Morgunblaðið - 25.04.2014, Síða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
…OGÞÚVELURLENGRI LEIÐINAHEIM.
HENTAR MJÖG VEL FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR ÞAR SEM „MICRO“ FJAÐRANDI STELLIÐ
ÉTUR Í SIG GRÓFA MALBIKIÐ OG GERIR HJÓLAFERÐINA ENN ÞÆGILEGRI
ÞÚ NÝTUR ÞESS
AÐ MOKA INN KÍLÓMETRUNUM
Á CANNONDALE SYNAPSE.
229.900.-
565 6000 / somi.is
ÚT AÐ BORÐA
MEÐ VINUNUM.
Við bjóðum spennandi matseðil.
AF LISTUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Tveir aðframkomnir félagar,hrjáðir af tóbaksskorti,leggja í leiðangur. Voðinn er
vís. Ísland er að verða tóbakslaust.
Þegar hefur allt tóbak verið reykt á
höfuðborgarsvæðinu, en félagarnir
veðja á að eftir því sem þeir fjar-
lægjast siðmenninguna aukist lík-
urnar á að þeir finni sígarettur. Þeir
eru eins og Stanley í leit að Living-
stone í myrkviðum Afríku.
Stuttmyndaformið er vanmetiðog líka vanrækt, kannski vegna
þess að það er hálfgert olnbogabarn.
Stuttmyndir passa ekki inn í dag-
skrá kvikmyndahúsanna og rata
stopult í sjónvarp. Veru Wonder
Sölvadóttur hefur tekist að skapa
frábæra umgjörð um þessa sögu,
sem er byggð á frásögn eftir Einar
Kárason. Stuttmynd Veru nefnist
Leitin að Livingstone og var sýnd í
Bíó Paradís rétt fyrir páska. Myndin
er bara tæpar 17 mínútur, en á þess-
um stutta tíma tekst henni að draga
áhorfandann inn í söguna.
Vera sýnir að hún er með mið-ilinn fullkomlega á valdi sínu og
nostrar við hvert smáatriði. Hún
kann líka þá list að láta áhorfandann
geta í eyðurnar. Tónninn er sleginn
strax í upphafi með vestraskotinni
tónlist hljómsveitarinnar Mono
Town, sem mun vera sú heitasta á
Íslandi um þessar mundir. Tónlistin
á stóran þátt í að skapa andrúms-
loftið í myndinni. Nauðsynlegum
upplýsingum er komið til skila með
áreynslulausum hætti. Áhorfandinn
verður þess til dæmis áskynja að
verkfall stendur yfir vegna þess að
félagarnir eru að hlusta á útvarps-
fréttir. Fíkn félaganna í tóbak verð-
ur nánast áþreifanleg. Damon Yo-
unger (eiginmaður leikstjórans) og
Sveinn Geirsson eru frábærir í hlut-
verkum Þórs og Denna, en leikarar í
smærri hluverkum eru ekki síðri.
Ástandið sem lýst er í myndinniskapaðist í allsherjarverkfall-
Svaðilför eftir sígarettum
Örþrifaleit Damon Younger og Sveinn Geirsson í hlutverkum Þórs og
Denna, stuttir í spuna í leit að sígarettum í sveitum Íslands. Stuttmynd Veru
Wonder Sölvadóttur, Leitin að Livingstone, er vel heppnuð og lofar góðu.
inu 1984 þegar samfélagið nánast
lamaðist. Það kann að virðast kyn-
legt nú þegar reykingar hafa að
miklu leyti lagst af og reykingamenn
eru taldir eiga bágt, ef ekki hrein-
lega vera úrhrök, en sú var tíðin að
menn reyktu hvar sem því var komið
og við lá að þeir, sem ekki reyktu,
þyrftu að biðjast afsökunar.
Þá er staðreynd að tóbak ereitthvert mergjaðasta fíkniefni,
sem nú er í umferð. Fíklar hafa bor-
ið því vitni að erfiðara sé að hætta að
reykja, en að hætta að nota heróín.
