Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 10
Margir eiga góðar minningar frá ní- unda ártugnum og þeir sem hafa áhuga á að rifja þann tíma upp ættu að skella sér á karókíkvöld sem verð- ur í Húnabúð í kvöld í Skeifunni 11a. Sönggleðin stendur frá kl. 21 til mið- nættis en eftir það verður 80’s diskó- tek og hægt að dansa fram á nótt. Fólk er hvatt til að mæta í sínu flott- asta 80’s dressi og fyrir yngra fólk er þetta kjörið tækifæri til að kynnast tónlist níunda áratugarins sem af mörgum er talin sú flottasta og sú skrautlegasta í allri poppflórunni þar sem fram komu flytjendur s.s. Ma- donna, Wham, Duran Duran, Pet Shop Boys og fleiri. Vefsíðan www.Facebook.com/Húnabúð Madonna Stjarna þessarar poppdrottningar skein skært á níunda áratugnum. Karaoke og 80’s diskótek Félagarnir í hljómsveitinni Hot Eski- mos hafa verið óþreytandi í leit að nýjum djassperlum og hafa leitað fanga í alþýðutónlist svo sem rokki og nýmóðins poppi. Þetta eru þeir Karl Olgeirsson sem leikur á píanó, bassaleikarinn Jón Rafnsson og Kristinn Snær Agnarsson sem leikur á trommur. Í kvöld kl. 21 verða Eskimóarnir heitu með tónleika á Björtuloftum í Hörpu og munu þeir leika lög af plötu sinni Songs From the Top of the World, en einnig af væntanlegri plötu. Tónleikarnir eru hluti af dagskrá Jazzklúbbsins Múl- ans, en Múlinn er að hefja sitt átj- ánda starfsár en hann er samstarfs- verkefni Félags íslenskra hljóm- listarmanna og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem var heiðursfélagi og verndari Múlans. Mikil gróska ein- kennir íslenskt djasslíf þar sem allir straumar og stefnur eiga heima. Endilega … … njótið Hot Eskimos í kvöld Heitir Eskimóar Þeir leita fanga í alþýðutónlist, rokki og nýmóðins poppi. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta var mikil upplifunfyrir krakkana, að fáindíánann Dakota WindGood House hingað sem gestakennara. Hann kenndi þeim tákn og orð á sínu tungumáli sem heitir Sioux Lakota, hann spilaði á handsmíðaða flautu og sagði þeim sögur sem lifað hafa í munn- mælum í hans ættbálki. Nem- endur eldri bekkja unnu að sínu eigin ártali í myndum frá fæðingu sinni og til dagsins í dag, en Lak- ota-indíánar hafa í mörg hundruð ár skrásett sögu sína á þennan hátt. Á ensku er þetta kallað Winter Count, þar sem ártöl eru röð mynda sem hver og ein táknar eitt ár,“ segir Sigurjón Bjarnason, skólastjóri í grunnskólanum í Laugalandsskóla í Holtum, en þetta er í sjötta sinn sem skólinn fær til sín listamann frá Vestur- heimi sem dvelur hjá þeim í viku. „Við höfum verið í samstarfi við Menningarráð Norður-Dakóta en hann Dakota Wind er meðlimur í Standing Rock Sioux-ættbálki og hefur unnið mikið og gott starf í varðveislu menningar Lakota- indíána.“ Barátta indíánanna um að fá hesta sína til baka Sigurjón segir að Sioux Lak- ota-tungumálið sé enn notað með- al indíánanna, en enskan taki þó æ meira yfir. Aftur á móti geti þeir lesið alla sína sögu út úr Winter Count-myndmálinu. „Indíánarnir ristu á sínum tíma tákn á vís- undahúð, en krakkarnir í Lauga- landsskóla urðu að sætta sig við að teikna sín tákn á pappír. Nem- endur voru virkilega spenntir fyrir öllu því sem indíáninn Dakota Wind sagði þeim og sýndi. Hann sagði þeim ekki aðeins frá fornri sögu indíána, heldur einnig frá því hvernig staða indíána er í dag. Hann talaði mikið um vernd- arsvæðin og baráttu indíánanna fyrir því að fá hestana sína til baka, en indíánar ræktuðu sér- stakt hestakyn. Hestarnir voru teknir af indíánunum, eins og svo Klemmdi fæturna að síðum hestanna Þeir fóru stundum nokkuð geyst undir honum íslensku hestarnir sem voru vanir því að líta á það sem hvatningu um að fara hraðar þegar Dakota Wind Good House klemmdi fæturna að síðum þeirra í reiðtúr í Landsveitinni. Lakota- indíáninn Dakota Wind dvaldi í viku í Holtunum og kenndi grunnskólakrökkum ýmislegt um menningu Lakota-indíána. Innlifun Dakota Wind Good House segir sögu handgerðrar indíánaflautu. Veggteppi Táknin eða myndirnar sýna vetrartal Standing Rock Lakota- indíána síðustu rúmlega 300 ár. Krakkarnir í Laugalandsskóla bjuggu til sitt eigið vetrartal frá fæðinu og til dagsins í dag, með teppið sem fyrirmynd. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. www.odalsostar.is Nýjasti meðlimur Óðalsfjölskyldunnar er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu einkennandi þétta bragði hefur verið náð. Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér. Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur hann fátt yfirgnæfa sig. TINDUR NÝROSTURÚR SKAGAFIRÐINUM ÍS LE N SK A SI A. IS M SA 68 18 7 03 /1 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.