Morgunblaðið - 25.04.2014, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
Opinn ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2014
Breytt stefna, bættir stjórn-
hættir, traustari fjárhagur
Orkuveita Reykjavíkur heldur opinn ársfund, á morgun, föstudaginn 25. apríl kl.
14:00-16:00 á Bæjarhálsi 1. Markmið fundarins er að auka gegnsæi í starfseminni
og stuðla að upplýstri umræðu ummálefni fyrirtækisins.
Gildi Orkuveitu Reykjavíkur eru
framsýni, hagsýni og heiðarleiki.
Dagskrá
• JónGnarr borgarstjóri setur fund
• Eigendastefna og
sameignarsamningur
Dagur B. Eggertsson, formaður
eigendanefndar.
• Umbætur í stjórnháttum innan
Orkuveitu Reykjavíkur
Haraldur Flosi Tryggvason, formaður
stjórnar.
• KvennakórinnHrynjandi tekur
lagið
• Umhverfið og auðlindirnar
Hildigunnur H. Thorsteinsson,
framkvæmdastjóri Þróunarsviðs.
• Stærsta hindrunin að baki
Bjarni Bjarnason forstjóri.
• Hvernig er eiginlega að vinna hjá
þessari Orkuveitu?
Hildur Ingvarsdóttir, forstöðumaður
viðhaldsþjónustu.
• Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri verður Elín Smáradóttir
lögfræðingur.
Rekstur Orkuveitu
Reykjavíkur hefur
tekið stakkaskiptum á
síðustu árum. Ný lög
gilda um fyrirtækið og
eigendur hafa markað
því sameiginlega stefnu.
Stjórn fyrirtækisins hefur
skerpt á starfsreglum
sínum og stjórnháttum
en um áramót var
starfsemi Orkuveitu
Reykjavíkur skipt upp
í samkeppnisrekstur
og sérleyfisrekstur
að lagaboði. Á sama
tíma hefur verið glímt
við mikinn skulda- og
rekstrarvanda. Árangur
þeirrar baráttu hefur vakið
mikla athygli. Þetta verða
helstu umfjöllunarefni
opna ársfundarins 2014.
Orkuveita Reykjavíkur | Bæjarhálsi 1 | www.or.is
Útvarp Elis Poulsen við hljóðnemann. Hann er nú að koma til Íslands og fær
fólk á fætur og til að stíga dansinn í vinsælum útvarpsþætti sínum.
lengi sem húsrúm er – en hægt er að
hlusta á þáttinn á kringvarp.fo
Gleði á öldum ljósvakans
„Það hefur verið lengi á stefnu-
skránni hjá mér að senda þáttinn út
frá Íslandi. Með stuðningi Eimskips,
Faxaflóahafna og fleiri gat sá draum-
ur ræst,“ segir Elis sem hefur fengið
Hrafnhildi Halldórsdóttur, útvarps-
konu á Rás 1, til liðs við sig. Saman
munu þau kynna lögin á dansiballinu
og þar með í útvarpsþættinum sem
hefst kl. 21 og er í loftinu í þrjá
klukkutíma.
Eins og Elis sagði frá í Morgun-
blaðinu í vetur eru íslensk lög vinsæl
meðal hlustenda hans, til dæmis lög
Björgvins Halldórssonar, Geirmund-
ar Valtýssonar, og lög úr forkeppni
Eurovision. Einnig lög Sænsku vík-
inganna og fleira norrænt, það sem
einu nafni heitir Den glade musik. Og
það eru lög í þessum anda sem Elis
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ef til eru vinaþjóðir eru það Fær-
eyingar og Íslendingar og fátt er bet-
ur til þess fallið að styrkja böndin en
einmitt svona samkomur. Með því að
dansa, syngja og gleðjast saman
myndast tengsl sem oft lifa áratugum
saman,“ segir Elis Poulsen, útvarps-
maður í Færeyjum.
Elis og Jón Jensen tæknimaður
eru að koma til Íslands og í kvöld er
hinn vinsæli þáttur Elis, Upp á tá,
sem er á dagskrá Kringvarpsins sem
er einskonar RÚV þeirra Færeyinga,
í beinni útsendingu frá Íslandi. Sent
verður út úr sal félagsins Komið og
dansið við Drafnarfell í Reykjavík.
