Morgunblaðið - 07.04.2014, Side 32
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 97. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Vélinni ekki flogið yfir Indónesíu
2. Fundust látin á heimili sínu
3. „Góða nótt pabbi, sjáumst á morgun“
4. Liverpool endurheimti toppsætið
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uppsprettan verður haldin í annað
skipti í Tjarnarbíói í dag. Fyrir-
komulag hennar er þannig að leikarar
og leikstjórar hafa aðeins einn sólar-
hring til að lesa handrit að nýjum
stuttverkum og átta sig á mögu-
leikum þeirra. Listamennirnir hittast
síðan í fyrsta sinn þremur tímum fyr-
ir sýningu og hefja æfingar sem
verða opnar almenningi og hefjast
klukkan 18.00. Inn á milli geta gestir
gætt sér á veitingum og spjallað við
aðra gesti á meðan tónlistarmenn
leika ljúfa tóna. Verkin verða síðan
sýnd klukkan 21.00 og eftir sýn-
inguna geta gestir viðrað hugmyndir
sínar og spurt aðstandendur sýning-
anna að öllu því sem þá þyrstir að
vita. Miðaverð er 500 krónur og hægt
er að nálgast miða á midi.is eða
tjarnarbio.is.
Verkin æfð fyrir
opnum tjöldum
Miðstöð ís-
lenskra bók-
mennta og Félag
íslenskra bókaút-
gefenda taka þátt
í Bókasýningunni
í London sem
haldin verður dag-
ana 8.-10. apríl.
Líkt og í fyrra
verða Norðurlönd með sameiginlegan
bás á bókasýningunni.
Miðstöð íslenskra bókmennta hef-
ur útbúið lista yfir 20 bækur, sem
komu út árið 2013, og lögð verður
sérstök áhersla á að kynna þær á
sýningunni. Listinn verður birtur á
heimasíðunni www.islit.is. Alls taka
um 1.500 sýnendur frá öllum heims-
hornum þátt í sýningunni.
Íslenskar bækur á
sýningu í London
Á þriðjudag og miðvikudag Suðlæg átt 3-8 m/s og dálítil væta
syðra og vestra, en bjart á köflum og yfirleitt þurrt á Norðaustur-
og Austurlandi. Hiti 3-8 stig. Á fimmtudag Snýst í norðan 5-10
m/s. Dálítil él nyrðra en bjartviðri syðra.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-10 m/s með dálítilli vætu, fyrst
sunnantil, en þurrt að kalla norðantil. Hiti 2 til 10 stig.
VEÐUR
Snæfell varð í gærkvöld Ís-
landsmeistari kvenna í
körfubolta í fyrsta sinn þeg-
ar liðið lagði Hauka að velli í
þriðja úrslitaleik liðanna.
Snæfell fagnaði titlinum á
heimavelli eftir sigur á
Haukum í Stykkishólmi,
69:62. Vinna þurfti þrjá leiki
í úrslitum til að verða
meistari og fóru Snæfell-
ingar örugglega í gegnum
úrslitin með 3:0 sigri. Sig-
urgleðin var ósvikin. »1-2
Snæfell meistari í
fyrsta sinn
Tinna Helgadóttir vann þrefalt á
Meistaramóti Íslands í badminton
sem lauk í íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði í gær.
Tinna varð Íslandsmeistari í ein-
liðaleik kvenna í þriðja sinn og vann í
tvíliðaleik í annað sinn. Tinna
varð hins vegar Íslands-
meistari með Magnúsi
Inga bróður sínum í
tvenndarleik í sjöunda
sinn í gær og hefur
ekkert par oftar unnið
flokkinn. »4
Tinna þrefaldur Íslands-
meistari í annað sinn
Ólympíufarinn Sævar Birgisson var
afar sigursæll í skíðagöngu á Skíða-
landsmóti Íslands um helgina á Akur-
eyri. Sævar rakaði til sín verðlaunum
og vann gull í öllum greinunum þrem-
ur sem hann tók þátt í.
„Ég hef yfirleitt mætt hálflaskaður
á Skíðalandsmót og þetta er í fyrsta
skipti sem mér tekst svona vel til á
þessu móti,“ sagði Sævar. »8
Sævar fimmfaldur
meistari á Akureyri
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég var í þeirri stöðu að ég varð að
leggja allt undir og gerði það. Ég hef
sjaldan lagt jafn mikið á mig og síð-
asta hálfa mánuðinn fyrir mótið,“ seg-
ir Sigurbjörn Bárðarson sem sigraði í
Meistaradeild í hestaíþróttum á föstu-
dagskvöldið eftir æsispennandi og
jafna keppni við Árna Björn Pálsson,
tengdason sinn, og fleiri.
