Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Qupperneq 51
hefur trú á sóknarleik. Mér leist strax vel á
Brendan Rodgers en hann hefur farið fram úr
björtustu vonum. Það verður ótrúlegt afrek
takist honum að gera Liverpool að meisturum
strax á annarri leiktíð sinni. Hann tók ekki
við sérstaklega góðu búi og bæði Manchester
City og Chelsea eru með mun stærri leik-
mannahópa. Markmiðið á þessum vetri var
sæti í Meistaradeild Evrópu en það hefur allt
smollið saman.“
Sjálfur hitti Arngrímur Rodgers að máli í
heimsókn sinni á æfingasvæði Liverpool,
Melwood, í nóvember síðastliðnum og segir
stjórann koma afskaplega vel fyrir.
Gerrard gæti orðið bestur
Inni á vellinum segir Arngrímur „undramann-
inn“ Luis Suárez bera mesta ábyrgð á vel-
gengninni en menn eins og Steven Gerrard
fyrirliði og Martin Škrtel hafi líka stigið upp
og dregið vagninn. Þá hafi yngri leikmenn
eins og Raheem Sterling og Jordan Hend-
erson tekið ótrúlegum framförum á ekki
lengri tíma.
„Það var sterk yfirlýsing hjá eiganda fé-
lagsins að halda Suárez síðasta sumar. Þá er
greinilegt að Gerrard ætlar að klára dæmið til
að fullkomna ferilinn. Hann hefur unnið allt
annað með Liverpool. Lyfti hann Englands-
bikarnum eftir lokaleikinn í vor mun hann í
mínum huga taka við af Kenny Dalglish sem
besti leikmaðurinn í sögu félagsins.“
Arngrímur spáir því að úrslitin ráðist
ekki fyrr en í lokaumferðinni en hann
verður að sjálfsögðu á Anfield 11. maí
þegar Liverpool tekur á móti New-
castle United. Spurður hvernig hann
reikni með að sér verði innanbrjósts
fari bikarinn á loft segir hann úti-
lokað að lýsa því með orðum. Það
verði ein allsherjar tilfinninga-
sprengja. Spurður hvort hann ætli að
búa sig undir hinn möguleikann,
ósigur, svarar hann neitandi.
„Það er ekki í boði að hugsa
um neitt annað en sigur!“
Kormákur Geir-
harðsson stór-
kaupmaður, sem
fylgt hefur Liverpool
að málum í 45 ár,
er ekki eins
bjartsýnn.
Hann óttast að
liðið missi
naumlega af
titlinum á loka-
sprettinum.
Nái þó öruggu
Meistaradeild-
arsæti eins og
að var stefnt.
Kormákur
er sjálfur
á leið
utan
og verður í fyrsta sinn á Anfield þegar Rauði
herinn tekur á móti Manchester City í dag,
sunnudag. „Ég er ekkert svo svartsýnn fyrir
þann leik. Held að líkurnar séu svona 60 á
móti 40 okkur í hag. Annars er sama hvernig
fer, ég mun koma glaður út af vellinum. Ég
hef lengi beðið eftir því að komast til Mekka.“
Hann er smeykari við varnartaktíkina hans
Josés Mourinhos, leiknum gegn Chelsea muni
sennilega lykta með jafntefli. „Síðan panikar
liðið einhvers staðar, gerir annað jafntefli og
missir þar með naumlega af lestinni.“
Adrenalín á brúsum
Þrátt fyrir þetta er létt yfir Kormáki.
„Ánægjan og gleðin er ekki langt frá því að
vera í sögulegu hámarki, liðið hefur spilað
glimrandi skemmtilegan bolta í vetur. Brend-
an Rodgers hefur ljómandi góða sýn á hlutina
og kann bæði að stilla liðinu upp og skipta
mönnum inn á. Hversu oft sat maður undir
leikjum meðan Houllier og Benítez stjórnuðu
liðinu og botnaði ekki neitt í neinu?“
Ekki hefur verið stöðug þurrkatíð á Anfield
frá 1990 enda þótt Englandsbikarinn hafi látið
sig vanta í samkvæmið. Kormákur segir Liv-
erpool hafa „búið til fullt af adrenalíni“ þegar
liðið vann Meistaradeildina 2005. Jafnvel svo
mikið að flytja hefði mátt það út á brúsum.
