Morgunblaðið - 16.04.2014, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014
David Fincher
mun ekki leik-
stýra kvikmynd
um Steve Jobs,
stofnanda Apple,
eins og til stóð
þar sem fram-
leiðslufyrirtækið
Sony Pictures
hafnaði launa-
kröfum hans.
Fincher mun hafa krafist þess að fá
greiddar 10 milljónir dollara fyr-
irfram og að stjórna markaðs-
setningu myndarinnar, skv. frétt
vefjarins Hollywood Reporter.
Mun ekki leikstýra
mynd um Jobs
Steve Jobs
Dagbók jazzsöngvaransfjallar um þrjár kyn-slóðir Íslendinga. Í for-grunni er kerfisfræðing-
urinn Ólafur, vel metinn í starfi en
misheppnaður í einkalífi. Hann fær
fregnir af dauða Haralds föður
síns í gegnum húshjálpina Stellu
sem greinilega veit umtalsvert
meira um föður hans en hann hef-
ur nokkurn tíma gert. Einn af
skuggum fortíðarinnar eru heim-
ilisofbeldi á heimili föður Ólafs.
Þar hefur orðið til mein sem eitrar
samskipti innan fjölskyldunnar og
afraksturinn er sá að hinn til-
tölulega ungi kerfisfræðingur get-
ur ekki notið fjölskyldulífs eða
tengst öðru fólki þó að hann geti
sinnt vinnunni sinni svo virðingu
vekur. Sagan spinnst að miklu
leyti í gegnum samskipti húshjálp-
arinnar og Ólafs. Hún segir honum
frá lífi föður hans, sýnir honum
bréf frá móður hans til föðurins,
segir honum frá ýmsu sem faðir
hans sagði honum ekki frá. Enn
fremur eru sviðssetningar frá
heimili afans sem var skipstjóri. Í
þeim atriðum leikur hinn ungi
Grettir Valsson Harald, föður
Ólafs, sjö ára að aldri. Þetta
hljómar örlítið flókið og er það
einnig. Áhorfandinn má fylgjast
vel með til að vita hver er hvað.
Leikmyndin er hrúga margs konar
húsmuna, dálítið eins og dánarbú,
gæti verið dánarbú kynslóðanna.
Líta má líka á hana sem túlkun á
þeirri óreiðu sem fylgir lífi kerf-
isfræðingsins. Hann lítur á allt
sem kerfi sem halda þurfi í réttu
skipulagi, en hlutirnir á sviðinu,
fortíðin eða lífið er óreiða sem
hann getur ekki komið skipulagi á.
Meðal þess sem er að finna á svið-
inu er harpa sem virðist vera úr
píanói. Hún er notuð skemmtilega
sem hluti af hljóðmyndinni þegar
hinn kornungi leikari Grettir Vals-
son, slær nokkrum sinnum á mis-
létta strengi í samræmi við hvern-
ig atburðum vindur fram. Að öðru
leyti þjónar leikmyndin sýning-
unni ekkert sérstaklega.
Það mæðir nokkuð mikið á leik-
urunum. Hinn ungi Grettir Vals-
son er mikið á sviðinu bæði sem
Haraldur og til að gefa stemningu
með hörpunni og lágværum söng í
bakgrunni. Hann leysir hlutverk
sitt vel og er firnaöruggur þrátt
fyrir ungan aldur. Kristbjörg
Kjeld er bæði góð sem Stella og
Ása, skipstjórafrúin sem tókst illa
að skaffa manninum lifandi og
mannvænleg börn. Í aðalhlutverki
er svo Valur Freyr Einarsson sem
leikur þrjá ættliði karla sem allir
eru skemmdir. Valur leikur þá
prýðilega en tekst þó ekki að búa
til skýra og eftirminnilega karakt-
era. Fullmikið og fullvíða vantar
upp á þessa sýningu. Kerfisfræð-
ingurinn sem er aðalpersóna
verksins útskýrir óþarflega mikið
með orðum hvernig persóna hann
er í stað þess að það takist að
sýna það í gegnum gerðir hans.
Þá er hann frá höfundar hendi
heldur óspennandi maður sem á
erfitt með samskipti og áhorfand-
inn á því eðlilega ekki sérlega
auðvelt með að tengjast honum
eða samsama sig honum að
nokkru leyti. Haraldur sjö ára er
áhugaverðari sem ungur og opinn
piltur sem verður fyrir erfiðri
reynslu. Í lýsingu Stellu á honum
sem gamalmenni virðist hann geð-
þekkasti maður sem forðast son
sinn vegna neikvæðni þess yngri.
