Morgunblaðið - 16.04.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014
Í næsta mánuði verður kosið tilþings Evrópusambandsins. Þátt-
taka í þeim kosningum hefur minnk-
að hratt og er nú komin niður í 43%
og eru þó innifalin í þeirri tölu at-
kvæði í löndum eins og Belgíu, þar
sem lögbundið er að fara á kjörstað
og greiða atkvæði.
Kannanir íFrakklandi spá
því nú að Þjóðfylk-
ing Marine Le Pen
fái 24% atkvæðanna
en „turnarnir tveir“,
Gaullistar og sósíal-
istar Hollandes for-
seta, fái 22,5% og
20% hvor flokkur.
Flokkur MarineLe Pen mælist
oftast hærri í könn-
unum en í kosn-
ingum, en engu að
síður eru „stóru
flokkarnir“ tveir
mjög áhyggjufullir.
Þeir, en þó einkum margir for-ystumanna Gaullista, kenna í
vaxandi mæli ESB um fylgistap og
einnig því, hversu fast Frakkland sé
í taumi Þýskalands.
Philippe Villin, áður ritstjóri LeFigaro, hefur skrifað Matteo
Renzi, hinum unga forsætisráðherra
Ítalíu, bréf með áskorun til hans um
að leiða latnesku Evrópu, undir for-
ystu Ítalíu og Frakklands, til að
sprengja evruna í loft upp!
Ítalskur efnahagur eigi sér ekkiviðreisnar von nema taka upp
líruna á ný.
Eru ekki einhverjir menn að hitt-ast í Reykjavík, sem þykjast
ætla að stofna flokk sem á að hafa
bölið sem sitt baráttumál? En þora
að vísu ekki að nefna það.
Kaflaskil?
STAKSTEINAR
Matteo Renzi
Marine Le Pen
Veður víða um heim 15.4., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 0 snjókoma
Akureyri 5 skýjað
Nuuk -7 heiðskírt
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 8 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 heiðskírt
Stokkhólmur 8 heiðskírt
Helsinki 5 skúrir
Lúxemborg 8 léttskýjað
Brussel 11 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 12 léttskýjað
París 12 heiðskírt
Amsterdam 8 skýjað
Hamborg 11 heiðskírt
Berlín 7 skúrir
Vín 6 skúrir
Moskva 10 skúrir
Algarve 18 skýjað
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 21 heiðskírt
Róm 10 léttskýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -7 skýjað
Montreal 16 skúrir
New York 15 skúrir
Chicago 0 léttskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:52 21:04
ÍSAFJÖRÐUR 5:48 21:18
SIGLUFJÖRÐUR 5:30 21:02
DJÚPIVOGUR 5:19 20:36
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Verð á varanlegum aflaheimildum
hefur hækkað undanfarna mánuði.
Reynir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Kvótamarkaðarins í Grinda-
vík, segir að í stóra aflamarkskerf-
inu sé verðið nú komið í um 2.500
krónur fyrir kílóið af óveiddum
þorski. Verðið sé heldur lægra í
krókaaflamarkskerfinu. Í byrjun
maí í fyrra hafi verðið farið niður í
um 1.950 krónur fyrir kílóið í stóra
kerfinu.
„Ástæður þessara hækkana eru
aðallega tvær,“ segir Reynir. „Í
fyrsta lagi gera menn sér vonir um
aukningu á heimildum og aukinn
afla. Í öðru lagi jókst bjartsýni út-
gerðarmanna í kjölfar þess að ný
ríkisstjórn tók við. Menn hafa síðan
gert sér vonir um að gagnger endur-
skoðun á lögum um stjórn fiskveiða
yrði lögð til hliðar. Allt síðasta kjör-
tímabil ríkti óvissa og umræða um
þessar breytingar vofðu yfir,“ segir
Reynir.
Hann segir að lítil hreyfing sé á
þessum markaði og hvað varði ýsu
komi nánast ekkert af henni til sölu.
Hann áætlar að verð fyrir ýsuna sé
nú komið í um 2.500 krónur í stóra
kerfinu eða svipað og fyrir þorskinn.
Hærra verð fyrir aflaheimildir
Helstu ástæður vonir um aukna veiði
og aukin bjartsýni meðal útgerðarmanna
Góð meðferð Fiskurinn er verð-
mætur, bæði veiddur og óveiddur.
Varið verður 150
milljónum króna
úr Atvinnuleys-
istryggingasjóði
til þess að tryggja
390 náms-
mönnum störf í
sumar hjá ríki og
sveitarfélögum.
Þetta hefur
Eygló Harð-
ardóttir félags-
málaráðherra ákveðið í samræmi við
tillögu frá Vinnumálastofnun. Fram
kemur í tilkynningu sem velferð-
arráðuneytið sendi frá sér í gær að
þetta sé í fimmta sinn sem ráðist er í
slíkt átak. Störf í sumar verða þó
færri en verið hefur þar sem að-
stæður á vinnumarkaði eru betri en
síðustu ár. Miðað er við að af þeim
390 störfum sem til verða í tengslum
við átakið verði um 60% þeirra hjá
ríkisstofnunum en 40% hjá sveit-
arfélögum, segir í tilkynningunni. Þá
kemur fram að framlag Atvinnuleys-
istryggingasjóðs til átaksins svari
grunnfjárhæð atvinnuleysisbóta
vegna hvers starfs auk 8% mótfram-
lags í lífeyrissjóð eins og verið hefur.
Sumar-
störf fyrir
námsmenn
390 störf hjá ríki
og sveitarfélögum
Sumarstarf Náms-
menn að störfum.
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel
Reykjavík miðvikudaginn 30. apríl kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á
skrifstofu sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni,
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi
og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum
stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum
standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast
stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Reykjavík 4. apríl 2014,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2 014
www.gildi.is