Morgunblaðið - 31.05.2014, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Brandur Gíslason
Skúðgarðyrkjumeistari
Sími 571 2000
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Að frumkvæði stjórnvalda hefur ver-
ið settur á fót vinnuhópur með
fulltrúum frá hagsmunasamtökum
viðskiptalífsins um endurskoðun
fjármagnshafta. Er markmiðið að
koma fram með tillögur um hvernig
megi gera breytingar á þeim lögum
og reglum sem gilda um fjármagns-
hreyfingar milli landa í því skyni að
draga úr efnahagslegri skaðsemi
haftanna gagnvart íslenskum fyrir-
tækjum og heimilum.
Bjarni Benediktsson, efnahags-
og fjármálaráðherra, segir í samtali
við Morgunblaðið að stofnun hópsins
sé í samræmi við tillögur ráðgjafa-
nefndar stjórnvalda um afnám hafta
sem taldi skynsamlegt að liðka fyrir
ýmsum smærri fjármagnshreyfing-
um og viðskiptum milli landa. „Slíkar
breytingar ættu ekki að hafa teljandi
áhrif á gjaldeyrisstöðu þjóðarbúsins.
Þær myndu hins vegar skipta veru-
legu máli fyrir starfsemi fyrirtækja,
ekki síst þeirra smærri, sem eru
mörg hver að bugast undir því reglu-
verki sem fylgir höftunum.“
Unnið með gjaldeyriseftirlitinu
Í tölvupósti sem vinnuhópurinn
sendi út fyrir skemmstu til fyrir-
tækja, sem Morgunblaðið hefur und-
ir höndum, eru þau beðin að taka
þátt í könnun um hvernig þau telji að
breyta megi fyrirkomulagi eða fram-
kvæmd haftanna til að draga úr
skaðsemi þeirra fyrir vöxt og rekst-
ur fyrirtækjanna.
Fram kemur í póstinum að hóp-
urinn vænti þess að niðurstaðan af
vinnu hópsins muni leiða til umbóta
sem bæti rekstrarskilyrði íslenskra
fyrirtækja sem starfa innan fjár-
magnshafta. „Áhersla verður lögð á
breytingar sem miða að því að er-
lendar fjárfestingar innlendra fyrir-
tækja geti átt sér stað með greiðari
hætti en nú er.“ Vinnuhópurinn mun
jafnframt kortleggja sértækari
hindranir sem fyrirtæki standa
frammi fyrir vegna haftanna, meðal
annars í tengslum við aðgengi að er-
lendu vinnuafli og fjármagni.
Stefnt er að því að hópurinn skili
frá sér tillögum síðar á þessu ári.
Björn Brynjúlfur Björnsson, hag-
fræðingur Viðskiptaráðs, og Ásdís
Kristjánsdóttir, forstöðumaður efna-
hagssviðs Samtaka atvinnulífsins,
skipa hópinn fyrir hagsmunasamtök
viðskiptalífsins. Mun hópurinn með-
al annars vinna að tillögunum í sam-
starfi við fjármálaráðuneytið og
gjaldeyriseftirlit Seðlabankans.
Forsvarsmenn íslenskra fyrir-
tækja hafa á undanförnum misser-
um ítrekað talað fyrir nauðsyn þess
að stigin verði skref í átt að afnámi
hafta enda fari skaðsemi þeirra sí-
fellt vaxandi – bæði í formi glataðra
viðskiptatækifæra og versnandi
samkeppnisstöðu þjóðarbúsins.
Vilja liðka fyrir erlendum fjár-
festingum íslenskra fyrirtækja
Stjórnvöld hafa sett á fót vinnuhóp með viðskiptalífinu um endurskoðun hafta
Ísland Fjármagnshöftin valda litlum fyrirtækjum sem eru í vexti oft miklum vandræðum.
Morgunblaðið/Ómar
Endurskoðun hafta
» Stjórnvöld hafa sett á fót
vinnuhóp með Viðskiptaráði og
Samtökum atvinnulífsins um
endurskoðun hafta.
» Markmiðið er að bæta
rekstrarskilyrði fyrirtækja inn-
an hafta.
» Áhersla á að breyta lögum
og reglum um gjaldeyrismál í
því skyni að auðvelda erlendar
fjárfestingar íslenskra fyrir-
tækja.
» Tillögur vinnuhópsins ættu
að líta dagsins ljós síðar á
þessu ári.