Erfitt er að finna skýringu á því.
Skipstjórinn gamli skilur lítið eft-
ir. Kristbjörg Kjeld leikur hlut-
verk sín sem fyrr segir vel en mér
finnst að höfundur hefði mátt búa
til meiri og áhugaverðari persónu
úr húshjálpinni Stellu sem var
stoð og stytta föður kerfisfræð-
ingsins og virðist nú hafa ákveðið
að hjálpa næstu kynslóð. Hún er
algóð og fórnfús og ber engan
skugga á kærleika hennar. Slíkar
persónur verða seint eft-
irminnilegar.
Hljóðmynd verksins er um
margt ágæt og það að láta Gretti
hinn unga sjá að nokkru leyti um
hana er skemmtileg hugmynd.
Þrátt fyrir að verkið sé á köflum
fullmikið sett fram í frásagna-
formi þar sem persónurnar ein-
faldlega rekja einhverja atburði
nær verkið stundum til manns.
Efnið er sennilega að einhverju
leyti byggt á „sannri sögu“. Höf-
undurinn hefði mátt vera mun
ákveðnari við að ummynda veru-
leikann í skáldskap með tilheyr-
andi breytingu á karakterum og
því að nota þau tæki sem til eru
við framsetningu á leiknu efni.
Ljósmynd/Jón Páll Eyjólfsson
Ummynda „Höfundurinn hefði mátt vera mun ákveðnari við að ummynda veruleikann í skáldskap með tilheyrandi
breytingu á karakterum og því að nota þau tæki sem til eru við framsetningu á leiknu efni,“ segir m.a. í leikdómi.
Kynslóðaharmur
Borgarleikhúsið
Dagbók jazzsöngvarans bbnnn
Eftir Val Frey Einarsson. Samvinnuverk-
efni Borgarleikhússins og CommonNon-
sense. Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson.
Leikmynd og búningar: Ilmur Stef-
ánsdóttir. Dramatúrgar: Jón Páll Eyj-
ólfsson og Ilmur Stefánsdóttir. Tónlist
og hljóðmynd: Davíð Þór Jónsson. Lýs-
ing: Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Leikarar: Valur Freyr Einarsson, Krist-
björg Kjeld og Grettir Valsson. Önnur
sýning 13. apríl 2014 á Nýja sviði Borg-
arleikhússins.
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKLIST
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Lau 26/4 kl. 19:30 27.sýn Fös 9/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 18/5 kl. 19:30 33.sýn
Fös 2/5 kl. 19:30 28.sýn Lau 10/5 kl. 16:00 31.sýn Lau 24/5 kl. 19:30 34.sýn
Lau 3/5 kl. 19:30 29.sýn Lau 17/5 kl. 19:30 32.sýn Sun 25/5 kl. 19:30 35.sýn
Salurinn veltist um af hlátri. Fáránlega skemmtilegt!
Eldraunin (Stóra sviðið)
Fös 25/4 kl. 19:30 Frums. Fim 8/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 22/5 kl. 19:30 9.sýn
Sun 27/4 kl. 19:30 2.sýn Sun 11/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 23/5 kl. 19:30 10.sýn
Mið 30/4 kl. 19:30 3.sýn Fim 15/5 kl. 19:30 7.sýn
Sun 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 16/5 kl. 19:30 8.sýn
Tímalaust meistaraverk - frumsýning 25.apríl.
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Fös 2/5 kl. 19:30 21. sýn Mið 7/5 kl. 19:30 23. sýn Lau 10/5 kl. 19:30 25. sýn
Lau 3/5 kl. 19:30 22. sýn Fös 9/5 kl. 19:30 24. sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 26/4 kl. 14:00 Aukas. Mið 30/4 kl. 17:00 Aukas. Lau 10/5 kl. 14:00 Aukas.
Lau 26/4 kl. 16:00 Aukas. Lau 3/5 kl. 14:00 Aukas. Lau 10/5 kl. 16:00 Aukas.
Sun 27/4 kl. 14:00 9.sýn Lau 3/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 11/5 kl. 14:00 13.sýn
Sun 27/4 kl. 16:00 10.sýn Sun 4/5 kl. 14:00 11.sýn Sun 11/5 kl. 16:00 14.sýn
Mið 30/4 kl. 11:00 Aukas. Sun 4/5 kl. 16:00 12.sýn
Falleg sýning um vináttuna og það sem skiptir máli í lífinu.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 23/4 kl. 20:00 60.sýn Fim 24/4 kl. 20:00 61.sýn Lau 26/4 kl. 20:00 64.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Skratinn úr sauðarleggnum (Kassinn)
Mið 23/4 kl. 19:30 Lau 26/4 kl. 19:30
Fim 24/4 kl. 19:30 Sun 27/4 kl. 19:30
SPAMALOT–„alveg konunglega skemmtilegt bull“ Morgunblaðið
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag –★★★★★ – BL, pressan.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Sun 27/4 kl. 20:00 15.k Fös 9/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Mið 30/4 kl. 20:00 Sun 11/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Lau 3/5 kl. 20:00 Fim 22/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Sun 4/5 kl. 20:00 Fös 23/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Fim 8/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00
Ótvíræður sigurvegari Olivier Awards 2013.