Hann segir álagið í tengslum við leikina
vissulega meira um þessar mundir en oft áð-
ur. „Annars er maður svo sem öllu vanur. Ég
svitna alltaf jafnmikið í lófunum og get varla
borðað meðan á leikjum stendur.“
Kormáki þykir skemmtilegast að horfa á
leiki Liverpool í góðra vina hópi. „Það er svo-
lítið vandræðalegt að reka upp undarleg hljóð
ef maður er einn að horfa heima. Í hóp hafa
menn styrk hverjir af öðrum og geta fengið
útrás fyrir tilfinningar sínar. Liverpool-menn
hafa verið ansi hávaðasamir að undanförnu.“
Hann segir stuðningsmenn ýmissa annarra
liða reglulega smygla sér inn í hópinn enda
hafi þeir gaman af hitanum og duttlungunum
hjá „Púlurunum“.
Eins og margir sparkunnendur er Kormák-
ur hjátrúarfullur og kveðst hafa beitt alls-
konar brögðum gegnum árin til að freista
þess að örva gengi sinna manna. Eins og að
sitja framarlega eða aftarlega í stólnum og
sitthvað fleira. Fæstir af þeim kækjum endist
þó lengi. „Ég hef sem betur fer aldrei fallið í
þá gryfju að vera í sömu sokkunum.“
Eins gott. Þeir væru líklega farnir að lykta
illa núna, eins og gengið hefur verið und-
anfarið.
Kemst Bríó inn á Anfield?
Eina hjátrúin um þessar mundir er að hafa
ískaldan Bríó við höndina meðan horft er á
leikina. „Nú flækist málið aðeins fyrst ég er
að fara út. Ætli ég verði ekki bara að smygla
einum Bríó inn á Anfield!“
Enda þótt hann hallist að því að Liverpool
missi af titlinum í ár er Kormákur bjartsýnn
á framtíðina. Liðið sé í mjög góðum höndum
hjá Rodgers og þátttökurétturinn í Meist-
aradeildinni þýði að auðveldara verði að
styrkja liðið enn frekar í sumar. Einhverjir
óttast að skærasta stjarna liðsins, Luis Suá-
rez, muni hverfa á braut í sumar en Kormák-
ur deilir ekki þeim áhyggjum. „Ég sé enga
ástæðu fyrir hann að fara. Hann er að spila
vel í frábæru liði og hlýtur að langa til að
reyna sig í Meistaradeildinni með Liverpool.
Skuldar hann okkur það ekki?“
Arngrímur Baldursson (vinstra megin) og Guðmundur Magnússon (meðhöfundur Arngríms) af-
henda Brendan Rodgers eintak af The Liverpool Encyclopedia í nóvember síðastliðnum.
Íhugar að losa sig við miðann
Duttlungar knattspyrnuáhugamanna taka á sig ýmsar myndir. Þannig heyrði grein-
arhöfundur af Liverpool-aðdáanda norður í landi sem festi nýverið kaup á nýjum sófa.
Það var eins og við manninn mælt, Rauði herinn hleypti á mikið skeið og hefur okkar
maður nú séð níu sigurleiki í röð í sófanum sem hefur þegar hlotið nafnið „sigursófinn“.
Á dögunum reyndu félagar hans að draga hann með sér á knæpu til að horfa á leik en
maðurinn mátti ekki heyra á það minnst. Úr sófanum færi hann ekki.
Nú eru góð ráð dýr. Okkar maður hefur nefnilega tryggt sér miða á lokaleik
vetrarins, gegn Newcastle United á Anfield. Nokkuð sem væri í venjulegu árferði
mikið gleðiefni en nú er maðurinn á báðum áttum. Nýti hann miðann þarf
hann vitaskuld að fara úr sófanum. Og tefla þar með sigurgöngunni í
hættu. Hann íhugar nú að fórna sér fyrir liðið og losa sig við miðann.
13.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Dregur mörkin við húðflúr af hananum
Komandi vikur verða ekki bara taugatrekkj-
andi fyrir aðdáendur Liverpool, heldur ekki
síður aðstandendur þeirra.
„Ef eitthvað er verður álagið meira á okkur
aðstandendur en stuðningsmennina sjálfa,“
segir Lára Björg Björnsdóttir en bóndi henn-
ar, Tryggvi Tryggvason, er eldheitur áhang-
andi Liverpool.
