Morgunblaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
Viltu vinna ævintýraferð
fyrir tvo til Indlands?
Ljósmyndasamkeppni Tiger 2014
Taktu mynd og deildu á tigercamera.com. Viðfangsefnið í ár er fjölskylda – lítil fjöslkylda
eða hin útbreidda stórfjölskylda sem við erum öll hluti af eða eitthvað allt annað? Það er þitt
að túlka. Auk ferðarinnar fær vinningshafi mynd sína birta ásamt 50 öðrum myndum úr
keppninni í alþjóðlegri ljósmyndabók Tiger 2014. Samkeppnin er frá 10. mars til 5. maí 2014
og þú tekur þátt á tigercamera.com/participate. Öll skilyrði eru á www.tigercamera.com.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
M
atreiðsla og matar-
menning hefur tek-
ið miklum fram-
förum á Íslandi á
undanförnum ára-
tug. Veitinga- og matreiðslustöðum
hefur fjölgað og úrval rétta er
meira en nokkurn tíma fyrr. Aukin
umfjöllun og samanburður á netinu
eykur jafnframt kröfur neytenda
um gæði og ferskleika og standa ís-
lenskir matreiðslumenn fyllilega
undir þeim kröfum landsmanna
enda sannað sig hér heima og er-
lendis sem heimsklassakokkar.
Bestur á Norðurlöndum
Viktor Örn Andrésson mat-
reiðslumaður heldur uppi góðum
orðstír íslenskra matreiðslumanna
bæði hér heima og erlendis en
hann sigraði í vikunni í Norður-
landakeppni í matreiðslu sem fram
fór í Herning í Danmörku. „Ég var
að keppa við bestu matreiðslumenn
á Norðurlöndum. Hvert land sendir
matreiðslumann ársins í keppnina
en ég hlaut þann heiður hér á Ís-
landi í september á síðasta ári,“
segir Viktor, sem starfar sem yf-
irmatreiðslumeistari Lava í Bláa
lóninu og hefur gert frá árinu 2010.
Auk þess er Viktor liðsstjóri ís-
lenska kokkalandsliðsins.
Marga af bestu matsölustöðum
Evrópu er að finna á Norður-
löndum að sögn Viktors og segir
hann Dani þar fremsta meðal jafn-
ingja. Keppinautar hans hafa því
ekki verið neinir aukvisar. „Tilfinn-
ingin að vinna Norðurlandakeppn-
ina er stórkostleg enda keppinaut-
arnir ekki af verri endanum.
Keppnin sjálf og undirbúningurinn
Norðurlandameist-
ari matreiðslumanna
Meistarakokkurinn Viktor Örn Andrésson sigraði í matreiðslukeppni bestu mat-
reiðslumanna Norðurlanda. Þorskur, humar, nautakjöt, marsípan og súkkulaði
var galdurinn að bragðlaukum dómnefndarinnar auk aga, skipulags og góðra
vinnubragða í eldhúsinu.
Skúrinn Kokkar leggja ýmislegt á sig til að elda dýrindismat fyrir við-
skiptavini sína og fara út í öllum veðrum til að sækja og elda gott hráefni.
Hlaupari Meistarakokkurinn með litla bróður sínum Óskari en þeir bræður
tóku þátt saman í Ladabæjarhlaupinu og unnu auðvitað til verðlauna.
Tveir ungir en reyndir lögmenn hafa
opnað heimasíðuna lánsveð.is þar
sem þeir fræða fólk um ábyrgðar-
yfirlýsingar og þá þróun sem dóm-
stólar hafa fetað um slíka einkarétt-
arlega samninga á undanförnum
árum. „Fjöldi fólks gerir sér ekki
grein fyrir því hver réttarstaða þess
er gagnvart fjármálafyrirtækjum og
lífeyrissjóðum og við viljum auðvelda
fólki að meta stöðu sína og fræðast
um rétt sinn,“ segir Vilhjálmur Þ.Á.
Vilhjálmsson, lögmaður hjá Borgar-
lögmönnum, en hann stofnaði síðuna
ásamt vinnufélaga sínum, Þórði Guð-
mundssyni lögmanni.
„Bankar og sparisjóðir gengu undir
samkomulag árið 1998 og 2001 sem
veitir ábyrgðarmönnum og þeim sem
veita lánsveð töluverða réttarvernd.
Þeir sem vilja kynna sér betur rétt
sinn geta farið á síðuna okkar og haft
samband til að kynna sér rétt sinn.“
Vefsíðan www.lansved.is
Morgunblaðið/Ernir
Réttur Mikilvægt er fyrir alla að þekkja sinn rétt og fá niðurstöðu sinna mála.
Þekkirðu þína réttarstöðu?
Í dag eru vorjafndægur og í tilefni af
því og brúkaupsafmæli Yoko Ono og
John Lennon verður Friðarsúlan í Við-
ey tendruð. Yoko Ono og John Lenn-
on gengu í hjónaband þennan dag ár-
ið 1969 en eins og frægt er eyddu
þau hveitibrauðsdögunum nakin upp
í rúmi í friðsamlegum mótmælum
gegn stíðinu í Víetnam. Friðarsúlan
munlýsa upp næturhiminni í eina
viku og því tilvalið að sigla út í Viðey
og njóta náttúrunnar meðan hugsað
er um frið á þessum tímamótum þeg-
ar dagur og nótt eru jafn löng og dag-
inn fer að lengja enn frekar á kostnað
skammdegisins.
Endilega...
...skellið ykkur
út í Viðey
Morgunblaðið/Kristinn
Friður Friðarsúlan tendruð í Viðey.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Það muna eflaust margir eftir út-
varpsþættinum Hvítir mávar sem
Gestur Einar Jónasson stýrði um ára-
bil á Rás 2. Nú munu þættirnir snúa
aftur, í nýjum búningi þó, þar sem
þeir verða sýndir á sjónvarpsstöðinni
N4. Í þáttunum fær Gestur til sín gott
fólk, drekkur með því kaffi og segir
og fær að heyra skemmtilegar sögur.
Þættirnir eru sýndir einu sinni í viku
og var fyrsti þátturinn sýndur í gær-
kvöldi. „Þeir á N4 höfðu samband við
mig um daginn og spurðu hvort ég
hefði áhuga á að endurvekja Hvíta
máva í sjónvarpi og ég var auðvitað
meira en til í það,“ segir Gestur í
samtali við blaðamann.. Fyrsti við-
mælandi Gests var Eyþór Ingi Jóns-
son, organisti í Akureyrarkirkju.
Gestur segist vera spenntur fyrir
þessu nýja verkefni. „Síðan er ég svo
glaður að þeir vildu halda í gamla
nafnið, Hvítir mávar, sem er íslenskt
og gott nafn.“ Aðspurður segist
Gestur hafa gaman af fjölmiðlum og
að honum finnist þetta skemmtilegt
starf. „Mér líður vel og það er fyrir
öllu, það er aðalmálið.“ segir Gestur
að lokum.
audura@mbl.is
Nýr sjónvarpsþáttur á N4
Sófinn Gestur Einar Jónasson á góðri stundu í góðum hópi.
Gestur Einar Jónasson snýr
aftur með þáttinn Hvítir mávar