Morgunblaðið - 25.04.2014, Síða 32

Morgunblaðið - 25.04.2014, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014  Fleiri minningargreinar um Valgerði Valdimars- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ ValgerðurValdemars- dóttir fæddist í Reykjavík 6. maí 1936. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 12. apríl 2014. Foreldrar henn- ar voru Valdemar Anton Valdemars- son, f. 1906, d. 1979 og Anna Þórarins- dóttir, f. 1905, d. 1995. Systkini Valgerðar eru, Ágústa Anna, f. 1931, Jóna Guðríður, f. 1934, Ás- geir Jósep Sigurður, f. 1938, Gísli Kristinn, f. 1940, Valdemar Anton, f. 1943, Kristín Þóra, f. gerði, sonur hennar er Gabríel Máni. Valgerður ólst upp í Reykjavík og var einn vetur í Austurbæjarskóla og síðan í Laugarnesskóla. Valgerður fór snemma að vinna, bæði í sveit á sumrin og síðan 13 ára í vist en þá var skólagöngu hennar lokið. Valgerður og Albert eig- inmaður hennar kynntust árið 1952 og nánast allan sinn bú- skap voru þau með eigin rekst- ur, þar á meðal leikfangagerð, framleiðslu á gipsafsteypum, mötuneyti, blóma- og gjafavöru- búð, matvöruverslun, heildsölu og gistiheimili. Þar sinnti Val- gerður hinum ýmsu störfum er rekstur þeirra hjóna kallaði á. Í mörgum þessum störfum komu listrænir hæfileikar Valgerðar vel fram. Útför Valgerðar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 26. apríl 2014, og hefst athöfnin kl. 13. 1944 og Aðalsteinn Jóhann, f. 1946. Valgerður giftist, 19. nóv. 1955, Al- bert Magnússyni, f. 7.9. 1929 í Mið- húsum á Norðfirði, d. 3.4. 1993. Synir þeirra eru 1) Tóm- as Vilhjálmur Al- bertsson, f. 1960 giftur Maríu Ar- inbjarnar og eiga þau tvö börn, Valgerði Fríðu og Sveinbjörn Snorra. 2) Albert Valur Albertsson, f. 1972 í sam- búð með Söru Benediktsdóttur og eiga þau eina dóttur, Lilju Karen, fyrir á Albert Önnu Val- Elskuleg móðir mín hefur kvatt þennan heim. Ég missi ekki aðeins ástkæra móður mína sem hefur kennt mér svo margt held- ur góðan vin. Flestir þekkja þig fyrir glaðværð, jákvæðni, vinnu- semi og sterka réttlætiskennd. Þú tókst mig að þér þegar ég var eins árs, hlúðir að mér og blést í mig lífi að nýju. Þetta var svo einkennandi fyrir þig, með kærleika, natni og umhyggju- semi hlúðir þú að svo mörgu. Spurðir einskis og leyfðir fólki að fara sínar eigin leiðir, talaðir við fólk en ekki um það, nema fal- lega, eins og þegar þú talaðir við blómin þín og fallega um þau þegar ég kom í heimsókn. Ein af fyrstu minningum mín- um er þegar ég fór í uppskurð á Landakoti þriggja og hálfs árs, ég man svo vel þegar ég vaknaði eftir aðgerðina, blindur og heyrði rödd þína. Nokkrum dögum seinna þegar þið komuð til að sækja mig var ég að leika við hina krakkana á deildinni, ég var á rugguhesti og sá ykkur koma, ég man að ég hljóp í fangið á þér fullur af kærleik, ég var svo glað- ur að sjá ykkur, ég hélt nefnilega að þið kæmuð ekkert aftur að ná í mig, það er skrýtið að vera ætt- leiddur. Eftir að pabbi lést og ykkar fyrirtækjarekstur tók enda þá upplifði ég að frelsið skipti þig öllu máli. Þið höfðuð lagt þrot- lausa vinnu í uppbyggingu á eigin rekstri og á stuttum tíma var all- ur sá veraldlegi auður farinn, þú svafst ekki á nóttunni vegna þess að þú vildir standa við þínar skuldbindingar. Þú fyrirgafst öll- um þeim aðilum sem áttu hlut að máli. Það tók mig mörg ár að skilja hvers vegna þú sagðir „þetta eru bara peningar“ en að baki var frelsið sem þú mast svo mikils, því að í reiðinni voru fjötr- ar sem þú vildir ekki vera í. Tvö