Morgunblaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
flottir í flísum
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Hólmfríður Gísladóttir
María Margrét Jóhannsdóttir
Í nýsamþykktum skipulags- og
matslýsingum fyrir hverfisskipulag í
Reykjavík kennir ýmissa grasa. Þar
er m.a. að finna hugmyndir um út-
færslur á þéttingu byggðar, tillögur
að breytingum á gatnakerfum og
áherslur er varða verndun grænna
svæða í borginni.
Í Hlíðum, sem skiptast í Háteigs-
hverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðar-
hverfi, er mest uppbygging áætluð
vestan Öskjuhlíðar, m.a. við Háskól-
ann í Reykjavík, á Hlíðarenda og
vestan Nauthólsvíkurvegar og Flug-
vallarvegar. Þá sjá menn fyrir sér
ákveðin tækifæri til þéttingar og
endurskipulags í Háteigshverfi og
Hlíðahverfi, m.a. á jöðrum hverf-
anna.
Þær hugmyndir sem má reikna
með að verði hvað umdeildastar
meðal borgarbúa snúa að uppbygg-
ingu á þegar byggðum reitum en
þessar hugmyndir eru mest áberandi
í áætlunum fyrir Vesturbæinn. Þar
er m.a. lagt til að gefnar verði heim-
ildir fyrir 1-11/2 hæða nýbyggingum
við Hjarðarhaga, á vannýttum lóðum
og lóðum þar sem fyrir eru bílastæði
eða bílageymslur. Við Birkimel,
Meistaravelli og Suðurgötu eru
sömuleiðis uppi áætlanir um lág-
reistar nýbyggingar og opnað er á
þann möguleika að byggja raðhús í
stað bílskúra norðan Flyðrugranda.
Ekki allir á eitt sáttir
Ívar Pálsson, viðskiptafræðingur
og íbúi í Vesturbænum, segir ekki
vera heila brú í nýju skipulagi og tal-
ar um eignarnám þar sem til stendur
að byggja þar sem nú eru bíla-
geymslur t.d. við Hjarðarhaga. „Ef
fólki væri gert ljóst hvað til stæði
myndu allir rísa upp gegn þessu. Það
vantar allt samráð en þetta er ekki í
samræmi við vilja fólksins.“
Friðrik Guðmundsson, einn eig-
enda Melabúðarinnar, hefur einnig
áhyggjur af nýju skipulagi.
„Flestir vilja bætt aðgengi að
þjónustu hér í hverfinu og fleiri
bílastæði en meirihluti borg-
arstjórnar vill bílinn burt, sem
verður aldrei á Íslandi. Aðsókn að
Vesturbæjarlauginni hefur til dæmis
aukist mjög eftir að hún var tekin í
gegn og það kallar á fleiri bílastæði,
svo fátt eitt sé nefnt. Það er spurning
hvort yfirvöld muni taka tillit til
athugasemda íbúa hverfisins,“ segir
Friðrik.
Breytingar eru boðaðar víða
Áætlanir um uppbyggingu vestan Öskjuhlíðar Tillögur að þéttingu í Vesturbænum með lágreist-
um nýbyggingum Byggt verði þar sem bílastæði og bílskúrar eru fyrir Umdeildar hugmyndir
Hugmyndir að breytingum við Suðurgötu
Nýjar byggingar
Kort: Reykjavíkurborg - Umhverfis- og skipulagssvið
Hugmyndir að skipulagi í Hlíðum
Kennaraháskóli
Íslands
Klambratún
Bústaðavegur
Perlan
Háskólinn í
Reykjavík
Kort: Reykjavíkurborg - Umhverfis- og skipulagssvið
Íbúðabyggð
Miðsvæði
Stofnanasvæði
Opið svæði / græn svæði
Opið svæði / strandsvæði
Borgar – / aðalgata
Vík Hugmyndir eru uppi um end-
urheimt strandar austur af Klepps-
spítala, á sama svæði og Björgun
hefur verið boðið pláss tímabundið.
Meðal þeirra hugmynda sem
kynntar eru í skipulags- og
matslýsingunum sem umhverfis-
og skipulagsráð samþykkti á mið-
vikudag eru opnanir gatna í Vest-
urbænum. Meðal mögulegra
breytinga er að botnlangi milli
Frostaskjóls og Tjarnarmýrar á
Seltjarnarnesi verði opnaður, að
Hagamelur verði opnaður inn og
út af Hagatorgi og gatnakerfi
fært í upprunalegt horf og að
Ægisíða tengist inn á Suðurgötu
til móts við Þorragötu. Þá er lagt
til að Kaplaskjólsvegur verði opn-
aður inn á og út af Hringbraut og
gatnakerfi fært í upprunalegt
horf og að Reynimelur og Greni-
melur verði opnaðir inn á og út af
Hofsvallagötu og gatnakerfi
sömuleiðis fært í upprunalegt
horf.
Samkvæmt tillögunum eru
einnig uppi hugmyndir um úrbæt-
ur fyrir hjólreiðafólk, m.a. nýjan
hjólastíg meðfram Eiðsgranda. Þá
er gert ráð fyrir hjólaleið með-
fram Hofsvallagötu, Birkimel,
Dunhaga og beggja vegna Suð-
urgötu og hjólareinum meðfram
Neshaga, Hagamel og Birkimel,
Fornhaga, Lynghaga og/eða Star-
haga og Kaplaskjólsvegi.
Tillögur um enduropnun gatna
KR - svæðið
Vesturbæjarlaug
Melaskóli
Háskóli Íslands
Kort: Reykjavíkurborg - Umhverfis- og skipulagssvið
Hugmyndir um breytingar á gatnakerfinu