Morgunblaðið - 07.04.2014, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2014
Málvísindamaðurinn Dirk Geeraerts, prófessor við
Háskólann í Leuven, heldur í dag kl. 12 fyrirlestur
um hugtakið „emotion“ (geðshræring) í stofu 201 í
Árnagarði í Háskóla Íslands, á vegum Hugvís-
indastofnunar/Bókmennta- og listfræðastofnunar/
Málvísindastofnunar og í samstarfi við Reykjavík –
Bókmenntaborg.
Geeraerts er þekktur fyrir störf sín í þágu hug-
rænna málvísinda (cognitive linguistics) og hefur
samið mörg verk á sviði hugrænnar merkingarfræði,
að því er fram kemur í tilkynningu.
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina The theory of hum-
ors and the origin of ’emotion’, eða Kenningin um
líkamsvessana og uppruni orðsins „emotion“.
Í útdrætti úr fyrirlestrinum á íslensku segir m.a:
„Hugtakið „emotion“ – tjáð með íslenska orðinu
„geðshræring“ – er augljós líking: geðshræringar eru
umrót hugans. En hvað um sjálft enska orðið „emo-
tion“? Í fyrirlestrinum verður hugað að orðsifjum
orðsins „emotion“ og sú athugun fer aftur til forn-
frönsku sagnanna mouvoir (hreyfa) og émouvoir
(hreyfa við/hræra). En öfugt við það sem menn gætu
ætlað, er hreyfingin sem þessar sagnir vísa til þegar
þær fá sálfræðilega merkingu, bókstafleg en ekki lík-
ing: hugtakið „emotion“ sprettur í tengslum við
kenningu innan læknisfræði miðalda um líkamsvess-
ana fjóra (blóð, flemína, svartablóð og rauðbrúnt
blóð) sem stýra jafnvægi líkama og hugar. Ef hugað
er grannt að fornfrönskum textum blasir við að sam-
kvæmt kenningunni um líkamsvessana er umrót hug-
ans bein afleiðing af bókstaflegu umróti líkamsvess-
anna.“
Fyrirlesari Málvísindamaðurinn Dirk Geeraerts,
prófessor við Háskólann í Leuven í Belgíu.
Fyrirlestur um geðshræringu
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
Sara Pétursdóttir, 17 ára hársnyrti-
nemi í Tækniskólanum, sigraði í
Söngkeppni framhaldsskólanna á
laugardagskvöld. Hún flutti lag Bobs
Dylans „To Make You Feel My Love“
sem margir þekkja einnig í flutningi
söngkonunnar Adele. Keppnin fór
fram í menningarhúsinu Hofi á
Akureyri.
„Þetta var yndislegt,“ segir Sara í
samtali við blaðamann mbl.is. Hún
segir að sigurinn hafi komið á óvart.
„Ég var lítið að spá í úrslitin, ég vildi
bara koma laginu frá mér eins og ég
vildi.“
Fékk kennslu hjá föður sínum
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Sara lætur reyna á raddböndin. „Ég
hef sungið frá því ég var lítil, byrjaði
í söngkennslu í fyrsta skipti í febr-
úar. Fjölskyldan er öll í tónlistinni og
pabbi hefur kennt mér,“ segir hún.
„Pabbi var rosalega ánægður.“ Fað-
ir Söru er Pétur Hrafnsson söngvari.
Af hverju valdir þú þetta lag? „Ég
hef sungið þetta lag síðan ég var
ung, finnst það fallegt og henta
röddinni minni. Mér fannst ég geta
túlkað það á ákveðinn hátt,“ segir
Sara.
Sara segir að flutningurinn hafi
verið góð upplifun en hún hafi verið
stressuð til að byrja með. „Síðan
reyndi ég bara að njóta stundarinnar
og njóta þess að syngja,“ segir hún.