Skálmöld: Baldur (Stóra sviðið)
Mið 23/4 kl. 20:00 4.k Mið 23/4 kl. 22:30 aukas Fim 24/4 kl. 20:00 lokas
Epískir tónleikar með leikhúsívafi. Aðeins þessar sýningar!
BLAM (Stóra sviðið)
Þri 13/5 kl. 20:00 1.k Lau 17/5 kl. 20:00 5.k Fös 20/6 kl. 20:00 aukas
Mið 14/5 kl. 20:00 2.k Sun 18/5 kl. 14:00 6.k Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fim 15/5 kl. 20:00 3.k Sun 18/5 kl. 20:00 7.k Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Fös 16/5 kl. 20:00 4.k Fim 19/6 kl. 20:00 aukas
Margverðlaunað háskaverk Kristjáns Ingimarssonar. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Fös 25/4 kl. 20:00 3.k Lau 3/5 kl. 20:00 6.k Fös 9/5 kl. 20:00
Sun 27/4 kl. 20:00 4.k Sun 4/5 kl. 20:00
Fös 2/5 kl. 20:00 5.k Fim 8/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Fös 25/4 kl. 20:00 9.k Mið 14/5 kl. 20:00 20.k Fim 29/5 kl. 20:00 31.k
Lau 26/4 kl. 20:00 10.k Fim 15/5 kl. 20:00 21.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas
Sun 27/4 kl. 20:00 11.k Fös 16/5 kl. 20:00 22.k Lau 31/5 kl. 20:00 32.k
Þri 29/4 kl. 20:00 12.k Lau 17/5 kl. 20:00 23.k Sun 1/6 kl. 20:00 33.k
Mið 30/4 kl. 20:00 aukas Sun 18/5 kl. 20:00 24.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k
Fös 2/5 kl. 20:00 13.k Þri 20/5 kl. 20:00 25.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Lau 3/5 kl. 20:00 14.k Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Sun 4/5 kl. 20:00 15.k Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Þri 6/5 kl. 20:00 16.k Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Mið 7/5 kl. 20:00 17.k Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Fim 8/5 kl. 20:00 aukas Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Fim 12/6 kl. 20:00
Fös 9/5 kl. 20:00 18.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Fös 13/6 kl. 20:00
Sun 11/5 kl. 20:00 19.k Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Lau 14/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Hamlet litli (Litla sviðið)
Fös 25/4 kl. 10:00 * Sun 4/5 kl. 13:00 4.k Fös 9/5 kl. 10:00 *
Sun 27/4 kl. 13:00 2.k Sun 4/5 kl. 14:30 5.k Þri 13/5 kl. 10:00 *
Sun 27/4 kl. 14:30 3.k Þri 6/5 kl. 10:00 * Mið 14/5 kl. 10:00 *
Mið 30/4 kl. 10:00 * Mið 7/5 kl. 10:00 * Fim 15/5 kl. 10:00 *
Fös 2/5 kl. 10:00 * Fim 8/5 kl. 10:00 * Fös 16/5 kl. 10:00 *
Harmsaga Hamlets fyrir byrjendur. * Skólasýningar
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Útundan (Aðalsalur)
Lau 26/4 kl. 20:00
Athugið! Takmarkaður sýningafjöldi og knappt sýningatímabil
Stund milli stríða (Aðalsalur)
Mán 21/4 kl. 20:00 Fim 24/4 kl. 20:00
Mið 23/4 kl. 20:00 Sun 27/4 kl. 20:00
Spegilbrot (Hin ólíklegustu rými Tjarnarbíós)
Mið 16/4 kl. 20:00 Fös 25/4 kl. 20:00
Lau 19/4 kl. 20:00 Sun 27/4 kl. 17:00
Barnamenningarhátíð (Aðalsalur)
Þri 29/4 kl. 9:00 Fim 1/5 kl. 9:00 Lau 3/5 kl. 9:00
Mið 30/4 kl. 9:00 Fös 2/5 kl. 9:00 Sun 4/5 kl. 9:00