Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014
Alls eru 184 listar í framboði til 74
sveitarstjórna við kosningarnar í
dag. Á þeim eiga sæti 2.916 fram-
bjóðendur. Þar af eru 1.536 karlar
og 1.380 konur, karlar eru því 53%
frambjóðenda en konur 47%. Þessi
hlutföll eru þau sömu og voru við
sveitarstjórnarkosningarnar 2010,
að því er segir á kosningavef innan-
ríkisráðuneytisins. Við sveitar-
stjórnarkosningarnar 2010 voru 185
listar í framboði til 76 sveitar-
stjórna. Á þeim listum áttu sæti
2.846 einstaklingar.
Listakosningar verða nú í 53
sveitarfélögum þar sem fleiri en
einn framboðslisti voru lagðir fram.
Í kosningunum 2010 fóru listakosn-
ingar fram í 54 sveitarfélögum.
Sjálfkjörið er í sveitarstjórnir í
þremur sveitarfélögum þar sem ein-
ungis einn framboðslisti kom fram í
hverju sveitarfélagi. Við sveitar-
stjórnarkosningarnar 2010 var sjálf-
körið í fjórum sveitarfélögum.
Óbundnar kosningar
Allir íbúar í hverju 18 sveitarfé-
laga eru í kjöri í dag, nema þeir sem
eru löglega undanþegnir skyldu til
að taka kjöri. Engir framboðslistar
komu fram í þessum sveitarfélögum
áður en framboðsfrestur rann út 10.
maí. Kosningarnar þar verða því
óbundnar, sem kallað er. Þessi sveit-
arfélög eru, samkvæmt kosningavef
innanríkisráðuneytisins: Akra-
hreppur, Árneshreppur, Ásahrepp-
ur, Borgarfjarðarhreppur, Breið-
dalshreppur, Dalabyggð, Fljótsdals-
hreppur, Grýtubakkahreppur,
Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit,
Kaldrananeshreppur, Kjósarhrepp-
ur, Reykhólahreppur, Skagabyggð,
Skorradalshreppur, Svalbarðs-
hreppur, Svalbarðsstrandarhreppur
og Tálknafjarðarhreppur.
Sveitarfélögin sem hér um ræðir
eiga það sameiginlegt að vera fá-
menn. Af þeim var Dalabyggð fjöl-
mennust 1. janúar síðastliðinn en
þar bjuggu þá 673 íbúar. Næstfjöl-
mennast er Hvalfjarðarsveit með
617 íbúa. Fámennustu sveitarfélögin
í þessum hópi eru Helgafellssveit og
Árneshreppur, hvort um sig með 53
íbúa.
Í sveitarstjórnarkosningunum
2010 voru óbundnar kosningar í 18
sveitarfélögum líkt og nú.
2.916 manns
eru í framboði
Óbundnar kosningar eru í 18 sveit-
arfélögum og allir íbúar þar í kjöri
Rafrænar íbúakosningar samkvæmt
sérstakri heimild í sveitarstjórnar-
lögum fara hvergi fram á landinu í
dag. Fresti sveitarfélaga til að til-
kynna þátttöku í tilraunaverkefni
um rafrænar íbúakosningar lauk 25.
febrúar síðastliðinn. Tvö sveitar-
félög, Akraneskaupstaður og Rang-
árþing ytra, buðu sig þá fram.
Ástríður Jóhannesdóttir, deild-
arstjóri lögfræðideildar þjóðskrár-
sviðs hjá Þjóðskrá Íslands, sagði að
athugað verði með rafrænar íbúa-
kosningar þegar lengra líði á árið.
Fyrirvarinn hafi reynst vera of
skammur til að halda slíkar kosn-
ingar í dag.
„Í raun var ekki tímabært að fara
í þetta núna miðað við þann tíma
sem var til stefnu,“ sagði Ástríður.
„Það er stefnt að því að rafrænar
íbúakosningar um afmörkuð málefni
verði síðar á árinu.“ Í rafrænum
íbúakosningum verður kosið um
ákveðin málefni hjá viðkomandi
sveitarfélögum. Slíkar kosningar má
halda hvenær sem er á kjörtímabili
og eru þær óháðar öðrum kosn-
ingum.
Ástríður sagði að niðurstaða íbúa-
kosninga, rafrænna og annarra, séu
samkvæmt lögum ekki bindandi
nema til loka kjörtímabils þeirrar
sveitarstjórnar sem er við völd þeg-
ar kosningarnar fara fram.