Tvær keppnir voru á lokamótinu.
Sigurbjörn sigraði í fyrri greininni,
slaktaumatölti, á Jarli frá Mið-
Fossum og náði þar forystu í einstakl-
ingskeppni deildarinnar, í fyrsta
skipti í vetur. Árni Björn náði stigum
úr flugskeiðinu og jafnaði Sigurbjörn
að stigafjölda en úrslitum réð að
tengdafaðirinn hafi unnið tvö gull á
mótaröðinni og var því sigurvegari
Meistaradeildarinnar þetta árið.
Munurinn gat ekki verið minni.
Sigurbjörn segist hafa orðið að
breyta áherslum í þjálfun Jarls. Hest-
urinn sé frábær og með mikla hæfi-
leika í slaktaumatölti en erfitt sé að
stilla hesta til baka eftir að þeir hafi
verið þjálfaðir í yfirferðartölti. „Þetta
gekk upp. Hann var farinn að veita
mér notalega tilfinningu tveimur dög-
um fyrir lokamótið og þá fann ég loks-
ins að ég var vel undirbúinn,“ segir
Sigurbjörn.
Alltaf heppinn
Hann viðurkennir að heppnin hafi
fylgt sér í þessum úr-
slitum, eins og
oft áður. Þegar
varpa hefur
þurft hlutkesti
vegna úrslita hefur
Sigurbjörn oftast
unnið og sömuleiðis
þegar keppendur
hafa verið jafnir að
stigum og þurft hefur að
skoða aukastafina, þá hefur
hans hlutfall verið betra.
Sigurbjörn vann nú Meistaradeild-
ina í fjórða skipti og hefur áður unnið
allt sem hægt er að vinna í hesta-
íþróttum, heimsmeistaratitla og verið
kosinn íþróttamaður ársins. „Ég verð
kannski auðmjúkari með árunum en
þetta var gleðilegasti meistaradeild-
artitillinn. Það eru hughrifin í sálinni
enda langt í frá sjálfsagður hlutur að
vinna.“
Meistarinn er orðinn 62 ára gamall
og er ekkert á því að setjast í helgan
stein. „Það blundar enn í mér löngun
til að taka þátt í keppnum og mér
finnst ég ekki vera orðinn of gamall
til þess. Það er einhver eldmóður sem
drífur mig áfram. Um leið og ég hætti
að fá fiðring í magann fyrir keppni og
fer að mæta bara til að mæta, þá færi
ég mig á hliðarlínuna,“ segir Sig-
urbjörn.
Eldmóðurinn drífur mig áfram
Sigurbjörn
Bárðarson safnar
enn bikurum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Meistarar Jarl frá Mið-Fossum hjálpaði Sigurbirni vel á lokamóti Meistaradeildar í hestaíþróttum. Að baki lá þó
mikil vinna. Sigurbjörn þurfti að breyta áherslum í þjálfun hestsins svo árangur næðist í slaktaumatölti.
Sigurbjörn tileinkaði sigurinn Þor-
valdi Árna Þorvaldssyni sem var
einn af helstu keppinaut-
um hans um sigur í
Meistaradeildinni
en var ekki
skráður í loka-
keppnina. Niður-
stöður lyfjaprófs sem
tekið var á móti á dög-
unum hafa þó ekki verið
birtar.
„Ég tileinkaði Þorvaldi
sigurinn vegna þess að ég veit að
hann á í erfiðleikum í sínu lífi, á við
veikindi að stríða. Ég vildi sýna
honum stuðning og senda honum
baráttukveðjur,“ segir Sigurbjörn.
Hann bætir því við að Þorvaldur
Árni sé frábær reiðmaður og góður
drengur sem eigi heima í þeirra
hópi þegar hann hafi unnið úr sín-
um málum. „Ég vona að við fáum
hann til baka í okkar raðir, hesta-
mennskan þarf á honum að
halda,“ segir Sigurbjörn.
Til stuðnings Þorvaldi Árna
TILEINKAÐI SIGURINN KEPPINAUT OG VINI
Sigurbjörn
á sigur-
stundu.