tímabil standa upp úr á okkar samferðatíma þar sem tenging okkar dýpkaði og við urðum nánari. Í fyrra skiptið var ég rétt undir þrítugu og ein- hverra hluta vegna fórum við að spjalla en í þetta skiptið töluðum við í marga klukkutíma um okk- ur, pabba, drauma okkar og lang- anir. Þarna kynntist ég þér miklu betur, ekki bara sem móður held- ur sem konu. Í seinna skiptið hlotnaðist mér sá heiður að fylgja þér í gegnum þín veikindi. Stuttu eftir andlát þitt sagði við mig prestur „að það væri svo skrýtið með krabbameinið að það tæki bara og gæfi ekkert“. Ég er ósammála þessu; þó að það hafi tekið þig frá okkur, þá kynntist ég hlið á þér sem fáir fengu að sjá, hlutverkin snérust við, ég fékk að styðja þig og hlúa að þér. Við ræddum um allt milli himins og jarðar og ég fékk að vera við hlið þér til enda. Þessi tími er mér dýrmætur. Ég mun alltaf muna hvernig þú hefur tekið á móti dætrum mínum með allri þinni ást og al- úð, Anna Valgerður fékk að kynnast þér og það er dýrmætt. Ég heiti því að Lilja Karen fái að kynnast því hver þú varst. Það verður erfitt að venjast því að þú sért ekki til staðar. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Elsku mamma, ég kveð þig ekki bara sem fjörutíu og eins árs maður heldur líka sem litli strákurinn sem þú hlúðir svo vel að. Það er svo sárt að missa mömmu, ég kveð þig inn í Sum- arlandið. Þinn sonur, Albert Valur. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Valgerður, mér finnst óraunverulegt að þú sért farin frá okkur. Ég finn fyrir miklu þakklæti og kærleika þegar ég hugsa til þín. Að vera í kringum þig var notalegt og afslappandi. Þú varst alltaf svo jákvæð og bjartsýn og það var það sem þú valdir að vera. Við spjölluðum oft saman um allt og ekkert og alltaf var stutt í húmorinn hjá þér. Ég er sorgmædd yfir því að dóttir mín fái ekki að kynnast þér og mér finnst það ósanngjarnt en minningarnar og myndirnar sem við eigum af ykkur eru dýrmæt- ar. Ég er þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, ég er þakklát fyrir að vera partur af fjölskyldunni þinni, ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér og ég er þakklát fyrir það sem ég lærði af þér. Ég vildi að þú hefðir verið lengur hjá okkur. Ég veit að þú fylgist með og passar upp á okkur öll. Mér þykir svo vænt um þig og ég sakna þín. Þín tengdadóttir, Sara. Mín kæra mágkona Valgerður Valdimarsdóttir, Valla, lést laug- ardaginn fyrir pálmasunnudag, 12. apríl s.l., en hún hafði átt við vanheilsu að stríða um nokkurt skeið. Valla hefði orðið 78 ára 6. maí n.k. hefði hún lifað. Hún er sú fyrsta af systkinahópnum sem fellur frá, en þau sem eftir lifa eru sjö talsins. Valla var mikil vinkona okkar hjóna, þær systur hittust reglu- lega, fóru saman í gönguferðir og enduðu svo í kaffisopa í Garða- bænum. Ágústa, systir þeirra, bættist oft á tíðum í hópinn. Valla bjó í notalegri eigin íbúð síðustu árin, sem henni leið vel í. Hún missti mann sinn Albert Magn- ússon laugardaginn fyrir pálma- sunnudag 3. apríl 1993. Þau hjón ráku saman verslun á Sauðar- króki um árabil. Minnumst við hjón hversu ánægjulegt það var að eiga vísan áningarstað hjá Völlu og Albert þegar ekið var um landið. Síðar ráku þau hjón verslun á Stokkseyri og í Hafn- arfirði. Valla hafði gott skap, var ávallt mjög jákvæð og lét ekki mótlæti trufla sig. Hún var eft- irsótt á alla mannfagnaði innan fjölskyldunnar. Hún hafði frá mörgu að segja sem fór ekki fram hjá neinum, því hún var raddsterk kona svo eftir var tek- ið. Við syrgjum Völlu, en huggum okkur við að eiga ljúfar minning- ar um heilsteypta og góða konu. Þeim hjónum Völlu og Albert varð ekki barna auðið, en ætt- leiddu tvo drengi, þá Tómas Vil- hjálm og Albert Val. Nú sjá þeir á bak ástríkri móðir sem unni þeim svo heitt. Við hjónin og okk- ar fjölskylda sendum þeim Tóm- asi Vilhjálmi og Alberti Val, fjöl- skyldum þeirra og öðrum ástvinum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Valgerðar Valdimarsdóttir. Gunnar og Jóna (Ninna). Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. Loks beygði þreytan þína dáð, hið þýða fjör og augnaráð; sú þraut var hörð – en hljóður nú í hinsta draumi brosir þú. (Jóhannes úr Kötlum) Megi eilífðarsól á þig skína kærleikur umlykja og þitt innra ljós þér lýsa áfram þinn veg. (Írsk bæn) Blessuð sé minning elsku Völlu frænku minnar. Brynja Björk og fjölskylda. Valgerður Valdemarsdóttir ✝ Jóhanna HallKristjánsdóttir fæddist í Alberts- húsi á Ísafirði 20. desember 1924, Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 18. apríl 2014. Foreldrar Jó- hönnu voru Krist- ján Albertsson frá Ísafirði og Herdís Samúelsdóttir frá Skjaldarbjarnarvík á Strönd- um. Eldri bræður Jóhönnu voru Albert Jóns og Hall- grímur Ámundi, báðir látnir. Árið 1947 gekk Jóhanna að eiga Sveinbjörn Enoksson bif- reiðastjóra. Hann lést 13. júní 1992. Foreldrar hans voru Enok Helgason, rafvirki frá Akranesi, og Sveinbjörg Svein- ir átti Rós Davíð Þór, faðir Kristján Þór Jónsson. Ættleidd dóttir er Viktoría Lind. 4) Enok, f. 30.10. 1953, maki Guð- rún Andrea Guðmundsdóttir. Þeirra börn eru Jóhann Kári, Sveinbjörn og Andri Már. 5) Valur, f. 10.10. 1956, maki Halldóra Hafsteinsdóttir. Þeirra börn eru Ester Björg, Sandra Lind og Valur Þór. 6) Herdís, f. 29.8. 1958. Hennar dóttir er Rakel Rós, faðir Kristinn Jóhannesson. 7) Ólaf- ur Þröstur, f. 14.10. 1961, maki Rannveig Þöll Þórisdóttir. Þeirra börn eru Anton Logi og Ylfa Þöll. Fyrir átti Ólafur Jón Leopold, móðir Rósa Jóns- dóttir. Barnabörn, lang- ömmubörn og langalang- ömmubarn Jóhönnu eru 57. Jóhanna starfaði aðallega við verslunarstörf og lengst af við blómaskreytingar og afgreiðslu í Blómabúðinni Burkna. Útför Jóhönnu fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 25. apríl 2014, og hefst athöfnin klukk- an 13. björnsdóttir frá Sveinskoti á Álfta- nesi. Jóhanna og Sveinbjörn bjuggu alla tíð í Hafn- arfirði, lengst af á Kirkjuvegi 10b. Börn þeirra eru 1) Már, f. 27.10. 1947, maki Guðrún Hall- dórsdóttir. Þeirra börn eru Halldór, Jóhanna og Rut. 2) Örn f. 24.12. 1949, maki Sigríð- ur Anna Kristinsdóttir. Þeirra börn eru Vignir Örn, Samúel Karl og Díana Ósk. Fyrir átti Örn Ástu Björk, móðir Ingi- gerður Guðmundsdóttir. 3) Rós, f. 15.1. 1952, maki Sig- urður Kjartan Jónmundsson. Þeirra börn eru Enok Jón, Karen Lísa og Ísak Viðar. Fyr- Þá ertu farin í ferðalagið langa, mamma mín. Við sem eftir sitjum söknum þín, þú hefur ver- ið svo ríkur þáttur í lífi okkar í svo langan tíma. Ég man eftir svo mörgum góðum stundum með þér og pabba og ég man líka eftir erfiðu tímunum, en það er eins og þeir víki hratt fyrir þeim góðu. Það er aðdáunarvert að hugsa til þess hvernig þú hélst utan um okkur, stóra krakkahópinn, okk- ur sem vorum svo atorkumikil að í dag hefði okkur sennilega verið gefið rítalín, en þá var ekki búið að finna upp ofvirkni, þá hét það bara óþekkt. Mér verður einnig hugsað til þess að þó okkur fynd- ist húsið okkar vera höll, þá var gólfflöturinn niðri á við meðal tveggja til