Morgunblaðið - 20.03.2014, Side 19
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Nærri 300 vopnaðir menn réðust inn
í höfuðstöðvar úkraínska sjóhersins í
Sevastopol á Krímskaga í gær. Mar-
ina Kanaljúk, aðstoðarmaður yfir-
manns úkraínska flotans, sagði í
samtali við CNN að þeir 70 hermenn
sem fyrir voru í höfuðstöðvunum
hefðu reynt að stöðva innrásarmenn-
ina og reynt að tala þá til. Hún sagð-
ist viss um að rússneskar öryggis-
sveitir hefðu haft hönd í bagga með
mönnunum, sem hefðu skipt út úkra-
ínska fánanum fyrir þann rússneska
en ekki hleypt af vopnum sínum.
Skömmu eftir að höfuðstöðvarnar
voru teknar yfir tilkynnti talsmaður
varnarmálaráðuneytisins í Krím að
Sergí Gajdúk, yfirmaður úkraínska
flotans, hefði verið fluttur frá höf-
uðstöðvunum af hópi fólks. Sam-
kvæmt rússneskum fjölmiðlum var
hann færður á skrifstofur ákæru-
valdsins í borginni, þar sem til stóð
að spyrja hann hvort hann hefði
komið áleiðis skilaboðum frá Kænu-
garði, um að úkraínskum hermönn-
um væru nú heimilt að beita skot-
vopnum sínum í sjálfsvörn.
Vonast eftir friðsamlegri lausn
AFP sagði frá því í gær að önnur
herstöð sjóhersins hefði verið tekin
yfir í gær, á meðan rússneskir her-
menn stóðu hjá. Þá var tilkynnt að
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, myndi heim-
sækja Rússland og Úkraínu í vikunni
en vonir standa enn til að hægt verði
að finna pólitíska lausn mála og
koma í veg fyrir blóðug átök.
Rússneski stjórnarskrárdómstóll-
inn komst að þeirri niðurstöðu í gær
að samningurinn um innlimun Krím í
Rússneska sambandsríkið væri lög-
mætur en ekkert annað ríki hefur
viðurkennt aðskilnað Krím frá Úkra-
ínu. Yfirvöld á skaganum hafa gefið
úkraínskum hermönnum ákveðinn
frest til að yfirgefa svæðið en þeir
hafa verið umkringdir vopnuðum að-
skilnaðarsinnum svo dögum skiptir.
Réðust inn í höfuð-
stöðvar sjóhersins
Yfirmanni úkraínska flotans rænt Ekki hleypt af vopnum
AFP
Reknir á brott Úkraínskir hermenn yfirgefa höfuðstöðvar sjóhersins í Se-
vastopol í gær á meðan rússneskir hermenn standa vörð við hliðið.
Kemur til átaka?
» Yfirvöld í Kænugarði undir-
búa nú flutning úkraínskra her-
manna og fjölskyldna þeirra
frá Krímskaga.
» Talsmaður Hvíta hússins
hvatti stjórnvöld í Rússlandi til
að ræða við ráðamenn í Úkra-
ínu um ástandið við herstöð-
varnar á Krímskaga.
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2014
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Settu heilsuna
í fyrsta sæti!
Við tökum vel á móti ykkur og bjóðum upp á notalegt
andrúmsloft og skemmtilegan félagsskap.
Æfingin hjá okkur tekur
aðeins 30 mínútur
4 mánaða kort á 19.900 kr
gildir frá 24. mars til 23. júlí.
Komdu í frían
prufutíma
Staðgengill rannsóknarstjóra
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
isins, sem m.a. er ætlað að hafa eft-
irlit með bandarísku þjóðarörygg-
isstofnuninni, segir að honum hafi
ekki verið kunnugt um magn-
söfnun stofnunarinnar á upplýs-
ingum um innanlandssímtöl né hafi
embættið opnað rannsókn þar að
lútandi. Frá þessu greindi breski
fjölmiðillinn Guardian á þriðjudag
en það var hann sem upplýsti um
umfangsmikla gagnasöfnun stofn-
unarinnar.
Játningar bandaríska embættis-
mannsins, Anthonys C. Thomas,
þykja skjóta skökku við, þar sem
yfirvöld vestanhafs hafa ítrekað
haldið því fram að njósnastarfsemi
NSA sé undir ströngu eftirliti. Hún
kemur einnig beint á hæla afhjúp-
unar Washington Post um njósna-
kerfið Mystic, sem gerir NSA kleift
að hlera öll símtöl í ónefndu er-
lendu ríki, mánuð aftur í tímann.
Samkvæmt frétt Washington Post
var Mystic fyrst tekið í notkun 2009
en geta þess nær nú til a.m.k. fimm
landa. Leyniskjal um fjárveitingar
fyrir árið 2013 bendir til þess að
áhugi hafi verið fyrir því að beita
Mystic í öðru ríki en ekki liggur
fyrir hvort forritið hafi raunveru-
lega verið notað til að veiða og
geyma öll símtöl í tilteknu landi.
Zeke Johnson, framkvæmda-
stjóri hjá Amnesty International í
Bandaríkjunum, sagði í tilkynningu
í vikunni að í samanburði við NSA
hefði George Orwell, höfundur
Nineteen Eighty-Four og Animal
Farm, verið ímyndunarsnauður.
Hann sagði víðtæka söfnun upplýs-
inga um samskipti fólks brjóta
gegn friðhelgi einkalífsins, sem
mælt væri fyrir um í alþjóðalögum.
AFP
Á hleri Ekki liggur fyrir í hvaða landi eða löndum Mystic hefur verið beitt.
Ekkert eftirlit með
njósnum NSA
Geta hlerað öll símtöl í erlendu ríki