Morgunblaðið - 31.05.2014, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 31.05.2014, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kjördagurer runn-inn upp og hann er jafnan nokkurt tilefni til að fagna. Ekki endilega úrslit- unum, um þau greinir menn á, en flestir geta í það minnsta fagnað því að fá tækifæri til að greiða atkvæði um hverjir skuli fara með sameiginleg mál næstu fjögur árin. Eins og sjá má þegar litið er yfir heimsbyggðina er þetta ekki sjálfsagt og þess vegna er við hæfi að sýna kosning- unni tilhlýðilega virðingu. Hin sameiginlegu mál sem áður eru nefnd gefa fullt til- efni til umræðu en þó verður almennt furðu lítið úr slíkri umræðu í kosningabaráttu, og hið sama á raunar við ut- an þess skamma tímabils. Þetta á við á sviði landsmála en ekki síður á sviði sveitar- stjórna, og raunar tvinnast þetta tvennt óhjákvæmilega saman. Í kosningabaráttu er nán- ast eingöngu rætt um hvernig fara skuli með þau sameiginlegu mál borg- aranna sem til meðferðar eru á alþingi og í sveit- arstjórnum, en minna eða ekki rætt um hver þessi sameiginlegu mál skuli vera. Grundvallarspurningar af þessu tagi ættu vitaskuld að fá rými í kosningabaráttu og í umræðum um stjórnmál al- mennt. Í kosningabarátt- unni sem nú er á enda í Reykjavík hefur til að mynda verið rætt um hús- næðismál og framboðin keppst við að koma fram með „lausnir“ á húsnæð- isvanda borgarbúa. Þessar lausnir eru allt frá þeirri sjálfsögðu leið að borgin tryggi nægt framboð lóða svo að fólk geti reist sér þak yfir höfuðið eða að verktak- ar geti keypt lóðir á viðráð- anlegu verði til að byggja íbúðir, yfir í að borgin tryggi mikið framboð leigu- íbúða á vegum borgarinnar eða jafnvel að borgin hefji bankastarfsemi. Auðvitað hlýtur það að vera mikið pólitískt grund- vallaratriði hvort borgin á að fara út í almenna færi- bandaframleiðslu leiguíbúða til að borgarbúar fái þak yf- ir höfuðið eða hvort slík starfsemi á að vera utan þess sem talist geta sameig- inleg verkefni. En þetta er sjaldnast rætt út frá slíkum grund- vallarforsendum heldur miklu fremur sem út- færsluatriði og lítið fundið að því að borgin gerist leigusali í stórum stíl og keppi með þeim hætti á al- mennum markaði í stað þess að sinna aðeins tilteknum þörfum á þessu sviði eins og verið hefur. Annað grundvallarmál sem einnig er rætt sem út- færslumál er hvernig borgin á að þróast. Borgaryfirvöld vinna margskonar skipulag fyrir borgina og í tengslum við það verður sáralítil um- ræða um að í raun snýst skipulagið – hvort sem það er kallað aðalskipulag, hverfaskipulag (sem látið var hverfa skyndilega þegar íbúar tóku því illa) eða eitt- hvað annað – um að knýja borgarbúa til að breyta háttum sínum. Borgarbúar, sem aðrir landsmenn, hafa hingað til valið bílinn sinn sem helsta samgöngu- mátann. Borgarfulltrúum, einkum en þó ekki eingöngu þeim sem eru í meirihluta, er á móti skapi að borg- arbúar ferðist jafn mikið á eigin bílum og þeir hafa val- ið að gera og vinna þess vegna að því hörðum hönd- um að knýja sem flesta til að leggja bílum sínum og ferðast um með opinberum samgöngutækjum eða reið- hjólum. Nú er ekkert að því að ferðast um með almennings- vögnum ef það hentar fólki og ekkert er heldur að því að hjóla. Það er hins vegar verulegt álitamál svo ekki sé meira sagt hvort það eigi að vera í verkahring borg- arfulltrúa að þvinga borg- arbúa til að láta af þeim ferðamáta sem þeim líkar best og taka þess í stað upp annan sem þeim þykir lak- ari. Með slíkum afskiptum af daglegu lífi fólks hljóta borgaryfirvöld að vera kom- in langt út fyrir verksvið sitt. Kosningabaráttan vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara í dag hefði án efa orðið innihaldsríkari ef meiri umræða hefði farið fram um grundvallaratriði og ef frambjóðendur hefðu tekist á um málin á þeim forsendum en ekki eingöngu rætt