla Reykjavíkur 1980-85, er með- limur í Júlíkvartettinum frá stofnun hans 1993 og hefur leikið með ýms- um Kammersveitum. Rósa Hrund tók jógakennarapróf árið 1999 en það kallar hún kær- komna og gefandi viðbót við fiðlu- leikinn. Rósa Hrund var formaður Starfs- mannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands 1984-86 og 1993-95 og sat um árabil í Stjórn Samtaka um tón- listarhús svo og í samninganefnd hljóðfæraleikara Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. Í upphafi aldarinnar var Rósa Hrund sæmd gullmerki Félags ís- lenskra hljóðfæraleikara fyrir vel unnin störf en hún mun vera þriðja konan sem hefur orðið þess heiðurs aðnjótandi. Þú hefur leikið með Sinfóníu- hljómsveit Íslands í 34 ár. Engin þreytumerki? „Nei. Ég er fyrst og fremst þakk- lát fyrir öll þessi ár með hljómsveit- inni – og fyrir hvert og eitt þeirra. Rósa Hrund Guðmundsdóttir fiðluleikari – 60 ára Útskrift 2008 Jóhann, Rósa Hrund og Helgi. Myndin er tekin þegar Helgi lauk BS-prófi í byggingaverkfræði. Fiðluleikari og fjallageit Aldurslausar Glæsilegar ballerínur sem skemmtu á jólagleði Kramhússins. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! REKSTRAR- OG ÖRYGGISVÖRUR VERKTAKANS Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. –– Meira fyrir lesendur Morgunblaðið gefur út sérblað, föstudaginn 21. febrúar, tileinkað ÍMARK deginum. Í blaðinu verður fjallað um íslenska markaðsdaginn sem verður haldinn þann sama dag. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 17. febrúar. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is ÍMARK íslenski markaðsdagurinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.