Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 5. A P R Í L 2 0 1 4 Stofnað 1913  96. tölublað  102. árgangur  ALDREI FLEIRI ÞÁTTTAKENDUR Í HLAUPINU TUNGUMÁLIÐ OG MYNDMÁLIÐ MÆTAST UMRÆÐA UM BJÓRGERÐ OG ÞEKKING SÝNING ÖNNU 38 KEPPNI FÁGUNAR 10VÍÐAVANGSHLAUP ÍR ÍÞRÓTTIR Guðni Einarsson gudni@mbl.is Um 425 starfsmenn Isavia á flug- völlum landsins leggja niður störf frá kl. 4.00 til 9.00 í dag. Ætla má að aðgerðirnar raski ferðum allt að 7.000 farþega í millilandaflugi í dag, að mati Guðjóns Arngríms- sonar, upplýsingafulltrúa Icelanda- ir. Þetta verður þriðja fimm tíma vinnustöðvun Félags flugmála- starfsmanna ríkisins (FFR), Stétt- arfélags í almannaþjónustu (SFR) og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hjá Isavia síðan aðgerðir félaganna hófust. Guðjón sagði ljóst að bæði Icelandair og ekki síður 15-20 þús- und farþegar hafi orðið fyrir tölu- verðum skakkaföllum vegna þessa. Hann taldi ferðir rúmlega 5.000 farþega Icelandair raskast í dag því seinkanir á flugi verði allan daginn. Að auki giskaði hann á að ferðir um 2.000 farþega annarra fé- laga röskuðust í dag. Samgöngur skipta öllu Bæði flugmenn og flugfreyjur Icelandair eiga í kjaradeilum sem eru hjá ríkissáttasemjara. Flug- virkjar eru einnig með lausa samn- inga. Guðjón kvaðst vona að samn- ingar næðust svo ekki yrðu frekari truflanir. „Háannatíminn í ferðaþjónust- unni er að hefjast. Það skiptir miklu að samgöngur gangi vel svo fólk og fyrirtæki um allt land, sem byggja afkomu sína á fluginu, verði ekki fyrir skaða,“ sagði Guðjón. Allsherjarverkfall hefur verið boð- að á flugvöllunum frá klukkan 4.00 að morgni 30. apríl nk. semjist ekki fyrir þann tíma. Guðjón sagði það nánast vera óhugsandi að landinu yrði í raun lokað um óákveðinn tíma með verkfallsaðgerðum. „Það er fráleit staða,“ sagði Guðjón. Samtök atvinnulífsins (SA) segja að samninganefnd FFR, SFR og LSS krefjist að meðaltali um 25,6% hækkunar. Samninganefnd SA og Isavia hafi lagt fram viðamikil til- boð sem feli í sér raunhæfar hækk- anir á öllum launaflokkum. Þeim tilboðum hafi öllum verið hafnað. Kristján Jóhannsson, formaður og framkvæmdastjóri FFR, sagði að þeir hefðu kostnaðarmetið tilboð sitt upp á 18% á 29 mánaða samn- ingstíma. Um sé að ræða heildar- kostnað Isavia vegna kjarasamn- ingsins. Sumir starfsmenn fái samkvæmt því einungis hækkun á launatöflu en aðrir fái launaflokka- hækkanir. Ferðir þúsunda raskast  Seinkanir í allan dag vegna verkfallsaðgerða flugvallastarfsmanna hjá Isavia  Háannatími ferðaþjónustunnar nálgast óðum  Alvarlegt ef lokast fyrir flug Morgunblaðið/Eggert Flugstöðin Starfsmenn þriggja stéttarfélaga leggja niður vinnu. Landsmenn fögnuðu sumardeginum fyrsta í gær með ýmsu móti. Góð stemning var á fjölskylduhátíð á Klambratúni en þar var meðal annars grillað yfir opnum eldi. Mörgum þótti veðrið vera óvenjugott miðað við það sem gengur og gerist á sumardeg- inum fyrsta. Sumar og vetur frusu ekki saman að þessu sinni. Veðursæld var víða um land og mældist hitinn á bilinu 8 til 17 stig. Best var veðrið fyrir norðan þar sem hitinn mældist hæstur á Blönduósi og á Sauðárkróki. Morgunblaðið/Kristinn