útfærslur. Lítið er rætt um þá auknu afskiptasemi sem birtist á sveit- arstjórnarstiginu um þessar mundir} Útfærslustjórnmálin E vrópa kaus og niðurstöðurnar vöktu gríðarlega athygli. Sigur- vegarinn er kannski ekki allra, en sú mikla andstaða sem við- komandi hefur mætt í röðum aft- urhaldsseggja vekur vonir um að Evrópa sé á réttri braut. Kosningarnar sem um ræðir eru að sjálfsögðu símakosningarnar samhliða Eurovision og sigurvegarinn er skeggjaður austurríkismaður, eins kaldhæðið og það nú er. Skömmu síðar var svo kosið til Evrópu- þingsins. Kosningaþátttaka var hrapaleg, ein- ungis 43% kjósenda innan ESB sá ástæðu til að mæta á kjörstað. Mest var hún í nágrenni við hjarta sambandsins. Í Brussel og Lúx- emborg gengu 90% að kjörborðinu, en aðeins 13% Slóvaka og 20% Tékka greiddu atkvæði. Hér í Austurríki var hún tæp 46%. Kosningarnar snerust að minna leyti um þá frambjóð- endur sem buðu sig fram til Evrópuþingsins og meira um stöðuna í landsmálum í hverju landi. Í Bæjaralandi voru meira að segja skilti sem lögðu áherslu á styrkari stoðir í því ríki, ekki Þýskalandi sem heild. Hinn almenni kjós- andi virðist ekki ná sambandi við þetta aukalag af stjórn- sýslu- og regluframleiðendum sem mynda Evrópusam- bandið. Eftir þriggja mánaða dvöl mína hér í sameinuðu evr- ópsku sjálfsstjórnarhéruðunum er deginum ljósara að sambandið lyktar hvorki af brennisteini né af heitu súkku- laði og er ekki með horn og klaufir eða hörpu og vængi eins margir telja. Það er bara eitt lag enn af stjórnmála- og embættismönnum, eitthvað sem Ísland þarfnast engan veginn. Í dag fara á hinn bóginn fram kosningar sem hafa vakið verðskuldaða athygli, enda standa sveitarstjórnarmál öllum Íslendingum nærri. Reykjavík hefur eðlilega verið mest í sviðsljósinu, enda kýs þriðjungur Íslendinga í borginni. Kjósendur skynja möguleika sína á að hafa raunveruleg áhrif á niðurstöðu kosn- inganna, enda búa flestir Íslendingar í örfárra kílómetra fjarlægð frá sínum sveitarstjóra. Gísli Marteinn Baldursson sagði í hlaðvarpi Kjarnans fyrir nokkru að það skipti dætur hans meira máli hvernig Reykjavík þróaðist á næstu áratugum heldur en hvort Ísland gengi í Evrópusambandið. Þessi ályktun borgar- fulltrúans ævarandi stendur í ágætu samhengi við áhuga(leysi) evrópskra kjósenda á því hvað fer fram á vettvangi Evrópusambandsins, en mikinn áhuga heims- byggðarinnar allrar á málefnum síns sveitarfélags og þjóðþings. Reykjavík þarf að ákveða hvort hún ætli að vera lítil borg eða stórt þorp. Sem stendur hallar hún sér óþægi- lega að síðari og síðri kostinum. Því til stuðnings má benda á að þar búa um 440 manns á hverjum ferkíló- metra. Hér í Vínarborg búa 4.000 manns á sama svæði, en samt eru græn svæði 50% borgarlandsins, og 0% þeirra eru innan marka flugvallar. Þetta er Gunnar D. Ólafsson sem skrifar frá Vínarborg. gunnardofri@mbl.is Gunnar Dofri Ólafsson Pistill Eitt lag enn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gangi spá Landsbankanseftir um þróun einka-neyslu á næstu árum máætla að einkaneysla á mann 2016 verði svipuð og hún var 2004, eða um 3,2 milljónir á hvern landsmann. Áætlað er í nýrri þjóðhags- og verðbólguspá hagfræðideildar Landsbankans að einkaneyslan auk- ist um 3,7% í ár, um 3,2% á næsta ári og um 3% árið 2016. Á sú aukning þátt í að hagfræðideildin spáir nú 5,5% hagvexti á næsta ári, töluvert umfram fyrri spá bankans í nóv- ember, um 2,3% hagvöxt. Segir í nýju þjóðhagsspánni að flestar vísbendingar séu á þá leið að vöxtur einkaneyslunnar á þessu ári „verði mun kröftugri en í fyrra“. Taldar eru meiri líkur fremur en minni á að leiðrétting íbúðalána örvi einkaneyslu og eru þau áhrif nú tekin með. Umfang aðgerðarinnar lá ekki fyrir við síðustu spá í fyrra- haust. Gangi spáin eftir verður einkaneyslan 1.055 milljarðar árið 2016, á verðlagi ársins 2013. Til samanburðar var hún tæplega 900 milljarðar árið 2009, á verðlagi ársins 2013, og 957 milljarðar í fyrra. 