þriggja herbergja íbúð í dag og þar bjuggum við öll. Það rýmkaði þó heilmikið þegar þið pabbi innréttuðuð svefnherberg- ið ykkar uppi svo við krakkarnir fengum alla neðri hæðina. Ég ímynda mér, að fyrir utan það að við vildum helst alltaf vera úti, þá hafi plássið heima ekki boðið upp á að við værum öll inni á daginn, en flott var staflað í kojurnar á kvöldin og næturnar. Alltaf var samt pláss fyrir góða vini og allt- af var nóg og gott að borða, þó við kæmum stundum með gesti með okkur, til að spara tíma við að senda þá heim til að borða. Ég man líka hve dugleg þú varst að halda fötunum okkar heilum. Við vorum ekki mikið að velta því fyr- ir okkur þó buxur rifnuðu eða peysa raknaði, alltaf var eitthvað að fara í. Jafnaðargeðið þitt var aðdáun- arvert og hvernig þú fórst í gegn- um lífið glöð og jákvæð og ótrú- lega þrautseig. Ég man eftir sögu um ykkur pabba þar sem strákur kom með bíllyklana upp á Kirkju- veg og sagði að pabbi hefði beðið sig að færa þér þá, hann væri far- inn út á sjó á togara. Þá hafði ein- mitt vantað skipverja og hann hoppað um borð. Þá var ekki ann- að en taka því og sjá um heimilið þangað til karlinn kom aftur í land og lífið tók aftur á sig sinn vanalega blæ. Ég dáist að elju ykkar pabba í öllum ferðalögun- um ykkar. Fyrst um landið þvert og endilangt og svo um heiminn þveran og endilangan, oft á eigin vegum og eigin bílum. Ég tók ekki mikinn þátt í ferðalögunum ykkar pabba, en þess í stað naut ég sveitasælu á Ströndum, í Vatnsdalnum og Skagafirði. Það voru þroskandi tímar og þakka ég ævinlega fyrir það. Mér er of- arlega í huga þakklæti fyrir frændsemina, sem ríkti í Sam- úelsættinni. Ræktarsemina við allt frændfólkið sem við heimsótt- um og við krakkarnir njótum í ríkum mæli í dag að þekkja allt þetta góða fólk. Af því átt þú allan heiðurinn. Það er margs að minnast, en bestu minningarnar eru kærleiki þinn, staðfesta við fjölskylduna og þrautseigjan að takast á við það sem að höndum bar. En nú ertu farin á vit nýrra ævintýra, komin til pabba, afa og ömmu og bíður þar okkar barnanna þinna. Farðu vel með þig. Ég bið hinn hæsta höfuðsmið himins og jarð- ar að passa þig fyrir okkur, þang- að til við sjáumst aftur. Þinn einlægur sonur, Már. Mín kæra tengdamóðir, Jó- hanna Hall Kristjánsdóttir, kvaddi þennan heim á föstudag- inn langa eins og frelsarinn sjálf- ur. Okkur eiginlega að óvörum því þó svo við hefðum búist við því að þetta gerðist á næstunni þá var þetta samt ótrúlegt áfall. Hún var einstök kona, hélt utan um stóra hópinn sinn af mikilli alúð og án allrar afskiptasemi nema um væri beðið. Alltaf var hægt að leita til Hönnu hvort sem um stórar veislur var að ræða eða smáar, en þær var hún vön að skipuleggja, elda, baka, skreyta veisluborð og mat, þar var hún í essinu sínu. Ég kynntist þessari kjarnakonu þegar ég kom mjög ung inn á heimilið og var tekið eins og ég væri eitt af hennar börnum. Það var bókstaflega ekkert sem hún gat ekki gert, hún flísalagði, málaði, bólstraði húsgögnin sín o.fl. Jólaskreyting- arnar sem hún galdraði fram úr trjágreinum sem hún málaði og stráði glimmer yfir voru á mörg- um heimilum í Hafnarfirði og víð- ar. Fyrsta jólagjöfin frá mínum ektamaka var einmitt jólaskreyt- ing eftir Hönnu. Hún fór að vinna í Blómabúðinni Burkna, gerði þar margar fallegar skreytingar fyrir alls konar tilefni. Við nutum góðs af hennar listfengi því ekkert veisluborð var flottara en það sem hún hafði komið nálægt. Fyrsta utanlandsferðin okkar var með þeim hjónum