Morgunblaðið - 25.04.2014, Side 23

Morgunblaðið - 25.04.2014, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014 Sauðárkrókur Sumardagurinn fyrsti stóð undir nafni á Króknum í gær og fólk nýtti sér veðurblíðuna úti um allan bæ enda ekki á hverjum degi sem hitinn fer upp í 15 gráður 24. apríl. Björn Björnsson Það má segja að iðnvæðing á Íslandi hafi hafist fyrir alvöru með álverinu í Straumsvík fyrir hartnær hálfri öld. Síðan þá hefur byggst upp gróskumikill klasi í áliðnaðinum með fjölbreyttri flóru fyr- irtækja sem hafa sér- hæft sig í þjónustu við álverin. Þar munar um þá miklu uppbyggingu sem hefur átt sér stað hér á landi síð- asta áratug. Nú er svo komið að ís- lensk fyrirtæki flytja út búnað og þekkingu til álvera í öllum heims- álfum, að suðurskautinu und- anskildu. Þess misskilnings gætir stund- um að fyrirtækin sem starfa í ál- iðnaðinum hér á landi séu teljandi á fingrum annarrar handar. Það er fjarri lagi. Nægir að vísa til þess að árið 2012 greiddu álverin 60 þúsund reikninga til yfir 700 fyrirtækja upp á samtals um 40 milljarða og er raf- orkan þá ekki með- talin. Alls námu inn- lend útgjöld álveranna um 100 milljörðum. Í því samhengi má nefna að heildarkostnaður við rekstur Landspítalans á þessu ári er samkvæmt fjárlögum um 40 milljarðar. Undanfarið hefur verið unnið að stofnun samstarfsvettvangs um ál- klasa hér á landi. Er fyrirmyndin meðal annars sótt til Kanada þar sem klasastarf hefur skilað fyr- irtækjum í áliðnaðinum miklum virðisauka. Óhætt er að segja að það hafi markað tímamót þegar fulltrúar um 40 fyrirtækja og stofnana komu saman í Borgarnesi á tveggja daga fundi í byrjun apríl til að móta stefnu og framtíðarsýn álklasans á Íslandi. Lagt var upp úr því að á fund- inum yrði þverskurður þeirra fyr- irtækja og stofnana sem hafa að- komu að áliðnaðinum. Í framhaldi af því er stefnt að því að greina álklasann frekar og kalla fleiri fyrirtæki að borðinu. Á meðal þeirra sem sóttu fund- inn voru fulltrúar frá álverunum, verkfræðistofum, vélsmiðjum, málmsmiðjum og tæknifyr- irtækjum. Þá voru þar fulltrúar Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, Keilis Símenntunar, Nýsköpunarmiðstöðvar, Hönn- unarmiðstöðvar og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Nú er unnið úr niðurstöðum stefnumótunarvinnunnar og verða þær kynntar á ársfundi Samáls, samtaka álframleiðenda, þriðjudaginn 20. maí næstkom- andi. Til stendur að leggja meiri áherslu á samstarf við mennta- kerfið, ekki síst háskólasamfé- lagið, meira verður lagt upp úr rannsóknum og þróunarstarfi, og áhugi er á meiri úrvinnslu úr áli hér á landi. Eitt af því sem stendur upp úr er hversu mikilvægt er að mark- aðssetja þá þekkingu og sérhæf- ingu utan landsteinanna sem skap- ast hefur í áliðnaðinum hér á landi. Íslendingar búa að því að vera næststærstu álframleiðendur í Evrópu á eftir Norðmönnum. Í því felast veruleg sóknarfæri fyrir ís- lenskt atvinnulíf. Álverin eru hluti af stórum alþjóðlegum fyr- irtækjum. Ef íslensk fyrirtæki selja þeim vöru eða þjónustu verða þau um leið gjaldgeng í þessum iðnaði um heim allan, enda eru ál- verin hér á landi á meðal þeirra allra fullkomnustu í heiminum. Tækifærin eru til staðar og löngu tímabært að huga að næsta skrefi fram á við. Eftir Pétur Blöndal » Íslendingar búa að því að vera næst- stærstu álframleiðendur í Evrópu á eftir Norð- mönnum. Í því felast veruleg sóknarfæri fyrir íslenskt atvinnulíf. Pétur Blöndal Höfundur er framkvæmdastjóri Samáls, samtaka álframleiðenda. Stefna mörkuð fyrir álklasann á Íslandi Þau eru alltof mörg og alltof ill tíðindin sem okkur berast dag- lega úr hversdagslífinu og snerta strengi í brjósti manns, jafnvel svo að sáran nístir. Nauðganir og aðrir kynferðisglæpir, jafn- vel á börnum, heimilis- ofbeldi af versta tagi og hreinlega skelfilegt um að lesa eða heyra um