Morgunblaðið - 07.04.2014, Síða 11
Stemning Hér sést fjörið á kvöldvöku sem haldin var á ráðstefnunni á seinasta ári. Eru þær haldnar bæði kvöldin.
gífurlega skemmtilegt starf og að
það sé gaman að fylgjast með krökk-
unum. „Þau eru svo rosalega frjó og
tilbúin í allt. Einnig eru þau hafin yf-
ir alla flokkadrætti og þess háttar
hluti. Það er alveg stórkostlegt að
vera vitni að þessu. Þau leysa
kannski eitthvað á tíu mínútum sem
ég hef verið að velkjast með heil-
lengi.“
Fjölbreytt dagskrá
Dagskrá ráðstefnunnar ein-
skorðast þó ekki við samfélagsleg
mál og stjórnsýslu. Einnig verða
kvöldvökur og samhristingur á boð-
stólum ásamt óvissuferð sem ung-
mennaráð Ísafjarðabæjar stendur
fyrir og skipuleggur. „Boðið verður
síðan upp á örnámskeið í fund-
arsköpum og ræðuhöldum báða dag-
ana. Svo er líka auðvitað stór hluti af
þessu að kynnast öðru ungu fólki.
Það verður líf og fjör allan tímann
sem ráðstefnan stendur yfir.“ segir
Sabína. Krakkarnir fá góðfúslegt
leyfi hjá skólayfirvöldum til þess að
sækja ráðstefnuna. Segir Sabína að
skólarnir líti á ráðstefnuna sem
tækifæri til óformlegs náms sem
komi öllum vel. Ráðstefnan er alltaf
haldin miðvikudag til föstudags í
vikunni fyrir dymbilviku. „Krakk-
arnir læra alveg ofboðslega mikið af
þessu. Þau læra að það er ekki eitt-
hvað eitt rétt, heldur er það hluti af
lýðræðinu að tala saman og komast
að sameiginlegri ályktun.“ Þessi
sameiginlega ályktun verður síðan
birt klukkan 15 á föstudaginn.
Ályktunin verður þá búin að fara í
gegnum ungmennaþingið og eru all-
ir velkomnir í Edinborgarhúsið að
hlýða á. „Því miður er forsetinn vant
við látinn þennan dag og kemst ekki.
Við buðum öllum þingmönnum
landsins að koma en höfum aðeins
fengið svör frá tveimur. Aðrir hafa
ekki svarað boðinu sem olli okkur
ákveðnum vonbrigðum. Það er oft
talað um að ungt fólk taki ekki þátt í
stjórnmálum. Það má þó ekki
gleyma því að þetta er tvíhliða,
stjórnmálamennirnir þurfa líka að
nálgast unga fólkið og hafa þeir vett-
vang til þess með þessari ráðstefnu.“
segir Sabína að lokum.
Samvinna Á ráðstefnunni vinna ungmennin í hópum. Ályktanir ráðstefn-
unnar verða síðan kynntar á föstudaginn í Edinborgarhúsinu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014
Allir hafa rödd, hvort sem þeir tala
til sín upphátt eða í hljóði. Þessi
rödd er í raun hugsanir okkar sem
aðstoða okkur við að vega og meta
það sem við upplifum og við að
álykta hvað sé best að gera í kjölfar-
ið. Það fer eftir hugarástandi okkar
og skapi hverju sinni hvort hugsanir
okkar eru jákvæðar eða neikvæðar.
Þegar okkur líður vel, erum glöð eða
sátt, eru hugsanirnar jákvæðar en
þegar okkur líður illa, erum reið,
kvíðin eða döpur, eru hugsanir okk-
ar oft neikvæðar.
Það getur hljómað undarlega að
við skulum vera neikvæð í eigin garð
þegar við þurfum mest á jákvæðni
og stuðningi að halda. Samt sem áð-
ur virðast flestir temja sér að takast
á við vandamál eða vanlíðan með
sjálfsgagnrýni. Í raun er helsta
markmið sjálfsgagnrýninnar að
forða okkur frá frekari ógn og van-
líðan. Niðurbrjótandi hugsanir eiga
því að hvetja okkur áfram til að gera
betur svo við endum ekki með það
sem við óttumst mest, eins og að
vera hafnað eða að líða eins og við
séum einskis virði. Neikvæðu hugs-
anirnar hvetja okkur áfram með
hræðsluáróðri og hótunum eins og
„ég verð að standa mig 100% annars
missi ég vinnuna“, „ég gæti sagt ein-
hverja vitleysu, svo það er best ég
þegi“. Ef þessi hvatning virkar ekki
verður innri rödd okkar enn gagn-
rýnni og dæmandi; „mér tekst þetta
aldrei,“ „ég er ömurleg/ur“.
