Morgunblaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Hinn siðferðislegi grundvöllur fóst-
urskimunar og -eyðingar þarf að
vera skýr. Svo er ekki í dag. Sömu-
leiðis þarf að ræða málið út frá þeirri
áleitnu spurningu hvort ákveðinn
hópur fólks sé óvelkominn,“ segir
Guðmundur Ármann Pétursson sem
situr í stjórn Félags áhugafólks um
Down-heilkennið.
Í föstudag, 21. mars, er alþjóðleg-
ur dagur heilkennis þessa, en fyrir
tveimur árum lýstu Sameinuðu þjóð-
irnar því yfir að á þeim degi yrði at-
hygli vakin á lífi fólks með Downs.
Dagsetningin, 21.3, er valin með til-
liti til þess að heilkennið orsakast af
aukalitningi, það er af 21. litningi eru
þrjú eintök en ekki tvö eins og venj-
an er.
Standi ekki andspænis vali
Með ómskoðun, legvatnsástungu
og blóðprufum fá konur í mæðra-
skoðun að vita hvort barnið sé með
Downs. Undantekningalítið velja
foreldrar að eyða skuli fóstrinu og
það setur Guðmundur Ármann
spurningarmerki við.
„Upplýsingarnar sem fólk fær eru
einhliða og snúast um mögulega erf-
iðleika. Hér finnst mér ekki rétt að
málum staðið. Ef foreldrar eiga von á
barni eiga þeir að taka á móti því eins
og það kemur frá skaparanum. Þeg-
ar foreldrar fara í mæðraskoðun eiga
þeir ekki að standa andspænis vali.
Er ekki verið að gefa fólki meiri upp-
lýsingar en það bæði vill og jafnvel
ætti að fá?“
Gumundur Ármann bendir á að á
síðasta ári hafi þessi mál verið til um-
fjöllunar í Bretlandi og á vettvangi
breska þingsins sé nú verið að útbúa
regluverk um þetta efni. Hið sama
þurfi að gera á Íslandi og því standi
til að kynna málið á næstunni, þing-
mönnum og fleirum.
Sú var tíðin að á ári hverju fædd-
ust á Íslandi um tíu einstaklingar
með Downs – en í dag aðeins einn til
tveir. Þessu hafa þekkingin og vís-
indin breytt. „Fólk með Downs getur
ekki síður en aðrir átt innihaldsríkt
og skemmtilegt líf, fullt tækifæra,“
segir Guðmundur Ármann. Þeim
Birnu Guðrúnu Ásbjörnsdóttur
fæddist fyrir fjórum árum sonurinn
Nói Sær sem er með Downs. Þau af-
þökkuðu fósturskimun á sínum tíma
og sjá ekki eftir því. Barnið hafi verið
og sé velkomið.
„Fyrir mig hefur verið áhugavert
að kynnast velferðarkerfinu frá hlið
aðstandanda. Yfirleitt er ég hinum
megin við borðið,“ segir Guðmundur
Ármann, sem er framkvæmdastjóri
Sólheima í Grímsnesi. Segir að þar
búi fólk með Downs sem á sinn hátt
eigi gott líf, haldi heimili, stundi
vinnu og taki þátt í félagsstarfi. „Með
lífsreynslu lærir maður æ betur að
meta fjölbreytileika mannlífsins. Við
erum öll sérstök á einhvern hátt.“
Rannsóknirnar orka tvímælis
Morgunblaðið/Kristinn
Gleði Með lífsreynslu lærir maður æ betur að meta fjölbreytileika lífsins, segir aðstandandi um líf fólks með Downs.
21.3. er dagur Downs heilkennisins Fólkið getur átt innihaldsríkt líf sem er
fullt tækifæra Telur upplýsingar til verðandi foreldra einhliða um erfiðleika
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
Kringlunni 4
Sími 568 4900
Kringlu kast
20 % afsláttur
af öllum vörum
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 31. mars.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Brúðkaupsblaðið
Föstudaginn 4. apríl
kemur út Brúðkaupsblað
Morgunblaðsins
SÉRBLAÐ
Fatnaður fyrir brúðhjónin,
förðun og hárgreiðsla,
brúðkaupsferðin, veislu-
matur, veislusalir og
brúðargjafir verða meðal
efnis í blaðinu.
-Meira fyrir lesendur
Sérstakur sak-
sóknari kærði í
byrjun vikunnar
úrskurð Héraðs-
dóms Reykjavík-
ur í svonefndu
Aserta-máli til
Hæstaréttar.
Þetta staðfestir
Ólafur Þór
Hauksson, sér-
stakur saksókn-
ari. Í málinu eru fjórir karlmenn
ákærðir fyrir brot gegn lögum og
reglum um gjaldeyrismál.
Meint brot mannanna gengu út á
milligöngu um gjaldeyrisviðskipti
með íslenskar krónur gegn erlend-
um gjaldeyri og fjármagnsflutn-
inga á íslenskum krónum til Íslands
tengda þeim viðskiptum. Starfsem-
in var rekin í nafni sænska félags-
ins Aserta AB sem hinir ákærðu
réðu yfir. Viðskiptin námu 14,3
milljörðum króna, án heimildar
Seðlabanka Íslands.
Héraðsdómur vísaði ákærunni
frá vegna óskýrleika. Sérstakur
saksóknari hyggst láta reyna á það
fyrir Hæstarétti hvort ákæran sé
nógu skýr til að málið haldi áfram
fyrir héraðsdómi.
Kærir úrskurð
í Aserta-máli
Ólafur Þór
Hauksson
Skrifað hefur
verið undir sam-
starfssamning
milli Smáralind-
ar, Kópavogs-
bæjar og Hóp-
bíla Teits
Jónassonar um
að halda úti
reglubundnum
ókeypis ferðum
ferðamanna-
vagns í sumar.
Ferðamanna-
vagninn mun
fara fjórar ferðir á dag, frá upp-
lýsingamiðstöð ferðamanna í Aðal-
stræti í Reykjavík inn í Kópavog
og fimm ferðir á fimmtudögum. Í
Kópavogi munu ferðamenn geta
valið um að fara með vagninum í
Hamraborg eða Smáralind. Tekur
ferðamannavagninn 20 farþega í
sæti auk þess sem stæði eru fyrir
12 manns.
Ferðamannavagn í
Kópavogi í sumar
Verslunarmiðstöðin
Smáralind.
„Við verðum því að hugsa þessi
mál alveg upp á nýtt. Hverjar
sem skoðanir fólks eru, trú, litar-
háttur, kynhneigð og svo fram-
vegis, eiga allir sinn rétt og for-
dómar eru víkjandi. Hví ætti ekki
að vera eins með Downs fólk?“
segir Guðmundur Ármann Pét-
ursson.
Á fyrstu áratugum 20. aldar-
innar voru áhrifamiklir einstakl-
ingar áfram um mannræktar-
stefnu, þar sem yfirburðir hins
norræna kyn-
stofns voru út-
gangspunktur.
„Í dag þykja
slík sjónarmið
fráleit og eru
raunar for-
dæmd. Ég hef
þá trú að alveg
á næstu árum
verði farið að
líta á útilokun Downs-fólks alveg
sömu augum.“
Fráleit og fordæmd sjónarmið
MANNRÆKTARSTEFNA Á EKKI RÉTT Á SÉR
Guðmundur Á.
Pétursson