Morgunblaðið - 25.04.2014, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fyrsta breiðskífa hljómsveit-
arinnar Different Turns, If you
think this is about you ... you’re
right, kom út 4. apríl sl. og segir
stofnandi hennar og forsprakki,
Garðar Borgþórsson, að hægt sé að
lýsa tónlistinni sem leikhúsrokki.
Different Turns var í upphafi einn
maður, þ.e. Garðar, en síðar bætt-
ust við Hálfdán Árnason bassaleik-
ari og félagi Garðars úr hljómsveit-
inni Ourlives, Gunnhildur
Birgisdóttir söngkona og Eiður
Rúnarsson gítarleikari og úr varð
hljómsveit.
Garðar segir ást, hatur og af-
brýðisemi skína í gegn í textum
plötunnar. „Þetta er smá horror, öll
lögin eru um það sama og fólk má
bara túlka það eins og það vill,“
segir Garðar. Hann noti ákveðið
konsept í textagerðinni, mörg mál
verði að einu og hann leiki sér að
því. „Þetta eru mörg morðmál t.d.
en þetta er ekki byggt á ein-
hverjum einum, stökum atburði.
Þetta er hugarburður, bara skáld-
skapur,“ segir Garðar.
-Lögin eru kölluð „stungur“ …
„Já, þetta er „sítering“ í af-
brýðisemi, ástarsorg og svoleiðis,
óendurgoldna ást o.s.frv.“ segir
Garðar.
Platan er sú fyrsta sem Garðar
sendir frá sér en hann byrjaði sem
unglingur að fikta við trommuleik.
„Ég er trommari
fyrst og fremst
en er búinn að
færa mig yfir á
gítarinn og hin
og þessi hljóð-
færi,“ segir
hann. Garðar sá sjálfur um upp-
tökur og hljóðblöndun plötunnar
auk þess að hanna umslagið. Allan
pakkann, svo að segja.
Ljósamaður og hljóðmaður
Garðari er fleira til lista lagt því
hann starfar sem ljósamaður og
hljóðmaður í Borgarleikhúsinu og
er núna að vinna í leikritinu Ham-
let litla. Það er því engin furða að
Garðar lýsir tónlistinni á plötunni
sem e.k. leikhúsrokki. Hvernig
rokk skyldi það nú vera? „Þetta er
svona electronic, alternative rokk.
Ég er að reyna að segja einhverja
sögu með tónlistinni og hún er svo-
lítið leikræn. Það er mikið sótt í
leikhúsið í þessari músík, hún var
upphaflega samin í leikhúsi,“ segir
Garðar. Auk þess hafi platan verið
hljóðblönduð í Borgarleikhúsinu.
Different Turns heldur tónleika í
hljómplötuversluninni Lucky Re-
cords á morgun, laugardag, kl.
14.30. Útgáfutónleikar verða haldn-
ir í Borgarleikhúsinu 12. júní.
Ást, hatur og afbrýðisemi
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Different Turns hefur að
geyma leikræna tónlist og texta og dálítinn hrylling
Ljósmynd/Magnús Ólafur Magnússon
Hljómsveitin Different Turns skipa Garðar Borgþórsson, Gunnhildur Birg-
isdóttir, Hálfdán Árnason og Eiður Rúnarsson.
Leiksýningin Tiny Guy, eftir Frið-
geir Einarsson, verður flutt á Stóra
sviði Borgarleikhússins annað
kvöld kl. 20 og verður hún aðeins
sýnd einu sinni á því sviði. Friðgeir
hefur um nokkurt skeið stundað
rannsóknir á mannsheilanum og
eru niðurstöðurnar sláandi, að því
er fram kemur í tilkynningu, þ.e. að
við mannfólkið nennum ekki að
hugsa. „Með aðstoð traustra vina
leiðir Friðgeir alþjóð í allan sann-
leika um hvernig heilinn virkar og
kennir okkur hvernig við öðlumst
stjórn á eigin hugsunum. Og hann
lofar að fara varlega í þetta skipt-
ið,“ segir um sýninguna í tilkynn-
ingu. Tiny Guy var frumsýnd á al-
þjóðlegu leiklistarhátíðinni Lókal
síðasta haust og hefur sýningin far-
ið víðar, verið sýnd bæði í Háskóla
Íslands og menningarhúsinu Mengi.
