Morgunblaðið - 31.05.2014, Side 20

Morgunblaðið - 31.05.2014, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 BÆJARLÍFIÐ Guðrún Vala Elísdóttir Borgarnes Nesbær, húsið sem stóð við Borg- arbraut 58, hefur nú verið rifið og þrátt fyrir að hafa staðið þar í hart- nær hálfa öld er ekki víst að þess verði saknað. Það var byggt af Lofti Einarssyni athafnamanni sem ætlaði húsið undir naglaverk- smiðju. Mörg fyrirtæki hafa verið í húsinu, s.s. flutningafyrirtæki, matvöruverslanir, heildverslun, auk skemmtistaðar um tíma og er þá fátt eitt talið. Verið er að ljúka við rif á kjallaranum, brjóta niður alla steypu sem eftir er í húsinu, flokka allt járn frá steypunni og eru það starfsmenn Borgarverks ehf. sem sjá um það. Fylla á í grunninn en gert er ráð fyrir að um 900 m3 af fyllingarefni þurfi til þess.    Erlendir gestir eru ávallt vel- komnir til okkar og nýlega kom hópur norrænna gesta í heimsókn til Borgarbyggðar. Þetta var hópur starfsmanna hjá landssamtökum sveitarfélaga í Danmörku, Finn- landi og Svíþjóð, ásamt fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfé- laga. Á vefsíðu Borgarbyggðar seg- ir að tilgangur heimsóknarinnar hafi verið að fræðast um hvernig Borgarbyggð vann sig út úr rekstr- arvandanum eftir efnahagshrunið haustið 2008. Þetta var fjórði hópur erlendra gesta sem kemur í heim- sókn til Borgarbyggðar á undan- förnum þremur árum til að fræðast um áhrif hrunsins á rekstur Borg- arbyggðar og hvernig sveitarfélagið hefur unnið sig út úr vandanum.    Loksins kemur langþráð bíla- þvottaplan í Borgarnesi, en ekki hefur verið aðstaða til að þvo bíla í mörg ár þrátt fyrir þrjár stórar þjónustumiðstöðvar olíufélaganna. En nú verður breyting á, því að við Olísstöðina við Brúartorg er búið að steypa upp nýtt þvottaplan og verið er að snyrta umhverfi, tengja vatnið o.s.frv. Margur vegfarandinn verður eflaust glaður við þessa viðbót og rútubílstjórar með ferðafólk hætta vonandi að „sneiða hjá“ Borgarnesi vegna skorts á þvottaaðstöðu.    Og ekki má gleyma kosning- unum sem fara fram hér eins og annars staðar á landinu í dag. Fjórir listar eru í framboði og fram- bærilegt fólk á þeim öllum. Athygli vekur að talsvert af ungu fólki er að koma inn til þátttöku í pólitísku starfi og er það ánægjulegt. Það er nefnilega svo mikilvægt að unga fólkið láti í sér heyra og taki þátt í að móta samfélagið. Einungis einn listi er með frambjóðanda af erlend- um uppruna en að sama skapi er mikilvægt að raddir innflytjenda heyrist og að þeir séu þátttakendur í mótun samfélagsins. Nýtum kosn- ingaréttinn, hann er mikilvæg leið okkar til lýðræðislegrar þátttöku í samfélaginu! Morgunblaðið/Guðrún Vala Breytingar Hér sést Nesbær hálf-niðurrifinn en núna er verið að rífa kjall- arann. Mörg fyrirtæki hafa verið í húsinu. Loksins bílaþvotta- plan í Borgarnesi OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 31. MAÍ KL. 13-15 OG SUNNUDAGINN 1. JÚNÍ KL. 13-15. Fallegt og vel skipulagt 257,8 fm einbýlishús á einni hæð að meðtöldum 42,6 fm innbyggð- um bílskúr. Húsið er á frábærum útsýnisstað í nágrenni við Elliðavatnið og er glæsilegt útsýni. Húsið skilast tilbúið til innréttinga. Fróðaþing 14 203 Kópavogur Opið hús Sigurður Löggiltur fasteignasali Sigríður Sölufulltrúi 699 4610 EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ - NÝBYGGING Verð kr. 67 m Herbergi 6 Stærð: 257,8 fm VINNINGASKRÁ 4. útdráttur 30. maí 2014 354 11422 19961 31531 40526 50486 61612 72925 780 11436 20068 31757 40689 50598 61613 72928 816 11564 20104 32758 40724 50918 61618 73444 902 11779 20472 32761 40951 51141 61739 73611 965 12115 20648 33086 41477 51716 61786 73671 1004 12248 20908 33612 43272 51838 62376 73840 1126 12680 21056 33788 43306 51961 62642 74820 1727 12806 22251 33803 43483 51979 62934 74989 1887 13057 22420 33914 43495 52445 63366 75268 2095 13258 22533 33935 43942 52504 63734 75650 3035 13615 23731 33982 44164 52562 64011 75814 3603 14062 24035 33988 44578 52962 64937 76096 3939 14390 24596 34012 44624 53745 65224 76150 4251 14497 24809 34038 45323 54351 65559 76210 4850 14604 25465 34252 45376 54554 65640 76276 5169 14950 25531 34332 45572 54998 65893 76746 5449 15272 26035 34565 45645 55159 66296 76875 5694 15450 26093 35115 45781 55458 66491 77337 7631 15595 26822 35350 45921 55506 66630 77704 7880 16133 27178 36081 46012 55545 66777 78106 8022 17093 27432 37434 46425 55617 67301 78318 8143 17191 27449 37854 46724 56187 67699 78466 8315 17781 27783 38079 47162 56304 67807 78649 8871 17794 28013 38669 47595 56450 67869 79267 9118 17872 28332 39420 