Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014 20% afsláttur Fæst án lyfseðils. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun. Höfuðborgar- svæðið Austurver Domus Medica Eiðistorg Fjörður Hamraborg JL-húsið Kringlan Landsbyggðin Glerártorg Akureyri Hrísalundur Akureyri Dalvík Hella Hveragerði Hvolsvöllur Keflavík Selfoss Vestmannaeyjar Þorlákshöfn BAKSVIÐ Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Áframhald á breytingu og endurgerð Borgartúns stendur nú yfir milli Katrínartúns og Snorrabrautar og er áætlaður kostnaður við framkvæmd- ina 70 milljónir króna. „Þessar fram- kvæmdir eru liður í heildar end- urgerð Borgartúnsins þar sem bætt verður aðgengi fyrir gangandi veg- farendur auk þess sem verið er að leggja hjólastíg í götuna og fegra hana,“ segir Páll Hjaltason, formað- ur umhverfis- og skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar. Að afloknum breytingum á Borgartúninu í heild verða alls 36 bílastæði við götu en voru 88 fyrir breytingar. Páll segir þetta lítið hlutfall heildarstæða í Borgartúninu þar sem fyrirtæki og stofnanir hafi fjölda stæða inni á eig- in lóðum. Bendir hann m.a. á bíla- stæðakjallarann við Höfðatorg og væntanlegan bílastæðakjallara við fyrirhugaða hótelbyggingu á sama reit. Miklar uppbyggingarheimildir Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir gríðarlegar uppbygging- arheimildar vera við Borgartúnið sem ekki hafa verið nýttar enn. Hann telur því óskynsamlegt að þrengja enn frekar að bílaumferð í götunni. „Nú er verið að reisa 340 herbergja hótel við Höfðatorg og þó er reit- urinn bara hálfbyggður. Það þarf ekki annað en að fylgjast með um- ferðinni sem nú fer um Borgartún eftir breytingarnar til að sjá að gatan annar ekki þeirri umferð sem um hana fer. Hún þjónar ekki fyllilega tilgangi sínum lengur og þess vegna má búast við að það hafi áhrif á áhuga fyrirtækja og stofnana á að vera með starfsemi á svæðinu,“ segir Júlíus og bendir á að það hljóti öllum að vera ljóst að ef ástandið er óvið- unandi núna muni það örugglega verða enn erfiðara þegar bygging- armagn hefur verið aukið á svæðinu. Aðgangur fyrir alla Margar götur við og í miðbæ Reykjavíkur hafa fengið andlitslyft- ingu á kjörtímabilinu. Hverfisgatan hefur t.d. tekið stakkaskiptum og Pósthússtrætið verður fært í nútíma- legra horf í sumar. Þá eru uppi hug- myndir um endurbætur á Laugavegi. Páll segir mikla ánægju vera með framkvæmdirnar sem hafi verið orðnar nauðsynlegar þar sem m.a. hafi þurft að skipta um úr sér gengn- ar lagnir og bæta aðgengi hjólandi og gangandi vegfarenda. „Næsti áfangi er að klára Hverfisgötuna og síðan hafa verið viðraðar hugmyndir um endurbætur á Laugavegi.“ Júlíus segir margt ágætt við end- urbætur gamalla gatna. „Flest erum við sammála um að fegra götumynd og brag miðbæjarins. Hins vegar þegar farið er í dýrar endurbætur og breytingar á götum eigum við að nýta tækifærið og gera miðborgina aðgengilega fyrir alla,“ segir Júlíus og bendir á að hægt hafi verið að bjóða rekstraraðilum að finna lausnir sem henti flestum. „Miðborgin á að endurspegla fjölbreytileika borg- arinnar og aðgangur á að vera jafn hvort sem fólk er bundið í hjólastól eða á erfitt með að fóta sig vegna t.d. aldurs.“ Júlíus telur ekki hafa verið gætt að þessu með nægilega árang- ursríkum hætti í miðborginni. Ljúka breytingum við Borgartún  Hjólastígur lagður, bílastæðum fækkað og aðgengi fót- gangandi bætt  Áætlaður kostnaður 70 milljónir króna Morgunblaðið/Þórður Framkvæmdir Borgartúni breytt og hótelbygging rís við Þórunnartún. Júlíus Vífill Ingvarsson. Páll Hjaltason. Bandaríski arkitektinn Victor Dover var með erindi á Grænum dögum Háskóla Íslands í síðustu viku. Hann hefur haldið fyrirlestra um allan heim þar sem hann fjallar um borgarskipulag framtíðarinnar og hvernig bæta má götuhönnun. Stutt er í sveitarstjórn- arkosningar og skipulagsmál eru ofarlega í huga bæði frambjóðenda og kjós- enda. Dover telur mikilvægt að fjalla ekki um skipulagsmál sem baráttu milli ólíkra sjónarmiða hvort sem það eru áherslur fyrir einkabílinn eða almennings- samgöngur eða þéttari byggð í miðbænum eða úthverfi. „Aukin áhersla á almenningssamgöngur, hjólastíga og betra aðgengi fyrir fótgangandi á ekki að vera atlaga að einkabílnum. Við eigum að auka valkosti án þess að skapa árekstur milli ólíkra samgöngu- máta,“ segir Dover en hann telur sífellt fleiri kjósa að fara milli staða með öðrum hætti en í einka- bíl. „Bíllaus lífsstíll getur verið hagkvæmur fyrir marga og góður fyrir heilsuna. Það er ekki þar með sagt að einkabíllinn sé slæm- ur eða takmarka eigi notagildi hans í borgum.