Vegna fjölda áskorana verður hún
nú flutt á Stóra sviði Borgarleik-
hússins. Auk Friðgeirs koma fram í
sýningunni Ragnar Ísleifur Braga-
son, leikari og verslunarmaður,
Árni Vilhjálmsson úr hljómsveitinni
FM Belfast og Jóhann Kristófer
Stefánsson. Þá bregður vestur-
íslenska stórleikaranum Arne
MacPherson fyrir en forvitnir geta
fræðst um hann á vefnum imd-
b.com.
Rannsóknir Friðgeir Einarsson með samstarfsmönnum í Tiny Guy.
Lítill gaur einu sinni á stóru sviði
Tónlistarhópurinn Lýran heldur
kynningu á óperettunni Orfeus í
undirheimum eftir Offenbach í há-
deginu í dag kl. 12 í Háteigskirkju.
Guðabylting vegna einhæfs mat-
aræðis, svikull fiðluleikari og guð í
formi erotískrar flugu koma við
sögu í óperettunni, eins og segir í
tilkynningu en Lýran setur óperett-
una upp í fullri lengd í Iðnó í haust í
nýrri íslenskri þýðingu. Í dag fá
gestir tækifæri á að kynna sér sög-
una og valin lög úr óperettunni og
mun ágóði af tónleikunum renna til
uppsetningar á verkinu.
Undirheimar Hluti málverks Jan
Brueghel af Orfeusi í undirheimum.
Orfeus í undirheimum í Háteigskirkju
7
12
L
ÍSL
TAL
14
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:50
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
SPIDERMAN 2 3D Sýnd kl. 5-8-10-10:50(P)
RIO 2 2D Sýnd kl. 5
A HAUNTED HOUSE 2 Sýnd kl. 8 - 11
HARRY OG HEIMIR Sýnd kl. 5 - 7 - 9
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
THEAMAZINGSPIDER-MAN2 KL.3D:5-8-10:55 2D: 4
THEAMAZINGSPIDER-MAN2VIP2DKL.5-8-10:55
THATAWKWARDMOMENTKL.8:30-10:45
DIVERGENT KL.5:10-8-10-10:55
RÍÓ2 ÍSLTAL KL.3D:3 2D:3-4-6:10
CAPTAINAMERICA23D KL.5:10-8-10:45
NOAH KL.8
NEEDFORSPEED KL.10:55
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
AKUREYRI
THATAWKWARDMOMENTKL.8-10:45
DIVERGENT KL.8
CAPTAINAMERICA23D KL.5:10-10:10
NOAH KL.5:10
THATAWKWARDMOMENTKL.5:50-8-10:10
DIVERGENT KL.6-9
CAPTAINAMERICA22D KL.9
GAMLINGINN KL.6
THEAMAZINGSPIDER-MAN23DKL.4:45-7:40-10:30
THATAWKWARDMOMENTKL.8
DIVERGENT KL.4:50-7:40-10:30
CAPTAINAMERICA23DKL.4:50-7:40-10:30
NOAH KL.5:10
NEEDFORSPEED KL.10:10
SPARBÍÓ
MERKTAR MEÐ GRÆNU EÐA APPELSÍNUGULU KR.750 Á APPELSÍNUGULT OG KR. 1000 Á GRÆNT
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
EMPIRE
ENTERTAINMENT WEEKLY
TOTAL FILM
CHICAGO SUN-TIMES ENTERTAINMENT WEEKLY
PORTLAND OREGONIAN
MYNDIN SEM ER AÐ GERA ALLT VITLAUST ERLENDIS
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
KEFLAVÍK
THEAMAZINGSPIDER-MAN23DKL.5-8-10:55
THATAWKWARDMOMENTKL.8
DIVERGENT KL.10:10
RÍÓ2 ÍSLTAL3D KL.5:50
TOTAL FILM
EMPIRE