Morgunblaðið - 25.04.2014, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu ekki að streða við hlutina ein/n
í þínu horni því nú er það hópstarfið sem gild-
ir. Taktu upp önnur og betri vinnubrögð til
frambúðar.
20. apríl - 20. maí
Naut Lífið hefur sent þér stuðningsmann!
Þessi styður þig í hvívetna, hvort sem hann
er sammála eður ei. Vertu róleg/ur, hlutirnir
eru allir á réttu róli.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu ekkert trufla þig. Hugsanlegt
er að nýr vinur ýti undir léttlyndi af þinni
hálfu eða hvetji þig til þess að sleppa fram af
þér beislinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þú hafir mikið að gera máttu
ekki vanrækja sjálfa/n þig. Minnsta yfirsjón
getur orðið þér dýrkeypt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er alveg kominn tími til þess að þú
breytir einhverju í kringum þig, bæði heima
fyrir og á vinnustað. Gefðu þér tíma til að
bæta úr áður en lengra er haldið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er góður dagur til að dytta að
ýmsum smáatriðum á heimilinu. Samúð þín
með náunganum ýtir undir hjálpsemi af þinni
hálfu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Finnist þér erfitt að ná hlustum fólks
þarftu að kanna nýjar leiðir til þess. Hver er
sinnar gæfu smiður, það er aldrei of oft sagt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekki auðvelt að umgang-
ast fólk árekstralaust og auðvelt að lyfta ein-
um og kippa fótunum undan öðrum. Forðastu
öll óþarfa útgjöld og láttu þér nægja það sem
þú átt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Álag nær stundum fram því besta
í fólki. Kannski áttu eftir að eiga í djúpum
samræðum við þinn innri mann í dag og gæt-
ir jafnvel ákveðið að hlusta á hann, loksins.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hæfileikar þínir til hvers konar list-
sköpunar eru með mesta móti þessa dagana.
Forðaðu þér frá þeirri tímasóun að leita að
hlutum með því að skipuleggja þig betur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er engin skömm að því að
skipta um skoðun ef öll rök hníga til þess.
Fólk á sömu línu elskar að heyra nýjustu
kenningarnar þínar. Sjáðu til þess að allir
njóti sannmælis.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það getur enginn beðið um meira en
að þú gerir þitt besta. Þú hittir skemmtilega
persónu í sumar sem á eftir að hafa mikil
áhrif á líf þitt.
Ólafur Stefánsson hafði orð á þvíá Leirnum um miðjan apríl að
úr því að Halldór Blöndal væri far-
inn í Hveragerði og aðrir á skíði upp
um fjöll væri kominn tími til að láta
sumarfötin í tösku og renna sér nið-
ur á eyjuna góðu undan Afr-
íkuströndum. – „En hvenær byrjar
ferðalagið og spánartilfinningin fyr-
ir alvöru?“ spyr hann og svarar sér
sjálfur: „Fyrir okkur hófst ferðalag-
ið eiginlega yfir miðjum Biskayaflóa
í 37.000 fetum. Vorum nýlega komin
úr ókyrrð og flugum sléttan him-
inblámann. Við höfðum verið hepp-
in með sessunaut og hún var búin
með kvartinn sinn af rauðvíninu og
við líka. Höfðum rakið saman ættir
og fundið fullt af sameiginlegum
kunningjum og allskonar karakter-
um sem við höfðum hitt eða heyrt
um einhvern tíma á ævinni.
Í hendingum hugsað nú getum
hálfkveðnu vísurnar metum.
Milli himins og hafs
milli hláturs og skrafs
heita samloku etum.
Við vorum að fara á nýtt hótel og
urðum ekki fyrir vonbrigðum. Garð-
urinn einstakur og setinn Svarf-
aðardalurinn í blíðunni.
Sótt er stíft á suðurstrendur
sól og hiti bíður þar.
Sumum ekki á sama stendur
sem þar njóta garðvistar.
Þarna var líka ræktur sá siður að
ekki þurfti að borga neitt innan
hótelsins, fyrr en við brottför, og
þurftu menn því ekki að bera á sér
fé heilu dagana. Þetta var eins og í
himnaríki eða í Kaupfélaginu í
gamla daga, allt skrifað. En auðvit-
að kom að skuldadögum.
Til framtíðar á ferðaslóðum
fagnandi ég lít.
