Morgunblaðið - 25.04.2014, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
J
óhanna fæddist í Kolsholts-
helli í Villingaholtshreppi
25.4. 1944 en flutti tveggja
mánaða með foreldrum
sínum austur á Bakkafjörð
og ólst þar upp á Skeggjastöðum.
Hún var í barnaskólanum á Skeggja-
stöðum þar sem móðir hennar var
skólastjóri, tók landspróf við MA og
lauk þaðan stúdentsprófi 1965, lauk
kennaraprófi frá KÍ 1966, stundaði
djáknanám við Samariterhemmet í
Uppsölum 1971-72, nám í guðfræði
við HÍ 1972-73 og frá 1992 og lauk
embættisprófi í guðfræði 1998.
Jóhanna var kennari við Barna-
skólann á Laugarvatni 1966-67,
stunda- og forfallakennari og skóla-
ritari við Hlíðaskóla í Reykjavík
1967-69, sumarbúðastjóri í sum-
arbúðum þjóðkirkjunnar í Reykja-
koti í Ölfusi og á Eiðum í Eiðaþinghá
sumrin 1968-73, kennari við Mýr-
arhúsaskóla á Seltjarnarnesi 1969-
71 og 1972-75 og forstöðukona Vist-
heimilisins Hrafnistu í Reykjavík
1975-99.
Jóhanna var skipuð sókn-
arprestur í Eiðaprestakalli í Mú-
laprófastsdæmi 1999, var sókn-
arprestur á Eiðum til 2011 og er
sóknarprestur í Egilsstaða-
prestakalli frá sameiningu presta-
kallanna frá 2011. Hún var skipaður
prófastur Múlaprófastsdæmi 2005
til 2011 en þá voru prófastsdæmin á
Austurlandi sameinuð.
Jóhanna sat í stjórn Ferðafélags-
ins Útivistar 1983-95, sat í sókn-
arnefnd Áskirkju í Reykjavík 1993-
97, í stjórn Félags guðfræðinema
Jóhanna I. Sigmarsdóttir, sóknarprestur á Egilsstöðum – 70 ára
Systkinin frá Skeggjastöðum Jóhanna Ingibjörg, lengst til hægri, ásamt systkinum sínum, nú fyrir skömmu.
Í fótspor föður síns
Barnabörnin Hanna og Hjörtur með Kristmund Karl og Magnús Inga.
Ég ætla að njóta dagsins og hefðin er sú að vinir og ættingjarlíti í afmæliskaffi. Mér finnst þetta skemmtilegt og svo erulíka auðvitað forréttindi að árunum fjölgi. Á þessum aldri
fær maður oft áminningu um að ekkert er sjálfgefið. Mér og mínum
hefur á lífsins leið gengið allt í haginn og fyrir það á maður að vera
þakklátur,“ segir Unnur Sigurlaug Aradóttir sem er 49 ára í dag.
Unnur er fædd og uppalin á Blönduósi. Fluttist ung til Vest-
mannaeyja og bjó þar í fjórtán ár. „Þegar ég kem til Eyja í dag líður
mér eins og ég sé að koma heim,“ segir Unnur. Í dag búa þau Árni
Stefánsson, eiginmaður hennar, í Kópavogi, en áður höfðu þau milli-
lent á Akureyri og í Eyjum. Nú eru þau aftur komin á fastalandið og
nú starfar Unnur við bókhald hjá Latabæ. „Sjálf hef ég mikla þörf
fyrir að hafa allt í kringum mig vel skipulagt. Það er sjálfsagt þess
vegna sem mér líkar vel að starfa við bókhald eins og ég hef gert sl.
20 ár,“ segir Unnur. Áhugamálin segir hún mikið tengjast ferðalög-
um og íþróttum, til dæmis að fylgjast með hand- og fótbolta.
„Svo er gaman að vera með börnunum sínum en við Árni eigum
sex samtals og svo fengum við þrjú barnabörn á einum mánuði í vet-
ur. Að verða amma finnst mér óskaplega skemmtilegt hlutverk,“
segir Unnur Sigurlaug Aradóttir að síðustu.
sbs@mbl.is
Unnur Sigurlaug Aradóttir er 49 ára í dag
Eyjakona Unnur segist hafa mikla þörf fyrir að hafa allt í kringum
sig í röð og reglu og þess vegna falli sér vel að vinna við bókhald.
Forréttindi og ekk-
ert sjálfgefið í lífinu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Akureyri Kristján Daði fæddist 5. júní.
Hann vó 3.670 g og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru Lísbet Patrisía
Gísladóttir og Ómar Björn Skarphéð-
insson.
Nýir borgarar
Akureyri Óskar Hinrik fæddist
25. júlí. Hann vó 4.250 g og var 59 cm
langur. Foreldrar hans eru Ásgeir
Andri Adamsson og Alda María Norð-
fjörð.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSkeifunni 8 | Kringlunni | sími 588 0640 | casa.is
BOURGIE
Hönnun: Ferruccio Laviani
Svartur 49.000,-
Glær 49.000,-
TAKE
Hönnun: Ferruccio Laviani
Tilvalin fermingargjöf
Verð 17.500.- stk