Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.04.2014, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014 Tapashúsið | Ægisgarður 2, 101 Reykjavík | info@tapashusið.is TAPASHÚSID BORDPANTANIR Í SÍMA 512-8181 2 FYRIR 1 Á MÁNUDÖGUM OG RIÐJUDÖGUM AF TÍVOLÍ MATSEÐLI GLÆSILEGUR NÝR MATSEÐILL LIFANDI TÓNLIST UM H ELGAR AF TILRAUNUM Ragnheiður Eiríksdóttir heidatrubador@gmail.com Úrslitakvöld Músiktilraunafór fram laugardagskvöldið5. apríl í Hörpu, og þar mátti sjá og heyra þær 10 hljóm- sveitir sem sköruðu fram úr af þeim 44 sem tóku þátt í ár. Fyrstar á svið Hörpu voru ver- ur frá öðrum hnetti sem kölluðu sig Kuraka, og eitthvað voru þær minna hressar en á undanúrslitakvöldinu. Spilamennskan var fín, en það var eins og þeim þætti sjálfum brandar- inn eldast illa og það var líklega rétt hjá þeim.    Vio frá Mosfellsbæ flutti full-kláraðan hljóðheim með erind- um, milliköflum, viðlögum og brúm öllum haganlega fyrir komnum. Inn- lifun meðlima var mikil og sannfær- andi, en það var helst í þriðja laginu, sem var flutt á ukulele, sem hægt var að finna sprungur í annars skot- heldri dagskrá. Conflictions var eina harð- kjarnasveitin í úrslitum, og þar gætti einnig smá krabbakjarna- áhrifa. Meðlimir röltu kæruleys- islega um sviðið meðan þeir bjuggu til skipulögð og markviss læti sem samt hljómuðu grípandi og með lag- línum. Tvö af þremur lögum voru frumflutt og hið síðara nýja var nán- ast óskiljanlega gott, með orkugít- arvegg sem feykti upp gæsahúð. Þá var komið að Toneron, sem átti í erfiðleikum að ná sér á strik eftir hljóðvegginn. Fyrsta lagið var því hvorki fugl né fiskur, en þeir náðu góðu jafnvægi milli söngs, saxófóns, tölvu og trommara í öðru lagi, og það var fínn og ögn myrkur tónn í bandinu sem fór þeim vel. Lucy in Blue lokaði sviðinu fyr- ir hlé með þremur lögum sem runnu saman og þótt ekki sé hægt að tala um frumleika í lagasmíðum er þetta band bara listaverk. Í fyrsta sinn á ævinni get ég líka sagt með sann- færingu að ég eigi uppáhalds- hljómborðsleikara. Hans nálgun við tónlist virðist felast í því að bæta því við sem þarf til að lagið verði betra. Svakalegur talent.    Eftir hlé hóf Tuttugu frá Hafn-arfirði leik og þau gerðu sitt prýðilega, en í lokalaginu hljómuðu þau virkilega vel, eins og allt gengi loks að óskum. Þar er á ferð for- vitnilegt band með afskaplega örugga og skemmtilega söngkonu. Milkhouse hóf leik á nýju lagi sem var æðislegt, og mun betri laga- smíð en lögin tvö sem þau fluttu á undanúrslitakvöldinu. Sönglínan var heillandi og fersk með góðu jafnvægi milli djass og rafpopps. Milkhouse spilaði jafnframt af meira öryggi og var þéttari en fyrra kvöld- ið. Ring of Gyges spilar ágætt en jafnframt fullbragðdauft rokk og það var helst í lokalaginu að greina mætti einhver stílbrigði sem hægt væri að kalla þeirra eigin, en þar var drungalegur tónn og hressandi ruslatunnuendir. Mikill hressleiki einkenndi Bad News en nýja lagið þeirra var áber- andi minna grípandi en þau sem þeir höfðu áður flutt. Söngvari var ör- yggið uppmálað og til fyrirmyndar. Lokaband tilraunanna var Captain Syrup sem spilaði ynd- islegan hrærigraut af strandtónlist, heitu fönki, lyftutónlist, pönkrokki og austurevrópskri þjóðlagatónlist. Stórkostleg blanda af ólíkum ele- mentum og aldrei langt í húmorinn og líklega eigum við eftir að verða heilmikið vör við þessa hljómsveit í framtíðinni.    Venju samkvæmt voru verð-launasætin þrjú en síðan var einnig verðlaunað fyrir hæfni á ein- stök hljóðfæri, textagerð og loks völdu áhorfendur og hlustendur hljómsveit fólksins. Allir sem komu fram á úrslitakvöldinu eiga þó auð- vitað heiður skilinn fyrir glæsilega frammistöðu og þá bestu skemmtun sem hægt er að hugsa sér að fá að njóta. Yndislegur hrærigrautur Morgunblaðið/Styrmir Kári Sigurvegarar Vio frá Mosfellsbæ sigraði í Músíktilraunum í ár. Innlifun meðlimanna var mikil og sannfærandi. Hljómsveit fólksins Milkhouse hóf leik á nýju lagi sem var æðislegt. Conflictions Annað frumfluttu laganna var nánast óskiljanlega gott. Lucy in Blue Er bara listaverk og hljómborðsleikarinn hæfileikaríkur. 1. sæti: Vio 2. sæti: Lucy in Blue 3. sæti: Conflictions Hljómsveit fólksins: Milkhouse Söngvari Músíktilrauna: Magnús Thorlacius (Vio) Gítarleikari Músíktilrauna: Steinþór Bjarni Gíslason (Lucy in Blue) Bassaleikari Músíktilrauna: Björn Heimir Önundarson (Captain Syrup) Hljómborðsleikari Músíktil- rauna: Arnaldur Ingi Jónsson (Lucy in Blue) Trommuleikari Músíktilrauna: Leifur Örn Kaldal Eiríksson (Conflictions) Blástursleikari Músíktilrauna: Björn Kristinsson (Undir eins, saxófónn) Rafheili Músíktilrauna: Síbylja Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku: Guðmundur Ásgeir Guðmundsson (Karmelaði) Verðlauna- hafarnir MÚSÍKTILRAUNIR 2014

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.