Morgunblaðið - 31.05.2014, Page 11
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Orkering er gamalt handverk sem var oftast gert með skyttu. Gerðir voru
fallegir dúkar, blúndur og fleira. Nú er farið að orkera mikið með svokall-
aðri orkeringarnál og Hildur er aðallega að orkera hálsmen og armbönd.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014
Orkering eða tatting á ensku á sér
langa sögu og ekki alls kostar á
hreinu hversu gömul aðferðin er.
Talið er að hún sé allt að þúsund
ára og eigi sitthvað skylt við hnýt-
ingar eða netagerð. Á gömlum
málverkum má sjá aðalskonur
skarta orkeruðum ermum og háls-
málum. Skytta var oftast notuð til
að orkera og fimir fingur. Í dag eru
orkeringarnálar gjarnan notaðar.
Orkerað handverk er einkar þétt
og sterkt þannig að það endist vel
og lengi.
ORKERING ER ALLS EKKI NÝ AF NÁLINNI
Aldagömul aðferð
„Djúpavík hefur verið ástin í lífi
mínu frá því ég kom hingað fyrst ár-
ið 2003. Ég hef unnið hér á hótelinu
á hverju sumri frá því árið 2006 en
á veturna bý ég í Reykjavík og starfa
þar hjá póstinum,“ segir Claus Ster-
neck en hann hefur nú skipulagt
öðru sinni ljósmyndasýningu undir
nafninu STEYPA í gömlu síldarverk-
smiðjunni í Djúpavík. Í fyrra komu
tvö þúsund manns að sjá ljós-
myndasýninguna svo Claus þótti full
ástæða til að setja upp nýja sýningu
í sumar. „Rétt eins og í fyrra þá eru
þetta sjö ljósmyndarar, bæði frá Ís-
landi og öðrum löndum, sem með
myndunum tjá persónulega sýn á Ís-
land. Allir höfðu frjálsar hendur, eina
skilyrðið var að myndirnar væru
teknar á Íslandi. Síldarverksmiðjan
er heillandi sýningarstaður og ljós-
myndararnir ráða sjálfir hvernig þeir
setja myndirnar fram, hvort þær eru
á gólfinu, uppi á veggjunum, bak við
gler eða hvað sem er. Hér eru ótal
möguleikar.“ Claus er sjálfur með
myndir á sýningunni en auk hans
sýna Haukur Sigurðsson og María
Kjartans frá Íslandi, Emilie M. Dalum
frá Danmörku, Jutta Wittmann frá
Austurríki, Melinda Kumbalek og
Sven Herdt frá Þýskalandi.
Sýningin verður opnuð á morgun,
sunnudag, og stendur út ágúst. Opið
verður á hverjum degi og ókeypis
aðgangur. Það er því heldur betur
ástæða til að bregða sér vestur á
firði í sumar og njóta þeirrar mögn-
uðu náttúrufegurðar sem þar er að
finna og koma í leiðinni við í Djúpa-
vík og rölta um stóra sali síldarverk-
smiðjunnar og sjá hvernig þessir sjö
ólíku einstaklingar fanga Ísland á
mynd.
Nánar á djupavik.com/steypa
STEYPA: Ólík sýn sjö ljósmyndara á Ísland
Gamla síldarverksmiðjan í Djúpavík er frábær
staður fyrir ljósmyndasýningar
Ljósmynd/Claus Sterneck
Kría Claus hefur einbeitt sér að kríum í verkum sínum. Síldarverksmiðja Rýmið þar býður upp á ýmislegt.
Ljósmynd/Claus Sterneck
www.kia.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-0
1
3
4
Glæsilegur Kia Rio
- rúmgóður og einstaklega sparneytinn
Nútímatækni og hönnun hefur ekki einungis skilað mögnuðum gæðabíl, heldur er hann
einn sparneytnasti fjöldaframleiddi dísilbíll í heimi. Magn CO2 í útblæstri er einnig mjög
lítið svo hann fær frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Að sjálfsögðu er 7 ára
ábyrgð á nýjum Kia Rio, svo hún gildir til ársins 2021.
Komdu og reynsluaktu, við tökum vel á móti þér.
Eyðir aðeins frá 3,6 lítrum á hundraðið
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
Verð frá 2.590.777 kr. Rio 1,1 dísil
Eigum
bíla ti
l
afgre
iðslu
strax
!