Morgunblaðið/Golli
2001 Rafrænn kjörklefi í Ráðhús-
inu vegna flugvallarkosningar þá.
Hvergi er haldin raf-
ræn íbúakosning í dag
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Á kjörskrárstofnum sem Þjóðskrá Ís-
lands útbjó fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar í vor eru 239.810 kjósendur.
Konur eru 120.431 og karlar 119.377.
Við sveitarstjórnarkosningarnar
2010 voru 225.855 kjósendur á kjör-
skrá og hefur kjósendum á kjörskrár-
stofni því fjölgað um 6,1% síðan þá.
Íslenskir ríkisborgarar eru 8.272
fleiri nú en 2010 (3,7%) og erlendir
ríkisborgarar eru nú 5.608 fleiri og
nemur fjölgun þeirra 122,6%. Þeir
kjósendur sem nú fá að kjósa í fyrsta
sinn vegna aldurs eru 18.695 og er
það 7,9% af heildarkjósendatölunni.
Á höfuðborgarsvæðinu hefur kjós-
endum fjölgað um 7,3% frá 2010.
Mest er fjölgunin í Mosfellsbæ eða
11,1%, í Hafnarfirði 10,5% og í Kópa-
vogi um 10,4%. Kjósendum hefur
fjölgað um 2,8% á Seltjarnarnesi og
um 5,5% í Reykjavík.
Hlutfallslega hafa orðið mestar
sveiflur í fjölda kjósenda í tveimur fá-
mennum sveitarfélögum á Vestur-
landi. Í Skorradalshreppi hefur kjós-
endum fjölgað um 14,3%, úr 42 í 48. Í
Helgafellssveit hefur kjósendum
fækkað um 14,3% eða úr 49 árið 2010 í
42 kjósendur nú.
Á kjörskrárstofnum fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar nú eru 1.919
kjósendur með lögheimili annars
staðar á Norðurlöndum. Ríkisborgar-
ar annarra ríkja á Norðurlöndum, bú-
settir hér og með kosningarétt, eru
1.016 og borgarar annarra ríkja
9.167. Þar af eiga 4.775 ríkisfang í
Póllandi, 747 í Litáen, í Danmörku,
Færeyjum og Grænlandi 592 og í
Þýskalandi 452. Kjósendur með rík-
isfang í Taílandi eru 311, á Filipps-
eyjum 296, í Bretlandi 270, í Lettlandi
269, í Portúgal 260, í Bandaríkjunum
216, í Svíþjóð 189, í Noregi 169, í
Frakklandi 105. Færri en 100 kjós-
endur eiga ríkisfang í níu ríkjum til
viðbótar.
Sveitarstjórnir semja kjörskrár
eftir kjörskrárstofnunum. Hver mað-
ur á kosningarétt þar sem hann átti
skráð lögheimili þremur vikum fyrir
kjördag, nú 10. maí. Breytingar stafa
af andláti þeirra sem deyja eftir að
kjörskrárstofn er unninn og leiðrétt-
ingum á villum, skv. upplýsingum á
vef Þjóðskrár Íslands.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kosningaumræður Oddvitar framboðanna í Reykjavík tókust á í umræðuþætti á RÚV í gærkvöldi. Var farið yfir öll
helstu álitamál sem verið hafa í deiglu síðustu vikurnar og komu frambjóðendurnir sínum sjónarmiðum á framfæri.
Kjósendur 6,1% fleiri
18.695 mega kjósa í fyrsta sinn vegna aldurs Erlendum
ríkisborgurum með kosningarétt fjölgaði um 122,6% frá 2010
Morgunblaðið/Ómar
Flokkun atkvæða Þessi utankjörfundaratkvæði voru flokkuð í Ráðhúsi
Reykjavíkur, en tæplega 20.000 manns kusu utan kjörfundar að þessu sinni.
Kjördagur í dag
» Hægt verður að kjósa utan
kjörfundar á kjördag víðsvegar
um landið. Nánari upplýsingar
um hvar hægt er að kjósa er að
finna á vef sýslumanna,
syslumenn.is.
» Utankjörfundaratkvæði
verður að vera komið í hendur
hlutaðeigandi kjörstjórnar fyrir
lok kjörfundar í dag svo að það
verði talið með öðrum atkvæð-
um.