fjallað og eru þó hálfu hryllilegri margar fréttir af heims-vettvangi þar sem engu er eirt í villtri grimmd miskunnarleysisins. En lít- um aðeins til hlaðvarpans heima, þar er því miður af ærnu að taka, allt yfir í það að sjálfu lífinu sé fórn- að á altari Bakkusar, vissulega hið mesta viðkvæmnismál og vand- meðfarið, en hræðilega satt. En því miður er þöggunin varðandi áfengið of mikil, eins og það sé forðast að nefna hinn eiginlega orsakavald. Hversu oftlega hefur mér þótt á skorta, þeg- ar greint er frá af- brotum ýmiss konar, augljóslega framin undir áhrifum áfengis, að minna á þann voða- vald sem áfengið er, oft aðeins í framhjá- hlaupi sem eins konar aukaatriði þá. Fjöl- miðlafólk er alltof feimið við að bendla af- brotin við „gleðigjaf- ann góða“, máski ástæðan sé sú að margir í þeirra hópi virðast finna í honum lífsfyll- ingu á síðkvöldum. En meira af svo „góðu“. Í umfjöllun um bókina Hljóðin í nóttinni hefur nær öll um- ræðan snúist um kynferðislega mis- neytingu barna og er fjarska vel að þar sé á kýlum kreist, þó gömul kunni að vera. En hafandi lesið þessa ágætu bók þá er mér ekki síð- ur ofarlega í huga sú misnotkun áfengis og afleiðingar hennar sem höfundur dregur hispurslausa og raunsanna mynd af, svo nöturlega sem nokkuð getur verið og ekkert undan dregið. Við þennan lestur sér maður ljósan orsakavald ógæfu, af- brota og eymdar og mættu fleiri taka hreinskilni höfundar sér til fyr- irmyndar, en stílsnilldin auðvitað sérkapítuli sem veldur því að maður leggur bókina ekki frá sér fyrr en að lestri loknum. En tengt þessu kemur svo umræðan um fátækt svo alltof æpandi sönn inn í myndina, áhrif hennar á börn umfram annað. Hafandi þekkt náið um mörg ár kjör og aðstæður þeirra er minnst bera úr býtum í samfélaginu tek ég undir það, að aldrei er um of minnt á þennan vanda, þessa þjóðfélags- smán sem enn hefur ekki tekist að uppræta nema síður sé. Mér þykir fátæktarvandinn bitur og sár kalla miklu fremur á úrbætur en húsnæð- isvandamál þess fólks sem vitandi vits reisti sér hurðarás um öxl, en á ýmsu sýnist sem það fólk fái skulda- leiðréttingu umfram þarfir. Inn í þessar bágu aðstæður og kjör svo alltof margra spilar vitanlega margt, en það er líka mikill sann- leikur í því sem vinkona mín góð, öryrki til margra ára, sagði eitthvað á þessa leið við mig fyrir alllöngu: „Þetta eru ömurleg kjör með skelfi- lega lágan tekjugrunn sem enginn ætti að þurfa að láta bjóða sér í þessu annars auðuga landi, en þó tekur út yfir allan þjófabálk, ef við- komandi neytir áfengis og tóbaks, þá fyrst blasir nú eymdin ein við. Það skiptir oftast sköpum fyrir fólk, því nógu erfitt er að skrimta án þessarar óþarfaeyðslu.“ Undir þetta gat ég heils hugar tekið hafandi séð þessa svo óræk dæmi. Áfengið kemur svo sann- arlega hræðilega við sögu okkar og eitt þó öðru verra í umfjöllun um það og það er þegar áfengið er hafið til skýjanna og hvergi minnst á af- leiðingar. Það sá ég bezt núna í að- draganda páska þegar minnt var linnulaust á það í fjölmiðlum hver nauðsyn væri á því að hafa áfengið með í hátíðarför. Þar fyrir utan er nú um margföld lögbrot að ræða þegar hinar ósvífn- ustu auglýsingar í kynningarstíl með flennifyrirsögnum birtast manni, enda eflaust vel fyrir greitt frá ógæfusölunum. Og er þá kannski réttast að ljúka þessum páskaþönkum með því að minna á ofurmátt áfengisauðvalds- ins, sem margir telja næstan á eftir mætti vopnaframleiðendanna, markaðinn sem virðist óseðjandi þrátt fyrir allt friðarhjalið. Eftir Helga Seljan » Fjölmiðlafólk er allt- of feimið við að bendla afbrotin við „gleðigjafann góða“, máski ástæðan sé sú að margir í þeirra hópi virðast finna í honum lífsfyllingu á síðkvöld- um. Helgi Seljan Höfundur er formaður fjölmiðla- nefndar IOGT. Hin samfélagslega ógæfa áfengisneyzlunnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.