Morgunblaðið - 25.04.2014, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16
SIXTIES LÍNAN
OSLO
Eikarskenkur
160x45x63
kr. 159.800
Bakkaborð
kr. 23.900
Unfurl Deluxe Svefnsófi
kr. 129.900
Pillar ljós
14x20
kr. 21.900
Retro
Klukka
3 litir
kr. 7.990
Mynd
53x53
kr. 4.500
Flinga
Tímaritahilla
20x160 cm
kr. 16.900
Flinga
Tímaritahilla
20x80 cm
kr. 9.900
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Sérsveitarmenn frá úkraínska hernum réðust gegn að-
skilnaðarsinnum í borginni Sloviansk í gær. Talið er að
minnst tveir aðskilnaðasinnar hafi látið lífið í átökum
við herinn. Arsen Avakov, innanríkisráðherra Úkraínu,
segir að herinn hafi ráðist gegn aðskilnaðarsinnum
sem hafi lagt undir sig opinberar byggingar í borginni.
AFP
Óvissuástand og átök í austurhluta Úkraínu
Herinn hrekur burt aðskilnaðarsinna
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sagði á blaðamannafundi í
Tókyó í Japan í gær að Rússar
hefðu ekkert gert til að bæta
ástandið í Úkraínu. „Þess í stað höf-
um við haldið áfram að sjá illgjarna,
vopnaða menn leggja undir sig
byggingar, áreita þá sem eru ósam-
mála þeim, valda spennu á svæðinu
og við höfum ekki séð Rússa stíga
fram og hvetja þá til að hætta
þessu,“ sagði Obama.
Bandaríkin hafa sent 150 banda-
ríska hermenn til Póllands og er
von á 450 til viðbótar. Stephen
Munn, sendiherra Bandaríkjanna í
Póllandi, segir það vera skyldu
Bandaríkjanna og NATO að sýna
staðfestu og um leið tryggja öryggi
Póllands.
Kaldastríðsáskynjun
Breskar, danskar og hollenskar
herþotur flugu á móti tveimur rúss-
neskum sprengjuvélum af gerðinni
Tupolev 95 sem flugu skammt norð-
austur af Skotlandi á miðvikudags-
kvöld. Rússnesku vélarnar voru all-
an tímann á alþjóðlegu flugsvæði en
för þeirra vekur samt ugg í ljósi
ástandsins í Úkraínu. Breski sjó-
herinn hefur einnig fylgst með för
rússnesks herskips á alþjóðlegu
hafsvæðis nærri Bretlandi.
Bandaríkin senda
hermenn til Póllands
Hermenn Bandarískir hermenn voru sendir til Póllands þar sem þeir munu
taka þátt í heræfingum og sýna staðfestu Bandaríkjanna í Austur-Evrópu.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Rússar eru ósáttir við aðgerðir
úkraínskra stjórnvalda í austurhluta
Úkraínu þar sem fjöldi rússnesku-
mælandi íbúa býr. Á ráðstefnu í St.
Pétursborg í gær sagði Vladimír
Pútin, forseti Rússlands, að úkra-
ínsk stjórnvöld væru sek um glæp
gegn eigin þegnum með því að beita
hernum fyrir sig í borgum í austur-
hluta landsins. „Auðvitað mun þetta
hafa afleiðingar fyrir þá einstaklinga sem tóku ákvörð-
un um að beita hervaldi gegn eigin borgurum. Þetta
mun líka hafa áhrif á samskipti Rússlands og Úkra-
ínu,“ sagði Pútín í samtali við fjölmiðla í St. Péturs-
borg.
Rússar tilbúnir við landamærin
Þúsundir rússneskar hermanna eru við landamæri
Rússlands og Úkraínu og hafa stjórnvöld í Moskvu
tekið það skýrt fram að þau muni verja hagsmuni
Rússlands í Úkraínu. Þá hefur Pútín gagnrýnt efna-
hagslegar refsiaðgerðir Vesturlanda en um leið sagt
þær gagnslausar. Allir vita að refsiaðgerðir eru ekki
áhrifaríkar í nútímasamfélagi. Þær hafa aldrei tilætluð
áhrif,“ sagði Pútín við fréttamenn. Rússneski herinn
hefur hafið æfingar við landamæri Úkraínu samkvæmt
fyrirskipun frá varnamálaráðuneyti Rússlands.
Rússar verja eigin hagsmuni
Pútín segir stjórnvöld í Úkraínu sek um glæp gegn eigin
þegnum Rússar hefja heræfingar við landamæri Úkraínu
Vladimír Pútín