Þangað kemur stór hópur reglulega
saman til þess að stíga sporin og nú
ætla Færeyingar búsettir á Íslandi
að bætast í hópinn.
Annars eru allir velkomnir svo
er með tilbúin í tækinu og mun varpa
út á öldur ljósvakans í kvöld.
Þá mun hljómsveitin Hlynur og
bófarnir koma fram og félagarnir
Ragnar Bjarnason og Þorgeir Ást-
valdsson.
Allt það skemmtilega
Tengsl Elis við Ísland eru sterk, en
með systkinum sínum ólst hann upp í
húsi foreldra þeirra í Skerjafirðinum.
Seinna lá leið Elis aftur til Færeyja.
Öðru hvoru hefur þó alltaf heyrst til
Elis hér á landi þar sem hann hefur
flutt fréttapistla í útvarpi en hann
hefur unnið við þáttagerð ytra í ára-
raðir.
„Nei, ég læt ekkert stoppa mig og
held áfram með þáttinn og geri allt
það skemmtilega sem lífið hefur upp
á að bjóða,“ segir Elis sem nýlega
greindist með Parkinson-sjúkdóm-
inn. Segist finna orðið nokkuð fyrir
áhrifum hans. Starfsgetan sé þó hin
sama og var – enn að minnsta kosti –
og því er hann kominn til að útvarpa
frá Íslandi í kvöld. Þá eru uppi áform
um að senda dansþáttinn góða frá
Nuuk í Grænlandi sem yrði þá í
beinni útsendingu í Færeyjum.
Beint Færeyjaútvarp úr Breiðholtinu
Komið og dansið í Drafnarfelli
Upp á tá í Kringvarpi Færeyja frá
Íslandi Elis við hljóðnemann
Ágætur gangur er í framkvæmdum
við stækkun húss grunnskólans á
Siglufirði. Viðbyggingin er alls 465
fermetrar að flatarmáli og þar
verða fjórar kennslustofur, aðstaða
til verklegrar kennslu og matsalur.
Með þessu er ætlunin að sameina
alla starfsemi grunnskólans í bæn-
um undir eitt þak húss við Norð-
urgötu, en á sama tíma leggst
kennsla í gamla gagnfræðaskólahús-
inu við Hlíðarveg af.
„Þessum breytingum í rekstri
okkar fylgir margvíslegt hagræði
og þetta mun líka skila okkur sparn-
aði,“ segir Sigurður Rúnar Ásbjarn-
arson, bæjarstjóri í Fjallabyggð.
Byggðakjarnarnir í Fjallabyggð
eru tveir, Ólafsfjörður og Siglu-
fjörður. Yngri deild er starfrækt á
báðum stöðum með um 70 nem-
endum á hvorum stað. Eldri deildin
með 135 nemendum er hins vegar al-
farið á Siglufirði og því þarf að
byggja. Tréverk ehf. á Dalvík annast
framkvæmdir sem á að ljúka í sum-
ar. Kostnaðaráætlun vegna verksins
hljóðar upp á samtals 171 milljón kr.
sbs@mbl.is
Stækka
skólahúsið við
Norðurgötu
Ljósmynd/Karl Eskil
Bygging Skólastarf á Siglufirði
verður nú á einum stað.
Miklar fram-
kvæmdir á Siglufirði
LEIÐRÉTT
Röng tilvitnun
Rangt var lesið úr fréttatilkynningu
Félags flugmálastarfsmanna rík-
isins (FFR) við vinnslu fréttar sem
birtist í gær. Í tilkynningunni sagði
orðrétt um fundi FFR með samn-
inganefnd SA og Isavia:
„Á þeim fundum voru lagðar fram
tillögur til lausnar kjaradeilunni.
Annars vegar var lögð fram tillaga á
launaflokkabreytingum og eins pró-
sentuhækkanir á launatöflu. Hins
vegar var lagt fram tilboð sem gilda
myndi til 2016.“ Því var ranghermt
að um væri að ræða 1% hækkun á
launatöflu.