Þorsteinn Víg-
lundsson, fram-
kvæmdastjóri
SA, segir árang-
urinn af því að
semja um launa-
breytingar, sem
samrýmast stöð-
ugu verðlagi,
ekki láta á sér
standa. Í frétt á
heimasíðu SA
segir Þorsteinn að lofsverður ár-
angur hafi náðst á skömmum tíma.
„Síðastliðið haust kom í ljós að
ákveðnir hópar á almennum og op-
inberum vinnumarkaði höfðu eng-
an hug á þátttöku í þessu mik-
ilvæga verkefni við að auka
efnahagslegan stöðugleika.“
Hann varar við því sem kann að
gerast ef ASÍ krefst leiðréttinga á
grundvelli samninga BHM og KÍ.
Það myndi hrinda af stað „bylgju
víxlverkandi launahækkana, verð-
bólgu og gengislækkana.“
„Lofsverður
árangur“ náðst
Þorsteinn
Víglundsson.
Óvissa er um fjármögnun Fjármála-
eftirlitsins (FME) og er það einn
helsti óvissuþátturinn varðandi
árangur af umbótaverkefnum sem
ráðist hefur verið í og miða að því að
eftirlitið uppfylli alþjóðleg viðmið
um árangursríkt bankaeftirlit. Þetta
kom fram í ræðu Höllu Sigrúnar
Hjartardóttur, stjórnarformanns
FME, á nýliðnum ársfundi stofn-
unarinnar.
Má meðal annars rekja óvissu um
fjármögnun til þess að styrkveiting
til eftirlitsins í tengslum við aðild-
arumsókn Íslands að ESB var aftur-
kölluð. Í kjölfarið þurfti að hægja á
framkvæmd umbótaáætlunar og
draga úr starfsemi.
Þá hefur meirihluti fjárlaga-
nefndar Alþingis lagt til að eftirlits-
gjald fjármálafyrirtækja renni í rík-
issjóð og að FME verði sett á fjár-
lög. Fram til þessa hefur eftirlits-
gjaldið runnið beint til FME og
staðið undir rekstri stofnunarinnar.
Að mati stjónarformanns FME
myndi slík ráðstöfun draga verulega
úr sjálfstæði stofunarinnar og skapa
óvissu um fjárhagsramma hennar til
frambúðar. Því sé rétt að leggja slík
áform til hliðar.
Í ræðu sinni vék Sigrún Halla
einnig að lakari stöðu sparisjóða í
ljósi breytinga í umhverfi fjármála-
markaða, m.a. með nýrri tækni og
betri samgöngum. „Samkeppnis-
staða sparisjóða hefur því að mörgu
leyti versnað og er staða þeirra nú
afar viðkvæm og framtíð þeirra
óljós,“ sagði stjórnarformaður FME
í ræðu sinni á ársfundinum.
Morgunblaðið/Ómar
Ársfundur Halla Sigrún Hjartar-
dóttir, stjórnarformaður FME.
Fjármögn-
un FME
í óvissu
Setur umbóta-
verkefni í uppnám
Í ræðu á ársfundi Fjármálaeftirlits-
ins sl. miðvikudag vék fjármála-
ráðherra að því að í umræðu um
fjármagnshöft væri einkum rætt
um stöðu slitabúa bankanna og
möguleika þeirra til að greiða
kröfuhöfum erlendan gjaldeyri.
„Minna er gert úr möguleikum hins
almenna Íslendings til sérlausna –
heimilanna, fyrirtækjanna, lífeyr-
issjóðanna og allra hinna sem eru
fastir í þessum sömu höftum og
slitabúin,“ sagði Bjarni.
Taldi hann að þetta væri til
marks um að „kröfuhafahópum
hafi orðið nokkuð
ágengt í því að
telja fólki trú um,
að skjót og far-
sæl lausn fyrir
slitabúin gagnist
heildarhags-
munum okkar“.
Benti hann á að
fjölmiðlar „virð-
ast lítt uppteknir
af stöðunni fyrir íslenskan al-
menning ef vanhugsaðar und-
anþágur yrðu veittar erlendum
áhættufjárfestum“.
Kröfuhafahópum orðið ágengt
SEGIR MINNA GERT ÚR SÉRLAUSNUM FYRIR ÍSLENDINGA
Bjarni
Benediktsson