100 milljarða aukning Samkvæmt þessu verður einka- neyslan tæplega 100 milljörðum króna meiri 2016 en 2013 og hækkar einkaneysla á hvern Íslending því úr 2,975 milljónum í 3,2 milljónir. Það gerir um 880 þúsund krónur á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Mann- fjöldi 2016 miðast hér við miðspá Hagstofunnar um mannfjöldaþróun. Einkaneyslan varð mest þenslu- árið 2007, eða 3,73 milljónir á mann, og var því ríflega tveimur milljónum króna meiri á hverja fjögurra manna fjölskyldu en áætlað er að hún verði 2016. Er hér sem fyrr miðað við verðlag ársins 2013. Skal ítrekað að þetta er spá og getur margt haft áhrif á það hvort hún rætist, til hækkunar eða lækk- unar. Þá skal tekið fram að útreikn- ingar á einkaneyslu í krónum talið eru á ábyrgð blaðamanns. Spurður hvað gefi tilefni til þess að uppfæra hagvaxtarspána svona mikið á næsta ári segir Gústaf Stein- grímsson, sérfræðingur hjá Lands- bankanum, að nú sé gert ráð fyrir nokkuð meiri vexti í einkaneyslu og útflutningi en í nóvemberspá bank- ans, auk meiri fjárfestingar. Aukinn útflutningur skýrist af því að nú sé gert ráð fyrir meiri vexti í ferðaþjón- ustu en að breytingar í loðnuveiðum hafi einnig töluverð áhrif milli ár- anna 2014 og 2015. Í spá um 5,5% hagvöxt 2015 er þannig miðað við að loðnuveiðar verði eins og 2013. Verði veiðarnar hins vegar svipaðar og 2014 verður hagvöxtur 4,2%. Tvö ný stórverkefni Gústaf segir aðspurður að fyrir- hugaðar kísilverksmiðjur United Silicon í Helguvík annars vegar og PCC á Bakka hins vegar séu teknar með í áætlaðri atvinnuvegafjárfest- ingu. Hins vegar hafi ekki verið gert ráð fyrir 77 milljarða króna sólar- kísilverksmiðju á Grundartanga og 38 milljarða kísilverksmiðju Thorsil í Helguvík í spánni, enda hafi lítið ver- ið fastneglt með þau verkefni þegar spáin var unnin. Ef af þeim verður kemur sú fjárfesting til viðbótar spá Landsbankans. Stefnt er að því að uppbyggingu í báðum verkefnum ljúki á árinu 2017. Rætist hagspá Landsbankans að öðru leyti gæti hagvöxtur á næsta ári því orðið 6-7%. Fara áhrif þessara tveggja verkefna á hagvöxt næsta árs m.a. eftir því hvernig fjárfestingin dreifist yfir framkvæmdatímann. Einkaneyslan er að aukast hratt Þróun einkaneyslu 2000-2016 Á verðlagi ársins 2013 í milljónum króna með hliðsjón af spá Landsbankans* *Einkaneyslan 2014-2016 er áætluð út frá spá hagfræðideildar Landsbankans. Reiknað er út frá einkaneyslu árið 2013 á föstu verðlagi 2005, skv. tölum Hagstofunnar. Einkaneyslan á öllu tímabilinu, 2000-2016, er svo yfirfærð frá föstu verðlagi 2005 yfir á verðlag ársins 2013. Heimild: Hagstofa Íslands/Hagfræðideild Landsbankans. 1.150.000 1.100.000 1.050.000 1.000.000 950.000 900.000 850.000 800.000 750.000 700.000 2000 2016 2000 856.066 2007 1.148.396 2009 899.954 2016 1.055.323 2002 819.190 Yngvi Harðarson, fram- kvæmdastjóri Analytica, vann greiningu á áhrifum boðaðrar leiðréttingar íbúðalána á verð- bólgu, að beiðni stjórnvalda. Hann segir aðspurður að vegna kraftmeiri efnahagsbata en búist var við geti verðbólguáhrifin orð- ið meiri. Á móti komi að aukin verðmætasköpun styðji frekari hækkun raunverðs fasteigna. „Ef nýting afkastagetu er mik- ið betri en gert var ráð fyrir er hætt við því að verðlagsáhrifin verði eitthvað meiri. Ef það er lítil nýting á afkastagetu hafa fram- leiðendur tilhneigingu til þess að hækka verð lítið eða ekkert þegar eftirspurn eykst. Þegar mikil nýt- ing er á afkastagetu þurfa fram- leiðendur meiri verðhækkun til að auka framleiðsluna. Einnig mun aðflutt vinnuafl auka afkastagetu í atvinnulífinu samhliða því að halda aftur af verðbólgu. Atvinnu- leysi er enn mikið í Evrópu og virðist minnka hægt.“ Áhrifin e.t.v. vanmetin ÁHRIF LEIÐRÉTTINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.