Morgunblaðið - 20.03.2014, Side 1
Útilokar ekki afskipti af verkfalli
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verkfall undirmanna á Herjólfi hefur nú staðið
yfir í rúman hálfan mánuð og krefst bæjarráð
Vestmannaeyja aðgerða af hálfu stjórnvalda til
að binda enda á deiluna. Þá sagði í ályktun
Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja að verk-
fallið legðist þungt á ferðaþjónustuna.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráð-
herra segir stjórnvöld fylgjast grannt með
framvindu deilunnar. Í ljósi þess hversu alvar-
leg áhrif verkfallið sé farið að hafa á atvinnulíf
og öryggi íbúanna „geti ríkisstjórnin ekki úti-
lokað afskipti löggjafans af málinu“.
„Ríkisstjórnin hefur auðvitað þungar
áhyggjur af málinu. Við höfum fengið til okkar
bókanir bæjarráðs Vestmannaeyja og áskor-
anir frá ýmsum aðilum sem tengjast þessu
verkfalli. Þetta er auðvitað orðið gríðarlega
erfitt og alvarlegt mál fyrir eyjarnar.“
Fordæmi fyrir afskiptum ríkisins
Bæjarráð Vestmannaeyja bókaði að það
„krefjist þess að samgönguyfirvöld og eftir at-
vikum Alþingi tryggi að samgöngum við Vest-
mannaeyjar verði sem fyrst komið í eðlilegt
horf“. Spurð út í þessa bókun segir Hanna
Birna enga ákvörðun hafa verið tekna um
hvort ríkið beiti sér í málinu á þessu stigi.
„Það eru auðvitað dæmi um slíkt þegar
svona staða hefur komið upp í Vestmannaeyj-
um. Við vonumst enn til þess að samnings-
aðilar klári málið, enda er slík niðurstaða far-
sælust fyrir alla. En við erum einnig meðvituð
um hversu langt virðist vera á milli samnings-
aðila. Þess vegna er ekki hægt að útiloka að
vari þetta alvarlega ástand mikið lengur þurfi
löggjafinn að ræða og skoða hugsanlega að-
komu að málinu.“
Fordæmi eru fyrir því að löggjafinn setji lög
á verkfall starfsmanna Herjólfs og má nefna að
slíkt var gert árið 1993.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi, segir verk-
fallið hafa tugmilljóna tap í för með sér fyrir
fiskmarkað Vestmannaeyja á degi hverjum.
Bátar séu farnir að landa í öðrum höfnum.
Innanríkisráðherra segist fylgjast grannt með verkfalli undirmanna á Herjólfi sem hófst 5. mars
Árið 1993 voru sett lög á verkfall Fiskmarkaður Vestmannaeyja tapar milljónatugum á dag
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Röskun Herjólfur siglir nú eina ferð á dag en
ekki um helgar eða á föstudegi frá 21. mars.
F I M M T U D A G U R 2 0. M A R S 2 0 1 4
Stofnað 1913 67. tölublað 102. árgangur
VINÁTTA, ÆVIN-
TÝRI OG ÓLÍKAR
ÁSKORANIR
ÚT Í HEIM
Á GÓÐU
UMTALI
TÓNLISTAR-
VEISLA ÓLÍKRA
LISTAMANNA
VIÐSKIPTABLAÐ BARÁTTUTÓNLEIKAR 34BARNAKVIKMYNDAHÁTÍÐ 36
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Samhliða mikilli fjölgun erlendra
ferðamanna til landsins hefur orðið
mikill vöxtur í mörgum atvinnu-
greinum sem tengjast ferðaþjónust-
unni, aðallega á árunum eftir hrun.
Árið 2008 voru til dæmis 76 bíla-
leigur á landinu, nú eru þær 139. Á
sama tíma hefur þeim sem hafa svo-
kallað ferðaskipulagningarleyfi
fjölgað úr 34 í 123 og virkum ferða-
skrifstofuleyfum fjölgað um 72.
Í nýrri skýrslu WTTC, sem eru al-
þjóðleg hagsmunasamtök ferðaþjón-
ustu, segir að heildarframlag ferða-
þjónustunnar til vergrar lands-
framleiðslu hér á landi á síðasta ári
hafi verið um 389 milljarðar, eða
21,6% hennar og fjöldi starfa hafi
verið 37.903 í fyrra, sem eru um
21,9% heildarstarfa. Er því spáð að í
ár verði heildarfjöldi starfa 39.000.
Ferðamálastofa áætlar að 781.016
ferðamenn hafi sótt landið heim í
fyrra. WTTC telst svo til að þeir hafi
eytt samtals 163 milljörðum króna,
ferðakostnaður er þar talinn með, og
spáir því að þessi tala muni hækka
um 1,4% á næsta ári.
MMargföldunaráhrif »6
Bílaleigum fjölgaði um 63
Mikill vöxtur víða vegna fjölgunar erlendra ferðamanna Um 38.000 störfuðu
við ferðaþjónustu í fyrra Ferðaþjónusta 21,6% vergrar þjóðarframleiðslu
Mikil aukning
» Í fyrra var fjárfesting í ferða-
þjónustu rúmir 36 milljarðar.
» Heildarvelta hjá ferðaskrif-
stofum árið 2013 var 3,84
milljarðar og hafði nær þre-
faldast frá árinu 2008.
Börnin kunna að gleðjast yfir snjónum og svo var með þessa
krakka í Hveragerði sem í gær bjuggu til snjóhús úr hvítu
byggingarefni sem til þeirra féll ofan úr himninum.
Ef marka má veðurspá næstu daga er lítil hætta á að vart
verði við efnisskort til snjóhúsagerðar því spáð er kulda og
snjókomu á landinu fram yfir helgi.
Á morgun og laugardag er gert ráð fyrir 18-23 m/s og snjó-
komu á norðan- og austanverðu landinu. Á sunnudagskvöld á
svo að vera hvassviðri og snjókoma sunnan- og vestantil.
Morgunblaðið/RAX
Kuldi, hvassviðri og snjókoma í veðurkortunum fyrir landið fram yfir helgina
Framkvæmda-
gleði í snjónum
Kröfuhafar Glitnis og Kaupþings
hafa orðið af yfir 100 milljörðum
með því að koma ekki með raun-
hæfar tillögur um útgreiðslur á 450
milljarða krónueign búanna sem
hefðu ekki neikvæð áhrif á
greiðslujöfnuð.
Lausafé bankanna var að meðal-
tali um 860 milljarðar á síðasta ári
og á 0,8% vöxtum. Miðað við að vog-
unarsjóðir, sem eiga stærstan hluta
krafna Glitnis og Kaupþings, gera
almennt 15% ávöxtunarkröfu á
sambærilegar fjárfestingar nam
fórnarkostnaður þeirra af óbreyttri
stöðu um 123 milljörðum.
hordur@mbl.is »Viðskipti
Fórnarkostnaður-
inn 120 milljarðar