Hver er gagnsemi
sjálfsgagnrýninnar?
Margir óttast að hætta að hlusta á
sína neikvæðu innri rödd þar sem
þeir telja að án hennar verði þeir
metnaðarlausir og leggi sig síður
fram. Þeir telja að neikvæða röddin
haldi þeim á tánum svo þeir geri
örugglega sitt besta. Því getur verið
erfitt að ætla sér að hunsa eða
sleppa takinu af neikvæðu röddinni.
Ímyndum okkur að þessi innri rödd
sé eins og vinur sem kemur í heim-
sókn á erfiðum tímum. Ef þessi vin-
ur er alltaf neikvæður og gagnrýn-
inn, er hann þá vinur í raun? Viljum
við eiga vin sem veldur því að við
forðumst verkefni og fólk? Viljum
við eiga vinskap sem eykur líkur á að
við þróum með okkur þunglyndi og
kvíða?
Hvernig get ég
eignast betri vin?
Því miður eigum við flest svona
vin, neikvæðar hugsanir í eigin garð.
Það sem margir átta sig ekki á er að
það er hægt að velja að vera í sam-
skiptum við mun betri vin. Að skipta
vinunum út er kannski ekki eins ein-
falt og það hljómar, en með aðstoð
sálfræðings er hægt að læra að til-
einka sér uppbyggilegri hugsanir og
hvatningu. Að þróa með sér innri
rödd sem leiðbeinir manni ákveðið
en mildilega til að læra af mistökum,
finna lausnir og gera betur. Rödd
sem er hvetjandi og veitir stuðning
þegar eitthvað bjátar á. Innri rödd
sem aðstoðar við að horfa raunsætt á
aðstæður. Þín innri rödd verður því
góður vinur sem þú getur treyst á og
stuðlar að auknu hugrekki svo þú
getir tekist á við erfiðar áskoranir
og upplifað sjálfstraust og sjálfs-
öryggi.
Hvernig hljómar
þín innri rödd?
Ljósmynd/Norden.org
Vinir Farsælt er að vera sinn eigin
góði og uppörvandi vinur.
Heilsupistill
Anna Sigurðardóttir
sálfræðingur
Heilsustöðin sálfræði- og ráðgjafarþjón-
usta, Skeifunni 11a, Rvk. www.heilsustodin.is
Á morgun þriðjudag mun Kristín
Svava Tómasdóttir, MA-nemi í sagn-
fræði við Háskóla Íslands, flytja er-
indi sem kallast „Ritun íslenskrar
klámsögu frá Bósa fram að vídeó-
byltingu“. Erindið er hluti af hádeg-
isfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags
Íslands sem ber yfirskriftina „Nýj-
ustu rannsóknir í sagnfræði“.
Fyrirlesturinn fer fram í fyr-
irlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og
hefst stundvíslega klukkan 12.05.
Saga kláms er vaxandi undirgrein
í erlendri sagnfræði en lítið sem ekk-
ert hefur verið skrifað á því sviði
hérlendis. Klámsaga er fjölbreytt
viðfangsefni sem hefur tengsl við til
dæmis menningarsögu, bóksögu,
kynja- og kynferðissögu, svo eitt-
hvað sé nefnt. Í erindinu verður
fjallað um ólíkar leiðir og að-
ferðafræðileg vandamál í rann-
sóknum á sögu kláms, með hliðsjón
af sögu íslensks kláms á 20. öld,
fram til vídeóbyltingarinnar um
1980.
Hádegisfyrirlestur í Þjóðminjasafni
Kärlekens Språk Kristín mun m.a. fjalla um þessa erótísku kvikmynd.
Ritun íslenskrar klámsögu frá
Bósa fram að vídeóbyltingu
Sagnfræðingur Kristín Svava.
Vandað borð
úr gagnvarinni
furu. 100kg á
þyngd.
fá með rólusetum,
ungbarnarólum
eða dekkjarólum.
ÖRYGGI – GÆÐI - LEIKGILDI
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
Opið: mán.-fös. 8:30-18:00, lau. 11:00-16:00
Hægt er að loka
sandkassa með
því að færa
sætin saman.
Jarðlægt
trampólín.
Þvermál: 3,8m.
Hæð: 20cm frá
jörðu.
Vönduð leiktæki sem eru sérhönnuð
fyrir heimahús og einkaleiksvæði.
Tækin eru falleg og falla vel inn í
íslenska náttúru ásamt því að
uppfylla ströngustu kröfur um
öryggi á leikvæðum.
Rólu er hægt að