Morgunblaðið - 16.04.2014, Side 23

Morgunblaðið - 16.04.2014, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014 Heilabrot Stöðumælar vefjast fyrir ýmsum en rétt er að borga fyrir stæðið og losna þannig við hugsanlega sekt. Þórður Arnar Engu er líkara en að meirihluti borg- arstjórnar hafi ein- beittan vilja til að koma einkaframtakinu fyrir kattarnef. Undir forystu Jóns Gnarr og Dags B. Eggertssonar eru tækifærin nýtt til að leggja steina í götur sjálfstæðra atvinnu- rekenda. Þrengt er að starfsemi þeirra eða þeir eru hrein- lega flæmdir í burtu. Vinstri meirihluti Samfylkingar og Besta flokksins/Bjartrar fram- tíðar [BT] hefur lítinn áhuga á öðru en að þétta byggð, draga úr val- möguleikum borgarbúa, telja skref að sorptunnum, byggja fuglahús við umferðargötur og hækka álögur. Einkaframtakið er fleinn í holdi þeirra og einkabíllinn skal útlægur gerður. Það ætti því fáum að koma á óvart að lagt sé til atlögu við Fluggarða á Reykjavíkurflugvelli. Í Fluggörðum eiga aðsetur flugskólar, flugklúbbar, fyrirtæki og einstaklingar og eru hluti af þekkingarþorpi flugsins sem hefur orðið til við Reykjavík- urflugvöll. En ekkert af þessu skipt- ir meirihluta borgarstjórnar máli – ekki frekar en lífsviðurværi á annað þúsund einstaklinga sem vinna á flugvallarsvæðinu. Flugvöllurinn skal víkja fyrir íbúðabyggð og Flug- garðar þegar á næsta ári. Þekkingarþorp flugsins Alfhild Nielsen, talsmaður hags- munaaðila á Fluggarðasvæðinu sagði í samtali við Morgunblaðið fyrir skömmu að svo virtist sem stefnt væri að „eignaupptöku á mannvirkjum en Reykjavíkurborg hefur lítið sem ekkert samráð haft við þinglýsta eigendur mannvirkja á svæðinu“. Jóhannes Bjarni Guðmundsson flugmaður heldur því fram í Morg- unblaðsgrein 4. apríl sl. að þeir sem eiga eignir og starfa í Fluggörðum finni „fyrir hroka og yfirgangi borgaryf- irvalda gegn flugvell- inum og allri þeirri starfsemi sem þar þrífst“. Hann bendir á að ótrúlegur fjöldi Ís- lendinga byggi afkomu sína með beinum eða óbeinum hætti á flugi sem sé í „raun ein af grunnstoðum í velmeg- un okkar“: „Í Fluggörðum og á Reykjavík- urflugvelli eru m.a. uppeldisstöðvar okkar fagfólks. Flugmenn, flug- umferðarstjórar, flugvirkjar og fjöldi annarra stíga sín fyrstu skref í þekkingarþorpi flugsins sem Reykjavíkurflugvöllur er og hefur verið í marga áratugi.“ Röksemdir af þessu tagi eru létt- vægar í huga meirihluta borg- arstjórnar og forystumenn Samfylk- ingar og BT hafa ekki áhyggjur þótt verið sé að setja allt kennslu- og einkaflug á Íslandi í uppnám. Rótgrónum fyrirtækjum bolað burt Skeytingarleysi vinstri meirihlut- ans í Reykjavík einskorðast ekki við starfsemi Reykjavíkurflugvallar. Kaupmenn á Laugaveginum eru í vörn. Umferð hefur snarminnkað á síðustu árum – þrengingar, sum- arlokanir og fækkun bílastæða hafa komið illa niður á viðskiptum. Léleg lýsing og umhirða bæta ekki ástand- ið. Rüdiger Þór Seidenfaden, eigandi Gleraugnasölunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að borgaryfirvöld væru hreinlega að útrýma íslenskri verslun við Laugaveginn: „Hér er verið að bola burtu rót- grónum fyrirtækjum. Það verður ekkert eftir nema hótel og ferða- mannaverslanir.