Langþráðu sumri fagnað Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ný aðferðafræði verður notuð við útreikn- ing veiðigjalda í frumvarpi um stjórn fisk- veiða sem leggja á fram í haust. Útgerðar- menn gagnrýna að álagning veiðigjalda á næsta fiskveiðiári sé miðuð við tölur frá Hagstofunni um afkomu veiða og vinnslu 2012. Aðstæður hafi verið mun betri þá en bæði á þessu ári og í fyrra. Frá því að veiði- gjöld voru kynnt til sögunnar í núver- andi mynd hefur verið stuðst við gömul gögn um af- komu sjávar- útvegsins við álagn- ingu gjaldanna. „Við höfum borgað fáránlega há veiðigjöld síðustu tvö árin. Þeir peningar verða ekki notaðir í neitt annað,“ sagði Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði. „Heildarlaunagreiðslur fyrirtækisins á síð- asta ári voru 550 milljónir. Við borguðum 70 milljónir í auðlindagjald, tæpa milljón á hvern starfsmann.“ „Mér líst mjög illa á þetta,“ sagði Þor- steinn Kristjánsson, forstjóri Eskju hf. á Eskifirði, um veiðigjaldafrumvarpið. Hann sagði það ekki standast nein rök að skatt- leggja sjávarútveginn um allt að 50%. „Það neitar enginn að borga eðlilega skatta en þarna er skotið yfir markið.“ »6 Þykir gjaldið of hátt  Stuðst við gömul gögn við álagninguna Veiðigjöld » Áætlað er að veiðigjöld í sjáv- arútvegi skili um 8 milljörðum króna í ríkissjóð á fiskveiðiárinu 2014/2015. Ný skipulags- og matslýsing fyrir Vesturbæ Reykjavíkur vekur hörð við- brögð en reikn- að er með mik- illi þéttingu byggðar. „Horft er til almanna- hagsmuna sem eru einfaldlega ekki fyrir hendi. Með þessu er ráðist á rótgróið hverfi og líklegast þarf að borga þeim bætur sem missa við þetta bílskýli sín, það kemur úr okkar vasa. Á sama tíma tvöfaldast bíla- stæðaleysið því verið er að byggja hús á bílastæðum. Það skín í gegn- um skipulagstillögurnar allar að vilji er til að fækka bílum í Reykjavík en almenningur vill hins vegar ekki missa bílana sína. Fólk þarf að sjá almennilega þess- ar tillögur áður en þetta er keyrt í gegn,“ segir Ívar Pálsson, við- skiptafræðingur og einn íbúa hverfisins. »6 Ívar Pálsson  Nýsamþykkt skipulag umdeilt Ráðist á rót- gróið hverfi Vesturbæjar  Elísabet Thor- steinson, bú- fræðinemi frá Syðri-Gróf í Flóa, stóð sig best í hrossa- ræktaráfanga nemenda Land- búnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, og fékk hina eft- irsóttu Morgunblaðsskeifu. Af- hendingin fór fram á skeifudegi hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri í gær. „Mér finnst mesti heiðurinn fólginn í því að fá Morgunblaðsskeifuna. Ég hefði ekki getað hugsað mér að ljúka vetrinum á betri hátt,“ sagði El- ísabet. » 16 Heiður að fá Morgun- blaðsskeifuna Elísabet Thorsteinson  Borga þarf toll af safnmunum ætluðum til var- anlegrar sýn- ingar hér á landi. Það fer eftir eðli hlut- arins í hvaða tollflokk hann fer. Eigandi Könnunarsögusafnsins sem verður opnað á Húsavík í byrj- un maí þurfti að reiða fram um 100 þúsund krónur til að leysa eftirlík- ingu af geimbúningi úr Apollo- leiðöngrunum út úr tolli. Hann var flokkaður sem fatnaður. »6 Geimbúningur toll- lagður eins og föt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.