Þar er val á vínum góðum
og verslað upp á krít.
Annað sem var nýtt fyrir okkur
og við héldum að tíðkaðist aðeins
hjá þotuliðinu sem ferðast kol-
ruglað um heiminn og veit ekki
aura sinna tal. Það var kampavín
með morgunverðarhlaðborðinu og
mátti heita ómælt. Það þóttu firn
mikil og sjálfsagt einnar vísu virði.
Niðri á eyju í ofgnótt sat
angri burt frá snúinn.
Kampavín í morgunmat.
Mun þá kreppan búin?
Við hittum marga sýslunga
þarna niðurfrá og var það hið besta
mál.
Margur er hér í sól á sveimi,
- að sumum gaman.
Árnesingar úti í heimi
eiga saman.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kampavín eins og í himna-
ríki eða Kaupfélaginu
Í klípu
„ÞEGAR ÉG SAGÐI AÐ HÚSIÐ MYNDI
SELJAST HRAÐAR MEÐ NÝRRI
INNKEYRSLU, ÞÁ MEINTI ÉG AÐ ÞAÐ
VÆRI SNIÐUGT AÐ MALBIKA ÞÁ GÖMLU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„NÝJAR ÖRYGGISREGLUR FYRIR
FLUGVELLI. ALLIR FARÞEGAR VERÐA AÐ
VERA MEÐ EINA SVONA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hefja
sameiginlegan rekstur.
TIL
SÖLU
HLIÐ B-F
ÁSTARTÁKN EHF.
ÉG HEF VERIÐ
FASTUR Á ÞESSARI
EYÐIEYJU Í TVÖ
LÖNG ÁR!
VÁ! HVAÐA RÁÐ
GETURÐU GEFIÐ
MÉR, SVO ÉG LIFI
ÞETTA AF?
EKKI FARA Í
SUND!
KRÚTTLEGT GÆLUDÝR
ÞARF AÐ KOMAST!
ÞÚ GLEYMDIR
AÐ MALA!
ÉG SENDI
ÞAÐ Í
PÓSTI.
Lífið er fullt af uppákomum. „Áttuekkert líf?“ ungi maður,“ spurði
til dæmis eldri kona Víkverja, þar
sem hann flatmagaði við sundlaug í
suðrænu landi ekki alls fyrir löngu
og las spennusögu um raunir krata.
x x x
Í sólinni og hitanum og nær logninuvissi Víkverji ekki hvaðan á hann
stóð veðrið og kom af fjöllum í bók-
staflegri merkingu. Hann hafði talið
sér trú um að þetta væri hápunktur
lífsins, að flatmaga við sundlaug í
suðrænu landi og lesa spennusögu.
Kannski ekki endilega um krata í
klípu en spennusögu samt.
x x x
Hann setti bókina frá sér, reis upp,leit á konuna og sagði blíðlega
en ákveðið: „Vissulega á ég líf og
reyndar það allra besta sem völ er
á.“
x x x
Konunni var brugðið, lagði frá séripadinn og svaraði nánast með
tárin í augunum: „Ég átti ekki við
svoleiðis líf heldur líf til að gera mér
mögulegt að halda áfram í leiknum.“
x x x
Víkverji vissi ekki til þess að þauværu í leik, leit nánar á konuna,
sem var ungleg og bar þess engin
merki að hana vantaði aukakraft til
þess að lífa lífinu lifandi, og spurði:
„Hvaða leik?“
x x x
Nú létti yfir konunni: „AuðvitaðCandy Crush.“ Í kjölfarið fylgdi
nánari útskýring á tölvuleiknum og
konan gat þess í framhjáhlaupi að
þessi leikur væri helsta skemmtun
kvenna úti um allan heim. Víkverja
varð þá litið yfir til Afríku, en áður
en hann komst að með athugasemd
bætti konan við: „Það er að segja hjá
konum sem eiga tölvur eða ipad eða
hafa aðgang að þeim.“
x x x
Víkverji hefur aldrei farið í tölvu-leik og það er hvorki á forgangs-
listanum né verkefnaskránni. Hann
deilir því ekki lífi með þessum sæl-
gætisgrísum, en bjóði þeir upp á
nammi í skiptum fyrir líf kemur allt
til greina. víkverji@mbl.is
Vikverji
Verið því óhræddir, þér eruð meira
verðir en margir spörvar.
(Mt. 10,31.)
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is