„Við aðstandendur höfum ekki eins mikinn
áhuga á þessum lífsstíl og skjólstæðingar
okkar en við þurfum samt að styðja. Við þurf-
um að hlusta. Við þurfum að skilja. Og við
þurfum að taka þátt í þessu öllu,“ útskýrir
Lára Björg sem kallar ekki bara eftir skiln-
ingi heldur beinlínis stuðningi aðstandendum
áhangenda Liverpool til handa. „Við erum af-
skiptur hópur í samfélaginu og höfum gengið
gegnum miklar raunir með okkar skjólstæð-
ingum.“
Allt í einu orðin lukkudýr
Sjálf „lenti hún í því“ fyrir nokkrum vikum að
vera dregin með á leik heim til vinar manns-
ins síns. „Af því að Liverpool vann þurfti ég
að koma með aftur og aftur og aftur. Var allt
í einu orðin eitthvert lukkudýr. Það var mikið
uppnám um daginn þegar ég komst ekki að
sjá leikinn en þar sem Liverpool vann samt er
ég vonandi sloppin af önglinum.“
Lára Björg bendir á, að þetta snúist ekki
bara um kappleik í tvo tíma einu sinni í viku.
„Það er kvíði sem byggist upp marga daga
fyrir leik og spennustigið magnast jafnt og
þétt. Þegar leikurinn er svo búinn er hangið á
vefsíðum, allar íþróttarásir fínkembdar og
hver einasti viðtalsbútur skoðaður. Greiningin
stendur yfir alla vikuna. Eins og þegar einn
þeirra var alltaf að bíta menn þegar ekki
gekk eins vel á sínum tíma. Það var nú ald-
eilis skoðað aftur á bak og áfram.“
Þess utan fer auðvitað drjúgur tími í að
fylgjast með gangi mála hjá helstu keppinaut-
unum. Nú þarf Liverpool að vísu ekki lengur
að treysta á önnur lið, þannig að minni tími
fer nú í þá hlið mála.
Það er ekki upplifun Láru Bjargar að af-
bragðsgott gengi Liverpool upp á síðkastið
geri líf hennar auðveldara. Þvert á móti. „Það
er erfiðara að hafa liðið í þessari stöðu en
þegar illa gengur. Væntingarnar eru orðnar
mjög miklar og þar af leiðandi eykst tauga-
titringurinn. Ég óttast að þetta sé að fara úr
böndunum. Stemningin er tryllt. Þetta hefur
aldrei verið eins slæmt.“
Fallegasta borg í heimi!
Hún segir álagið ekki bara af andlegum toga.
„Ég er með jólakúlur heima hjá mér með Liv-
erpool-merkinu á. Hugsið ykkur! Áður en
sonur minn fæddist var maðurinn minn búinn
að útvega Liverpool-samfellu, Liverpool-snuð
og Liverpool-pela. Grínlaust! Ég geri mér al-
veg grein fyrir því hvað þetta hljómar sjoppu-
lega en svona er þetta bara.“
Lára Björg hefur samt látið þessar kenjar
yfir sig ganga. Tvennt getur hún þó ekki
hugsað sér. „Í fyrsta lagi hótar hann því ann-
að slagið að fá sér tattú með hinum fræga og
dáða Liverpool-fugli. Fuglinn er merki félags-
ins sem að mínu mati lítur frekar út eins og
reyttur og vannærður hani. Í öðru lagi vill
hann stundum flytja til Liverpool sem hann
segir að sé fallegasta borg í heimi. Þegar
þetta er í raun bara kolanámubær sem átti
aldrei séns, ekki einu sinni í góðærinu. Þessi
Liverpool-aðdáun nær út fyrir öll mörk. Hún
er af trúarlegum toga. Það er útilokað að út-
skýra þetta fyrir fólki sem ekki hefur reynt
það á eigin skinni.“
Lára Björg Björnsdóttir, aðstandandi Liverpool-aðdáanda, með soninn, Ólaf Benedikt. Skjólstæð-
ingur hennar, Tryggvi Tryggvason, til þess að gera afslappaður í sófanum.
Morgunblaðið/Golli
Jordan Henderson, Steven
Gerrard og Daniel Stur-
ridge fagna enn einu
markinu í vetur. Liver-
pool á gríðarlega mik-
ilvægan leik fyrir hönd-
um gegn Manchester
City í dag, sunnudag.
AFP