Morgunblaðið - 07.04.2014, Page 24

Morgunblaðið - 07.04.2014, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú átt erfitt með að skilja af hverju aðrir sýna þér ekki sama traust og þú þeim. Ein leið til þess er að neita einhverjum sem í hreinskilni er mjög erfitt að neita. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú eignast öflugan bandamann, sem mun gera þér kleift að koma í höfn verkefni, sem þú hefur lengi barist fyrir að fá að klára. Ekki vera hissa þótt þú stressist smávegis. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú fyllist ánægju yfir þeirri ást sem umvefur þig dagsdaglega. Taktu þér tíma til þess að kanna stöðuna. Skínandi orð ein- hvers nákomins dáleiða þig eins og gim- steinn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Verkefnin sem þú hefur valið þér í dag útheimta hörku upp að vissu marki. Njóttu þess á meðan það varir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Aðili sem þú áleist áður andstæðing þinn, er að verða einhver sem þú treystir vel. Sinntu því sem augljóslega þarfnast úrlausn- ar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Erfiði ástarsambands ræður ríkjum í sambandinu. Varpaðu hugmyndum á milli og vittu hvort lausnin lætur ekki á sér kræla. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú reynir á þolinmæði þína. Farðu að öllu með gát en láttu áhyggjurnar ekki hrann- ast upp heldur gakktu strax í málið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er sjálfsagt að vinna skoð- unum sínum brautargengi en það er ekki sama hvernig það er gert. Vertu glaðlynd/ur og hvetjandi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert hamingjan og gleðin upp- máluð og hefur fulla ástæðu til. Einbeittu þér að því að gefa og þiggja og koma til móts við aðra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt sjálfsgagnrýni sé góður kost- ur má hún ekki ganga svo langt að drepa allt frumkvæði í dróma. En ef þú hlustar þá heyr- irðu að vinir þínir eru að staðfesta það sem liggur þér á hjarta. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fjölskylduleyndarmál kunna að kvisast út í dag. Hafðu allan fyrirvara á því fólki sem talar í hálfum setningum. Þú ert næm/ur á líðan annarra og veist hvað er við- eigandi að segja og hvað ekki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Óánægð/ur með vinnuna? Gamall vinur hefur samband, fær þig til að hlæja og kemur þér í betra skap. Þú verð drjúgum tíma í að meta nýlega ákvörðun. Jón Arnljótsson skrifar að númegi heyra tófugagg á öllum tímum sólarhringsins, til dæmis í fyrrakvöld um hálftólfleytið: Í rökkrinu dillar hún rófunni, refanna náandi fundum. Tilhugalífið hjá tófunni er troðfullt af ánægjustundum. Ármann Þorgrímsson yrkir um Pútín Rússlandsforseta: Ílla liggur á ‘onum, enginn skyldi lá ‘onum, konan farin frá ‘onum, fjandans vesen hjá ‘onum. Jón Gissurarson veltir að vanda veðrinu fyrir sér og orti í byrjun síðustu viku: „Um hádeg- isbilið í dag var hitinn á mælinn hér á Víðimýrarseli nálægt tíu gráðum. Líklega er það heitasti dagurinn á árinu til þessa, enda hafa svell á túnum látið undan síga. Heftir ekki hugans þor Hegraness í þingum þegar úti yljar vor okkur Skagfirðingum. Klakaþeli klökkna fer, kært er það að vita, tekur hann af túnum hér í tíu stiga hita.“ Davíð Hjálmar Haraldsson sá einn- ig ástæðu til bjartsýni: „Fyrstu merki vorsins eru nú sjáanleg; krókusar og aðrar laukjurtir blómstra um leið og þær koma undan sköflunum. Sumir laukarnir voru reyndar farnir að blómstra í febrúar – en það fór allt á bólakaf. Vorboði af öðru tagi lét til sín taka í dag; þrösturinn hóf tónleika. Græða vetrar mörgu mein mjúkir vorsins fingur og þrösturinn á þallargrein þenur brjóst og syngur. Og Bjarni Stefán Konráðsson kast- aði fram í léttum dúr „tímamótavísu“ og það „eftir margra mánaða and- leysi“: Ó, mig skortir þrek og þor, þú veist hvað ég meina, því það er komið þrálátt vor, því er ekki að leyna. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Pútín, Skagfirðingum og tilhugalífi tófunnar Í klípu LEIFUR HAFÐI GAMAN AF ÞVÍ AÐ FYLGJAST MEÐ ÆTTINGJUM SÍNUM, BÆÐI Í NETHEIMUM OG RAUNVERULEIKANUM. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG VAR AÐ REIKNA ÚT AÐ VIÐ GETUM KEYPT 7.800 PAPPADISKA FYRIR SAMA VERÐ OG UPPÞVOTTAVÉL.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að líta alltaf á björtu hliðarnar. BLA BLA BLA HRÓLFI OG MÓÐUR MINNI VIRÐIST VERA AÐ KOMA BETUR SAMAN. EN GAMAN. HÚN GAF HONUM GJÖF ÞEGAR HANN ÁTTI AFMÆLI. HVAÐ GAF HÚN HONUM? SÁPU- STYKKI. EINKUNNIR SÍÐAN ÉG VAR Í SKÓLA! SKOÐUM UMSÖGN KENNARANS. „JÓN ER LEIÐIN- LEGUR STRÁKUR.“ SVO ÞAÐ ER EKKI NÝTILKOMIÐ? Fyrir langa löngu sótti Víkverjistutt námskeið í sölutækni. Þar lærði hann framandi hugtök eins og söluhiti, en ennfremur að flokka við- skiptavini sem ljón, gíraffa og eitt- hvað eitt dýr enn sem Víkverji er bú- inn að gleyma. Eins og við var að búast snerist námskeiðið fyrst og fremst um að selja fólki meira en það ætlaði sér upphaflega að kaupa. Víkverji er ekki góður sölumaður. Honum finnst hlutverk sölumanna fyrst og fremst eiga að vera að veita góða þjónustu, ítarlegar upplýsingar og að hlusta á þarfir viðskiptavin- arins til að geta auðveldað honum að fara heim með þá vöru sem gagnast honum best. Allir sem vinna við sölu- störf sjá væntanlega hvað þetta er víðáttuheimskuleg afstaða, og skýrir auðvitað af hverju Víkverji hefur ekki starfað við sölumennsku síðan hann sótti námskeiðið forðum daga. x x x Maður að nafni Jordan Belfort,stundum kallaður Úlfurinn á Wall Street, hefur aðeins aðra nálgun á sölustörf. Ef marka má hans fyrri störf snýst sölumennska um það eitt að græða peninga, með hvaða til- tækum ráðum sem er. Víkverja grun- ar að Belfort flokki ekki viðskiptavini sína í ljón, gíraffa og … hvað það nú var. Í hans augum erum við líklega öll bara opin veski. Í ljósi afstöðu Víkverja til hlut- verks sölumanna er kannski ekki skrítið að honum finnist undarlegt að flytja eigi Belfort til Íslands, svo hann geti kennt brögð sín og brellur hér á landi. Víkverji hélt reyndar að eftir hrun væri ekki skortur á fólki sem gæti miðlað svipuðum fræðum, en það er auðvitað erfitt að vera spá- maður í sínu heimalandi. Hvort Belfort komi til með að hafa slæm áhrif á íslenskt viðskiptalíf er óvíst. Líklegra er að hann hjálpi svip- að þenkjandi fólki að brýna vopn sín og reiða þau hærra til höggs. Taxtinn fyrir slíkt er tæplega þrjár og hálf milljón króna. x x x Víkverja var fyrir mörgum árumkennt að umkringja sig fólki sem hann vildi líkjast. Hann verður því fjarri góðu gamni þegar Úlfurinn byrjar að góla. víkverji@mbl.is Víkverji Jesús svaraði: „Já, því sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það.“ (Lúkasarguðspjall 11:28) Trjáklippingar. NÚ ER TÍMINN TIL AÐ KLIPPA TRÉ OG RUNNA. Síðla vetrar og á vorin er góður tími til að klippa allflestar tegundir trjágróðurs því þá er greinabygging gróðursins best sýnileg. Einnig er þetta góður tími til þess að móta trjágróður. TRAUST ÞJÓNUSTA Í YFIR 20 ÁR Frá því Garðlist ehf. var stofnað fyrir 23 árum síðan, höfum við haft það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað. Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem við höfum átt í viðkiptum við unandarin ár, á saman tíma og við bjóðum nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna. Tunguhálsi 7 110 Reykjavík 554 1989 www.gardlist.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.