“ Veruleg þétting byggðar hefur átt sér stað í Reykjavík á und- anförnum áratugum. Dover telur það eðlilega þróun en bendir enn og aftur á að skipulag eigi að snú- ast um val en ekki andstæður. „Í flestum borgum erum við með stór úthverfi sem laða til sín bæði fólk og ákveðin fyrirtæki. Miðborgir eru líka farnar að laða til sín fólk en sú gamla hugmynd að hafa fjöl- menna vinnustaði í miðbænum og svefnhverfi umhverfis hann er á útleið,“ segir Dover sem telur hönnun lykilatriði í að endurvekja gamla miðbæi og úthverfi. „Þétt svæði eins og miðborgir verða að vera hönnuð með þeim hætti að þar fari saman vel skipulögð al- menningssvæði en um leið þurfa íbúar svæðanna að finna fyrir ákveðnu næði. Þess vegna skiptir hönnun höfuðmáli.“ Sama gildir um úthverfin að mati Dovers sem telur að gæða þurfi þau lífi með því að byggja upp líflega versl- unarkjarna þar sem fólk sækir þjónustu og verslun. „Hönnun út- hverfa skiptir líka máli. Einföld aðgerð eins og að planta trjám við götur getur breytt mjög miklu.“ Útivist er Dover hugstæð fyrir borgir á norðlægum slóðum. Hann segir ekkert því til fyrirstöðu að skipuleggja hverfi og borgarhluta með þeim hætti að þjónusta og verslun sé í göngufæri. „Skipulag á að endurspegla val og fallega götuhönnun. Það verður að gefa fólki kost á því að velja sinn lífs- stíl.“ Borgarskipulag snýst um val en ekki andstæður Victor Dover Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Um 47% meðlagsgreiðenda og 53% einstæðra meðlagsgreiðenda eru á vanskilaskrá. Langflestir í þessum hópi, eða allt að 95%, eru karlmenn þó að hópur kvenna fari stækkandi. Þetta segir Gunnar Kristinn Rún- arsson, formaður Samtaka með- lagsgreiðenda, en tölurnar eru fengnar úr könnun sem Innheimtu- stofnun sveitarfélaga lét gera í haust. „Ástæðan fyrir bágri stöðu meðlagsgreiðenda skýrist af lög- heimilinu,“ segir Gunnar og bætir við að það for- eldri sem teljist lögheimilisfor- eldri hafi réttar- stöðu einstæðs foreldris. „Hinn, sem telst þá um- gengnisforeldri, er þá réttinda- laus þó að hann hafi jafn mikla umgengni og jafn mikla sameiginlega forsjá.“ Hann bendir á að rannsóknir Sigrúnar Júlíusdóttur, doktors í félagsvísind- um, sýni að 25% nýskilinna foreldra eru með jafna umgengni. „Velferð- arkerfið tekur ekki mark á því,“ segir Gunnar. Miklir fjármunir í húfi Gunnar segir gríðarlega fjár- hagslega hagsmuni vera í húfi sem gera skilnaði erfiðari en þeir þurfi að vera. „Það eru á bilinu 40-60 þús- und krónur á mánuði í velferðar- bætur sem einstæðir foreldrar fá bara fyrir að vera einstæðir. Þá er ég að tala um barnabætur, vaxta- bætur, húsaleigubætur og fleira, og þá er eftir að leggja meðlagið ofan á. Þannig að það eru gríðarlegir fjármunir í húfi sem meðlagsgreið- andinn, umgengnisforeldrið, fær ekkert af,“ segir Gunnar og bætir við: „Meðlagsgreiðandinn er ekki einungis að borga meðlag, heldur hefur hann enga stöðu gagnvart velferðarkerfinu. Tölfræðin sýnir okkur að maður á meðallaunum fer eiginlega pottþétt á hausinn eftir skilnað.“ Hann segir að þingsálykt- unartillaga um endurskoðun vel- ferðarbóta liggi nú fyrir á Alþingi. Harka í innheimtu Markmið Innheimtustofnunar sveitarfélaga skv. ársreikningum stofnunarinnar er að innheimta aldrei minna en 70% af útgreiddum meðlögum. „Þetta er bara eitthvert hlutlægt viðmið stjórnarinnar sem tekur ekkert mið af félagslegum að- stæðum,“ segir Gunnar og segir að harka við innheimtu hafi aukist þrátt fyrir aukna erfiðleika skuld- ara eftir kreppu. „Ég vísa til um- boðsmanns barna sem hefur sagt á opinberum vettvangi að Innheimtu- stofnun verði að miða innheimtu sína við félagslegar aðstæður og uppeldisskilyrði skilnaðarbarna. Það gerir stofnunin raunverulega ekki,“ segir Gunnar að lokum. Bág staða meðlagsgreiðenda  Um 47% meðlagsgreiðenda á vanskilaskrá og 95% þeirra eru karlmenn  „Réttindalausir gagnvart velferðarkerfinu,“ segir formaður Samtaka meðlagsgreiðenda  Lögheimili barns skiptir miklu máli Gunnar Kristinn Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.