Hönnu og Bubba til Danmerkur 1975 og var þar með lögð línan en ferðabakt- erían smitaðist til okkar í þeirri för. Þau voru mjög dugleg að ferðast meðan Bubbi lifði en hann dró kerlu sína með sér um allan heim sem henni fannst nú ekki leiðinlegt. Þau áttu hjólhýsi í Þjórsárdalnum þar sem þau voru mjög dugleg að vera en við vorum líka með hjólhýsi þar ásamt Erni og Siggu og nutum þess því að samgangur var alltaf til staðar. Því miður fór Bubbi alltof fljótt frá henni en hann náði ekki 67 ár- unum en þau höfðu hlakkað til að eyða ævidögunum í Dalnum þar sem þeim leið svo vel saman. Eft- ir að hann lést 1992 gerðist hún heimakær og hætti að mestu öll- um ferðalögum. En alltaf vildi hún vera að gefa eitthvað eða að reyna að hjálpa til eins og þegar við vorum að byggja í kringum árið 2000, þá komu þær mæðgur oft með pönnsur eða vöfflur og rjóma. Það var ekkert lítið mál að útbúa jólapakka fyrir þennan stóra hóp en annað ekki tekið í mál og var Dísa dóttir hennar hjálparhellan hennar í því sem öllu öðru hennar síðustu ár sem við erum mjög þakklát fyrir. Við áttum þriðjudaga til heimsókna en hún var svo heppin að eiga sjö börn sem tóku hvert sinn vikudag og þess vegna fékk hún yfirleitt heimsókn alla daga vikunnar. Hún sagði oft að fólkið á Hrafn- istu væri yndislegt og gott að vera þarna og það erum við þakk- lát fyrir. Eftir hana stendur stór hópur afkomenda og höfum við haft það fyrir reglu að hittast öll sem það geta á eða í kringum af- mælisdaginn hennar 20. desem- ber en við síðustu talningu vorum við orðin í kringum 80 manns. Hún hefði orðið níræð í næsta hittingi en við munum halda áfram að hittast og halda í heiðri minningu elsku Hönnu (m)ömmu okkar. Hvíl í friði, elsku hjartans Hanna mín, og hafðu þökk fyrir allt. Guðrún Andrea Guðmundsdóttir. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. Svo kvað skáldið Matthías Jochumsson sem talar til okkar, kynslóð eftir kynslóð. Nú hefur kvatt þennan heim elskuleg amma mín, Jóhanna Hall Kristjánsdóttir, eða Hanna eins og allir þekktu hana. Amma var af þeirri kynslóð sem við, sem nú byggjum Ísland, eigum hvað mest að þakka. Hún byggði upp gott heimili við kröpp kjör og við aðstæður sem við myndum seint láta bjóða okkur nú á tímum. Þrátt fyrir þær aðstæður fæddi amma sjö heilbrigð börn og kom þeim öllum á legg og til manns og lagði grunninn að ættlegg sem telur hátt í hundrað afkomendur. Minningin lifir um annars veg- ar duglega kjarnakonu sem lét verkin tala, gerði það sem þurfti til að sjá sér og sínum farborða. Hinsvegar er amma sem fannst ekkert betra í heiminum en að vera með fullt hús af fólki og sér- staklega okkur barnabörnin. Hvenær sem mann bar að dyrum, hversu margir voru í heimsókn eða hversu lengi fólk hafði verið hjá ömmu, þá var öllum tekið með miklum fögnuði og við krakkarn- ir kysstir og knúsaðir og umvafin bæði ást og umhyggju. Hjartað á ömmu stækkaði um nokkur núm- er við hvert barnabarn sem fædd- ist og á Kirkjuvegi 10a var alltaf fullt hús af kærleika. Nú kveðjum við Hönnu ömmu, sem skilur sátt við þennan heim. Hún lifir áfram í hjörtum okkar og góðar minningar vekja hana til lífs meðal okkar sem nutum um- hyggju hennar og væntumþykju. Ég veit að afi hefur sótt hana á gullslegnum Buick með skrán- ingarnúmerinu G10 og saman munu þau ferðast áfram um aðra heima. Bless, elsku amma. Halldór Másson. Jóhanna Hall Kristjánsdóttir  Fleiri minningargreinar um Jóhönnu Hall Kristjáns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.