“ Það er ekki nóg að borgaryfirvöld hagi skipulagi þannig að einkaaðilar eigi erfitt uppdráttar heldur er bein- línis komið í veg fyrir að sjálfstæðir atvinnurekendur fái að bjóða þjón- ustu sína. Þannig var einkafyrirtæki neitað um leyfi til að safna lífrænum úrgangi frá heimilum í Reykjavík, á þeirri forsendu að um „grunnþjón- ustu“ væri að ræða sem sveitarfélag ætti að veita. Í huga hins umhverf- issinnaða vinstri meirihluta skipti engu þótt Reykjavíkurborg sinnti ekki þessari þjónustu og mundi ekki gera á næstu árum. Með sama hætti þótti það óvið- unandi í huga forystu vinstrimanna að borgarbúum stæði til boða endur- vinnslutunnan frá Gámaþjónust- unni. Því var nauðsynlegt að fara í samkeppni við einkaaðilann – bláa tunnan varð til sem íbúarnir neydd- ust til að greiða fyrir í formi hærri fasteigna- og sorphirðugjalda. Aðferðir sundrungar og missættis Það er merkilegt að þeir stjórn- málamenn sem hæst og oftast tala um íbúalýðræði, samráð og samræð- ur ganga harðast fram við að ná markmiðum sínum – beita aðferðum sundrungar og missættis. Skiptir engu hvort um er að ræða skipulag grunnskóla, eins og foreldrar hafa fengið að kynnast, eða breytingar á aðalskipulagi borgarinnar. Guðmundur Magnússon blaða- maður Morgunblaðsins benti á í ný- legri fréttaskýringu að þegar fyrsta eiginlega aðalskipulag fyrir Reykja- vík var samþykkt fyrir tæpum 50 ár- um hefði ríkt um það full samstaða allra borgarfulltrúa. Allar götur síð- an hafi verið lögð áhersla á að end- urskoðun aðalskipulagsins væri í góðri sátt, þvert á stjórnmálaflokka. Þetta var fyrir tíma samræðustjórn- mála. Nú er öldin önnur undir stjórn Samfylkingar og BT. Nýtt að- alskipulag er afgreitt í miklu ósætti og í engu er tekið tillit til óska og skoðana íbúa. Undirskriftir um 70 þúsund landsmanna sem vilja Reykjavíkurflugvöll á sínum stað hafa engin áhrif á meirihluta borg- arstjórnar. Borgarbúar gerðu at- hugasemdir við 250 atriði í að- alskipulaginu. Þeim athugasemdum var hent út í hafsauga. Hugmyndafræði vinstrimanna í skipulagsmálum borgarinnar er ekki aðeins til þess fallin að draga úr þrótti einkaframtaksins heldur einn- ig að fækka valkostum borgarbúa. Þétting byggðar skal vera á kostnað úthverfa, almenningssamgöngur og hjólreiðar skulu efldar á kostnað einkabílsins. Öllu er stillt upp sem andstæðum. Í stað þess að fjölga valkostum borgarbúa er þeim fækkað. Í þess- um efnum má segja að vinstrimenn séu samkvæmir sjálfum sér. Þeir trúa því ekki að öflugar almennings- samgöngur fari vel saman við að greiða leið einkabílsins. Þeir eru sannfærðir um að blómleg úthverfi séu á kostnað öflugs miðbæjar. Gangi stefna meirihluta borg- arstjórnar eftir í skipulagsmálum mun yfirbragð Reykjavíkur breyt- ast á komandi árum. Í litlu verður tekið tillit til óska íbúanna, hags- munir sjálfstæðra atvinnurekenda verða fundnir léttvægir, úthverfi verða sett í frost og ný samgöngu- mannvirki ekki byggð enda á einka- bíllinn lítið erindi í draumsýn þar sem allir ferðast í Strætó eða fara um á reiðhjólum. Þegar Reykjavík- urflugvelli verður endanlega lokað hefur Reykjavíkurborg sagt sig frá skyldum sem höfuðborg allra lands- manna. Eftir stendur fátæklegri borg sem stjórnað er af stjórnmálamönn- um sem eru í hjarta sínu á móti fjöl- breytni. Vilja takmarka valmögu- leika, fækka þeim kostum sem eru í boði hvort heldur er í samgöngum eða búsetu. Eftir Óla Björn Kárason » Það er merkilegt að þeir stjórnmála- menn sem hæst og oft- ast tala um íbúalýðræði, samráð og samræður beita aðferðum sundr- ungar og missættis. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Enn skal atlaga gerð að einkaframtakinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Flug Fjöldi Íslendinga byggi afkomu sína með beinum eða óbeinum hætti á flugi. – Frá flughátíð á Reykjavíkurflugvelli í tilefni af 30 ára afmæli Flug- leiða, 100 ára afmælis flugs í heiminum og 60 ára afmæli „Þristsins“. Við teljum okkur búa í réttarríki. Í því felst að almennar birt- ar lagareglur eiga að gilda um lögskipti okkar. Þær mega ekki vera afturvirkar. Ef við lendum í ágrein- ingi við aðra erum við með stofnanir, dóm- stóla, sem eiga úr að leysa eftir þessum lagareglum. Regl- urnar þurfa að hafa öðlast gildi þegar þau atvik urðu sem ágrein- ingi valda. Þetta gildir meðal ann- ars ef við teljum að skuldbinding sem við höfum gengist undir sé ógild, til dæmis vegna þess að við höfum verið blekkt til að skuld- binda okkur eða forsendur hafi brostið með tilteknum hætti. Þessu fyrirkomulagi tilheyrir það meginatriði að dómstólarnir setja ekki lög. Þeir geta ekki leyst úr réttarágreiningi með beitingu aft- urvirkra laga sem þeir setja sjálfir. Þeir finna þær lagareglur, sem í gildi voru þegar atvikin urðu, og beita þeim til lausnar ágreinings- ins. Að vísu eru þeir spekingar til sem halda því fram að dómstólar hafi hlutverki að gegna við að setja nýjar lagareglur og megi svo beita þeim afturvirkt. Slíkar kenningar standast auðvitað ekki og þarfnast ekki frekari umfjöllunar hér. Hættir samfélagsins nú eru allt aðrir en þeir sem að framan er lýst. Nú gengur stjórnmálabaráttan út á boð og yfirboð um úthlutun „réttlætis“. Hugmyndin sem allir stjórnmálaflokkar gera nú út á liggur í því að heimta skatta í ríkissjóð og búa svo til reglur um hvernig eigi að útdeila peningunum til lands- ins barna til að bæta fyrir ranglætið sem þau hafi orðið fyrir í fortíðinni („í hruninu“). Það er með öðrum orðum verið að reyna að setja reglur eftirá um hvert réttlætið hafi verið í liðnum tíma. Þetta er auðvitað ekki hægt. Allir vilja fá sneið af nægta- borðinu. Réttlæti eins er ranglæti annars. Svo er annað. Þessir nýju hættir eru og munu verða áfram ávísun á óvinsældir þeirra stjórnarherra sem ráða hverju sinni og beita valdi sínu á þennan hátt, það er til að miðla út réttlæti fortíðar til borg- aranna. Það er vegna þess að þeir sem fá að njóta munu ekki telja sig standa í neinni þakkarskuld. Þeim var einungis miðlað „réttlæti“. Hvers vegna ættu þeir að þurfa að þakka fyrir það? Hinir verða áfram óánægðir. Það er kostulegt að sjá stjórn- málaflokka, sem margir menn töldu styðja í meginatriðum gildandi þjóðskipulag á Íslandi taka fullan þátt í þessum galna leik. Galinn leikur Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson »Nú gengur stjórn- málabaráttan út á boð og yfirboð um út- hlutun „réttlætis“. Höfundur er lögfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.