Morgunblaðið - 07.04.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
Að þessu sinni vildi ung-mennaráðið einblína ástjórnsýslu og hvaða áhrifungt fólk getur haft á
hana. Var það meðal annars vegna
sveitarstjórnarkosninganna núna í
vor, en margir meðlimir ráðsins eru
að kjósa núna í fyrsta skipti og þurfa
þá að geta myndað sér skýrar skoð-
anir,“ segir Sabína Steinunn Hall-
dórsdóttir, verkefnastjóri Ung-
mennafélags Íslands, um ráð-
stefnuna „Ungt fólk og lýðræði“ sem
hefst á miðvikudaginn á Ísafirði.
Ráðstefnan er nú haldin í fimmta
skipti og stendur hún yfir í þrjá
daga.
Unglingar vita hvað þeir vilja
„Ungt fólk er oft ekki hrifið af
því að tala um stjórnmál en vill frek-
ar tala um málefni sem þau varða.
Það eru t.d. mörg atriði sem við full-
orðna fólkið höldum að unglingar
vilji sem er kannski ekkert rétt. Það
eru unglingarnir sjálfir sem vita
best hvað þeir þurfa og vilja,“ bætir
Sabína við. Segir hún einnig að ráð-
stefnan sé góður vettvangur fyrir
ungmenni til að bera sig saman og
sjá hvernig staðið er að málefnum
sem þau varðar eftir landshlutum.
Ungmennaráð eru starfandi í flest-
um sveitarfélögum á landinu og
koma þau öll saman á ráðstefnunni.
„Unga fólkið er jafnvel meira á ferð-
inni í sveitarfélögunum heldur en
fullorðna fólkið og sér frekar hluti
sem skiptir það máli og þarf að bæta
úr. Það eru margir angar á þessu
sem ég gæti talið upp endalaust.“
Ungmennaráð UMFÍ samanstendur
af átta ungmennum alls staðar af
landinu sem funda einu sinni í mán-
uði. Stærsta verkefnið undanfarin
misserin hefur verið að skipuleggja
ráðstefnuna en meðfram því vinna
þau að ýmsum verkefnum fyrir ungt
fólk í landinu. „Við þjálfum þau í lýð-
ræðislegum vinnubrögðum og leið-
togahlutverkinu. Mörg þeirra sem
hafa starfað hér halda síðan áfram í
svipuðum störfum.“
Nú er komið að Vestfjörðum
Ráðstefnan Ungt fólk og lýð-
ræði er alltaf haldin úti á landi og nú
er komið að Vestfjörðunum. Ráð-
stefnan verður haldin í Edinborg-
arhúsinu á Ísafirði og gista þátttak-
endur á Hótel Ísafirði. UMFÍ tekur
þátt í ferðakostnaði þátttakenda.
„Allir sitja þó við sama borð. Þátt-
takandi frá Bolungarvík borgar
sama gjald og þátttakandi frá Nes-
kaupstað, þannig hefur það alltaf
verið. Við náum þó að niðurgreiða
þetta heilan helling með hjálp frá
ýmsum styrktaraðilum. Það er einn-
ig þeim að þakka að við getum gert
svona flotta og vandaða ráðstefnu úr
þessu,“ segir Sabína. Í ár eru 75
þátttakendur skráðir á ráðstefnuna
og eru flestir á aldrinum 16-18 ára.
Þó er aldursskiptingin allt frá 14 ára
til 25 ára. „Þau sem eldri eru halda
utan um hlutina, en þau yngri koma í
fylgd með æskulýðs- og tómstunda-
fulltrúa sveitarfélagana og erum við
þá með þessa beinu tengingu í sveit-
arfélögin. Þannig að með öllum þátt-
takendum og fulltrúum sveitarfélag-
anna erum við 75 talsins.“
Er þetta í annað skipti sem
Sabína tekur þátt í ráðstefnunni sem
verkefnastjóri. Segir hún að þetta sé
Mikilvægt að ungt
fólk hafi skoðanir
Á miðvikudaginn hefst árleg ráðstefna UMFÍ, Ungt fólk og lýðræði, og er hún
nú haldin í fimmta sinn. Þema ráðstefnunnar þetta árið er stjórnsýsla og
hvaða áhrif ungt fólk getur haft á hana. Munu ungmennunum bjóðast
ýmiss konar umræður og námskeið sem geta þroskað og mótað skoðanir þeirra,
en það getur komið sér vel þegar kjósa á í vor.
Útiveran er mikilvæg Hér sést Sabína Steinunn, verkefnastjóri UMFÍ,
fyrir miðju á ráðstefnunni sem haldin var á Egilsstöðum í fyrra.
Leiðtogar Á ráðstefnunni er m.a. boðið uppá örnámskeið í leiðtogafærni.
Nemendur í 8.-10. bekk í Valhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi hafa undan-
farna tvo mánuði unnið hörðum
höndum að uppsetningu leikritsins
Bugsy Malone í leikstjórn Ragnheiðar
Maísólar Sturludóttur. Þau hafa séð
um alla vinnu við leikmynda- og bún-
ingagerð, stýra allri tækni og semja
alla dansa sjálf auk þess að leika og
syngja. Hátt í 40 krakkar taka þátt í
uppsetningunni.
Í dag, mánudag, ætlar leikhópurinn
að standa fyrir styrktarsýningu á
leikritinu en þau hafa valið að styrkja
Leiðarljós, sem er stuðningsmiðstöð
fyrir fjölskyldur barna með sjaldgæfa
og alvarlega langvinna sjúkdóma.
Sýningin verður kl. 19 í Félagsheimili
Seltjarnarness við Suðurströnd og
kostar 500 krónur inn fyrir þá sem
eru á grunnskólaaldri en 1.000 kr.
fyrir aðra. Allur ágóði rennur óskipt-
ur til Leiðarljóss.
Vefsíðan www.ragnheidurmaisol.com
Bugsy Malone Það er heldur betur líf og fjör á sviðinu í þessu glæpaleikriti.
Neskrakkar sýna Bugsy Malone
Það verður sannkölluð Asíuveisla í
boði á Café Lingua í Borgarbóka-
safni í apríl. Hægt verður að skyggn-
ast inn í víetnamskan og japanskan
tungumála- og menningarheim, sjá
indverska bíómynd í Bíó Paradís og
síðast en ekki síst kynnast fjöl-
breyttum tungumálafjársjóði Filipps-
eyja.
Fyrsta uppákoman verður í dag kl.
17.30 í aðalsafni, Tryggvagötu 15.
Þar mun Lieu Thúy Thi bera saman
íslenska tungumálið og það víet-
namska og segja frá hefðum og sið-
um í Víetnam. Lieu mun veita innsýn
í þessa sögu og bjóða upp á víet-
namskt kaffi og íslenskar kleinur.
Eitt af markmiðum Café Lingua er
að skapa forvitni um menningu og
tungumál og virkja þau mál sem
hafa ratað til Íslands með fólki
hvaðanæva að og auðgað mannlíf og
samfélag. Einnig er hugmyndin að
beina sjónum borgarbúa að heim-
inum í kringum okkur. Allir eru vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
Endilega …
… kynnið ykkur víetnamska
menningu, mat og kaffi
Litrík Víetnömsk saga og menning er fjölbreytt og skemmtileg.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hollar vörur úr náttúrunni
Íslensk framleiðsla
H-Berg efh | S. 565-6500
hberg@hberg.is | hberg.is
NÝTT!