Morgunblaðið - 16.04.2014, Side 19

Morgunblaðið - 16.04.2014, Side 19
Gjaldeyrisþörf þjóðarbúsins Viðskiptaráð Íslands, Skoðun 15. apríl 2014. 765 ma. kr. 100 ma. kr. 545 ma. kr. 530 ma. kr. 320 ma. kr. 2.260 ma. kr. Greiðslu- vandi Snjóhengja Gjaldeyris- útflæði (2014-19) Innlend fyrirtæki Þrotabú bankanna Lífeyrissjóðir og einstak- lingar Erlendir fjárfestar Samtals (Hlutfall af landsframleiðslu) 43% 5% 30% 30% 18% 126%+ + + + = Gjaldeyrisþörf við afnám gjaldeyr- ishafta gæti numið allt að 2.260 milljörðum króna til sex ára, eða sem nemur 126% af landsfram- leiðslu. Þetta kemur meðal annars fram í samantekt Viðskiptaráðs um erlendar skuldir og forsendur af- náms gjaldeyrishafta. Miðað við núverandi forsendur þyrfti að fjár- magna þessa fjárhæð með erlendri lántöku, ef afnám hafta ætti ekki að leiða til efnahagslegs ójafnvægis. Hagstæð fjármögnun og viðunandi vaxtakjör verða því þýðingarmikill þáttur í því að þjóðarbúið festist ekki í vítahring sívaxandi skulda. Að öðru óbreyttu munu öll þau verðmæti sem hagkerfið skapar í formi afgangs af vöru- og þjónustu- viðskiptum fara í að greiða vexti af erlendum skuldum næstu árin. Án endurfjármögnunar núverandi skulda áætlar Viðskiptaráð að halli á greiðsluflæði til og frá landinu gæti numið um 750 milljörðum króna yfir sex ára tímabil. Við halla á greiðslujöfnuði bætist svo snjó- hengjan svokallaða, það er að segja gjaldeyrisþörf þeirra aðila sem vilja færa fjármuni sína úr landi við afnám gjaldeyrishafta. Þar er með- al annars átt við íslensk fyrirtæki sem ætla að fjárfesta utan Íslands, lífeyrissjóði og einstaklinga sem vilja fjárfesta erlendis, erlenda fjárfesta með krónueignir og er- lenda kröfuhafa gömlu bankanna. Langtímastefna mikilvæg Afnám haftanna mun því að miklu leyti velta á því að innlendir aðilar geti mætt þessari endurfjár- mögnunarþörf með sjálfbærum hætti. Ef mikil óvissa ríkir um framtíðarhorfur hagkerfisins, eink- um hvað varðar erlenda skulda- stöðu og hagvöxt, getur það valdið því að vaxtakostnaður vegna end- urfjármögunar verði hærri en þjóð- arbúið getur staðið undir. Ef Ís- landi tekst að skapa skilyrði fyrir sterkum hagvexti sem drifinn er af vexti í útflutningi aukast líkur á hagstæðum vaxtakjörum sem munu leiða til batnandi skulda- stöðu. Því þarf að fara saman skýr langtímastefna í efnahagsmálum og trúverðug áætlun um afnám gjaldeyrishafta, svo erlend staða þjóðarbúsins þróist með hagfelld- um hætti, að mati Viðskiptaráðs. Í samantekt Viðskiptaráðs er tekið fram að ýmislegt geti dregið úr fjármögnunarþörfinni, þar á meðal mögulegar afskriftir á inn- lendum eignum þrotabúanna eða gjaldþrotaskipti þar sem kröfuhaf- ar færu út á lægra gengi síðar meir. Einnig er hugsanlegt að Seðlabankinn muni takmarka er- lendar fjárfestingar lífeyrissjóð- anna fyrstu árin eftir afnám. Vaxtakjörin munu ráða úrslitum  Viðskiptaráð metur fjármögnunarþörf allt að 2.260 milljarða króna eftir afnám gjaldeyrishafta  Útflutningsdrifinn hagvöxtur lykill að hagstæðum vöxtum sem hindra vítahring vaxandi skulda FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014 Kortavelta einstaklinga jókst um 6,9% á fyrsta fjórðungi ársins, í sam- anburði við fyrsta fjórðung í fyrra. Greining Íslandsbanka telur að einkaneysla á fyrsta ársfjórðungi gæti hafa vaxið um allt að 6% frá sama tíma í fyrra. Kortavelta innanlands jókst um 5,7% á fyrsta ársfjórðungi, en korta- velta erlendis um 19,9%. Að mati greiningardeildarinnar skýra aukin netviðskipti Íslendinga stærstan hluta þeirrar aukningar sem orðið hefur á kortanotkun erlendis á síð- ustu mánuðum. Nýskráningum bifreiða fjölgaði um fjórðung á fyrstu þremur mán- uðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Bílakaup vega þungt í þeim hluta einkaneyslu sem ekki er greidd með greiðslukortum og styður aukn- ing þeirra við mat greiningardeildar um umtalsverðan vöxt einkaneyslu það sem af er ári. Þrátt fyrir að greiningardeildin telji líklegt að heldur muni draga úr vexti einkaneyslu á næstu ársfjórð- ungum er líklegt að hann muni vega talsvert þyngra í hagvexti á þessu ári en í fyrra. Hagvöxtur síðasta árs var hins vegar að mestu leyti borinn uppi af miklum vexti í ferðaþjónustu. Jákvæður kortaveltujöfnuður Vöxtur í ferðamennsku hefur haldið áfram það sem af er ári og hafa erlendir ferðamenn greitt um 18,4 milljarða króna með greiðslu- kortum á fyrsta fjórðungi ársins. Á sama tíma nam erlend kortavelta Ís- lendinga 17,7 milljörðum króna. Kortaveltujöfnuður var því jákvæð- ur um liðlega 700 milljónir króna og er það í fyrsta sinn sem það gerist á fyrsta fjórðungi árs. Neysla óx hratt á fyrsta fjórðungi  Kortavelta og bifreiðakaup hafa aukist á milli ára Morgunblaðið/Styrmir Kári Neysla Fjórðungsaukning var í ný- skráningum bíla á 1. ársfjórðungi. Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is Verð 15.900 kr . Hjól fyrir börn tveggja ára og eldri Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum. Er á Facebook Kvíði, álag eða orkuleysi? Burnirótin hefur reynst mér mjög vel við þunglyndi og kvíða. Ég er mun hressari á morgnana og hef meira úthald og orku allan daginn og mæli hiklaust með henni. Eftir að ég fór að nota 24 stunda kremið hurfu þurrk- blettir í andliti alveg og ég er ekki eins viðkvæm fyrir kulda og áður. Það gengur mjög vel inn í húðina og mér finnst það frábært í alla staði. – Sigþrúður Jónasdóttir www.annarosa.is Burnirótin er talin góð gegn orkuleysi, kvíða, þunglyndi og streitu ásamt því að efla úthald og einbeitingu. 24 stunda kremið þykir einstaklega rakagefandi og nærandi fyrir þurra og þroskaða húð. Inniheldur andox- unarefni og náttúrulega sólarvörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.