Morgunblaðið - 31.05.2014, Page 2

Morgunblaðið - 31.05.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Gr eið slu mi ðlu n Vissir þú að . . . Með ferlum Alskila í greiðslumiðlun tryggjum við viðskiptavænt viðmót fyrir þína greiðendur! Alskil hf • Sími: 515 7900 • alskil@alskil.is • www.alskil.is Ka nnaðu Málið!alskil.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er eini dagurinn í lífi mínu sem mig langar ekki að lifa aftur,“ segir Sævar Guðjónsson, björg- unarsveitarmaður á Mjóeyri í Eski- firði. Hann rifjar upp 10. janúar 1994 þegar björgunar- og dráttar- skipið Goði fórst í Vöðlavík. Þess var minnst í gær við athöfn í Vöðla- vík að tuttugu ár eru liðin frá því að allri áhöfn Bergvíkur VE var bjarg- að og sex af sjö manna áhöfn Goða. Vel á annað hundrað manns voru við athöfnina í Vöðlavík, meðal annars björgunarsveitarmenn af Austurlandi, fulltrúar Landhelgis- gæslunnar, forsvarsmenn Fjarða- byggðar, sendiherra Bandaríkjanna og einn af flugmönnum bandarísku björgunarþyrlanna sem mjög komu við sögu. Afhjúpaður var minning- arskjöldur um björgunarafrekin við þetta tækifæri. Gátu ekkert gert Bergvík VE-105 strandaði í Vöðlavík 18. desember 1993. Björg- unarsveitarmenn björguðu allri áhöfninni í land með fluglínu- tækjum. Þegar unnið var að björg- un skipsins sjálfs, 10. janúar, strandaði björgunar- og dráttar- skipið Goði. Einn skipverji fórst en áhafnir tveggja björgunarþyrla Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli unnu mikið björgunarafrek þegar þær björguðu sex mönnum af brú- arþakinu við afar erfiðar aðstæður. „Það var ömurlegt að vera í þeirri hættuför sem áhafnirnar lögðu í við þetta björgunarflug. „Það var athyglisvert að heyra það beint frá honum hvað þetta var gríðarlega erfið aðgerð, ekki síst að komast hingað. Hann sagði að þeir hefðu næstum hrapað við suður- ströndina, þegar þeir þræddu hana á leiðinni austur,“ segir Sævar. Þyrlurnar flugu síðan á ljósin í Nes- kaupstað og lentu þar á bílastæði fyrir framan kaupfélagið og vissu ekki í fyrstu hvar þeir voru. Þar skiluðu þeir skipbrotsmönnum af sér. fjörunni, 250 metra frá sex mönnum sem börðust fyrir lífi sínu á brúar- þakinu og geta ekkert gert til að bjarga þeim,“ segir Sævar sem var vettvangsstjóri björgunarsveita- manna í fjörunni, 24 ára gamall. Hann metur það svo að björgun hafi verið ógerleg nema með þyrlu og nefnir sem dæmi að vegna óveðurs og ófærðar hafi ekki tekist að fá að- stoð frá björgunarsveitum á landi fyrr en eftir að þyrlan hafði bjargað mönnunum. Bandaríski þyrluflugmaðurinn Gary Copsey sagði viðstöddum frá Eini dagurinn sem mig langar ekki að lifa aftur Ljósmynd/Jens Garðar Helgason Minnast björgunarafreka í Vöðlavík fyrir 20 árum Athöfn Á annað hundrað manns var við athöfnina sem fram fór í Vöðlavík, norðan Reyðarfjarðar, í gær. Minning Bandaríski þyrluflugmaðurinn Gary Copsey afhjúpaði minning- arskjöldinn. Hann stendur við brak úr brú Goða sem brimið skilaði á land. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Biskup Íslands hefur ákveðið að hafna tillögu valnefndar að nýjum sóknarpresti í Seljaprestakalli í Reykjavík og auglýsa embættið að nýju. Óánægja er með það í söfnuð- inum að séra Ólafur Jóhann Borg- þórsson sem er prestur við Selja- kirkju hafi ekki fengið stöðuna. Hópur sóknarbarna vill beita sér fyrir almennum prestkosningum. Skipaður verður nýr sóknarprest- ur í Seljaprestakalli í sumar þar sem séra Valgeir Ástráðsson sem þjónað hefur söfnuðinum frá stofnun hans er að láta af störfum. Sjö sóttu um embættið, þar á meðal tvær konur. Reynslumiklir prestar voru í hópn- um. Valnefnd skipuð fulltrúum sókn- arbarna, auk prófasts, mælti með því að Ólafur Jóhann Borgþórsson sem starfað hefur sem prestur við kirkj- una frá árinu 2007 fengi embættið. Níu greiddu þeirri tillögu atkvæði sitt en einn sat hjá. Verður að fara að lögum Agnes Sigurðardóttir, biskup Ís- lands, gat ekki fallist á tillögu val- nefndarinnar. Hún komst að þeirri niðurstöðu eftir að hafa farið yfir málið í heild að ef hún gerði það væri hún að brjóta jafnréttislög. Forsend- an er meðal annars sú að mun fleiri karlar eru í prestastétt en konur. Þorvaldur Víðisson