Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 25

Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 -Viðhaldsfríir gluggar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 30 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Teppi á stigaganginn nú er tækifærið ! Komum á staðinn með prufur og mælum, ykkur að kostnaðarlausu Eitt verð niðurkomið kr. 5.980 m2 Stjórnvöld í Kænugarði í Úkraínu greindu frá því í gær, að annað evr- ópskt eftirlitslið væri horfið í austur- hluta Úkraínu. Frá þessu var greint á sama tíma og Mykhailo Koval, starfandi varnarmálaráðherra Úkraínu, sagði í gærmorgun að úkraínska hernum miðaði vel í bar- áttunni við uppreisnarmenn hlið- holla Rússum í austurhluta landsins. Harðir bardagar hafa geisað und- anfarnar vikur í Slaviansk á milli stjórnarhermanna og aðskiln- aðarsinna. AFP-fréttastofan hefur eftir ráðherranum að hersveitum hans hafi tekist að uppræta alla and- spyrnu í suður- og vesturhluta Do- netsk-héraðs og norðanverðu Luh- ansk-héraði. Stöðvaðir við vegartálma Uppreisnarmenn, hliðhollir Rúss- um, höfnuðu með öllu fullyrðingum úkraínskra stjórnvalda, um að klofn- ingur væri kominn upp í liði þeirra, eftir að liðlega tugur uppreisnar- manna í Donetzk var settur af og fluttur af póstum sínum af uppreisn- armönnum sem sagðir eru koma frá Tjetsjníu og Norður-Kákasus. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) upplýsti um það í gær, að stofnuninni hefði ekki tekist að ná sambandi við fjóra eftirlits- menn sína og túlk þeirra síðan hóp- urinn var stöðvaður af hópi „vopn- aðra manna“ við vegartálma í austurhluta Lugansk. Jafnframt greindi stofnunin frá því að aðrir fjórir eftirlitsmenn, sem voru handteknir af uppreisnar- mönnum í grennd við Donetzk síð- astliðinn mánudag, hefðu enn ekki komið fram. Foringi uppreisnarmanna hlið- hollra Rússum í Slavyansk, sem hef- ur gefið sjálfum sér nafnbótina „borgarstjóri fólksins“ staðfesti að eftirlitslið ÖSE, sem hvarf á mánu- dag, væri í haldi uppreisnarmanna, vegna grunsemda þeirra um njósnir eftirlitsmannanna. Annar uppreisnarmaður, hlynntur Rússum, sagði í gær í yfirlýsingu til Interfax að eftirlitsmennirnir sem hurfu í gær, væru í haldi samtaka hans, Southeastern Front (Suð- austur-framlínunnar). Enn einn foringi uppreisnar- manna hafnaði alfarið ábyrgð þeirra á hvarfi eftirlitssveitanna. agnes@mbl.is Segja annað eftirlits- lið horfið í Úkraínu AFP Hörfa Uppreisnarmenn hliðhollir Rússum þurftu að hörfa úr ákveðnum stjórnarbyggingum í Donetsk í gær.  Rússneskir aðskilnaðarsinnar tvísaga um ábyrgðina Átök í austurhlutanum » Uppreisnarmenn í Lugansk og Donetsk hafa stjórnarbygg- ingar þar á sínu valdi. » Þeir hafa einhliða lýst yfir sjálfstæði og vilja fylgja for- dæmi Krímskaga og sameinast Rússlandi. » Petro Proshenko, starfandi forseti Úkraínu, hefur strengt þess heit að refsa þeim sem skutu niður MI-8 þyrlu úkra- ínska hersins í fyrradag. Formleg kosningabarátta með og á móti sjálfstæði Skotlands hófst í gær, fjórum mánuðum áður en sögu- leg þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálf- stæði eða ekki sjálfstæði á að fara fram, en dagsetningin fyrir atkvæða- greiðsluna hefur verið ákveðin 18. september næstkomandi. Samkvæmt frétt á fréttavef AFP í gær, sagði George Osborne, fjár- málaráðherra Bretlands, að meta mætti hið sameiginlega ríki Skot- lands og Bretlands sl. 300 ár til fjár fyrir hvern og einn Skota. Hann sagði að ár hvert hagnaðist hver ein- asti Skoti um 265 þúsund krónur (1,400 bresk pund) við það að vera áfram hluti af Bretlandi. Og yfirmenn fyrirtækja eins og B&O og Diageo, stærsta viskífram- leiðanda heims, vöruðu við því hversu neikvæð áhrif sjálfstæði Skotlands myndi hafa á viðskiptalífið þar. Aðgerðasinnar úr báðum röðum, hafa verið að slípa til mælskulist sína undanfarna daga, en hér eftir verður kosningabaráttan að lúta reglum yf- irstjórnar kjörnefndar, (Electoral Commission). Nefndin hefur m.a. sett báðum þá reglu að þeir mega ekki eyða meiru en sem svarar 1,5 milljónum punda hvor í kosninga- baráttuna, en það svarar til þess að „Já Skotland“ (Yes Scotland) má eyða 284 milljónum króna og „Betri sameinaðir“ (Better together) mega eyða sömu upphæð. Samkvæmt reglum kjörnefndar er framboðunum skylt að tilkynna öll framlög til kosningabaráttunnar sem eru umfram 7.500 pund, eða um 1,4 milljónir króna. agnes@mbl.is Kosningabarátta um sjálfstæði Skota  4 mánuðir í þjóðaratkvæðagreiðslu AFP Hlynntur Fjármálaráðherra Breta vill Skota áfram í Bretaveldi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.