Hegðun fíkla, sem eru sviptir tóbaki,
hefur verið líkt við hegðun heróín-
sjúklinga, sem fá ekki skammtinn
sinn. Árið 1992 fóru starfsmenn tób-
aksdreifingar ríkisins á Ítalíu í verk-
fall. Þá mynduðust margra kíló-
metra biðraðir á landamærum Sviss
og Frakklands þegar tóbakslausir
Ítalar hugðust bjarga sér. Ráðist var
á mann í húsasundi: „Tóbak eða líf-
ið!“ Hjörð trylltra reykingamanna
veittist að smyglara, sem kom fær-
andi hendi með góss sitt inn á lest-
arstöð, og slapp hann með naum-
indum.
1990 varð tóbaksskortur í Sov-étríkjunum. Gjaldeyrir var af
skornum skammti þannig að dregið
var úr innkaupum á tóbaki frá Búlg-
aríu. Hafin var skömmtun og langar
biðraðir mynduðust þar sem spurð-
ist að sígarettur væru til sölu. Míka-
híl Gorbatsjov Sovétleiðtogi veittist
að embættismönnum. Þeir sögðu
svartamarkaðsbröskurum og úr sér
gengnum verksmiðjum um að
kenna, en Gorbatsjov fannst svör
þeirra ófullnægjandi. Mikil ólga varð
í samfélaginu, ævareiðir tóbaks-
fíklar efndu til mótmæla og sums
staðar brutust út óeirðir. Á end-
anum notaði Gorbatsjov dýrmætan
gjaldeyri til að kaupa bandarískt
tóbak til að lægja öldurnar.
Leiðangur félaganna er því full-komlega trúverðugur og miðað
við ítök fíknarinnar verða þeir
merkilega hófstilltir, þótt leiðangur
þeirra sé hálfgert flan. Myndin sóm-
ir sér vel í flokki vegamynda þar
sem ferðalagið skiptir mestu, en
áfangastaðurinn minna máli. Mynd-
in var sýnd á Clermont-stutt-
myndahátíðinni í febrúar og mun nú
vera á leið á aðrar slíkar hátíðir víða
um heim. Vera sýnir glæsileg tilþrif í
þessari mynd, sem sýnir að hún hef-
ur alla burði til að takast á við stærri
verkefni.
» Á endanum notaðiGorbatsjov dýr-
mætan gjaldeyri til að
kaupa bandarískt tóbak
til að lægja öldurnar
Möguleikhúsið heldur í dag í fjög-
urra daga leikferð um Norðurland
með einleikinn Eldklerkinn. Sýn-
ingar verða haldnar á Sauðárkróki,
Dalvík, Akureyri og í Varmahlíð. Í
verkinu er fjallað um eldklerkinn
Jón Steingrímsson sem var uppi á
18. öld og er hvað kunnastur fyrir
eldmessu sem hann flutti í miðjum
Skaftáreldum. „Hér er sögð saga
frá 18. öld af góðum bónda, lækni
og presti sem þarf að takast á við
afleiðingar skelfilegustu nátt-
úruhamfara Íslandssögunnar á tím-
um örbirgðar og undirokunar,“
segir um verkið í tilkynningu. Leik-
verkið er að mestu byggt á skrifum
Jóns og vekur spurningar um hlið-
stæður við hamfarir af völdum
manna og náttúru sem yfir þjóðina
hafa dunið á síðustu árum, eins og
því er lýst. Höfundur þess og leikari
er Pétur Eggerz og Sigrún Val-
bergsdóttir leikstýrir.
Fyrsta sýning leikferðarinnar fer
fram í kvöld í Húsi frítímans, Sauð-
árkróki; önnur í Menningarhúsinu
Bergi, Dalvík, á morgun; sú þriðja
sunnudaginn 27. apríl í Hlöðunni,
Litla-Garði á Akureyri og sú fjórða,
mánudaginn 28. apríl, í Miðgarði í
Varmahlíð. Sýningarnar hefjast all-
ar kl. 20.30 og fer miðasala fram á
staðnum. Sýningarnar á Sauð-
árkróki og í Varmahlíð eru hluti af
dagskrá Sæluviku í Skagafirði.
Einleikur Pétur Eggerz í hlutverki klerksins í sýningu Möguleikhússins.
Eldklerkur á Norðurlandi
Morgunblaðið/Kristinn