biskupsritari segir að biskup vilji taka tillit til óska heimamanna en verði alltaf að fara að landslögum. Niðurstaða hennar var þó ekki að velja þá konu sem hún taldi hæfari eða jafnhæfa Ólafi Jó- hanni heldur auglýsa embættið að nýju. Með því skapast möguleikar fyrir sóknarbörnin að efna til al- mennra prestkosninga á milli þeirra sem þá sækja um. Niðurstaða kosn- inganna er bindandi fyrir biskup. Byrjað er að undirbúa undir- skriftasöfnun. Embættið verður væntanlega auglýst að nýju á mánu- dag og hefur áhugafólk um prest- kosningar hálfan mánuð til að afla stuðnings að minnsta kosti þriðjungs sóknarbarna við kröfu um kosning- ar. Þurfa 1500-1600 safnaðarmeðlim- ir að skrifa undir. Áhugahópurinn hefur stofnað hóp á Facebook þar sem heitar umræður eru um málið. Boðað hefur verið til fundar á mánudagskvöld til að skipu- leggja aðgerðir. Vilja séra Ólaf Jóhann „Við munum reyna að knýja á um að við fáum eitthvað um málið að segja,“ segir Jóna Ósk Pétursdóttir, sóknarbarn sem vill að séra Ólafur Jóhann verði skipaður sóknarprest- ur. „Sóknarbörnin eru ánægð með Ólaf. Hann starfar af fagmennsku og alúð og nær til fólks, bæði ungra og aldinna. Við viljum hafa hann, þetta er presturinn okkar. Þess vegna vilj- um við leggja þetta á okkur,“ segir Jóna Ósk. Prestkosningar í Seljum  Biskup Íslands féllst ekki á tillögu valnefndar við skipun nýs sóknarprests í Seljaprestakalli vegna jafnréttislaga  Hópur beitir sér fyrir prestkosningum „Þetta er presturinn okkar. Þess vegna viljum við leggja þetta á okkur.“ Jóna Ósk Pétursdóttir Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Félag grunnskólakennara sam- þykkti í gær nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfé- laga, sem und- irritaður var 20. maí síðastliðinn, með atkvæðum 65,46% þeirra sem tóku þátt í rafrænni at- kvæðagreiðslu um samninginn. 32,26% ákváðu hins vegar að segja nei. At- kvæðagreiðslan stóð í fjóra daga, og tóku 3.153 þátt í henni, og var kjörsókn því 71,56%. Ákveðin skilaboð Ólafur Loftsson, formaður Fé- lags grunnskólakennara, segir að niðurstaðan hafi verið í ætt við það sem hann átti von á. „Það hafa ver- ið fjörugar og skiptar skoðanir um samninginn eins og gengur,“ segir Ólafur aðspurður um ástæður þess að nærri því þriðjungur vildi ekki samþykkja samninginn. „Þetta eru ákveðin skilaboð til okkar upp á framhaldið, og við tök- um fullt mark á því, en það má einnig horfa til þess að samning- urinn er samþykktur nokkuð afger- andi,“ segir Ólafur. Hann bætir við að kjarasamningar sem þessir, þeg- ar samið er um meira en bara kaup og kjör, séu ávallt erfiðir. En hvað tekur við í framhaldinu? „Þetta er bara fyrri hálfleikur. Nú tekur við vinna hjá okkur og sveit- arfélögunum við að útfæra svonefnt vinnumat,“ segir Ólafur, en af- raksturinn verður lagður fyrir félagsmenn til samþykkis í febrúar á næsta ári. „Þá myndum við hafa svona heildarmyndina,“ segir Ólaf- ur og bætir við að ef sá samningur yrði felldur í atkvæðagreiðslu myndi samningurinn sem sam- þykktur var í gær gilda áfram, en að semja yrði um vinnumat upp á nýtt. „Þannig að það sem tekur gildi núna varðandi breytingar á kaup- um og kjörum og möguleika kenn- ara til að afsala sér kennsluafslætti heldur sér alveg,“ segir Ólafur að lokum. Samningurinn gildir til ársloka 2016. Kjarasamningur- inn samþykktur Ólafur Loftsson  Tæpur þriðjungurinn sagði nei Öflug fréttavakt verður á mbl.is í dag og fram á nótt. Ýtarlega verð- ur fjallað um sveit- arstjórnarkosning- arnar um land allt og verða þeim gerð skil í fréttum, fréttaskýringum, myndskeiðum, við- tölum, grafískri framsetningu á nýjustu tölum og fleiru. mbl.is mun tísta um kosning- arnar í gegnum samfélagsmiðilinn Twitter undir #kosningar2014. Twitter-gluggi verður á forsíðu vefsins þar sem tístin birtast. Landsmenn eru hvattir til að taka þátt í umræðunni um kosning- arnar og nýta sér #kosningar2014 til að tjá skoðanir sínar hverju sinni. Þá verður fjallað ýtarlega um úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Morgunblaðinu sem kemur næst út á mánudaginn. Öflug fréttavakt á mbl.is gerir kosning- unum ýtarleg skil mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.