Framundan er vinna í hljóðveri
þar sem hún mun taka upp lagið og
stefnir Sara á að koma laginu í spil-
un á útvarpsstöðvum. Hún segir að
síminn hafi ekki stoppað síðan sig-
urinn var í höfn. „Mér finnst þetta
voða skemmtilegt.“
Hefur sungið
frá unga aldri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sigurvegarinn Sara Pétursdóttir flutti lagið To Make You Feel My Love.
www.gengurvel.is
PROSTAMINUS
ÖFLUGT NÁTTÚRULEGT EFNI FYRIR KARLMENN
P
R
E
N
T
U
N
.IS
PROSTAMINUS fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða
Pissar þú oft á nóttunni?
Er bunan orðin kraftlítil?
Tíð þvaglát trufluðu vinnuna og svefninn
Halldór R. Magnússon, eigandi HM-flutninga ehf, vinnur við alhliða
vörudreifingu og flutningsþjónustu og keyrir því bíl stóran hluta
vinnudagsins.
„Þvagbunan var farin að slappast og ég þurfti oft að pissa á næturnar.
Á daginn var orðið afar þreytandi að þurfa sífellt að fara á klósettið og
svo þegar maður loksins komst á klósettið þá kom lítið sem ekkert!“
segir Halldór
„Ég tek eina töflu á morgnana og aðra á kvöldin
og finn að ég þarf sjaldnar að pissa á næturnar.
Bunan er orðinn miklu betri og klósettferðirnar
á daginn eru færri og áhrifaríkari,“
Halldór Rúnar Magnússon
- eigandi HM flutninga.
RUSSELL CROWE EMMA WATSON JENNIFER CONNELLY
STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI
12
12
L
ÍSL TAL
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
CAPTAIN AMERICA 2 3D Sýnd kl. 5 - 8 - 10:45(P)
NOAH Sýnd kl. 6 - 8 - 9 - 10:45
HNETURÁNIÐ 2D Sýnd kl. 6
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:45
VARIETY
EMPIRE
THE HOLLYWOOD
REPORTER
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
CAPTAINAMERICA23DKL.5:10-8-10:45
CAPTAINAMERICA22DKL.10:20
CAPTAINAMERICA2VIP2DKL.5:10-8-10:45
NOAH KL.5:10-8-10:45
NEEDFORSPEED KL.8-10:45
POMPEII KL.5:40-8
300:RISEOFANEMPIRE2D KL.10:20
NONSTOP KL.8
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2D KL.5:30
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2D KL.5:50
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
CAPTAINAMERICA2 KL.8-10:45
NOAH KL.8
NEEDFORSPEED KL.10:45
KEFLAVÍK
AKUREYRI
CAPTAINAMERICA23DKL.5:15-8 -10:45
NOAH KL.8
NEEDFORSPEED KL.10:45
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2DKL.5:30
CAPTAINAMERICA2 KL.3D:10:45 2D:6-9
NOAH KL.8-10:20
GAMLINGINN KL.5:30-8
12YEARSASLAVE KL. 5:20
CAPTAINAMERICA2 KL.3D:8-10:45 2D:5:10
NOAH KL.5:10-7:40-10:30
NEEDFORSPEED KL.8-10:20
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2DKL.5:30
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.8-10:45
GAMLINGINN KL.5:10
AARON PAUL ÚR BREAKING BAD
FLOTTASTI BÍLAHASAR SEM
ÞÚ HEFUR SÉÐ
M
IND
-BL
OW
ING
ACT
ION
FRÁBÆRMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VILLAGE VOICE
THE PLAYLIST
THE HOLLYWOOD REPORTER
L.K.G - FBL.
EMPIRE
STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI
RUSSELL CROWE EMMAWATSON JENNIFERCONNELLY
STÓRFENGLEG...
ÞESSAMYNDVERÐA
ALLIR AÐSJÁ.
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
EMPIRE
ENTERTAINMENT WEEKLY
TOTAL FILM
THE GUARDIAN