Morgunblaðið - 07.04.2014, Qupperneq 12
FRÉTTASKÝRING
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Miklar breytingar verða á byggð,
mannlífi og umferð í Reykjavík ef
hið nýja aðalskipulag borgarinnar
sem nær til ársins 2030 verður að
veruleika. Það geymir mun róttæk-
ari hugmyndir en áður um þróun
höfuðborgarinnar. Þétta á byggð-
ina með áherslu á Vatnsmýri, El-
liðaárvog og miðborgina, einkum
svæðið við gömlu höfnina. Hætta á
við ný hverfi í útjaðri borgarinnar.
Draga á úr notkun einkabifreiða og
stórauka að sama skapi vistvænar
samgöngur með eflingu almenn-
ingssamgangna og auknu vægi
hjólreiða. Ný stór umferðarmann-
virki, svo sem mislæg gatnamót,
heyra sögunni til.
Ekki lengur samstaða
Þegar fyrsta eiginlega að-
alskipulagið fyrir Reykjavík var
samþykkt í borgarstjórn fyrir
tæpri hálfri öld, sumarið 1965, ríkti
um það full samstaða allra borg-
arfulltrúa. Endurskoðun skipulags-
ins næstu ár og áratugi var ætíð
gerð í góðri sátt þvert á stjórn-
málaflokka. Um hið nýja að-
alskipulag Reykjavíkur, sem und-
irritað var í febrúar síðastliðnum,
urðu hins vegar harðar deilur í
borgarstjórn. Það segir sitt um þau
róttæku nýmæli sem það boðar.
Þrír borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins greiddu atkvæði gegn
skipulaginu þegar það var afgreitt
í nóvember í fyrra. Utan borg-
arstjórnar varð það einnig um-
deildara en nokkurt aðalskipulag
áður. Gerðu borgarbúar skriflegar
athugasemdir við 250 atriði í skipu-
laginu, stór og smá. Meirihluti
borgarstjórnar var hins vegar
ósveigjanlegur í afstöðu sinni og
gagnrýnin hafði lítið að segja. Eng-
ar grundvallarbreytingar voru
gerðar á stefnu aðalskipulagsins
vegna athugasemdanna.
Líklegt er að deilurnar um að-
alskipulagið vakni að nýju í kom-
andi kosningabaráttu í höfuðborg-
inni. Halldór Halldórsson, oddviti
sjálfstæðismanna, hefur lýst því yf-
ir að taka verði ákveðna þætti að-
alskipulagsins til endurskoðunar.
Hann vill tryggja flugvöll í Reykja-
vík til frambúðar, gæta þess að
þétting byggðar í borginni skerði
ekki val þeirra sem vilja búa í út-
hverfunum og láta vinna nýtt um-
ferðarlíkan fyrir höfuðborg-
arsvæðið. Þá segir Halldór að ekki
eigi að útiloka ný mislæg gatnamót
ef sýnt sé fram á að þau tryggi
aukið umferðaröryggi og bætt um-
ferðarflæði.
Framsóknarmenn, sem ekki eiga
fulltrúa í borgarstjórn, hafa lýst
eindreginni andstöðu við ýmsa
þætti nýja skipulagsins, einkum
þéttingu byggðar á kostnað út-
hverfa og stöðvun stórra umferð-
arframkvæmda. Ætla þeir að beita
sér fyrir því að skipulagið verði
tekið upp fái þeir fulltrúa kjörinn í
vor.
Metnaðarfullt og róttækt
Óhætt er að segja að hið nýja að-
alskipulag Reykjavíkur sé mjög
metnaðarfullt. Það geymir djarfari
hugmyndir um þróun borgarinnar
en nokkru sinni áður. „Mikilvæg-
asti boðskapur þessa aðalskipulags
er þétting byggðar. Við ætlum að
þétta byggðina þannig að fólk geti
búið nær vinnustöðum sínum í stað
þess að teygja borgina upp til
heiða. Þetta mun auka lífsgæði
borgarbúa gríðarlega, draga úr
umferð og styrkja borgarsam-
félagið á margvíslegan hátt,“ segir
Páll Hjaltason, formaður umhverf-
Ætla að
gerbreyta
Reykjavík
Nýtt aðalskipulag boðar breytingar
á umhverfi og mannlífi í höfuðborginni
SKIPULAGSMÁL
NÝTT AÐALSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Sjálfstæðismenn klofnuðu í afstöðu
til hins nýja aðalskipulags Reykja-
víkur þegar það var afgreitt í nóv-
ember. Júlíus Vífill Ingvarsson
borgarfulltrúi, sem fór fyrir and-
stöðunni, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að mikilvægt væri að átta
sig á því að Reykjavíkurborg væri
mjög fjölbreytileg enda byggð á
löngum tíma. „Nýtt aðalskipulag
skortir þennan fjölbreytileika. Það
gerir ekki ráð fyrir ólíkum óskum
um búsetu og margvíslegum og ólík-
um þörfum borgarbúa. Að þessu
leyti lýsir aðalskipulagið þröngsýn-
um viðhorfum og takmarkar val,“
sagði hann.
Júlíus sagði að í aðalskipulaginu
væri uppbyggingu til næstu ára nán-
ast alfarið vísað beint inn á þétting-
arreiti í vesturborginni. „Þétting
byggðar getur verið haft kosti en
hún hefur líka takmarkanir og þá
fyrst og fremst það að íbúðir á þétt-
ingarreitum verða óhjákvæmilega
dýrari. Það er gríðarlega mikilvægt
að borgin skapi ungu fólki tækifæri
og aðstæður til uppbyggingar og
stemmi stigu við þeirri þróun und-
anfarinna ára að ungar fjölskyldur
kjósa frekar að stofna heimili í nær-
liggjandi sveitarfélögum þar sem
lóðarverð er lægra og val á búsetu-
formi er fjölbreytilegra. Að mínu
mati ætti að opna fyrir frekari upp-
byggingu í Úlfarsárdal og skapa þar
heildstætt, fjölbreytilegt og fjöl-
skylduvænt hverfi. Aðstæður allar
frá náttúrunnar hendi eru einstakar
og þjónusta öll er til staðar,“ sagði
Júlíus.
Júlíus bendir á að í nýja að-
alskipulaginu sé gert ráð fyrir upp-
byggingu á grænu útivistar- og
íþróttasvæði sem tilheyrir Laug-
ardalnum norðan Suðurlands-
brautar. Gert sé ráð fyrir allt að
fimm hæða húsaröð allt frá Reykja-
vegi og að Glæsibæ. Frá Laug-
ardalnum verði þetta sjö hæðir.
Nýja skipulagið
takmarkar val
borgarbúa
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
klofnir í afstöðu til aðalskipulagsins
sem gleður
Rennibekkir, standborvélar, bandsagir,
hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar,
röravalsar, legupressur, fjölklippur,
sandblásturstæki og margt fleira.
Sýningarvélar á staðnum
og rekstrarvörur að auki
- fyrir fagfólk í léttum iðnaði
og lítil verkstæði
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is