47811 57217 68145 79333 9563 18173 28437 39425 47836 57743 68570 79757 10454 18240 28802 39553 47899 57812 68641 10627 18909 28857 39563 48465 58088 69830 10660 18926 30339 39840 49385 58145 70567 11001 19206 30392 40193 49391 59374 71563 11067 19582 31223 40341 49431 59760 72509 11146 19673 31343 40372 49575 61470 72627 132 9448 13634 24555 36907 45818 56058 71149 1313 9515 14863 25089 37100 47107 58882 71237 1413 9634 15436 25803 37697 48313 59484 71457 1880 10026 15669 27186 39914 48860 59692 72181 2209 10346 16640 27369 40056 49623 60435 73511 2630 10594 16662 27995 40086 51381 62812 74386 3764 10869 16786 29465 40559 51669 63935 74965 4273 10965 17844 30362 41860 51749 64656 79472 6310 11292 18341 30756 41947 52342 65258 79521 8030 11670 20046 31116 42924 52353 65494 8379 12450 23303 31961 43312 52499 65836 8408 12805 23397 36151 43353 52816 69694 9225 12999 23852 36768 44592 54887 70666 Næsti útdráttur fer fram 5. jún, 12.jún, 19.jún & 26.júní 2014 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 3913 9053 37210 53251 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 3772 9815 17335 31934 43433 58049 3819 10466 20233 37358 52883 58702 8556 11529 24571 38610 54087 58745 8875 17143 28307 40224 56579 75199 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 3.000.000 Kr. 6.000.000 (tvöfaldur) 4 5 9 2 8 Hverasvæðið Geysir fær úthlutað fimmtán milljónum króna úr Fram- kvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar og verndaraðgerða á ferðamannastöðum í sumar. Fjármun- unum er ætlað til framkvæmda á stíg- um og öryggisgrindverkum, að því er segir í frétt á vef iðnaðar- og við- skiptaráðuneytisins. Alls er úthlutað styrkjum upp á 380 milljónir króna til 88 verkefna um land allt sem talin eru brýn vegna vernd- unar eða öryggissjónarmiða og þola ekki bið. Úthlutað er fjörutíu milljónum króna til framkvæmda hjá Dettifossi, þar af eru fimm- tán milljónir ætl- aðar til fram- kvæmda á nýjum hundrað fermetra útsýnispalli við Dettifoss að vest- an og 25 milljónir til framkvæmda á nýjum 260 metra löngum göngupalli við Dettifoss að vestan. Þá er tuttugu og fimm milljónum króna úthlutað til byggingar útsýnispalls við Svartafoss og til lagfæringar á göngustígum og í aðgerðir til að hefta rof. 380 milljónum kr. úthlutað til ferðamannastaða Geysir í Haukadal. Háskólalest Háskóla Íslands býður til vísindaveislu í menningarhúsinu Bergi á Dalvík milli kl. 12 og 16 í dag, laugardaginn 31. maí. Veislan er ætluð öllum aldurshópum og ókeypis er inn á hana. Þetta er fjórða vorið sem Háskólalestin brun- ar um landið með fjölbreytta dag- skrá fyrir alla aldurshópa. Í ferðum lestarinnar er lögð er áhersla á lif- andi og litríka vísindamiðlun þar sem allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Í Bergi verða meðal annars sýni- tilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, ýmis tæki og tól, furðuspeglar, mælingar og alls kyns óvæntar uppgötvanir. Sprengigengið sýnir kl. 12:30 og 14:30 og sýningar verða í stjörnu- tjaldinu á 30 mínútna fresti. Heilmargt annað verður í boði fyrir gesti og gangandi. Háskólalest- in á Dalvík Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann í gær í sex ára óskilorðs- bundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á jólanótt inn á heimili barnsmóður sinnar og fyrrverandi unnustu, þar sem hann hélt henni í gíslingu klukkutímum saman og beitti hrottalegu og langvinnu ofbeldi. Hótaði maðurinn meðal annars að hann myndi myrða konuna, ef hún viðurkenndi ekki að hafa sofið hjá vini sínum, sem enginn fótur var fyrir. Gekk maðurinn í skrokk á kon- unni, hrækti í andlit hennar og þvingaði til samfara á meðan hann hélt hníf að hálsi hennar. Gekk svo á, þar til konan náði að sleppa út úr íbúð sinni klukkan sex um morgun- inn. Kom þá lögreglan til skjalanna, en að morgni jóladags barst henni tilkynning um heimilisófrið. Þegar lögreglan kom á vettvang var mað- urinn í fyrstu rólegur, en æstist svo og tók að hóta lögreglumönnum með hnífum, áður en hann náði í dóttur sína, og hótaði að lífláta hana með hnífi. Var sérsveit Ríkislögreglu- stjóra kölluð á vettvang og var mað- urinn á endanum yfirbugaður. Auk fangelsisdómsins er mannin- um gert að greiða konunni 3,5 millj- ón krónur í skaðabætur, og 500.000 krónur að auki til dóttur þeirra. Í dómi héraðsdóms segir að maðurinn eigi sér engar málsbætur. una@mbl.is, sgs@mbl.is Sex ára dómur fyr- ir hrottafengin brot Morgunblaðið/Ernir Héraðsdómur Maðurinn fékk sex ára dóm fyrir hrottafengið brot sitt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.